Fréttablaðið - 11.11.2015, Page 38
bækur
Þýska húsið
HHHHH
Arnaldur Indriðason
Vaka-Helgafell
Kápa Ragnar Helgi Ólafsson
Ég gleymi aldrei tilfinningunni
þegar ég las Mýrina, volga úr fyrstu
prentun, og gerði mér grein fyrir því
að Íslendingur gæti í alvöru skrifað
glæpasögur sem væru jafngóðar og
það sem mér fannst best og merki-
legast í þeim geira í útlöndum.
Þetta var áður en Mýrin var seld
til erlendra útgefenda, áður en Arn-
aldur varð heimsfrægur, það var
engin staðfesting önnur en þessi
tilfinning: að bera kennsl á eitthvað
mjög, mjög gott.
Síðan hefur Arnaldur skrifað
átján glæpasögur og svo sannarlega
sigrað heiminn og rutt brautina fyrir
aðra íslenska höfunda sem vildu
feta glæpabrautina. Ég viðurkenni
að mér finnst ekki allar þessar átján
hafa til að bera þau gæði sem Mýrin
hafði til að bera, en nokkrar komast
nærri því.
Þýska húsið gerist á gríðarlega
spennandi tímabili í sögu Íslendinga.
Árið er 1941, breski herinn er tiltölu-
lega nýkominn til bjargar og er þegar
á leið burtu aftur til að rýma fyrir
þeim bandaríska.
Reykjavík er að breytast úr litlu
þorpi í höfuðborg, framandi gestir
og með þeim ný tækifæri, peningar og
atvinna og fólk flykkist úr sveitinni til
að freista gæfunnar og verða borgar-
fólk með fólki.
Sagan byrjar á því að farandsölu-
maður flýtir sér heim úr sölutúr því
hann hefur af því spurnir að stúlkan
hans sé farin að vera með hermönn-
um, nánast eins og að á meðan hann
brá sér frá í nokkra daga hafi allur
heimurinn breyst.
Svona er andrúmsloftið í Reykja-
vík í sögunni, enginn veit hvaðan á
hann eða hana stendur veðrið, allt
er nýtt og framandi, meira að segja
rannsóknarlögreglumennirnir eru
reynslulitlir, ungir og óharðnaðir í
heimi þar sem morð er framið með
skammbyssu en ekki ljá.
Flóvent og Thorson, sem dyggir
lesendur Arnaldar kannast við úr
bókinni Skuggasund, eru leiddir hér
saman í fyrsta sinn til rannsóknar á
morði í lítilli leiguíbúð í Reykjavík þar
sem grunur leikur á að morðvopnið
sé úr fórum hinna erlendu gesta.
Rannsóknin snertir á brýnustu
málum þessa tíma, ástandinu, flutn-
ingunum úr sveit í borg, nasistum og
nútíma sem skellur á af óþægilegum
krafti. En bókin tekur einnig á sígild-
um viðfangsefnum allra tíma: valdi og
kúgun, sambandi foreldra og barna
og því að horfast í augu við sjálfan sig
og það sem maður er.
Persónurnar eru að vanda vel skrif-
aðar og marglaga en ég hefði viljað sjá
konurnar skrifaðar í fleiri víddum,
þar sem þær verða nokkuð klisju-
kenndar. Hér er eitt tálkvendi sem
ætlar sér að láta drauma sína rætast,
sama hvað það kostar, ein hugsjóna-
og ástardrifin klappstýra vonds vís-
indamanns og ein syrgjandi móðir
sem við sjáum aðeins í stutta stund en
er þó heilsteyptust þessara kvenna.
Þýska húsið er ein af betri bókum
Arnaldar. Honum tekst vel að lýsa
borg í örum vexti, svo örum að fólk
nánast hættir að rata, fólki sem
stendur á þröskuldi nútíma sem það
er mismunandi í stakk búið til að
taka þátt í og svo er þarna spenn-
andi glæpaflétta í hryggjarstykkinu
sem tekur ýmsar óvæntar sveigjur
og heldur lesandanum við efnið allt
fram á síðustu síðu. Mjög, mjög gott.
Brynhildur Björnsdóttir
Niðurstaða: Spennandi og
feiknavel skrifuð þar sem bæði sam-
félagslýsingar og glæpamál halda
lesandanum kirfilega við efnið. Með
betri bókum Arnaldar.
Mjög, mjög gott
„Lögin snúast um ástina í ýmsum
litum,“ segir Auður Gunnarsdóttir
söngkona sem ásamt Helgu Bryn-
dísi Magnúsdóttur píanóleikara
kemur fram á tónleikunum Ástir og
draumar kvenna í Norræna húsinu
í kvöld klukkan 20.
Auður segir tjáningarformið
ólíkt eftir löndum. „Á Ítalíu er mýkt
og rómantík. Konan líkir mannin-
um við grænt engi og augu hans eru
fegurri stjörnunum meðan blóðið
flæðir í spænsku lögunum því þar
er stöðugt nautaat í gangi milli
elskendanna. Í Söng Sólveigar
á íslensku er konan tilbúin að bíða
eftir manninum alla ævi og fer ekki
fram á neitt en í þýsku lögunum er
svo mikil alvara að maður er líkam-
lega búinn eftir að hafa sungið þau.
Raunsæið er svo mikið – og þar er
dáið.“
Aðgangseyrir á tónleikana er
2.000 krónur en 1.000 fyrir eldri
borgara, öryrkja og félaga í FÍT.
Yngri en tvítugir fá ókeypis á tón-
leikana. – gun
Ástin túlkuð með ýmsum litum eftir löndum
„Ég hefði auðvitað verið alsæl
með ein verðlaun, hvað þá fyrir
bæði verkin mín. Það er heilmikill
heiður,“ segir Jónína Magnús-
dóttir, sem notar listamannsnafnið
Ninný. Hún sendi tvö verk í alþjóð-
legu samkeppnina American Art
Award og hreppti 2. og 3. verðlaun
í flokknum Impressionism Human.
Þátttakendur voru frá 35 löndum
og samkvæmt heimasíðu keppn-
innar er fólk frá 25 bestu galleríum
Bandaríkjanna í dómnefnd.
„Ég er fígúratívur málari og hef
gaman af fjölbreytni og alls konar
tækni. Nota mikið vatnsliti og segi
alltaf að það sé það erfiðasta,
því þar má engin mistök gera,“
segir Ninný sem á einu ári hefur
tekið þátt í stórum samsýningum í
Noregi, Mexíkó, Danmörku, Slóv-
eníu og á Spáni. Síðasta einka-
sýning hennar var á æskuslóðum í
Vestmannaeyjum á Goslokahátíð
í sumar.
Ninný kveðst ekki hafa tekið
þátt í keppninni America Art
Award áður. „En mér er oft boðið
að taka þátt í ýmsu af því að ég
er í stjórn Norræna vatnslita-
félagsins og hef líka skapað við-
burði á Íslandi þar sem erlendir og
íslenskir listamenn hafa verið þátt-
takendur.“ gun@frettabladid.is
Hlaut tvenn verðlaun í keppni
Myndlistarkonan Jónína Magnúsdóttir, kölluð Ninný, sendi
tvö málverk í keppnina America Art Award og fékk verðlaun
fyrir þau bæði í flokknum Impressionism-Human.
Hér á vinnustofunni á Korpúlfsstöðum vinnur Ninný að listsköpun sinni. FréttABlAðIð/GVA
Auður og Helga Bryndís flytja sönglög eftir Hjálmar Helga ragnarsson, robert Schu-
mann, Ermano Wolf-Ferrari og Joaquin turina í Norræna húsinu. FréttABlAðIð/GVA
Stærsti fasteignavefur landsins
fasteignir.is á
rauða myndin hlaut 2. verðlaun í
flokknum Impressionism Human og
bláa myndin 3. verðlaun í sama flokki.
1 1 . N ó v e m b e r 2 0 1 5 m i ð v i k u D a G u r22 m e N N i N G ∙ F r É t t a b L a ð i ð
menning
1
2
-1
1
-2
0
1
5
1
5
:5
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
E
D
-F
D
0
4
1
6
E
D
-F
B
C
8
1
6
E
D
-F
A
8
C
1
6
E
D
-F
9
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
1
0
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K