Morgunblaðið - 26.06.2015, Side 14
árið 1955. Á lóðinni hefur síðustu
daga verið að störfum Ármann Guð-
mundsson fornleifafræðingur við
annan Ármann og fundið ýmislegt
athyglisvert við gröft.
Ármann segir muni sem komið
hafi í ljós staðfesta þær hamfarir
sem þarna áttu sér stað. „Við fund-
um gler og fleira sem hafði alveg
bráðnað. Það gerist ekki nema við
um 1.900 gráðu hita, sem segir okk-
ur um hve gríðarlegt eldhaf var að
ræða,“ sagði Ármann í gær.
Þeir hafa einnig grafið skurð á
lóðinni Hafnarstræti 3, þar sem
elsta íbúðarhús bæjarins stóð. „Hér
er ægifögur hleðsla, sem gæti mögu-
lega verið veggur af húsi sem reist
var 1777 og er elsta íbúðarhús á
Akureyri,“ segði Ármann í gær. Það
er Fornleifafræðistofan sem vinnur
að uppgreftrinum á lóðunum í sam-
starfi við Minjasafnið á Akureyri.
Undir því sem nú hefur verið
grafið upp á lóðinni þar sem Hótel
Akureyri stóð segir Ármann
ÚR BÆJARLÍFINU
Skapti Hallgrímsson
Akureyri
Sumar sögur selur enginn dýrar en
þær voru keyptar. Ekki einu sinni
blaðamenn... Ein og ein er líka það
góð að hana verður að láta flakka,
hvort sem hún er nákvæmlega rétt
eða ekki.
Þegar dyrabjöllu var hringt á
Akureyri á dögunum fór húsráðandi
til dyra eins og vaninn er. Erlendur
maður stóð fyrir utan. „Góðan dag!
Ég vil kaupa húsið þitt. Ég skal
staðgreiða 100 milljónir fyrir það, en
þú verður þá að vera fluttur út eftir
mánuð. Þá kem ég nefnilega aftur...“
Sagan segir að útlendingurinn
hafi verið í fyrsta skipti í bænum en
hrifist svo af höfuðstað Norðurlands
að hann langað að eiga þar afdrep.
Húsráðandinn er sagður ætla
að flytja út innan mánaðar...
Enn um hús. Gamla apótekinu,
Aðalstræti 4, var í morgun lyft af
grunninum með stórum krana og
það flutt á Krókeyri. Húsið verður
geymt þar á meðan nýr kjallari verð-
ur steyptur á lóðinni. Að því loknu
verður það flutt á sinn gamla stað.
Verkefnið gekk eins og í sögu.
Aðeins tók fáeinar mínútur að lyfta
húsinu og koma fyrir á flutningabíl.
Áhugasemir geta skoðað myndband
á mbl.is af því þegar húsinu var lyft.
Húsið á sér merka sögu. Jóhann
Pétur Thorarensen, sonur Odds
Thorarensen Stefánssonar amt-
manns, lét byggja það 1859 og sá
Jón Chr. Stefánsson timburmeistari
um verkið. Húsið þótti eitt það
glæsilegasta í bænum. Minjavernd
vinnur að endurbyggingu hússins.
Þá að húsum sem einu sinni voru.
Á lóðinni Aðalstræti 12b stóð Hótel
Akureyri, sem brann til kaldra kola
hugsanlega eldri mannvirki. „Tím-
inn er að hlaupa frá okkur í sumar,
við verðum bara út þessa viku en
komum tvíefldir næsta sumar.“ Þeir
fengu styrk til verkefnisins og hann
leyfir ekki lengri viðveru.
Markmið rannsóknanna í sumar
var að finna „heilleg mannvistarlög
eða mannvirki og hvort tveggja hef-
ur tekist,“ segir Ármann og er því
mjög sáttur við árangurinn.
Meðal þess sem fannst á hótel-
lóðinni var tappi merktur ÁTVR.
„Fólki er tamt að við séum við alltaf
að fást við eitthvað rosalega gamalt
en fornleifafræðin þekkir engan
tíma per se; við erum að eiga við
efnismenninguna í víðum skilningi
og þá er þessi tappi mjög skemmti-
legur.“ Talið er fullvíst að maður á
kennderíi hafi óvart kveikt í hótel-
inu. Er þetta ef til vill tappi af flösku
sem hann saup af?!
Veitingastaðir spretta nú upp
við Ráðhústorg. Kung Fu Express
var reyndar áður í Brekkugötu 3 en
er nú með öðru sniði við Ráðhústorg
3 og í plássinu við Brekkugötu verð-
ur komið á fót steikhúsi; T Bone -
Steikhús mun það heita.
Við hlið Kung Fu Express, á
horni Skipagötu og Ráðhústorgs,
verður svo opnað ölhús eða vínbar,
þar sem stefnt er að því að bjóða upp
á mikið úrval öls. Þar verður líka
væntanlega mikið vískíúrval.
Jónas Sig og Ritvélar framtíðar-
innar eru með tónleika á Græna hatt-
inum í kvöld og á morgun tónleikar
til heiðurs The Clash. Þar eru á ferð
Heiðar Örn Kristjánsson (úr Botn-
leðju og Pollapönki), Baldur Ragn-
arsson (Skálmöld, Ljótu hálfvitunum
og Innvortis), Jakob Smári Magn-
ússon (Grafík, Das Kapital, John
Grant) og Jón Geir Jóhannsson (Am-
pop, Skálmöld).
Sautján ára píanóleikari, Alex-
ander Smári Kristjánsson Edelstein,
heldur tónleika í Hömrum í Hofi í
dag kl. 12. Hann hefur nú þegar getið
sér gott orð fyrir tónlistarhæfileika
sína og heillaði áheyrendur á Kirkju-
listaviku í Akureyrarkirkju í apríl.
Alexander hlaut árið 2012 fyrstu
verðlaun í keppni á vegum EPTA,
Evrópusambands píanókennara. Í
dag leikur hann verk eftir Bach,
Schubert, Chopin, Rachmaninoff og
Liszt. Miðaverð er 2.900 krónur en
félagsmenn Tónlistarfélagsins fá
miðann á 1.900 krónur.
Góðan dag, ég vil eignast húsið þitt!
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Gamla apótekið Húsið Aðalstræti 4 híft af grunninum í gærmorgun og fært yfir á flutningabíl.
ÁTVR Tappi af flösku sem drykkju-
maðurinn saup af; sá sem talið er að
hafi kveikt í Hótel Akureyri?
Elsta íbúðarhúsið? Ármann Guðmundsson
á lóðinni við Hafnarstræti 3 í Innbænum.
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 2015
Málsóknarfélag hluthafa í Lands-
bankanum hyggst stefna Björgólfi
Thor Björgólfssyni í sumar, en hlut-
hafarnir telja hann hafa með sak-
næmum hætti komið í veg fyrir að
þeir fengju upplýsingar um um-
fangsmiklar lánveitingar til sín auk
þess að hafa brotið gegn reglum um
yfirtöku.
Félagið blés til fundar í Háskól-
anum í Reykjavík síðdegis í gær, þar
sem Jóhannes Bjarni Björnsson, eig-
andi Landslaga og lögmaður mál-
sóknarfélagsins, kynnti málsatvik og
helstu gögn málsins. Benti Jóhannes
Bjarni mögulegum þátttakendum á
að elstu kröfurnar gætu fyrnst í
október næstkomandi. Fyrstu brotin
eru sögð hafa átt sér stað árið 2005
og þau fyrnast á tíu árum. Þar af
leiðandi brýndi hann fyrir fólki að
skrá sig í málsóknarfélagið á næstu
dögum og vikum.
Þá sagði hann að byggt væri á því
að Björgólfur ætti að bera áhættuna
af mögulegum afleiðingum á þeirri
ákvörðun hluthafa bankans að kaupa
hlutabréf í bankanum eða að halda
áður keyptum bréfum.
Sagði Jóhannes Bjarni að tilbúin
væru drög að stefnunni, stefnt væri
að því að hún yrði birt Björgólfi í
sumar og að um svokallaðar viður-
kenningarkröfur væri að ræða. Ber
þess að geta að ekki er hægt að
krefjast aðfarargerða á borð við fjár-
nám á grundvelli slíks dóms.
Í samtali við mbl.is í gær kvaðst
Jóhannes telja að fjármögnun mál-
sóknarinnar myndi takast en gaf
ekki upp hversu margir væru skráð-
ir í félagið.
Á fundinum spunnust umræður
um fyrningarfrestinn, þátttöku líf-
eyrissjóða í málsókninni og næstu
skref í málinu. sunnasaem@mbl.is
Elstu kröfurnar
fyrnast í október
Stefna hluthafa Landsbanka gegn
Björgólfi Thor líklega birt í sumar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hluthafar Fjölmennt var á kynn-
ingarfundi málsóknarfélagsins.