Morgunblaðið - 26.06.2015, Síða 28
28 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 2015
Skipholt 50c • 105 Reykjavík • 582 6000 • www.computer.is
Síðan 1986
Tölvur og fylgihlutir
• Glæsileg bílamyndavél
með rúðufestingu
• Sjálfvirk upptaka í Full HD
1080P myndgæðum
• Hreyfiskynjari myndar allt
ferðalagið og vaktar bílinn
• Skynjar árekstur og
varðveitir upptökuna
• Innbyggður skjár til að
skoða upptöku á staðnum
TILBOÐ 11.900 kr.
12.995 kr.
König Full HD bílamyndavél
með hreyfiskynjara
Sendum hvert
á land sem er
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Ekki bíða eftir ánægju fullvissunnar
því þá verða engar ákvarðanir teknar í dag.
Láttu eldmóðinn ráða för og þú munt bera
af.
20. apríl - 20. maí
Naut Aðrir eru furðu lostnir vegna viðhorfa
þinna í dag. Stattu samt ávallt fast á þínu.
Endurtaktu fullyrðingar þínar oft og af mikilli
ákefð, ekki síst þegar ekkert virðist ætla að
ganga upp.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Ástarböndin hafa ekki slitnað, það
hefur bara teygst á þeim. Vertu óhrædd/ur
þótt einhverjum í kringum þig kunni að finn-
ast þetta óþarfa stælar.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Fólk opnar sig og tengist þér og þú
verður ríkari fyrir vikið. Ekki bíða eftir því að
afrekin hrannist upp heldur gerðu eitthvað í
málunum sjálf/ur.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þig langar stundum til að slaka á og
láta aðra um að vinna verkin fyrir þig. Hvað-
eina sem þér tekst að ljúka í dag mun veita
þér ánægju sem varir lengi.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Vertu ekki hrædd/ur við nýjungar
bara af því að þær hafa breytingar í för með
sér. Reyndu að sýna þolinmæði. Mundu að
dramb er falli næst.
23. sept. - 22. okt.
Vog Stundum fer ekki saman það sem mað-
ur helst vill og það sem manni er hollast.
Taktu vinum þínum vel því þeir eru bara að
endurgjalda þér hjálp sem þú veittir þeim.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Ekki hlusta á þá sem segja að
draumar þínir geti ekki ræst. Samstarfsfólk
þitt styður þig og leyfi yfirmanna er auðsótt.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú mátt eiga von á óvæntum
gestum þannig að vertu með eitthvað al-
mennilegt á boðstólum. Þú vilt skipuleggja
alla hluti sem er í góðu lagi ef þú reynir um
leið að vera sveigjanleg/ur þegar það á við.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Nú er kominn tími til að koma
hugmyndum þínum á framfæri. Treystu
innsæi þínu. Hafðu í huga að raunveruleg ást
á yfirleitt lítið skylt við það sem við sjáum í
kvikmyndum.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú ert óvenju uppreisnargjarn/
uppreisnargjörn í dag og ákveðin/n. Mundu
að gæði og magn fara ekki endilega saman.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þótt þig langi ekkert til þess kann svo
að fara að þú verðir að deila einhverju sér-
stöku með öðrum. Ekki gera of mikið úr því
þó að það komi upp spenna á heimilinu.
Páli Imsland þykir gaman aðleika sér að erfiðum rímorðum
á hásumardegi og velur ekki alltaf
auðveldustu leiðina. Hér fær limran
óvæntan endi:
Ef ríma vilt rétt móti salmíak
eru raunirnar þungar því almanak
er það næsta sem kemstu.
Eftir nauðleitir fremstu
því lýkur hér limru með dagatal.
Sigurlín Hermannsdóttir tekur
þátt í leiknum:
Valdimar átti að vin kind
það var bæði þessi og hin kind.
Þær brögðuðu bús
er hann bauð þeim í hús,
hann sýndi þeim svolitla linkind.
Á Boðnarmiði var Hallmundur
Kristinsson á svipuðum nótum –
undir öðrum hætti samt:
Héðan er svosem fátt eitt að frétta,
fyrir sko utan ný morð.
Og auðvitað þá atvikast þetta
af því mig vantar rímorð!
Kjaradeilur hjúkrunarfræðinga
hafa orðið vísnasmiðum yrkisefni.
Hjálmar Freysteinsson orti á mið-
vikudag:
Svona á að sætta menn,
setja á rétta skipan.
Koma að góðu gagni enn
gulrótin og svipan.
Og bætti við: „Þarna var nú trú-
lega meira svipan.“
Davíð Hjálmar Haraldsson
spurði: „Var það ekki gulrótin hjá
Bryndísi hestakonu og sáttasemj-
ara sem réði úrslitum?
Brosa hjúkkur, búið er að semja,
Bryndís kann að lempa hross og temja;
lítið ræðir lög og kjaradóma
en lagar vöffludeig og þeytir rjóma.“
Ármann Þorgrímsson var þung-
ur á brúnina:
Engum fannst kosturinn ágætur
öðrum en ríkissjóðs gæðingum.
Gamlar og trénaðar gulrætur
gáfu þeir hjúkrunarfræðingum.
Yrkingunum lauk með þessum
orðum Ólafs Stefánssonar:
„Eiga menn ekki að vera ánægðir
yfir því að samningar hafa tekist?
Íslenskt mannlíf verður að kontinu-
erast eða líða undir lok. Í fyrri daga
flúðu menn til Ameríku, nú til Nor-
egs. Það er þveröfug stefna sam-
kvæmt áttavitanum, en kemur út á
það sama. Uppgjöf.
Græði læknar mannleg mein
meðöl ekki spari,
þó að hjúkka ein og ein
utan til Noregs fari.“
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af rímorðum og hjúkkum
Í klípu
„JÁ, ÞÚ HEFUR RÉTT Á AÐ ÞEGJA - EN, MIÐAÐ
VIÐ HVAÐ ÞETTA KOSTAR MIG, ÞÁ VÆRI FÍNT
AÐ VITA HVAÐ ÞÉR FINNST.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„BYRJA? BYRJA HVAÐ? ÉG HÉLT ÞÚ HEFÐIR
SAGST HAFA RÁÐIÐ MIG TIL AÐ SJÁ UM
BÆKURNAR.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar þú ert
miðpunktur athygl-
innar.
NÆSTI! GELT! ÞESSI TJÁNINGARLÍNA
SPARAR TÍMA.
HVAÐ VILTU
Í KVÖLDMAT,
HRÓLFUR?
FRÁBÆRT VAL!HVAÐ MEÐ
FISK?
Við innritun á flugvöllum erlend-is er gjarnan spurt hvort
ferðamaðurinn hafi pakkað sjálfur
í töskuna eða töskurnar og Vík-
verji svarar alltaf hugsunarlaust
já, eins og eflaust flestir ef ekki
allir farþegar. En já getur komið
fólki í koll.
x x x
Frá því var greint í vetur að viðreglubundna skoðun á innrit-
uðum farangri á La Guardia-
flugvelli í New York hefði kjöltu-
rakki komið í ljós innan um fötin í
tösku einni. Þegar var hafist
handa við að hafa uppi á eiganda
töskunnar sem var jafnvel enn
meira hissa en starfsmennirnir,
þegar þeir sögðu henni frá mála-
vöxtum.
x x x
Konan sagði að hundurinn hlytiað hafa hreiðrað um sig innan
um farangurinn á meðan hún var
að pakka og hún ekki tekið eftir
rakkanum, þegar hún lokaði tösk-
unni. Málið fékk farsælan endi,
því konunni gafst ráðrúm til þess
að hringja í eiginmann sinn, sem
skaust út á flugvöll og náði í
hundinn. Í Keflavík er ekki alltaf
spurt fyrrnefndrar spurningar.
Fyrir skömmu var fjölskylda á
leið úr landi og sem hún beið eftir
að hleypt yrði um borð í vélina var
nafn eldri sonarins kallað upp.
Foreldrarnir vissu ekki hvaðan á
sig stóð veðrið en svöruðu kallinu.
x x x
Á Guðmundur þessa tösku?spurði eftirlitsmaðurinn og
þau svöruðu sem var að um væri
að ræða sameiginlega tösku fjöl-
skyldunnar, þó hún væri merkt
níu ára gömlu barninu. Hver á
þessa byssu? var næsta spurning.
Í ljós kom að drengurinn hafði
laumað gamalli leikfangabyssu í
töskuna án þess að foreldrarnir
tækju eftir því og þeim var ekki
skemmt, en eftir að gengið hafði
verið úr skugga um að um leik-
fang var að ræða var sjóræn-
ingjabyssan sett á sinn stað og
þau gátu haldið áfram för sinni.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Hann veitti sálum vorum lífið og lét
oss eigi verða valta á fótum.
(Sl. 66:9.)
Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/