Morgunblaðið - 26.06.2015, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 26.06.2015, Blaðsíða 32
32 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 2015 Tónlistarmaðurinn Auðunn Lúth- ersson, sem kallar sig Himbrim, hefur hlotið inngöngu í tveggja vikna tónlistarakademíu í París, Red Bull Music Academy (RBMA), sem haldin verður í nóvember og mun á henni njóta leiðsagnar rísandi stjarna í tónlistarheiminum. 61 tón- listarmaður frá 37 löndum sækir akademíuna sem verður í lista- miðstöðinni í La Gaîté lyrique í mið- borg Parísar. Boðið verður upp á smiðjur, fyrirlestra og hljóðvers- tíma og munu tónlistarmennirnir einnig koma fram á nokkrum af flottustu tónleikastöðum Par- ísarborgar. Eins og nafnið gefur til kynna er akademían kostuð af orkudrykkjar- framleiðandanum Red Bull. Sem dæmi um þá þungavigtarmenn úr tónlistargeiranum sem taka þátt í akademíunni má nefna upp- tökustjórann Brian Eno sem hélt fyrirlestur þegar akademían var í New York árið 2013 og Erykuh Badu sama ár. Djass og raftónlist Auðunn er 22 ára, hefur verið í djassnámi í FÍH í mörg ár á gítar. Auðunn segist vita til þess að mjög flottir íslenskir tónlistarmenn hafi sótt um að taka þátt í RBMA. Hann hafi fylgst með akademíunni lengi úr fjarlægð og sé hæstánægður með að hafa komist í hana. „Ég hef gert mikið af raftónlist, sérstaklega electronica og rnb og er að vinna að minni fyrstu plötu undir nafninu Auður. Demóin sem ég sendi inn af þeirri plötu eru ástæðan fyrir því að ég komst inn í RBMA,“ segir Auðunn. Hann hafi líka sent inn demó af óútgefnu efni sem hann hefur gert með Emmsjé Gauta og fleirum. „Ég hef komið fram undir nafninu Himbrim og sett vídeó á Tekur þátt í Red Bull-akademíunni  Auðunn Lúthersson komst inn með upptökuprufum af væntanlegri plötu Tónlistarhátíðin Blue North Music Festival á Ólafsfirði verður haldin í dag og á morgun og sem endranær verður blústónlist í forgrunni. Há- tíðin er nú haldin í 16. skipti og fjórar hljómsveitir leika á henni í menningarhúsinu Tjarnarborg. Tónleikar hefjast kl. 21 bæði kvöld og fyrst á svið er BBK band, skipað Halldóri Bragasyni sem leik- ur á gítar og syngur, Sigurði Sig- urðssyni sem leikur á munnhörpu og syngur, Jóni Ólafssyni bassaleik- ara sem syngur einnig, Tryggva Höfner gítarleikara og Birgi Bald- urssyni trommuleikara. Næstir á svið verða Dagur Sig og Blúsband, skipað söngvaranum Degi Sig, Hirti Stephensen á gítar, trommaranum Magnúsi Erni Magnússyni og bassaleikaranum Steinþóri Guð- jónssyni. Á morgun ríður á vaðið hljómsveitin Gæðablóð en hana skipa gítarleikararnir Eðvarð Lár- usson og Magnús R. Einarsson, bassaleikarinn Tómas M. Tóm- asson, trymbillinn Jón Indriðason, Hallgrímur Guðsteinsson á slagverk og Kormákur Bragason sem leikur á gítar og syngur. Síðasta hljóm- sveit hátíðarinnar er South River Band en í því eru Helgi Þór Inga- son sem syngur og leikur á harm- onikku, Mattías Stefánsson sem leikur á fiðlu og gítar, Ólafur Bald- vin Sigurðsson sem leikur á man- dólín og syngur, Jón Kjartansson sem leikur á bassa, gítar og syngur, Grétar Ingi Grétarsson sem einnig leikur á bassa, gítar og syngur og gítarleikarinn og söngvarinn Kor- mákur Bragason. Morgunblaðið/Kristinn Blúsmaður Halldór Bragason blúsari leikur í kvöld á Ólafsfirði með BBK bandi. Hér sést hann með pappalíkneski af Muddy heitnum Waters. Blue North Music Festi- val hefst á Ólafsfirði Brothers, stutt- mynd Þórðar Pálssonar sem jafnframt var út- skriftarmynd hans í meist- aranámi í kvik- myndagerð við The National Film and Tele- vision School í Bretlandi, hlaut sunnudaginn sl. sérstaka við- urkenningu dómnefndar, Special Mention, á stuttmyndahátíðinni Palm Springs Shortfest í Kali- forníu, að því er fram kemur á vefn- um Klapptré. Hlaut viðurkenn- ingu í Kaliforníu Þórður Pálsson Ólafur Darri Ólafsson leikari mun sitja í aðal- dómnefnd kvik- myndahátíð- arinnar Karlovy Vary í Tékklandi sem haldin verð- ur 3.-11. júlí nk., að því er fram kemur á vef há- tíðarinnar. Ólafur Darri var árið 2013 valinn besti leikarinn á hátíðinni fyrir leik sinn í kvikmyndinni XL í leikstjórn Marteins Þórssonar. Kjartan Sveinsson tónlistarmaður sat í að- aldómnefnd hátíðarinnar í fyrra. Ólafur Darri í dóm- nefnd Karlovy Vary Ólafur Darri Ólafsson Entourage 12 Kvikmyndastjarnan Vincent Chase er snúin aftur ásamt Eric, Turtle, Johnny og fram- leiðandanum Ari Gold. Metacritic 38/100 IMDB 7,5/10 Sambíóin Álfabakka 15.20, 17.40, 20.00, 20.00, 22.30, 22.30, 22.40 Sambíóin Egilshöll 17.40, 20.00, 22.20 Sambíóin Kringlunni 20.00, 22.20 Sambíóin Akureyri 20.00, 22.30 Sambíóin Keflavík 20.00 She’s Funny That Way 12 Gleðikonuna Isabellu (Imo- gen Poots) dreymir um að gerast leikkona á Broadway. Metacritic 54/100 IMDB 6,3/10 Laugarásbíó 20.00 Smárabíó 22.40 Jurassic World 12 Á eyjunni Isla Nublar hefur nú verið opnaður nýr garður, Jurassic World.. Metacritic 59/100 IMDB 7,6/10 Laugarásbíó 20.00, 22.35 Sambíóin Álfabakka 17.20, 17.20, 20.00, 22.40 Sambíóin Egilshöll 17.20, 20.00, 22.35 Sambíóin Keflavík 22.20 Smárabíó 20.00, 22.10 Háskólabíó 21.00 Borgarbíó Akureyri 20.00, 22.20 Tomorrowland 12 Metacritic 60/100 IMDB 6,9/10 Sambíóin Álfabakka 17.20, 20.00 Sambíóin Akureyri 17.30 Spy 12 Susan Cooper í greiningar- deild CIA er í rauninni hug- myndasmiður hættulegustu verkefna stofnunarinnar. Morgunblaðið bbbmn Metacritic 84/100 IMDB 7,4/10 Laugarásbíó 22.00 Smárabíó 17.30, 20.00, 22.30 Mad Max: Fury Road 16 Eftir að heimurinn hefur gengið í gegnum mikla eyði- leggingu er hið mannlega ekki lengur mannlegt. Í þessu umhverfi býr Max, fá- máll og fáskiptinn bardaga- maður. Morgunblaðið bbbbn Metacritic 88/100 IMDB 9,3/10 Sambíóin Álfabakka 20.00, 22.40 Sambíóin Akureyri 22.30 San Andreas 12 Jarðskjálfti ríður yfir Kali- forníu og þarf þyrluflug- maðurinn Ray að bjarga dóttur sinni. Metacritic 43/100 IMDB 6,7/10 Sambíóin Álfabakka 20.00, 22.30 Sambíóin Egilshöll 22.10 Sambíóin Kringlunni 22.10 Sambíóin Akureyri 20.00 Hrútar 12 Bræðurnir Gummi og Kiddi hafa ekki talast við áratug- um saman. Morgunblaðið bbbbm Metacritic 83/100 IMDB 8,2/10 Laugarásbíó 16.00, 18.00 Smárabíó 15.30 Háskólabíó 17.30, 20.00, 22.10 Borgarbíó Akureyri 17.50 Bakk Tveir æskuvinir ákveða að bakka hringinn í kringum Ís- land til styrktar langveikum börnum. Bönnuð yngri en sjö ára. Morgunblaðið bbbbn Háskólabíó 18.00 Bíó Paradís 20.00 Loksins heim Metacritic 48/100 IMDB 6,7/10 Sambíóin Keflavík 17.50 Fúsi Bíó Paradís 18.00 1001 Grams Bíó Paradís 20.00, 22.00 Leviathan Bíó Paradís 17.00 Human Capital Bíó Paradís 18.00 The Arctic Fox- Still Surviving Bíó Paradís 20.00, 21.00 Blind Bíó Paradís 22.00 París norðursins Bíó Paradís 22.00 Upplýsingar og ábendingar sendist á netfangið bio@mbl.is Kvikmyndir bíóhúsanna Kjaftfori og hressi bangsinn Ted er snúinn aftur. Nú er hann nýbúinn að kvænast kærustu sinni Tammy-Lynn og gengur með þann draum að verða faðir. Laugarásbíó 17.00, 19.30, 22.00 Sambíóin Egilshöll 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Kringlunni 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Keflavík 20.00, 22.30 Smárabíó 17.15, 17.15, 20.00, 20.00, 22.30, 22.30 Háskólabíó 18.00, 21.00 Borgarbíó Akureyri 17.50, 20.00, 22.20 Ted 2 12 Tómas er ungur maður sem ákveður að elta ástina sína vestur á firði. Hann leggur framtíðarplön sín á hilluna og ræður sig í sumarvinnu hjá Golfklúbbi Bolungarvíkur. Morgunblaðið bbbmn Smárabíó 17.45, 20.00 Háskólabíó 17.30, 20.00, 22.15 Albatross 10 Eftir að ung stúlka flytur á nýtt heimili fara tilfinningar hennar í óreiðu þegar þær keppast um að stjórna huga hennar. Metacritic 91/100 IMDB 9,0/10 Laugarásbíó 17.00 Sambíóin Álfabakka 15.40, 15.40, 17.50, 17.50 Sambíóin Egilshöll 17.40, 20.00 Sambíóin Kringlunni 17.50, 17.50, 20.00 Sambíóin Akureyri 17.45 Sambíóin Keflavík 17.50 Smárabíó 15.20, 15.30, 17.45 Inside Out

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.