Fréttablaðið - 11.11.2015, Side 22
Vöxtur Icelandair Group hefur
verið mikill síðustu sex árin. Áður
en uppgjör fyrir þriðja fjórðung
var birt í lok október var EBITDA-
spáin hækkuð og er gert ráð fyrir að
EBITDA fyrir árið 2015 nemi 210-
215 milljónum dollara, eða 27 til
28 milljörðum króna. Hagnaður á
þriðja fjórðungi nam um 103 millj-
ónum dollara, eða rúmum 13 millj-
örðum króna sem er um tveimur
milljörðum meira en á sama tíma
í fyrra.
Það eru þó einungis örfá ár síðan
fyrirtækið gekk í gegnum erfiða
tíma. Björgólfur Jóhannsson, for-
stjóri félagsins, segir að á fyrri hluta
ársins 2008 hafi verið byrjað að
skera niður í starfseminni, í takt við
minnkandi umsvif á þeim tíma. Þá
voru gerðar skipulagsbreytingar og
Birkir Hólm Guðnason var ráðinn
framkvæmdastjóri Icelandair. „Frá
2009 fórum við að horfa til þess að
vaxa að nýju og nýta þau tækifæri
sem sköpuðust. Við höfum vaxið
í takti við það sem við höfum talið
skynsamlegt og lagt áherslu á arð-
bæran innri vöxt. Á sama tíma
settum við skýra arðgreiðslustefnu,
þegar félagið var endurskipulagt
fjárhagslega, sem lauk 2011,“ segir
Björgólfur. Icelandair Group sé
því vaxtarfyrirtæki og arðgreiðslu-
fyrirtæki í bland. Samkvæmt arð-
greiðslustefnu eru greidd 20 til 40
prósent af hagnaði ársins í arð, en
greiðslan hefur numið um þrjátíu
prósentum undanfarið. „Þú vilt allt-
af hafa fé til að byggja upp félagið.
Vöxtur sem við höfum verið að horfa
á undanfarin ár kostar peninga.
Miklar fjárfestingar, bæði í tækjum
og innviðum og ekki síst starfsfólki.“
Tækifæri til frekari vaxtar
„Ég sé veruleg tækifæri til vaxtar,“
segir Björgólfur. Ferðamanna-
straumurinn í heiminum sé heilt
yfir vaxandi. Þann vöxt hafi Ice-
landair sótt mikið í með tengi-
flugi milli Evrópu og Ameríku. Og
leiðakerfið er að vaxa. Áfangastað-
irnir verða 42 á næsta ári og meðal
annars verður flogið til Chicago og
Montreal sem eru nýir áfangastaðir.
Þar fyrir utan er vöxtur í ferðaþjón-
ustu á Íslandi. Björgólfur segir að
stefnumótun sem ráðherra ferða-
mála kynnti um daginn, á sama tíma
og Stjórnstöð ferðamála var kynnt,
bendi til að enn séu tækifæri til
vaxtar. „Við þurfum hins vegar sem
þjóð að skipuleggja okkur vel til þess
að sú aukning verði sjálfbær.“
Í byrjun árs 2008 var Icelandair
með 11 vélar í notkun og fóru þær
niður í átta þann veturinn. Það ár
var sex hundruð manns sagt upp
hjá félaginu og segir Björgólfur
það hafa verið mjög sársaukafullt.
„Strax á árinu 2009 fjölgum við svo
aftur. Síðan þá hefur vöxtur okkar
verið um tvær til þrjár vélar á ári,“
segir Björgólfur og bætir við að
starfsmenn séu núna tæplega 4.000
yfir háannatímann, eða um það
bil tvöfalt fleiri en þeir voru eftir
uppsagnirnar. Að sögn Björgólfs er
veltuaukningin á þessum tíma um
70 prósent í dollurum. Hann leggur
gríðarlega áherslu á að vöxtur fyrir-
tækisins sé starfsfólkinu að þakka,
þekkingu þess og reynslu. „Sú vísa
er aldrei of oft kveðin að það eru
einstaklingarnir sem hér vinna sem
skipta máli.“
Björgólfur telur að gengi krón-
unnar og kjarasamningar geti þó
sett stór strik í reikninginn. Hækkun
launa verði að vera í takti við fram-
leiðniaukninguna í landinu. „Ef
við förum umfram það þá mun
það koma niður einhvers staðar,“
segir Björgólfur. Það muni hafa
veruleg áhrif á samkeppnisgreinar
ef krónan styrkist verulega eins og
á árunum fyrir hrun. En það geti
líka komið niður á útflutnings-
greinunum ef fjárfestar komi inn
með mikið fjármagn í vaxtamunar-
viðskiptum. Það eitt og sér styrki
gengi krónunnar og dragi úr krafti
útflutningsgreinanna, þar á meðal
ferðaþjónustu.
Icelandair Group sagði upp 600 manns árið 2008. Strax árið eftir hófst viðspyrnan. Vélum Icelandair hefur
fjölgað um tvær á hverju ári, fjöldi starfsmanna tvöfaldast og velta hefur aukist um 70 prósent í dollurum.
Björgólfur Jóhannsson segir að veltuaukning Icelandair Group undanfarin ár nemi 70 prósentum. FréTTaBlaðIð/STeFán
Jón Hákon
Halldórsson
jonhakon@frettabladid.is
tvöfalt fleiri en á hrunárinu
Starfsmenn Icelandair
1 1 . n ó v e m b e r 2 0 1 5 m I Ð v I K U D A G U r6 markaðurinn
1
2
-1
1
-2
0
1
5
1
5
:5
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
E
E
-7
3
8
4
1
6
E
E
-7
2
4
8
1
6
E
E
-7
1
0
C
1
6
E
E
-6
F
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
1
0
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K