Fréttablaðið - 11.11.2015, Side 18
Miðvikudagur 11. nóvember
Arion bAnki - Afkoma fyrstu níu mán-
uði ársins.
Fimmtudagur 12. nóvember
LánAmáL ríkisins - Útboð Ríkisvíxla.
ísLAndsbAnki - Afkoma fyrstu níu
mánuði ársins.
Föstudagur 13. nóvember
HAgstofA ísLAnds - Þjóðhagsspá á
vetri 2015.
HAgstofA ísLAnds - Fiskafli í október
2015.
Þriðjudagur 17. nóvember
HAgstofA ísLAnds - Samræmd vísitala
neysluverðs í október 2015.
Þjóðskrá ísLAnds - Vísitala íbúðaverðs
á höfuðborgarsvæðinu.
Miðvikudagur 18. nóvember
Þjóðskrá ísLAnds - Upplýsingar um
leiguverð íbúðarhúsnæðis
Fimmtudagur 19. nóvember
HAgstofA ísLAnds - VSK velta júlí og
ágúst 2014.
HAgstofA ísLAnds - Birtingaráætlun
2016.
Eimskip - Uppgjör þriðja ársfjórðungs
2015.
Skjóðan
Markaðurinn
ÚtgáfuféLAg 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000
Netfang rit stjorn@markadurinn.is | Sími 512 5000 | Fax 512 5301
Umsjón jón Hákon Halldórsson jonhakon@365.is
Ábyrgðarmaður kristín Þorsteinsdóttir l Forsíðumynd pjetur sigurðsson
Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@markadurinn.is Veffang visir.is
2,9 prósenta hagvöxtur
Efnahags- og framfarastofnunin,
OECD, hefur lækkað alþjóðlega
hagvaxtarspá sína fyrir árið 2015
niður í 2,9 prósent, vegna efnahags-
ástandsins í Kína og víðar. Upphaf-
lega spáði OECD 3,7 prósenta hag-
vexti árið 2015.
1,3 milljarða króna
hagnaður varð af rekstri Sjóvá-Al-
mennra trygginga á þriðja ársfjórðungi
ársins og um 2,7 milljarða hagnaður
varð á fyrstu níu mánuðum ársins. Á
fjórðungnum jók félagið mest við eign
sína í skráðum hlutabréfum og óverð-
tryggðum ríkisskuldabréfum.
dagatal viðskiptalífsinsÁ döfinniVikan sem leið
Í lok október voru nýskráningar bif-
reiða á árinu orðnar 13.508. Þetta er
vel yfir spá Bílabúðar Benna í byrj-
un árs um að hátt í 12.000 nýir fólks-
bílar myndu seljast á árinu. Þetta er
einnig mikil aukning frá því í fyrra
en þá seldust 10.611 bílar allt árið.
Viðsnúningur varð hjá flestum
bílasölum landsins árið 2014 meðal
annars hjá Brimborg, Heklu, BL,
Öskju, og Toyota og skiluðu þær
bílasölur sem Markaðurinn skoðaði
allar hagnaði á árinu. Mestur hagn-
aður varð hjá Toyota, en hann nam
510 milljónum króna. Mesta velta
var hins vegar hjá BL en hún nam
13,7 milljörðum króna. Minnsta
veltan var hjá Suzuki, en rekstrar-
tekjur samstæðunnar námu 1,9
milljarði króna á árinu, hagnaður
félagsins nam hins vegar 187,5
milljónum króna. Minnstur hagn-
aður var hjá Heklu en hann nam
3,9 milljónum króna. Hagnaður
sem hlutfall af veltu var hæstur hjá
Suzuki-samstæðunni, eða tólf pró-
sent, en lægstur hjá Heklu, eða 0,04
prósent.
Á árinu störfuðu flestir hjá Brim-
borg, en þar voru 170 stöðugildi en
fæstir hjá Suzuki, þar sem voru 22
stöðugildi. Margar bílasölur bættu
við sig starfsmönnum á árinu og má
þar nefna Öskju og Suzuki.
Ef bílasala helst svipuð það sem
eftir er árs og á haustmánuðum
má áætla að rúmlega 15 þúsund
nýskráningar muni eiga sér stað
á árinu. Það myndi jafngilda
nærri tvöföldun í bílasölu á tveimur
árum, en árið 2013 seldust aðeins
7.913 nýir bílar. saeunn@frettabladid.is
Bílasala keyrir langt
fram úr væntingum
Í byrjun árs var spáð hátt í 12 þúsund nýskráningum bíla á árinu, þær eru nú
orðnar yfir 13.500. Nýskráningar ársins gætu orðið tvöfalt fleiri en árið 2013.
Bílasala hefur aukist til muna á þessu ári. FréttaBlaðið/SteFán KarlSSon
Stöðugleikasamkomulagið
er spuni
fátt virðist nú geta komið í veg
fyrir að ríkisstjórnin gangi frá
samkomulagi við kröfuhafa gömlu
bankanna um stöðugleikaframlag
og hleypi þeim svo út úr hagkerfinu
með aðrar eignir. Málið er á hendi
ríkisstjórnarinnar og Alþingi hefur
ekki frekari aðkomu. Samkvæmt
kynningum Seðlabankans og fjár-
málaráðuneytisins skilar samkomu-
lagið 857 milljörðum í þjóðarbúið.
En HvErnig eru þessir 857 milljarð-
ar tilkomnir? Skoðum aðeins málið.
ríkið EndurHEimtir 81 milljarð
sem það lagði til bankanna eftir
hrun. Þetta er endurgreiðsla en ekki
framlag. Tíndir eru til bankaskattar
upp á 31 milljarð sem eru lagðir á
óháð stöðugleikasamkomulagi. Ekki
geta þeir talist stöðugleikaframlag
og því verður að draga 112 milljarða
frá pakkanum.
vArAsjóðir bAnkAnnA í gjald-
eyri upp á 57 milljarða eru taldir
til stöðugleikapakkans en í þeim
felst ekkert framlag þar sem sá
gjaldeyrisjöfnuður er hluti af
heildarverðmæti bankanna, sem
metnir eru annars staðar inn. Þá
eru lánalengingar kröfuhafa upp á
226 milljarða gagnvart nýju bönk-
unum taldar með sem stöðug-
leikaframlag. Ekki er verið að gefa
eftir nein lán og þau þarf að borga
eftir sem áður. Hér hverfa því 283
milljarðar.
ísLAndsbAnki, sem ríkið á að fá í
hendur, er metinn á fullu bók-
færðu verðmæti eigin fjár inn í
pakkann, eða á 185 milljarða.
Þetta er vel í lagt. Ekki virðist
tekið tillit til þess að ríkið á
þegar fimm prósent af bankanum.
Deutsche Bank er t.d. verðlagður
á rúmlega 60 prósent af bókfærðu
verðmæti eigin fjár. Sé Íslands-
banki metinn á 50 prósent er
verðmæti 95 prósenta hlutarins
88 milljarðar, eða 97 milljörðum
lægra en stöðugleikapakkinn
miðar við.
miðAð Er við að ríkið fái 104
milljarða út úr sölu á Arion banka.
Af því eru 20 milljarðar byggðir
á framtíðarvæntingum, sem ekki
eru í hendi. Framsal eigna og
lausafjár úr bönkunum skilar 75
milljörðum.
í kynningu er gert ráð fyrir að
stöðugleikapakkinn hafi jákvæð
áhrif á gjaldeyrisjöfnuð upp á
41 milljarð án þess að færð séu
sérstök rök fyrir því hvernig þau
áhrif verða til eða að þau verði
jákvæð en ekki neikvæð. Þá er gert
ráð fyrir hreinu fjárflæði upp á 28
milljarða auk þess sem fjársóps-
ákvæði á að skila 16 milljörðum.
Þarna eru því 85 milljarðar til við-
bótar í mikilli óvissu.
ÞAnnig virðist stöðugleika-
pakkinn skila á bilinu 260-345
milljörðum til ríkisins en ekki 857
eins og kynnt hefur verið. Þeir
peningar sem skila sér eru svo að
mestu eignir, sem á eftir að koma
í verð, en ekki reiðufé. Allt eru
þetta krónueignir og skeikar 5-600
milljörðum frá því sem var kynnt.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
7
59
39
0
9/
20
15
ER ÞITT
FYRIRTÆKI
Á FLUGI?
Regluleg ferðalög á vegum
fyrirtækisins eru oft nauðsynleg.
Það getur því borgað sig að gera
fyrirtækjasamning við Icelandair.
Allar markaðsupplýsingar
1 1 . n ó v E m b E r 2 0 1 5 m i ð v i k u d A g u r2 Markaðurinn
1
2
-1
1
-2
0
1
5
1
5
:5
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
E
E
-D
6
4
4
1
6
E
E
-D
5
0
8
1
6
E
E
-D
3
C
C
1
6
E
E
-D
2
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
8
s
_
1
0
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K