Morgunblaðið - 26.06.2015, Blaðsíða 36
Alexander Smári Kristjánsson
Edelstein píanóleikari heldur tónleika
í Hömrum í Hofi á Akureyri í dag kl.
14. Þó að Alexander sé aðeins 17 ára
hefur hann þegar getið sér gott orð
fyrir tónlistarhæfileika sína og hélt
tónleika í apríl sl. á Kirkjulistaviku í
Akureyrarkirkju. Hann hlaut 1. verð-
laun í píanókeppni EPTA árið 2012,
sama ár viðurkenningu Nótunnar,
uppskeruhátíðar tónlistarskólanna í
Eldborgarsal Hörpu og í fyrrahaust
hlaut hann styrk úr Menningarsjóði
KEA fyrir ungt afreksfólk. Á tónleik-
unum í Hofi leikur Alexander verk
eftir Bach, Schubert, Chopin, Rach-
maninoff og Liszt. Tónlistarfélag
Akureyrar stendur fyrir tónleikunum
í samstarfi við Menningarfélag Akur-
eyrar.
17 ára píanóleikari
heldur tónleika í Hofi
FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 177. DAGUR ÁRSINS 2015
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 460 ÁSKRIFT 4995 HELGARÁSKRIFT 3120 PDF Á MBL.IS 4420 I-PAD ÁSKRIFT 4420
1. Synir Hófíar unnu í WOW cyclothon
2. Barn slasast alvarlega í körfurólu
3. Vann 162 milljónir
4. „Virkilega harðir andstæðingar“
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Tónleikar í spjalltónleikaröðinni Af
fingrum fram, sem Jón Ólafsson stýr-
ir, verða haldnir í félagsheimilinu
Stapa í Njarðvík 24. október nk., í til-
efni af 50 ára afmæli félagsheimilis-
ins sem var vígt 23. október 1965.
Jón fær til sín Keflvíkinginn Gunnar
Þórðarson, sem mun flytja sín þekkt-
ustu lög og rabba milli laga við Jón
um tónlistarferil sinn og lífshlaup.
Miðasala á tónleikana hefst í dag.
Morgunblaðið/Golli
Af fingrum fram í
fimmtugum Stapa
Á laugardag Austlæg átt, 8-13 m/s með suðurströndinni en ann-
ars 3-8. Skýjað með köflum en dálítil væta syðra og eystra. Hiti 14
til 21 stig norðan- og vestanlands en annars 8 til 13 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austlæg átt, víða 3-8 m/s. Yfirleitt bjart
með köflum. Fer að rigna syðst seinni partinn í dag. Hiti 8 til 20
stig, hlýjast norðan- og vestanlands.
VEÐUR
„Það er engin krísa hjá okk-
ur þó svo að þessi byrjun
hafi verið erfið andlega fyrir
hópinn. Þetta fer í reynslu-
bankann hjá strákunum en
nú reynir á mannskapinn að
þjappa sér saman,“ segir
Rúnar Páll Sigmundsson,
þjálfari Íslandsmeistara
Stjörnunnar. Titilvörn
meistaranna ætlar að reyn-
ast þeim erfið, en eftir níu
umferðir eru Stjörnumenn í
sjötta sæti deildarinnar. »1
Engin krísa hjá
meisturunum
„Það er engin ein leið sem hægt er að
segja að sé hin fullkomna leið. Maður
getur ekki sagt að Gylfi Þór Sigurðs-
son hafi tekið vit-
lausa ákvörðun að
fara 16 ára út.
Þetta er svaka-
lega persónu-
bundið og að-
stæðubundið
hvernig að-
staðan er hjá
félögunum úti
og annað
slíkt,“ segir Elf-
ar Árni Aðal-
steinsson, sem
skrifaði meistara-
ritgerð um leiðir
íslenskra knatt-
spyrnumanna í at-
vinnumennsku erlend-
is. »4
Engin leið er hin
fullkomna leið
Íslands- og bikarmeistarar Stjörn-
unnar eiga líklega fyrir höndum ein-
vígi við kýpversku meistarana Apoll-
on um sæti í 32ja liða úrslitum
Meistaradeildar kvenna í fótbolta.
Stjarnan leikur í undanriðli á Kýpur
og í honum eru einnig meistaralið
Færeyja og Möltu. Apollon hefur
komist áfram úr forkeppninni fimm
sinnum í röð. »2
Einvígi Stjörnunnar og
Kýpurmeistaranna?
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Laufey Rún Ketilsdóttir
laufey@mbl.is
„Ég hafði ekkert að gera eftir að
þjóðfélagið óskaði ekki lengur eftir
vinnukröftum mínum þegar ég varð
sjötugur,“ segir Friðrik Jónsson,
fyrrverandi skipstjóri og mynd-
listarmaður, sem byrjaði að mála á
gamals aldri, en hann verður 94 ára í
næsta mánuði. Hann heldur mál-
verkasýningu í listasalnum Anarkíu
í Kópavogi á morgun ásamt Hönnu
Pálsdóttur. Sýningin stendur til 19.
júlí næstkomandi og er opin öllum.
Skólagöngunni lokið
„Þetta byrjaði allt á barnsaldri
þegar ég teiknaði Gunnar á Hlíðar-
enda fyrir krakkana í bekknum,“
segir Friðrik en viðurkennir að það
hafi bara verið hálfgert krot.
En eftir heila vinnuævi sem skip-
stjóri lét hann vin sinn plata sig á
myndlistarnámskeið hjá Mynd-
listarskóla Kópavogs, kominn á átt-
ræðisaldur. Reyndist það hið mesta
gæfuspor og gaf lífinu gildi.
„Áhuginn var oft það mikill að
þegar maður kom úr tíma vildi
maður halda áfram heima,“ segir
Friðrik.
Hann sótti námskeiðin í hátt í
tuttugu ár með hléum og var á end-
anum gerður að heiðurslistamanni
skólans. „Skólastjórinn hringdi í
fyrrahaust og spurði hvort ég ætlaði
ekki að koma aftur. Ég var þá búinn
að selja bílinn minn og átti erfitt með
að komast en þau buðust þá bara til
að skutla mér á milli. „En nú er
skólagöngu minni þó lokið endan-
lega,“ segir Friðrik.
„Það sem ég segi stendur“
Mörg órjúfanleg vináttubönd hafa
myndast á tíma Friðriks í mynd-
listarskólanum, en þar eru margir
nemendur komnir á efri ár. „Ég er
þó alltaf aldursforsetinn hvar sem
ég kem,“ segir hann léttur í bragði.
„Ég hef alltaf lifað reglubundnu
lífi. Ég hef aldrei svikið neinn og það
sem ég segi stendur,“ segir Friðrik
um leyndarmálið að baki því að
verða 94 ára gamall og enn uppfullur
af fjöri. Viðurkennir þó að vera ekki
eins mannglöggur og áður.
Blik af hafi og perum
„Sýningin núna er samansafn af
myndum í gegnum tíðina, bæði
vatnslitamyndum og olíumyndum,“
segir Friðrik og eru þær jafnólíkar
og þær eru margar. „Ég mála ýmis-
legt, til dæmis af Flatey í Breiða-
firði, húsamyndir og nú undanfarið
hafa það verið perur,“ segir hann en
á þá bæði við perur til átu og ljósa-
perur. Sýningin ber því heitið Blik,
af bæði hafi og perunum.
Óbilandi áhugi á myndlistinni
Friðrik Jónsson
byrjaði að mála á
áttræðisaldri
Morgunblaðið/RAX
Blik Friðrik Jónsson heldur málverkasýningu í galleríinu Anarkíu dagana 27. júní til 19. júlí. Sýningin heitir Blik.
Var hann skipstjóri lengst af og hófst handa við myndlistina á sjötugsaldri hjá Myndlistarskóla Kópavogs.
Hanna Pálsdóttir myndlistarkona
opnar sýningu sína, Yl, með Frið-
riki í Anarkíu á laugardag.
„Eins og fyrr læðist gróður inn í
myndirnar mínar,“ segir Hanna,
sem rekur það aftur til æsku-
stöðva sinna, að lynggrónum,
kjarrivöxnum brekkum og lautum
þar sem hægt var að skríða í skjól
þegar vindar blésu. „Vindarnir
blása nefnilega víða og eru ekki
allir ættaðir frá Veðurstofunni.“
Halda sýningarnar saman
YLUR OG BLIK Í ANARKÍU
Hanna Pálsdóttir
og Friðrik Jónsson.