Morgunblaðið - 26.06.2015, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 26.06.2015, Blaðsíða 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 2015 Smáauglýsingar 569 Sumarhús Glæsilegar sumarhúsalóðir til sölu við Ytri-Rangá í landi Leiru- bakka. Aðeins 100 km frá Reykjavík á góðum vegi. Kjarri vaxið land, veðursæld, ótrúlega falleg fjallasýn. Upplýsingar á www.fjallaland.is og í síma 893-5046. Sumarhús – Gestahús – Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Iðnaðarmenn FASTEIGNA- VIÐHALD Við þjónustum þig með lítil sem stór verk. Tímavinna eða tilboð. johann@jaidnadarmenn.is S. 544-4444/777-3600 www.jáiðnaðarmenn.is Íþróttir Verðlaunagripir - gjafavara- áletranir Bikarar, verðlaunapeningar, barm- merki, orður, póstkassaplötur, plötur á leiði, gæludýramerki - starfsgreina- styttur. Fannar, Smiðjuvegi 6, Rauð gata, Kópavogi , sími 5516488 Til sölu Rotþrær-vatnsgeymar- lindarbrunnar. Rotþrær og siturlagnir. Heildar lausnir - réttar lausnir. Heitir Pottar. Lífrænar skolphreinsistöðvar. Borgarplast.is, Mosfellsbæ, sími 561 2211 Óska eftir Staðgreiðum gull, demanta og úr Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex, Cartier, Patek Philippe o.fl. Hringdu núna og fáðu tilboð þér að kostnaðarlausu! www.kaupumgull.is Opið alla daga 11–18. Kringlan – 3. hæð (Hagkaupsmegin) Upplýsingar í síma 661 7000. Ýmislegt Íslenskar handsmíðaðar barnaskeiðar Silfur táknar velsæld og góða heilsu enda er silfur verðmætt og sótt- hreinsandi efni. Silfurborðbúnaður, skart og fl. ERNA, Skipholti 3, sími 552 0775, www.erna.is TILBOÐ - TILBOÐ - TILBOÐ 50% AFSLÁTTUR og jafnvel meira Til dæmis þessir: Teg. 226-19 Fisléttir sumarskór úr leðri. Stærðir: 36 - 40. Verð áður: 10.885. Tilboðsverð: 2.500.- Teg. 202-05 Þægilegir dömuskór úr leðri. Litir: svart /hvítt og brúnt/hvítt Stærðir: 36 - 40. Verð áður: 16.500.- Verð nú: 8.250.- Teg. 327-08 Mjúkir og þægilegir dömuskór úr leðri. Stærðir: 37 - 40. Verð áður: 15.885. Verð nú: 7.940.- Komdu og líttu á úrvalið hjá okkur! Sími 551 2070. Opið mán.-fös. 10–18, laugardaga 10–14. Góð þjónusta – fagleg ráðgjöf. Sendum um allt land www.mistyskor.is Erum einnig á Facebook.                  !!"#$           Vélar & tæki Everet bílalyftur Nokkrar eftir á lager, 4 t og 5 t gólffríar, 2 pósta bílalyftur, gæðavara á góðu verði. Sérpöntum allar gerðir af lyftum, sprautuklefum og alls kyns tækjum fyrir bílaverkstæði. Vélasala Holts www.holt1.is S. 4356662 8956662 Hjólhýsi Nýtt hjólhýsi á aðeins 2.490 þ. Niewiadow hjólhýsin hafa verið frábær og traustur ferðafélagi Íslendinga í áratugi. Frábært verð á nýjum hjólhýsum aðeins 2.490 þ. Skipti möguleg. Allt að 80% lán mögulegt. Rnr.126608. Erum með hjólhýsin á staðnum tilbúin til afhendingar. Til sýnis og sölu á Bílalíf bílasölu, s. 562-1717. Þjónustuauglýsingar 569 1100 Smiðjuvegur 11, sími 571 3770       Nú geta allir fengið iPad-áskrift Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/ ✝ Þórsteinn Arn-ar Rúnarsson fæddist á Akureyri 1. júní 1997. Hann lést á heimili sínu, Fellstúni 8 á Sauð- árkróki, þann 13. júní 2015. For- eldrar Þórsteins eru hjónin Rúnar Pálsson, f. 7. mars 1962 og Sigurlaug Ólöf Guðmunds- dóttir, f. 22. júní 1964. Systkini Þórsteins eru: Rúnar Björn Her- rea Þorkelsson, f. 8. maí 1982, unnusta hans er Anna Dóra Valsdóttir, f. 21. apríl 1979; Ágúst Natan, f. 18. ágúst 1996 og Erla Jó- hanna, f. 11. júní 2003. Þórsteinn ólst upp á Sauðárkróki, þar sem hann gekk í leikskóla og grunnskóla. Sl. tvö ár var hann nemi á starfsbraut við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. Útför hans fer fram frá Sauð- árkrókskirkju í dag, 26. júní 2015, kl. 14. Þórsteinn Arnar fæddist 1. júní 1997 á Akureyri. Hann bjó alla sína ævi á Sauðárkróki með foreldrum sínum og systkinum. Hann var nemi á starfsbraut í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. Hann var félagslyndur og glaðvær og alltaf stutt í brosið. Honum fannst gaman að ýmsu, t.d. ef eitthvað datt óvænt í gólfið eða hann náði að sparka ein- hverju um koll. Hann átti góða ævi framan af, uppáháldið hans var að fara á hestbak, í sund að sulla og fara í bað á hverju kvöldi. Honum fannst líka gott að borða og var mikill matmaður. Síðustu árin voru erfið, og reyndu mjög á vegna mikilla veikinda sem smám saman minnkuðu lífsgæði hans. Þórsteinn skilur eftir sig stórt skarð og verður sárt saknað af fjölskyldu sinni. En við getum huggað okkur við að nú er hann frjáls og ekki lengur fangi í eigin líkama. Nú getur hann hlaupið um með englunum á himnum. Rúnar og Sigurlaug. Elsku Þórsteinn okkar. Nú ertu farinn frá þessari jörð. Þú varst alltaf svo lífsglaður og brostir við öllum sem komu og töluðu við þig. Við, bekkurinn, fengum þann heiður að vera með þér í bekk og kynnast þínum ein- staka persónuleika. Lífsbarátta þín var aðdáunarverð og við lærðum mikið af þér. Síðustu ár hafa verið erfið en við vitum að nú getur þú skilið við hjólastólinn og gengið um frjáls. Þótt á móti blési var aldrei langt í brosið. Þú hafðir svo góða nærveru og út- geislun. Þegar við hugsum til þín koma margar minningar upp, eins og þegar við köstuðum til þín bolta, þá kom mikill hlátur og bros. Það er skrítið að hugsa til þess að annar bekkjarfélagi okkar sé farinn frá okkur. Við vonum að þið tvö sitjið hlið við hlið og hugs- ið hvort um annað. Guð geymi þig, elsku bekkjar- bróðir okkar og vinur. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. (Þórunn Sigurðardóttir) Fyrir hönd árgangs ’97 í Ár- skóla, Hekla Kolbrún Sæmundsdóttir. Það var glaðvær hópur ung- menna sem fyllti árgang 1997 í Ár- skóla. Í þeim hópi var Þórsteinn okkar. Í upphafi var ljóst að hon- um yrðu sköpuð önnur tækifæri í lífinu en flestra jafnaldra hans. Þórsteinn naut kennslu og þjálf- unar fagfólks í skólanum og tók framförum. Þrátt fyrir fötlun Þór- steins fylgdi hann bekkjarfélögum sínum þar sem hann hafði mögu- leika á. Þórstein var auðvelt að gleðja. Augu hans og fas sýndu oft einlæga og fölskvalausa gleði sem birtist til dæmis á bekkjarkvöld- um og í skólaferðalögum. Hann naut sannarlega samverustunda með skólafélögum sínum. Þeir sýndu honum væntumþykju og virðingu og lífsbarátta hans hafði áhrif á skoðanir þeirra og viðhorf til lífsins. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Fyrir hönd starfsfólks Árskóla vottum við umsjónarkennarar Þórsteins í 10. ÓSK foreldrum, systkinum og öðrum aðstandend- um samúð okkar. Minning Þór- steins er björt og falleg. Veri hann Guði falinn. Ólöf H. Hartmannsdóttir, Sigurlaug Kr. Konráðsdóttir, Kristbjörg Kemp. Þórsteinn Arnar Rúnarsson Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minning- argrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóð- ina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja við- hengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstand- endur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.