Fréttablaðið - 11.11.2015, Side 24
Fólk| ferðir
fólk er kynningarblað sem býður auglýs-
endum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala
og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið
ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429
Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Vinsælt er að fjölskyldur ferðist saman til Tenerife um jól og áramót. Þeir sem
ferðast með börn og unglinga til
Tenerife verða að heimsækja Siam
Park. Ótrúlega margt er þar í boði
fyrir allan aldur svo best er að nota
allan daginn. Garðurinn er ævin-
týri líkastur og auðveldlega hægt
að auka adrenalínflæði líkamans
þegar sumar brautirnar eru próf-
aðar. Síðan er hægt að fara í letilega
siglingu á gúmmíhring í gegnum
garðinn eða prófa „strönd“ með
mikilfenglegum öldum sem láta sjá
sig með hléum.
Litlar rennibrautir og stærri eru
í boði sem henta fyrir litlu börnin
og síðan þau eldri. Sumir kalla
garðinn konungsríki slíkra garða
en hann var opnaður árið 2008 og
þykir sá flottasti í Evrópu. Hann er
á vinsælum ferðamannastað þar
sem mætast Ameríska ströndin
og Adeje-ströndin. Boðið er upp á
strætóferðir frá sumum hótelum í
garðinn.
ÆVintýraland
Í Siam Park er hægt að halda upp á
afmæli með glæsibrag sé það pant-
að fyrirfram og stundum eru í gangi
glæsilegir tónleikar þar. Þá er í boði
námskeið á brimbretti bæði fyrir
börn og fullorðna. Siam Park til-
heyrir Loro Parque-hópnum sem er
þekktur fyrir að gera miklar kröfur
til öryggis og gæða. Garðurinn er
vel búinn tækjum, hann er fallega
hannaður með miklum gróðri og er
þegar orðinn ein af perlum Tenerife
fyrir ferðamenn. Forstjóri garðsins,
Christoph Kiessling, segir að Siam
Park sé meira en vatnsrennibrauta-
garður. „Við erum eins og ævin-
týri í Indiana Jones bíómynd. Hér
getur fólk átt æðislegan dag, hlegið,
öskrað og skemmt sér í fullkom-
lega öruggu umhverfi. Um 7.500
gestir koma dag hvern í garðinn.
Þegar gengið er í gegnum garðinn
fær maður hugljómun eins og í
frumskógi. Það gerir umhverfið svo
spennandi. Alltaf eitthvað nýtt og
spennandi sem ber fyrir augu.“
kreppubarn
Kiessling segir að garðurinn sé
kreppubarn. Hann var opnaður
um svipað leyti og efnahagshrunið
varð. „Þegar byrjað var að byggja
garðinn var kreppan þó ekki fyrir-
sjáanleg. Það hefur verið mikil og
góð reynsla að ná að halda öllu
gangandi þrátt fyrir erfiða tíma. Við
fáum ferðamenn frá öllum heimin-
um og erum því ekki háð spænska
hagkerfinu.“
Siam Park er í stöðugri þróun og
í áframhaldandi uppbyggingu. Það
er vel þess virði að eyða deginum
þar. Við hlið garðsins er Siam Mall,
nútímaleg verslunarmiðstöð með
vinsælum verslunum, H&M, Zöru
og Mango auk stærðarinnar mat-
vöruverslunar og veitingastaða.
Opið er langt fram á kvöld svo ekk-
ert er því til fyrirstöðu að koma þar
við eftir dag í Siam Park hafi fólk
enn orku. n elin@365.is
einn af tíu bestu
Vatnsgörðunum
ÆVintýri Siam Park, vatnsskemmtigarðurinn á Tenerife, þykir einn af tíu
flottustu görðum í heimi samkvæmt CNN. Stærsta brautin er 27 metra há og
þeir sem þora að renna sér þá leið fara í gegnum rör þar sem hákarlar synda
umhverfis. Garðurinn er 185 þúsund fermetrar, byggður í taílenskum stíl.
VeitingaHÚs Hægt er að setjast niður og fá sér að borða á milli spennandi ferða,
enda tekur það daginn að leika sér í Siam Park.
kastali Spennandi kastali þar sem ýmsar rennibrautir eru í boði. Einn af fjölmörgum
möguleikum í þessum skemmtilega garði.
nOtalegt Hægt er að renna sér í alls kyns rennibrautum eða sigla á kútum um á sem
liðast í gegnum garðinn.
HÆsta brautin Þessi hvíta rennibraut er 27 metra há og einungis fyrir þá huguð-
ustu. Þegar komið er niður fer fólk í gegnum rör þar sem hákarlar synda umhverfis.
Nánari upplýsingar á minirmenn.is og á Facebook
Jólahlaðborð Minna manna hafa verið
vinsæl síðustu ár, enda ódýr en einstak-
lega girnileg. Þau eru sérsniðin til að bjóða
upp á í jólagleðinni á vinnustaðnum, heima
eða í veislusal án nokkurrar fyrirhafnar.
Verðið hefur verið það sama árum saman
– aðeins 1.990 kr. á mann!
Pantanir hjá Magnúsi Inga Magnússyni
í síma 696-5900 og á magnusingi@gmail.com.
JÓLAHLAÐBORÐ
1.990 kr.
HEITT OG KALT
JÓLAHLAÐBORÐ
• Síldarréttir
• Djúpsteiktar rækjur
• Kjúklingur
• Purusteik
• Hangikjöt
• Heit sósa
• Brúnaðar kartöflur
• Kartöflujafningur
• Fjölbreytt grænmeti
• Brauðkossar
• Súrsæt sósa
1.990 kr. á mann
Sjálfvirka fríðindakerfið
Skráðu þig á365.is
SKRÁÐU ÞIG Í VILD
50%
AFSLÁTTUR
50%
AFSLÁTTUR
40%
AFSLÁTTUR
15%
AFSLÁTTUR
40%
AFSLÁTTUR
15%
AFSLÁTTUR
15%
AFSLÁTTUR
Engir punktar, engin aukakort og ekkert vesen
1
2
-1
1
-2
0
1
5
1
5
:5
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
E
E
-1
5
B
4
1
6
E
E
-1
4
7
8
1
6
E
E
-1
3
3
C
1
6
E
E
-1
2
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
1
0
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K