Fréttablaðið - 11.11.2015, Blaðsíða 48
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir
Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
Maríu Elísabetar
Bragadóttur
Bakþankar
Ég hef alltaf verið meðvituð um sjúk-
dóma. Greindi vinkonu mína tólf ára
gamla með heilaæxli sem reyndist
vera stíflaður fitukirtill. Í dag er þessi
æskuvinkona glæsileg táknmynd
heilbrigðis sem þó tekur sveig fram
hjá mér þegar við mætumst í Banka-
strætinu. Enda er það vanþakklátt
verk að sjúkdómsgreina fólk. Greindi
sjálfa mig með gláku tæplega níu ára.
Áfall að missa sjónina á besta aldri.
Fékk gleraugu skömmu síðar.
Útþráin er svo hliðarsjúkdómur
sem ég hef verið þungt haldin af
síðan ég var unglingur. Útþrá er
óaðlaðandi orð og hljómar eins og
sérstök tegund af svæðisbundnum
líkþornum. Því fer samt fjarri. Var
ekki sjálfrátt vegna útþrár þegar ég
vann sumarlangt á upplýsingaborði í
Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Gat varla
vísað japönskum túrista á Tax free
án þess að hvísla holum rómi: „Taktu
mig með þér.“ Sömuleiðis þegar ég
vann í fiski. Sneiddi myglubletti af
karfaflökum viti mínu fjær af þessu
meini. Vildi helst skipta um hlutverk
við klakablauta fiska og renna sjálf
eftir ælugulu færibandi ef það yrði til
þess ég myndi enda í skipi á leið til
Rússlands.
Auðveld lækning við útþrá er að
tylla sér í næstu flugvél. Sú leið getur
þó verið dýrkeypt fyrir meðaljóninn.
Og dýrkeypt fyrir lífríki jarðar en
það er önnur saga sem endar með
dauða og skelfingu í dystópískri
framtíð. Á léttari nótum tel ég gæfu-
legt að útþráin láti á sér kræla öðru
hvoru. Hvort sem þú ert unglingur
að plokka hringorma úr þorskflaki
með hugann við hnefastór hitabeltis-
fiðrildi eða bankastarfsmaður sem
þráir að kreppa tærnar í heitum eyði-
merkursandi. Að kanna nýjar lendur
er mikilvægt, að láta sig dreyma er
nauðsynlegt. Þú tapar heldur ekki
vinum þótt þú sjúkdómsgreinir þá
með útþrá. Hún mun ekki draga
þá til dauða en gerir þá hugsanlega
vitstola.
Útþrá
KATRÍNARTÚN 12 WOWAIR.IS WOWAIR@WOWAIR.IS
JÓLABORGIR
Á WOW VERÐI!
AÐVENTAN VERÐUR ÆÐI
Verð miðast við flug aðra leið með sköttum, bókunargjald (999 kr.) og töskugjald ekki innifalið.
LONDON &
KAUPMANNAHÖFN f rá
DUBLIN f rá
T í m a b i l : n ó v e m b e r 2 0 1 5 - m a r s 2 0 1 6
9.999 kr.
12.999 kr.
Jóóólin
koma!
Jááááá!
Jólahúfa 600 krónur
fylgir með
Fréttablaðinu í dag
Jólabæklingurinn
Opið allan sólarhringinn
í Engihjalla,
Vesturbergi og
Arnarbakka
1
2
-1
1
-2
0
1
5
1
5
:5
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
E
D
-E
4
5
4
1
6
E
D
-E
3
1
8
1
6
E
D
-E
1
D
C
1
6
E
D
-E
0
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
1
0
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K