Morgunblaðið - 26.06.2015, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 26.06.2015, Blaðsíða 16
BAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Nú eru í gildi 637 atvinnuleyfi til handa leigubifreiðastjórum hérlendis. Leyfisveitingar eru á höndum Sam- göngustofu en þær byggjast á reglu- gerð sem innanríkisráðuneytið gefur út. Samkvæmt upplýsingum sem Morgunblaðið hefur undir höndum eru aðeins 32 konur í hópi núverandi leyfishafa, eða rétt um 5%. Í sömu gögnum kemur fram að mjög halli á konur við útgáfu leyfa til handa svo- kölluðum forfallabílstjórum sem heimild hafa til að leysa leyfishafa af að ströngum skilyrðum uppfylltum. Slík forfallaleyfi eru 1.235 talsins en af þeim eru aðeins 137 gefin út til kvenna. Þær telja því aðeins 11% þeirra sem heimild hafa til forfalla- aksturs leigubifreiða í landinu. Takmarkaður fjöldi Miklar skorður eru settar við út- gáfu atvinnuleyfa á þessu sviði en þær felast fyrst og fremst í því að með fyrrnefndri reglugerð eru sérstök takmörkunarsvæði tilgreind og þar má aðeins gefa út ákveðinn fjölda at- vinnuleyfa á hverjum tíma. Svæðin sem um ræðir eru þrjú og ná þau yfir þéttbýlustu svæði landsins. Fyrsta svæðið nær yfir allt höfuðborgar- svæðið ásamt Reykjanesbæ, Grinda- vík og Gerða- og Vatnsleysustrandar- hreppi og þar er hámarksfjöldi leyfa 560. Svæði tvö er skilgreint um Ak- ureyri og þar má aðeins gefa út 21 at- vinnuleyfi. Í Árborg, sem er þriðja svæðið, er hámarkstala leyfa átta. Aðstöðumunur og mismunun Á þeim svæðum þar sem fjöldi leyfa er takmarkaður er þeim úthlutað á grundvelli akstursreynslu. Leigubif- reiðastöðvar halda utan um skráningu akstursreynslu þeirra sem leysa leyfishafa af við akstur hverju sinni. Sævar Guðmundsson lögfræðingur bendir á að núverandi úthlutunarkerfi kunni að fela í sér óbeina og ólögmæta mismunun gagnvart ákveðnum hóp- um fólks. „Þeir sem vilja öðlast leyfi eru því háðir því að núverandi leyf- ishafar leyfi þeim að aka fyrir sig. Þetta getur falið í sér að erfiðara er fyrir ýmsa hópa að vinna sér inn öku- reynslu, t.d. konur eða jafnvel fólk af erlendum uppruna, sem hefur ekki sama tengslanet og innfæddir, og kann að mæta fordómum.“ Sævar segir að fyrirliggjandi tölur geti bent í þessa átt. „Sú staðreynd að einungis um 0,8% leyfishafa eru af erlendum uppruna bendir til þess að erfiðara sé fyrir fólk af erlendum uppruna að öðl- ast leyfi og það kann að benda til þess að það fyrirkomulag sem er við lýði feli í sér óbeina mismunun. Þá kann að vera ástæða til að skoða hvort fyr- irkomulagið feli í sér óbeina mismun- un gagnvart konum, en óbein mis- munun er bönnuð samkvæmt jafnréttislögum,“ segir Sævar. Fordæmi frá Írlandi Þá segir hann að Írar hafi í kring- um aldamótin tekið á þessari stöðu. „Það er dæmi þess frá Írlandi að dóm- stólar hafi komist að þeirri niðurstöðu að úthlutunarreglur feli í sér óbeina mismunun á grundvelli Evrópuréttar. Árið 2000 komst yfirréttur að þeirri niðurstöðu að úthlutunarreglur leigu- bifreiðaleyfa ívilnuðu írskum ríkis- borgurum með óbeinum hætti. Það dómsmál leiddi til þess að leigubif- reiðamarkaður þar í landi var að sumu leyti gefinn frjáls.“ Einsleitur hópur leyfishafa Morgunblaðið/Sverrir Leyfisskylda Afla þarf sérstakra réttinda til að mega aka leigubifreið.  Konur eru 5% leyfishafa til leiguaksturs og 0,8% eru af erlendu bergi brotin  Reglur kunna að fela í sér óbeina og ólögmæta mismunun að mati lögfræðings Leyfisveiting » Umsækjandi þarf að hafa stundað leiguakstur í að minnsta kosti eitt ár. » Leyfum er úthlutað á grund- velli akstursreynslu. » Öryrkjar sem hafa meðmæli Öryrkjabandalags Íslands og tryggingayfirlæknis um að leiguakstur henti þeim vel njóta sérstaks forgangs. 16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 2015 Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á býlishúsum sé nokkuð góð og að dýrustu húsin hafi verið að seljast að undanförnu. „Góð einbýlishús á Sel- tjarnarnesi, í Garðabæ og Vesturbæ seljast yfirleitt nokkuð hratt. Í síð- ustu viku seldist annars vegar hús á yfir 130 milljónir króna og hins veg- ar á tæpar 100 milljónir. Þessi hús fóru eins og skot.“ Margir að bjóða í þær minnstu Ingibjörg Þórðardóttir hjá Híbýli fasteignasölu og formaður Félags fasteignasala segir að það sé að greiðast úr þeirri flækju sem hafi myndast vegna verkfallsins. „Það er smám saman verið að saxa á þann bunka en það er auðvitað mjög langt í land að þetta verði komið í eðlilegt horf því að viðbótargögn safnast líka upp dag frá degi.“ Hún segir að töluverð hreyfing sé komin á fast- eignamarkaðinn bæði á minni og stærri eignum. „Það er mest eft- irspurn eftir minnstu íbúðunum. Ef góðar litlar íbúðir koma eru oft og iðulega margir að bjóða í slíkar eignir. Það er erfitt að komast í gegnum greiðslumat og fólk þarf því að byrja á að kaupa sér litla íbúð til að geta fikrað sig upp í stærri eignir eftir því sem fjölskyldan stækkar.“ Ingibjörg segir að alltaf sé viss kaupendahópur að stórum og dýr- um eignum. „Það er hreyfing á þeim eignum og töluvert framboð. En þeir sem eru að kaupa stór og dýr einbýlishús þurfa að hafa fjármagn í handraðanum og sterka greiðslu- getu. Í dag kaupir enginn fasteign nema eiga fyrir henni eða hafa getu til að greiða af lánum lánastofnana.“ Hún segir að þegar uppsveiflan hafi verið á sínum tíma hafi meira verið byggt af stærri eignum þannig að nú vanti í raun minni eignir og þær hafi hækkað eins og aðrar fasteignir á undanförnum misserum. margret@mbl.is Svo virðist sem fasteignamarkaður- inn sé að taka við sér aftur í kjölfar verkfallsloka þar sem þinglýsingar gátu hafist að nýju. Ólafur Blöndal hjá Fasteign.is segir gríðarlega eft- irspurn vera eftir minni íbúðum. „Tveggja herbergja íbúðir staldra ekkert við og það er nánast alveg sama hvar þær eru í bænum. Það er ekki lengur einungis póstnúmer 101 og 107 heldur er einnig eftirspurn eftir minni íbúðunum í Norð- lingaholtshverfi, Breiðholti og Vatnsendasvæði.“ Hann segir að ekki hafi verið byggt nægilega mik- ið af tveggja herbergja íbúðum á undanförnum árum en það sé að breytast núna með meira framboði. Ólafur segir að sala á dýrari ein- Fasteignamarkaðurinn að lifna við  Tveggja herbergja íbúðir renna út Morgunblaðið/Ómar Íbúðir Dregur úr áhrifum verkfalls. ● Fjármálafyrirtækið Fossar markaðir hefur fengið starfsleyfi sem verðbréfa- fyrirtæki. Samkvæmt tilkynningu á vef Fjármálaeftirlitsins hefur starfsleyfi Fossa verið endurútgefið með tilliti til viðbótarheimilda sem felast í fram- kvæmd fyrirmæla fyrir hönd viðskipta- vina og fjárfestingarráðgjöf. Fossar markaðir hóf starfsemi í apríl og er í meirihlutaeigu Sigurbjörns Þorkels- sonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra hjá Barclays í London, sem stofnaði fyrir- tækið ásamt nokkrum fyrrverandi starfs- mönnum Straums fjárfestingarbanka. Fossar fá starfsleyfi sem verðbréfafyrirtæki ● Gjaldþrotum fyrirtækja hefur fækkað um 9% undanfarna 12 mánuði saman- borið við 12 mánuði þar á undan, að því er fram kemur í vef Hagstofu Íslands. Alls voru 766 fyrirtæki tekin til gjald- þrotaskipta á tímabilinu. Nýskráningum einkahlutafélaga hefur á sama tíma fjölgað um 12% og hafa 2.165 ný félög verið skráð á síðustu 12 mánuðum. Færri gjaldþrot og fleiri nýskráningar fyrirtækja                                       !" "#!! !"$# !" $"  " #!" $## %&'() '*'    +,%-%*./ ,&*'0'12% 34*'1.4 !# !  !" " 5 !#$# 5""! $ !$ #$"" $ ! ""   !! "## !#"# !$ $5 ! # #55$ $  $$# ● Fjármálaráðgjöf Capacent stendur við gagnrýni sína um að fjárhagsupplýs- ingar Landfesta hefðu átt að fylgja með í skráningarlýsingu Eikar í apríl. Ekki sé fullnægjandi að þær hafi mátt finna í eldri lýsingu skuldabréfaflokks Land- festa frá í nóvember, eins og Arion banki bendi á. Í yfirlýsingu kemur fram að Capacent geri ekki ágreining um að lágmarkskröfur hafi verið uppfylltar en það hljóti að vera í hag bæði skráning- arfélagsins og hugsanlegra fjárfesta að upplýsingar um viðkomandi félag séu hvað fyllstar í sjálfri skráningarlýsing- unni. Mikilvægt sé að óháðir greining- araðilar leggi mat á félög á markaði og muni fjármálaráðgjöf Capacent eftir sem áður gera ríkar kröfur þegar kemur að upplýsingum um slík félög. Capacent stendur við gagnrýni á upplýsingar STUTTAR FRÉTTIR ... Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is Gámaleiga Er gámur lausnin fyrir þig? Við getum líka geymt gáminn fyrir þig 568 0100 stolpigamar.is HAFÐU SAMBAND Búslóðageymsla ❚ Árstíðabundinn lager ❚ Lager ❚ Sumar-/vetrarvörur Frystigeymsla ❚ Kæligeymsla ❚ Leiga til skemmri eða lengri tíma

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.