Morgunblaðið - 26.06.2015, Page 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 2015
Árni Segir sárlega hafa vantað
lesefni fyrir drengi á grunn-
skólaaldri.
Laufey Rún Ketilsdóttir
laufey@mbl.is
Það var ekki að ástæðulaususem ég gaf mig í þýðingará þessum bókum,“ segirÁrni Árnason, kennari og
þýðandi bókanna Óvættaför eftir
Adam Blade. Segir hann sárlega
hafa vantað lesefni fyrir drengi á
grunnskólaaldri svo þeim sé gert
kleift að þjálfa lestrarhæfni sína.
Bækurnar þurfi að halda þeim við
efnið og freista þeirra.
Óvættaför er röð bóka sem
koma í seríum, þ.e. sex bækur í
hverri seríu sem segja frá för aðal-
persónunnar og átökum hennar við
óvætti á leið sinni. Í hverri seríu
kljáist aðalpersónan við nýjar ógnir
með ný markmið fyrir augum.
Bækurnar eru gefnar út af
Iðnú og kemur fyrsta bókin í fjórðu
seríu út í sumar.
Sýnilegt en óáþreifanlegt
Aðalsögupersónan, Tom, berst
hetjulega við hlið vinkonu sinnar,
Elenu, til að vernda ríkið fyrir alls
kyns ógnum. Tom var útvalinn til
þessa verkefnis, þar sem hann er
sonur helstu hetju ríkisins. Er hann
mikil skylmingahetja og berst með
sverði og skildi.
Sögurnar byggjast því á góð-
um og gildum dyggðum eins og
hugrekki, heiðarleika, dirfsku og
hjartahreinleika, ásamt sterkum
tengslum á milli sonar og föður.
Hindranirnar sem hann stend-
ur frammi fyrir miða einnig að því
að leysa föður hans úr haldi hins
óeiginlega, en hann er fastur í
ánauð á milli raunverulegs heims
og hins loftkennda. „Þetta er ekki
lítið verkefni fyrir ungan dreng,“
segir Árni en það megi finna marg-
ar hliðstæður úr sögunum við okkar
raunveruleika. Til dæmis séu ýmsir
þættir í umhverfinu sem smella vel
inn í íslenskar aðstæður. „Ýmislegt
sem tengist snjó, ís og öðrum hama-
gangi í náttúrunni sem við höfum
hér í allri sinni dýrð,“ segir hann.
Þá er sögusviðið og uppbygg-
ing óvættanna með svipuðum hætti
og sést í tölvu-
leikjum, sem marg-
ir ungir drengir
þekkja. „Í nýj-
ustu seríunni er
til dæmis að
finna óvætti
sem eru
að hálfu
leyti
raun-
veruleg-
ir og að hálfu leyti draugaóvættir
sem geta á augabragði breytt sér í
eitthvað sýnilegt en óáþreifanlegt.“
Órjúfanleg vináttubönd
Tom og Elena, sem hefur yfir
að ráða mikilli bogfimi, standa sam-
an í gegnum súrt og sætt en á milli
þeirra ríkir gagnkvæm virðing og
traust sem skín sterkt í gegnum all-
Óvættaför vörðuð
hugrekki og dirfsku
Bækurnar Óvættaför eftir Adam Blade hafa verið þýddar á íslensku af Árna
Árnasyni. Ráðist var í þýðingar bókanna þar sem þær eru taldar höfða sér-
staklega til ungra drengja. Aðalsöguhetjurnar eru Tom og Elena sem vinna sam-
an að því að vernda ríkið og bjarga föður Toms sem er fastur í ánauð. Standa þau
þétt hvort að baki annars og sigrast á hverri hindruninni á fætur annarri.
Morgunblaðið/Þórður Arnar
Systrasamlagið og Float efna til
fyrsta sveita-samflots sumarsins
sem haldið verður í gömlu lauginni á
Flúðum annað kvöld, laugardags-
kvöld, kl. 22. Allir bræður og systur
eru velkomin að fljóta með þeim til
móts við bjarta sumarnóttina. Gamla
laugin á Flúðum er einstök gersemi
og lifandi hverasvæðið umhverfis
laugina gefur henni töfrandi blæ.
Gamla laugin er líklega notalegasta
flotlaug landsins. Verð á viðburði
með leigu á flothettu og fótafloti
6.500 kr. en 5.000 kr. fyrir flothettu-
eigendur. Innifalið er aðgangur að
laug (flothetta og fótaflot), upphitun,
næringarríkur matarbiti og samþætt-
ing vinstra og hægra heilahvels.
Skráning og „aðgöngumiðar“ í
Systrasamlaginu við Seltjarnarnes-
laug í síma 511 6367 eða sendið skila-
boð á facebook.com/systrasamlagid.
Fólk skal koma sér á eigin vegum.
Vefsíðan www.facebook.com/systrasamlagid
Flot Þeir sem reynt hafa vita hversu dásamlegt er að fljóta í vatni með hettu.
Til móts við sumarnóttina
Hlutverkasetur er starfsendurhæfing
þar sem lagt er upp með að styrkja
og efla fólk til að komast aftur út á
vinnumarkaðinn, fara í nám eða auka
lífsgæði. Ein leiðin er að ýta undir
listræna hæfileika með markvissri
hvatningu og í dag kl. 16 verður opn-
uð sýning í Gerðubergi í Breiðholti
þar sem afrakstur slíks verkefnis
verður sýndur.
Listin getur haft ótrúlega jákvæð
áhrif á einstaklinga og hópa. Listin
styrkir, eflir og sameinar.
Yfirskrift myndlistarsýningarinnar
er Sönn ásjóna og þar eru fjölbreytt
myndverk eftir tuttugu og fjóra lista-
menn unnin í Hlutverkasetrinu. Við
opnunina flytur leiklistarhópur Hlut-
verkasetursins gjörning.
Andlitsmynd snýst frekar um að
segja satt heldur en að búa til sögu.
Listamenn þurfa að hafa djúpan
skilning á viðfangsefninu til að ná
fram sannleikanum á mynd og stund-
um þarf til þess margar tilraunir.
Myndverkin á sýningunni Sönn
ásjóna eru bæði hefðbundin málverk
unnin með olíu en einnig pastel-,
vatnslita- og klippimyndaverk. Sumar
ásjónurnar eru af gæludýrum, aðrar
af fólki og nokkrir sýnendur hafa haft
kjark til að gera sjálfsmyndir.
Myndlistarkennararnir Anna Hen-
riksdóttir og Svafa Björg Einarsdóttir
hafa leitt vinnustofurnar síðastliðin
fimm ár. Í ár fagnar Hlutverkasetur
10 ára afmæli og er sýningin því jafn-
framt afmælissýning setursins.
Andlitsmynd snýst um að segja satt
Gjörningur við
opnun í dag
Sönn ásjóna Hér má sjá eitt verkið.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Snertu ekki, talaðu aðeins ef á þig er
yrt og láttu þér ekki detta í hug að
taka sjálfu. Þessi ráð voru meðal
margra á fjögurra blaðsíðna leiðarvísi
frá breska sendiráðinu í Berlín til
handa þeim Þjóðverjum sem boðið var
í garðveislu í Berlín til heiðurs Elísa-
betu Englandsdrottningu og eigin-
manni hennar, Filip prins, í vikunni.
Hinir tignu gestir munu hafa látið
þá ósk uppi við skipuleggjendur heim-
sóknarinnar að þeir vildu gjarnan hitta
eins marga „venjulega“ þýska borgara
og mögulegt væri.
Sendiráðið brá á það ráð að efna til
samkeppni á Facebook til að gefa
nokkrum úr hópi alþýðunnar kost á að
Elísabet Englandsdrottning
og Filip prins í opinberri
heimsókn í Þýskalandi
Ekki snerta
drottninguna
og ekki
taka sjálfu
Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | Sími 511-2022 | www.dyrabaer.is
– fyrir dýrin þín
- góð næring fyrir dýrin þín -
Ekkert hveiti, soja eða maís
Engin erfðabreytt matvæliEngin aukaefni
Enginn sykur eða mjólkurafurðir
2.054.
- kr.
Verð fr
á
REGAL hunda- og kattafóður
AMH | Akranesi | Sími 431-2019