Morgunblaðið - 26.06.2015, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 2015
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Efasemdahefur gættum að allir
hafi setið við sama
borð í skulda-
uppgjörinu við ein-
staklinga og fyr-
irtæki í kjölfar þess að
bankarnir féllu árið 2008. Jón
Gunnarsson, þingmaður Sjálf-
stæðisflokks, hefur nú lagt fram
fyrirspurn til fjármála- og efna-
hagsráðherra um þessi uppgjör
við fjármálastofnanir sem voru í
eigu ríkisins á árunum 2009 til
2013. Lýtur fyrirspurnin að af-
skriftum skulda og jafnræði
skuldara við uppgjör.
Jón segir í samtali við Morg-
unblaðið í gær að hann beini
fyrirspurninni að fjármálafyr-
irtækjum sem ríkið eigi meiri-
hluta í, og þá fyrst og fremst
Landsbankanum, en kveðst
telja eðlilegt að allar fjár-
málastofnanir geri grein fyrir
því hvernig staðið var að mál-
um.
Hann kveðst jafnframt telja
að sterkar vísbendingar séu um
að jafnræðisregla hafi ekki ver-
ið í hávegum höfð í þessum fjár-
málagjörningum.
Jón segir erfitt að nefna
dæmi en bætir við að hluthafar
Atorku, sem var skráð á hluta-
bréfamarkað, hljóti að vera
hugsi yfir því hvernig gengið
hafi verið að félaginu. Atorka
hafi verið í skuldbindingum upp
á 50 milljarða króna þegar
bankarnir hrundu. Hluthafarnir
hafi tapað öllu sínu og kröfuhaf-
ar með Landsbankann í broddi
fylkingar hafi tekið yfir allar
eignirnar.
Fyrir nokkrum mánuðum
hafi verðmætasta
eign Atorku, Pro-
mens, verið seld úr
landi fyrir 62 millj-
arða króna, heilum
12 milljörðum
meira en heild-
arskuldir Atorku.
Þetta eru ekki einu efasemd-
irnar af þessum toga og hefur
Víglundur Þorsteinsson haldið
því fram að fyrirtæki hans, BM
Vallá, hafi ekki fengið sömu
meðferð og önnur fyrirtæki í
svipaðri stöðu og verið knúið í
gjaldþrot þrátt fyrir að lögð hafi
verið fram trúverðug áætlun
um endurreisn fyrirtækisins.
Jón Gunnarsson segir að mik-
il tortryggni ríki milli almenn-
ings og forráðamanna fyr-
irtækja vegna þess hvernig
staðið hafi verið að skulda-
uppgjöri á tímabilinu 2009 til
2013. Í hans huga er þessi tor-
tryggni „eitur í þjóðarsálinni“.
Fróðlegt verður að sjá hvern-
ig gengur að innheimta svör við
fyrirspurn Jóns. Guðlaugur Þór
Þórðarson, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins, lýsti því í grein
í Morgunblaðinu í gær hversu
treglega hefði gengið að fá svör
frá bönkunum við fyrirspurn
um stöðu gengislána innan
þeirra og þegar þau hefðu loks
borist hefðu þau verið rýr og lítt
upplýsandi. Guðlaugur Þór lýk-
ur grein sinni á að segja að „af-
staða bankanna einkennist af
hroka og virðingarleysi fyrir
hagsmunum almennings“.
Fall bankanna kostaði al-
menning sitt og endurreisn
þeirra sömuleiðis. Almenningur
á rétt á að fá að vita hvernig
kaupin gerast á eyrinni.
Efasemdir um jafn-
ræði í uppgjöri við
skuldara á árunum
2009 til 2013}
Bankarnir krafðir svars
Í skýrslu Ríkis-endurskoðunar
um fjárlög ársins
2014 kveður við
gamalkunnugt stef.
Þar er líkt og und-
anfarin ár hvatt til
þess að beitt verði viðurlögum
þegar forstöðumenn stofnana
fara fram úr fjárlögum.
„Ríkisendurskoðun hefur á
umliðnum árum margítrekað
hvatt ráðuneytin til að bregðast
við slíkri framúrkeyrslu í sam-
ræmi við lög og reglur,“ segir í
skýrslunni. „Sú viðleitni hefur
ekki skilað tilætluðum ár-
angri.“
Í reglugerð kveður á um að
grípa eigi til ráðstafana fari út-
gjöld meira en 4% fram úr áætl-
un. Í skýrslunni segir að sjald-
an sé hægt að færa réttmætar
ástæður fyrir því að fara fram
úr heimildum fjárlaga og fjár-
aukalaga. Reynslan sýni hins
vegar að stjórnendur treysti
sér iðulega ekki til að grípa til
aðgerða, sér-
staklega ef þær fel-
ist í uppsögnum.
Að auki gangi ráðu-
neyti ekki fast á
eftir því að stofn-
anir bæti sig.
Ráðuneyti svari því oft til að
verið sé að bæta úr málum en á
meðan haldi stofnanir áfram að
efna til útgjalda umfram heim-
ildir. „Á árinu 2014 eru nokkur
dæmi um fjárlagaliði þar sem
haldið var áfram að bæta við
uppsafnaðan halla fyrri ára,“
segir í skýrslunni. „Mikilvægt
er að afstýra því að stofnað sé
ítrekað til umframútgjalda með
þessum hætti og þurfa viðkom-
andi ráðuneyti að grípa til ráð-
stafana sem duga til að stöðva
slíkan hallarekstur.“
Ádrepa Ríkisendurskoðunar
glatar ekki gildi sínu þótt hún
sé árleg. Þeir sem fara með op-
inbert fé verða að hafa í huga að
skattpeningar vaxa ekki á
trjám frekar en aðrir peningar.
Ríkisendurskoðun
hvetur til aðgerða
þegar eytt er um-
fram áætlanir}
Hin árlega ádrepa
N
etið verður sífellt aðsópsmeira í
lífi okkar. Nokkur slög á lykla-
borði dýrka á augabragði fram
upplýsingar sem áður hefði
kostað tímafrekar rannsóknir
að finna. Netið hjálpar mér meira að segja við
leitina með því að ganga út frá þeim upplýs-
ingum sem ég notaði þegar ég leitaði síðast.
Þannig er hægt að tryggja að ég fái aðeins
upplýsingar sem ég kann að meta.
Ég get komið skilaboðum til allra vina
minna eins og hendi væri veifað. Ég get látið
allan heiminn vita hvað mér finnst um mosk-
una í Flórens, skuldaleiðréttinguna og tug-
þrautarmenn sem gerast konur, ef hann bara
nennti að lesa það. Ég verð hins vegar að búa
við að það gæti orðið erfitt að skipta um skoðun, vegna
þess að gömlu skoðanirnar verða víst alltaf til á netinu.
Netinu hefur verið hampað sem verkfæri til að opna
heiminn og greiða öllum aðgang að umræðu og upplýs-
ingum. Því hefur verið hampað sem mótefni við einræði.
Harðstjórar heimsins geti ekki lengur sópað óþægilegri
umræðu undir teppið.
En er netið harðstjóri? Rithöfundurinn Dave Eggers
sér netið fyrir sér sem alræðisvald framtíðarinnar í bók
sinni The Circle, eða Hringurinn, sem kom út fyrir
tveimur árum. Hringurinn er fyrirtæki sem minnir á
Apple og Google. Í heimi þess gilda þrjú kjörorð:
Leyndarmál eru lygar. Að deila er umhyggja. Einkalíf er
þjófnaður. Fyrirmyndin er augljóslega bókin 1984 eftir
George Orwell og slagorð Stóra bróður: Stríð
er friður. Frelsi er þrældómur. Fáfræði er
styrkur. Hjá Orwell er eftirlitið stöðugt. Í bók
Eggers ganga hin ráðandi öfl út frá því að
ekkert megi gerast nema allir viti af því. Út-
gangspunkturinn er sá að undir stöðugu eft-
irliti geri maðurinn ekki lengur neitt af sér.
Fræðimaðurinn og blaðamaðurinn Evgeny
Morosov hefur fjallað um pólitískar og fé-
lagslegar afleiðingar netsins. Hann hefur
ekki mikla trú á að netið efli lýðræði í
einræðisríkjum og telur að það nýtist einnig
til eftirlits með almenningi, pólitískrar kúg-
unar og útbreiðslu öfga og rétttrúnaðar.
Í bók sinni To Save Everything Click Here,
Smellið hér til að vista allt, veltir hann því fyr-
ir sér hvaða afleiðingar það hafi þegar hægt er að skrá
allt, telja og reikna saman, hvort sem það er mengun,
glæpir eða afstaða stjórnmálamanna, og spyr hvort við
getum verið frjáls án ógagnsæis.
Netið er sveipað slíkum dýrðarljóma þessa dagana að
ætla mætti að lífið hefði verið ömurlegt án þess. Reyndin
er þó sú að lífið gat verið skrambi gott áður en netið kom
til sögunnar og tilvist þess er ekki upphaf og endir alls.
Með þessum orðum er ekki verið að boða steinaldar-
hyggju eða setja fram kröfu um að slökkt verði á netinu
áður en siðmenningin hrynur. Bara minna á að netið er
ekkert annað en tæki rétt eins og hamar, sem hægt er að
nota til að smíða hús, eða berja mann í höfuðið. Það dreg-
ur ekkert úr ágæti hamarsins. kbl@mbl.is
Karl Blöndal
Pistill
Alræði netsins
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
FRÉTTASKÝRING
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Vel hefur gengið hjá yngstukynslóðinni að fá atvinnuá árunum eftir efnahags-hrunið og er langtíma-
atvinnuleysi fólks undir 25 ára aldri
lítið hér á landi í samanburði við
önnur Evrópulönd. Vel er þekkt er-
lendis á krepputímum þegar at-
vinnuleysishlutfall er hátt að til
verði svokölluð „týnd kynslóð“ ungs
fólks sem nær ekki að festa sig í
sessi á atvinnumarkaði. Slíkt ástand
kom upp í Finnlandi á 10. áratugn-
um og svipað ástand er víða í Suður-
Evrópu nú. Ástandið er einna verst
á Spáni þar sem atvinnuleysi hefur
verið nærri 50% hjá fólki undir 25
ára og nærri 25% á landsvísu.
Minna langtímaatvinnuleysi
Atvinnuleysi var 2,9% í maí-
mánuði á Íslandi og þar af hefur
tæpur helmingur verið án atvinnu
lengur en í sex mánuði og 22% í ár
eða lengur en það eru 1.219 manns.
Yngsti hópurinn, sem er 16-24 ára
samkvæmt skilgreiningu Vinnu-
málastofnunar, er 15,5% atvinnu-
lausra. Þegar horft er til langtíma-
atvinnuleysis er þessi aldurhópur
11,4% af öllum þeim sem hafa verið
atvinnulausir í sex mánuði eða leng-
ur og um 9% þeirra sem hafa verið
atvinnulausir í ár eða lengur en það
eru 109 einstaklingar.
Til samanburðar var 9% at-
vinnuleysi í apríl árið 2010 þegar
langtímaatvinnuleysi var mest eftir
efnahagshrunið. Á þeim tíma höfðu
56% atvinnulausra verið án atvinnu
í sex mánuði eða lengur og tæp 29%
höfðu verið atvinnulaus í ár eða
lengur en það eru 4.662 manns.
Langtímaatvinnulausir í yngsta ald-
urshópnum voru þá 14,8% af heild-
arfjölda þeirra sem höfðu verið án
atvinnu í sex mánuði eða lengur en
12,4% þeirra sem höfðu verið án at-
vinnu í ár eða lengur eða 518
manns.
Af tölum Vinnumálastofnunar
má sjá að langtímaatvinnuleysi ungs
fólks hefur minnkað ívið meira hlut-
fallslega en hjá öðrum aldurshópum
ólíkt því sem hefur gerst víða ann-
ars staðar þegar efnahagskreppa
sækir að. Í þessu samhengi má þó
nefna að margir þeirra sem voru án
atvinnu í kjölfar efnahagshrunsins
eru ekki lengur í hópi 16-24 ára í
dag.
Tryggvi Haraldsson, sérfræð-
ingur hjá Vinnumálastofnun, telur
að sértæk úrræði eins og átakið
Ungt fólk til athafna og Atvinnu-
torg, sem rekin voru á vegum stofn-
unarinnar, hafi skipt sköpum. „Það
er mín reynsla að mikil hjálp og
mikið aðhald með atvinnuleitendum
skili árangri. Það helgast af því að
hópur ungs fólks veit ekki hvernig
hann á að snúa sér í samkeppni um
störfin og fóta sig í fyrsta starfi,“
segir Tryggvi. Hann segir að Vinnu-
málastofnun hafi reynt að beina
sjónum sínum sérstaklega að þeim
sem voru á framfæri sveitarfélaga
þar sem fólk var ekki lengur með
bótarétt. „Það er enn einhver hópur
sem þarf á meiri aðstoð að halda í
formi starfsendurhæfingar eða ein-
hvers konar meðferð áður en þetta
fólk kemst út á vinnumarkaðinn,“
segir Tryggvi. Hann segir að ekki
sé þó hægt að tala um týnda kyn-
slóð á Íslandi. „Það kom vissulega
fram nokkuð stór hópur sem þurfti
á opinberri aðstoð að halda eftir
efnahagshrunið og þá getur það
gerst að ekki sé hægt að veita ein-
staklingsmiðaða þjónustu. Í slíkum
aðstæðum er hætta á að fólk veikist
og nái ekki að rífa sig upp úr því.
En um leið og þessi verkefni fóru af
stað þá náðum við að grípa inn í og
þjónusta afmarkaða hópa. Það tókst
vel og því ekki hægt að tala um
týnda kynslóð hér,“ segir Tryggvi.
Unga kynslóðin
týndist ekki á Íslandi
Morgunblaðið/Ómar
Vinnumálastofnun Vinnumarkaðsaðgerðir hafa skilað góðum árangri
þegar kemur að því að koma ungu fólki á atvinnumarkaðinn.
Tryggvi segir
að litið hafi
verið til
reynslu ann-
arra landa til
þess að takast
á við vanda-
málið. „Það
verður alltaf
hópur sem
þarf á ein-
staklingsaðstoð að halda. Þegar
við hættum með Atvinnutorgið
hafði minnkað mest í yngsta
aldurshópnum því við sinntum
honum mest,“ segir Tryggvi.
Hann segir reynsluna sýna að
virkar vinnumarkaðsaðgerðir
skili miklum árangri og ein-
staklingsmiðuð nálgun við at-
vinnuleitendur og atvinnu-
rekendur hafi gefist vel. „Í
sumum tilfellum fylgir starfs-
fólk stofnunarinnar fólki á
vinnustaði. Eins fær fólk hálf-
gerða einkaþjálfun í að sækja
um störf til að koma sér að á
vinnumarkaði ef það þarf á slíku
að halda.“
Fólk fær
einkaþjálfun
MEÐ FÓLKI Í VINNUNNI
Tryggvi
Haraldsson