Fréttablaðið - 11.11.2015, Qupperneq 10
Slit sjóða í rekstri Stefnis
______________________
Stefni – Skuldabréfum stuttum og Stefni -
Ríkisverðbréfasjóði stuttum hefur verið slitið.
Miðast slit þeirra við 10. nóvember 2015.
Við slitin fengu hlutdeildarskírteinishafar
lokagreiðslu úr sjóðunum sem tekur mið af
eignarhlut þeirra.
Frekari upplýsingar er að nna á heimasíðu
Stefnis hf. – www.stefnir.is
11. nóvember 2015
Stefnir hf.
Sýning og málstofur um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis
í Reykjavík. Dagana 13. og 14. nóvember breytum við
Ráðhúsinu í suðupott upplýsingamiðlunar og umræðu
um húsnæðismál.
Uppbygging íbúðarhúsnæðis í Reykjavík.
Þúsundir íbúða eru á teikniborðinu. Hvar munu þær rísa?
Breyttar áherslur í húsnæðismálum.
Er verið að byggja í takt við breyttar áherslur almennings?
Áskoranir og lausnir.
Hvernig kemst ungt fólk í sitt fyrsta húsnæði?
Hvort er betra að eiga eða leigja?
Sýning og málstofur eru öllum opnar.
reykjavik.is/uppbygging
Nýjar íbúðir í Reykjavík
Bretland „Ég er að biðja leiðtoga
Evrópusambandsríkjanna um skýrt,
lagalega bindandi og óafturkræft sam-
komulag um að létta þeirri skyldu af
Bretlandi að þurfa að vinna að æ nán-
ara bandalagi,“ sagði David Cameron,
forsætisráðherra Bretlands, í ræðu
sinni í gær.
„Það mun þýða að aldrei verði
hægt að flækja Bretland inn í pólitískt
bandalag gegn vilja okkar, né draga
okkur inn í einhvers konar bandaríki
Evrópu.“
Cameron kynnti í ræðunni kröfur
sínar um breytingar á Evrópusam-
bandinu og ætlar að bera væntanlegan
samning um slíkar breytingar undir
bresku þjóðina í kosningum árið 2017.
Hann sendi einnig í gær bréf til
Donalds Tusk, forseta leiðtogaráðs
Evrópusambandsins, þar sem hann
útlistaði þessar sömu kröfur sínar um
breytingar á Evrópusambandinu.
Í kosningabaráttunni síðastliðið
vor boðaði Cameron þjóðaratkvæða-
greiðslu um útgöngu Bretlands úr Evr-
ópusambandinu, en að fyrst myndi
hann reyna að ná fram samningi um
breytingar sem Bretar gætu sætt sig
við.
Hann sagðist vonast til þess að
Bretar gætu samþykkt að vera áfram
Vill ekki aðild Breta að
bandaríkjum Evrópu
David Cameron kynnti í gær kröfur sínar um breytingar á Evrópusambandinu.
Hann segir samninga við ESB ekki óviðráðanlegt verkefni, en Bretar eigi svo að
taka afstöðu til útkomunnar. Fari Bretar úr ESB verði þeir ekki áfram í EES.
David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, kynnir samningskröfur sínar. FréttaBlaðið/EPa
í ESB að þessum breyttu forsendum.
Í ræðu sinni í sagði hann að þeir,
sem krefjast útgöngu Bretlands, ættu
að hugsa sinn gang vandlega því þessi
þjóðaratkvæðagreiðsla verði einungis
haldin einu sinni: „Ef við kjósum að
fara, þá förum við. Það verður hvorki
samið upp á nýtt né haldin önnur
þjóðaratkvæðagreiðsla.“
Þá sagði Cameron ljóst, að segi
Bretar sig úr ESB muni þeir ekki óska
eftir því að vera áfram á innri markaði
þess, Evrópska efnahagssvæðinu.
Hann tók Noreg sem dæmi um ríki,
sem rétt eins og Ísland stendur utan
Evrópusambandsins en er þó með
aðild að Evrópska efnahagssvæðinu,
innri markaðnum sem sagt.
Hann segir Noreg engu ráða um þær
reglur, sem settar eru um Evrópska
efnahagssvæðið, heldur verði ein-
faldlega að taka við þeim og fara eftir
þeim: „Þetta eru tíu þúsund reglur og
reglugerðir á síðustu 20 árum, eða
fimm fyrir hvern dag sem norska
þingið hefur komið saman,“ sagði
Cameron í ræðu sinni. „Þannig að
gráglettnin er sú, að ef við færum að
dæmi Noregs myndu pólitísk afskipti
Evrópusambandsins af landinu okkar
aukast, en ekki minnka.“
gudsteinn@frettabladid.is
4 markmið Camerons
1 Verja hinn sameiginlega innri markað Evrópusambandsríkj-
anna, þ.e. koma í veg fyrir að evru-
ríkin verði sérstakt markaðssvæði
sem ríki utan evrusvæðisins hafi
aðeins takmarkaðan aðgang að.
2 Leggja mikla áherslu á sam-keppnishæfni í öllum ríkjum
Evrópusambandsins, sem ekki
síst á að felast í því að draga úr
íþyngjandi reglum á fyrirtæki.
3 Bretland verði undanþegið ákvæði stofnsáttmála ESB
um „æ nánara bandalag“ aðildar-
ríkjanna. Þess í stað eigi að efla
áhrif þjóðþinga ESB-ríkjanna.
4 Bresk stjórn hafi fulla stjórn á straumi innflytjenda til lands-
ins, meðal annars með því að tak-
marka frelsi íbúa fátækari aðildar-
ríkja ESB til að flytja til Bretlands.
Einnig þurfi að takmarka réttindi
aðfluttra ríkisborgara annarra ESB-
ríkja til atvinnutengdra bóta og
skattafrádráttar.
dómsmál Tæplega fertugur brasil-
ískur ríkisborgari hefur verið
ákærður af ríkissaksóknara fyrir að
hafa staðið að innflutningi á tæplega
tveimur kílóum af kókaíni ætluðu
til sölu hér á landi. Maðurinn var
handtekinn við komu til landsins frá
Amsterdam í ágúst, þá með kókaínið
falið í farangri sínum.
Að því er segir í ákæru gegn
manninum er unnt að framleiða um
3,4 kíló af efni úr þeim 1,8 kílóum
af kókaíni sem fundust í farangri
mannsins, miðað við 29 prósenta
styrkleika. Líkt og Fréttablaðið
greindi frá fyrir stuttu, kostar gramm
af kókaíni nú um átján þúsund krón-
ur hér á landi sem gerir „götuverð“
efnisins sem maðurinn var með um
61 og hálfa milljón króna.
Mál verður höfðað gegn mannin-
um fyrir Héraðsdómi Reykjaness. – bá
Talinn hafa smyglað 2
kílóum af kóki til Íslands
3,4
kíló af kókaíni hefði mátt
vinna úr því efni sem mað-
urinn var með.
Héraðsdómur reykjaness
1 1 . n ó v e m B e r 2 0 1 5 m I Ð v I K U d a G U r10 f r é t t I r ∙ f r é t t a B l a Ð I Ð
1
2
-1
1
-2
0
1
5
1
5
:5
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
E
E
-4
7
1
4
1
6
E
E
-4
5
D
8
1
6
E
E
-4
4
9
C
1
6
E
E
-4
3
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
1
0
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K