Morgunblaðið - 26.06.2015, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 2015
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Við erum á facebook
Bolir
8.990 kr.
36–48Str: 3 litir
Jónsmessuhappdrætti
Sjálfsbjargar
Nissan Leaf Visia rafbifreið frá BL ehf. að verðmæti kr.
3.990.000,-
19315
Sony 50“ 3D sjónvarp að verðmæti kr. 199.990,-
31 1540 3930 4791 7981
9522 10810 13379 13837 14815
15446 16060 20018 20035 20327
21033 23796 26951 27718 28830
Samsung S6 snjallsími að verðmæti kr. 114.900,-
533 3686 4722 8192 9569
9664 9674 12082 14335 14664
16248 18210 18673 19933 20718
24020 24829 24907 27944 29688
Gjafakort að verðmæti kr. 100.000,-
10 1815 2169 2628 3935
3978 4597 5250 6207 7119
8177 8668 9136 9183 10947
11682 11766 12362 13075 13646
15632 16368 16523 19400 20084
20580 20855 22089 23165 23758
24547 24654 24974 27929 29835
Handhafar vinningsmiða eru vinsamlega beðnir um að framvísa þeim á
skrifstofu Sjálfsbjargar lsf. að Hátúni 12, 3. hæð, Reykjavík, sími
550 0360.
Byrjað verður að greiða út vinninga þann 13. júlí 2015.
Vinningaskrá er einnig birt á heimasíðu samtakanna www.sjalfsbjorg.is.
Sjálfsbjörg landssamband fatlaðra
þakkar landsmönnum veittan stuðning.
Vinningar og vinningsnúmer
Dregið var 24. júní 2015
(B
irt
án
áb
yr
gð
ar
)
Laufey Rún Ketilsdóttir
laufey@mbl.is
Fötluð börn í Klettaskóla í Reykjavík
munu ekki hafa aðgang að sumar-
þjónustu á frístundaheimilunum
Guluhlíð, Öskju og Garði í tvær vikur
þetta sumarið.
Fulltrúar meirihluti borgarstjórn-
ar í skóla- og frístundaráði vísuðu frá
bókun sjálfstæðismanna á fundi ráðs-
ins í fyrradag, þess efnis að gerðar
yrðu ráðstafanir til þess að frístunda-
heimili fyrir fötluðu börnin yrðu opin í
sumar svo þau ættu inni á öruggum
stað innan um fólk sem þau þekktu.
Samþykkt var að skipa starfshóp
sem koma á með tillögur um hvernig
útfæra megi sumarþjónustu skóla- og
frístundasviðs, skammtímavistun á
vegum velferðarsviðs og fleiri aðila
sem þjónusta fötluð börn og ung-
menni.
Sama staða fyrir ári
„Við erum afar óánægð og teljum
þetta óviðunandi ástand. Þetta hjálp-
ar ekki börnunum í sumar og það geta
myndast alvarlegar aðstæður hjá
þeim börnum sem eru viðkvæm fyrir
breytingum og þurfa festu,“ segir
Þórir Jónsson Hraundal, fyrir hönd
foreldrafélags Klettaskóla. Hefði
hann viljað sjá meiri eldmóð hjá þeim
sem ráða á skóla- og frístundasviði að
taka af skarið til aðstoðar þessum fá-
menna hópi sem mesta þarf hjálpina.
„Það sýna allir stuðning í orði við
þennan málstað,“ segir hann en bætir
við að því þurfi að fylgja eftir með að-
gerðum og styðja málstaðinn líka á
borði.
Marta Guðjónsdóttir, fulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins í ráðinu, segist undr-
andi á að tillaga sjálfstæðismanna
hafi ekki verið samþykkt og send í
borgarráð til aukafjárveitingar, en
heimild er fyrir því, séu fjárhæðirnar
ekki verulegar. „Borgarráð ætti að
geta brugðist við og greitt úr þessu
máli með því að auka fjárveitingu til
verkefnisins,“ segir Marta, en ætla
má að þessi þjónustuaukning mundi
kosta a.m.k. þrjár milljónir á árs-
grundvelli.
Sambærileg staða kom upp fyrir
ári þegar ákall var gert til borgar-
stjórnar um að tryggja börnunum í
Klettaskóla vistun í frístund allt sum-
arið. Orðið var við því að litlu leyti þar
sem þrjú börn af 100 hlutu viðbótar-
þjónustuna. „Þau eru búin að hafa
heilt ár til að aðhafast í málinu en hafa
ekkert gert, t.d. var ekki gert ráð fyr-
ir þessu í fjárhagsáætlun borgarinnar
fyrir þetta ár,“ segir Marta.
Ná ekki að manna þjónustuna
„Þessar lokanir hafa verið við lýði
undanfarin ár,“ segir Skúli Helgason,
formaður skóla- og frístundaráðs
Reykjavíkurborgar. Þegar tillagan
kom fram í ráðinu 3. júní sl. fór fram
ítarleg athugun á stöðunni og hvort
hægt væri að koma til móts við börnin
í Klettaskóla.
„Það var svo niðurstaða skóla- og
frístundasvið að það væri útilokað að
manna þjónustuna með svo skömm-
um fyrirvara,“ segir hann og bætir við
að það sé óháð því hvort aukafjárveit-
ing hefði fengist fyrir viðbótaropnun-
inni. Rætt hafi verið við forstöðumenn
frístundaheimilanna og þeir ekki talið
sér fært að verða við þessu.
„Hópurinn mun skila tillögum í vet-
ur og við getum þá aukið þjónustuna
næsta sumar,“ segir Skúli.
Loka á frístund
fatlaðra barna
„Óviðunandi ástand“ Málið sett í nefnd
Morgunblaðið/Eggert
Lokað Frístund fyrir fötluð börn verður lokað í tvær vikur í sumar. Við
skóflustungu að stækkun Klettaskóla var borgarstjóri meðal viðstaddra.
„Það er allt óljóst um þinglok,“ sagði
Einar K. Guðfinnsson, forseti Al-
þingis, þegar blaðamaður spurði
hvort stutt væri í þinglok.
Á heimasíðu Alþingis nær dag-
skrá þingsins fram til þriðjudagsins
30. júní en Einar segir engar vís-
bendingar mega lesa út úr því, aðrar
en að þingið starfi að minnsta kosti
út þriðjudag.
Í dag eru nefndarfundir í tveimur
nefndum; efnahags- og við-
skiptanefnd annars vegar og at-
vinnuveganefnd hins vegar. Á mánu-
dag verður almennur þingfundur og
á þriðjudag er fundur í fjármála-
nefnd. Einar segir að nefndarfundir
þessir hafi verið ákveðnir með
nokkrum fyrirvara.
„Verið er að skapa rými fyrir þær
nefndir sem þurfa að vinna núna.
Efnahags- og viðskiptanefnd þarf til
að mynda að fjalla um gjaldeyris-
höftin og atvinnuveganefnd um
makrílfrumvarpið,“ bætir hann við.
Eins og kunnugt er hefur Alþingi
verið að störfum í um þrjár vikur
fram yfir áætlun en ekkert útlit er
fyrir þinglok. Er því eðlilega komin
nokkur þreyta í þingmenn.
brynja@mbl.is
Þingið komið þrjár vikur yfir
Enn óljóst hve-
nær þingið fer í frí
Morgunblaðið/Kristinn
Óvissa Forseti Alþingis getur ekki
fullyrt hvenær þinglok verða.
Leikhópurinn Lotta var meðal
þeirra sem skemmtu börnum, for-
eldrum og starfsfólki á Barnaspítala
Hringsins í gær á sumarhátíð gigt-
veikra barna. Skemmtu börnin sér
vel enda Litla gula hænan flutt á líf-
legan hátt. 10-14 börn greinast ár-
lega með gigt hér á landi. Sum þurfa
á mikilli lyfjagjöf að halda og sækja
því þjónustu til barnaspítalans.
Foreldrahópurinn hefur staðið
fyrir sumarhátíð í nokkur ár. Er öll-
um börnum sem liggja á spítalanum
boðið ásamt foreldrum og starfsfólki
spítalans og öllum gigtveikum börn-
um og foreldrum þeirra.
Morgunblaðið/Þórður
Skemmta sér á sumarhátíð
mbl.is
alltaf - allstaðar