Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2009, Page 20
mánudagur 19. janúar 200920 Fókus
Bókin „Viltu vinna milljarð“ eftir
Vikas Swarup sló í gegn hjá íslensk-
um lesendum og varð fljótlega ein
af þessum bókum sem við „urðum“
að lesa. Vanalega er ég tregur að
stökkva um borð í vinsælar lestir og
taka þátt í fjölmennum lofgjörðum
en ég lét til leiðast. Eftir lesturinn
jarmaði ég með kórnum og bók-
in varð ein af mínum uppáhalds í
seinni tíð. Ég er meira að segja bú-
inn að standa sjálfan mig að því að
fleygja fram: „Ha, ertu EKKI búinn
að lesa hana?“
Þessi fyrsta bók Indverjans Swar-
ups hefur verið þýdd á 36 tungu-
mál og hlotið fjölda viðurkenninga.
Enda er þessi grunnhugmynd hjá
Swarup hreinlega mögnuð. Jamal
Malik, munaðarlaus, ómenntað-
ur og fátækur drengur á Indlandi,
er við það að klára heimsfrægan
spurningaþátt sem við Íslending-
ar þekkjum sem „Viltu vinna millj-
ón?“. Hann er handtekinn þegar
hann á eina spurningu eftir og yfir-
heyrður grunaður um svindl. Í yfir-
heyrslunni lýsir hann ævintýralegu
lífshlaupi sínu þar sem hann upp-
lifir hluti sem gefa honum svör-
in við spurningunum í þættinum.
Lesandinn ferðast með honum og
fær á sama tíma ljóslifandi og eft-
irminnilega svipmynd af Indlandi.
Bókin er í senn spennandi, sorgleg
og gríðarlega skemmtileg lesning.
Svona saga kallar á að vera kvik-
mynduð. Ég man þó eftir því á með-
an ég las hana að ég hugsaði hversu
erfitt það yrði að koma þessu til
skila á hvíta tjaldinu. Það yrði
vandasamt verk. Ekki varð minna
fjaðrafok hjá íslensku bókaþjóðinni
þegar Flugdrekahlauparinn kom út
skömmu áður. Sú bók er ekki síður
mögnuð en lítið fór fyrir kvikmynd-
inni sem gerð var eftir bókinni. Sú
mynd var hreint ágæt sem slík en
hún náði ekki fram sömu áhrifum
og bókin, langt því frá. Ég var því
bæði spenntur og kvíðinn að sjá
Slumdog Millionaire.
Mín fyrstu viðbrögð við gerð
myndarinnar voru að býsnast yfir
ljótu nafninu. „Slumdog“ er ekki
beint heillandi orð og gaf mér
vondan fyrirboða sem hvarf þó eins
og dögg fyrir sólu þegar ég sá hver
skyldi leikstýra myndinni. Danny
Boyle hafði leikstýrt myndum eins
og Trainspotting, The Beach og 28
days later sem eru frábærar, hver á
sinn hátt. Hann myndi örugglega
gera sér safaríkan mat úr hráefninu
í stað þess að gera steingelda útgáfu
af metsölubók eins og til dæmis
Ron Howard afrekaði með The Da
Vinci Code.
Ég upplifði bókina ekki sem ást-
arsögu heldur frekar að hjá Jam-
al Malik hafi ástin bankað upp á
og haft sitt að segja um framvind-
una. Svo virtist í trailerum og kynn-
ingarefni að lagt væri upp með að
myndin fjallaði mikið til um sam-
band Jamals og hinnar fögru Latiku
og hvernig þau reyna að ná saman í
gegnum miklar raunir og ævintýri.
Ég var ekki viss um hvort ég væri
nógu sáttur við það, en það reynd-
ist síðan í góðu lagi.
Myndin rúllar af stað og um leið
finnur maður og veit að óhætt er að
búast við góðum hlutum. Danny
Boyle er með þetta. Allt útlit er lýta-
laust og myndmálið fær að njóta
sín. Umhverfið er sannfærandi og
erfitt að ímynda sér annað en að
myndin hafi verið tekin upp á þeim
stöðum sem hún á að gerast. Hand-
ritið, sem er í grunninn sama sagan
og sögð er í bókinni, hendist áfram
og heldur góðum dampi. Fátæku
bræðrunum Jamal og Salim er fylgt
eftir frá unga aldri í gegnum spenn-
andi svaðilfarir af ýmsum toga og
Latika er aldrei langt undan. Inn á
milli erum við í núinu með Jamal
18 ára, í yfirheyrslu hjá lögreglunni
að útlista hvernig reynsla hans gaf
honum svörin öll í spurningaþætt-
inum. Vegferð bræðranna og Lat-
iku nær loks hámarkinu í nútím-
anum en um sjálfan endinn er best
að segja sem minnst en hann mun
seint gleymast.
Dev Patel passar vel í aðalhlut-
verkið og yngri útgáfurnar af Jamal
eru góðar líka. Freida Pinto er falleg
í hlutverki Latiku og gerir sitt vel.
Salim eru gerð góð skil með fínum
leikurum og Anil Kapoor er fanta-
góður sem spyrillinn í spurninga-
þættinum. Krakkarnir í myndinni
fara á kostum og enn og aftur furðar
maður sig á því hvað ungir krakkar
geta leikið ef þeim er leikstýrt af
hæfu fólki. Danny Boyle flokkast
svo sannarlega með þeim og þessi
mynd er mikill sigur fyrir leikstjór-
ann breska.
Auðvelt er að skilja af hverju
Slumdog Millionaire fær verð-
laun og frábærar viðtökur um allan
heim. Þó má telja víst að meirihluti
þeirra sem missa sig yfir myndinni
hafi ekki lesið bókina og þau hin
sömu því verið fránumin af hrifn-
ingu yfir sögunni og á sætisbríkinni
yfir örlögum Jamals. Fyrir okkur hin
sem þekkjum söguna er hún líka
glettilega spennandi og skemmti-
leg. Tímarnir tveir þjóta hjá og
aldrei dauður punktur. Handrit-
ið er nokkuð vel heppnað þótt al-
varlegur undirtónn bókarinnar sé
gjaldfelldur á vissum stöðum og
ákveðnum hlutum hagrætt í mild-
ari átt, sérstaklega hvað varðar Lat-
iku. Það er þó ekkert til að gera veð-
ur út af enda ekki oft sem næst að
koma svona góðri bók jafn vel til
skila á hvíta tjaldinu eins og í tilfelli
Slumdog Millionaire.
Sveinn Waage
á m á n u d e g i
Hvað veistu?
1. Íslenska leikritið Falið fylgi var frumsýnt hjá Leikfélagi akureyrar um helgina.
Hvað heitir höfundurinn?
2. Fölsk Facebook-síða var stofnuð í nafni íslensks ráðherra á dögunum. Hvaða?
3. Hvaða íslenska söngkona syngur í úrslitaþætti dönsku Eurovision-forkeppn-
innar í lok mánaðarins?
Óspennandi
laugardags-
kvöld
Fyrsti þáttur Söngvakeppni Sjón-
varpsins lagðist ekki vel í mig og
langaði mig því að sjá hvort skoðun
mín myndi breytast við áhorf á þætti
númer tvö síðastliðið laugardags-
kvöld. Ég beið eins og margir spennt
eftir því að sjá hverju þær Ragnhild-
ur Steinunn og Eva María myndu
klæðast í þættinum eftir vægast sagt
umdeildan klæðnað í fyrsta þætt-
inum. Íburðarlítill klæðnaður varð
fyrir valinu, svartar buxur, hvítir bol-
ir og axlabönd, en eins voru þær. Ég
veit satt best að segja ekki hvað mér
finnst um það. Þær stöllur eru báðar
einstaklega glæsilegar konur og van-
ar í sjónvarpi en þegar þær eru sam-
an komnar finnst mér votta fyrir að-
eins of mikilli tilgerð og satt best að
segja upplifði ég eins og Eva María
væri að reyna að stela senunni af
hinni vinsælu Ragnhildi Steinunni
sem hefur verið stjarna Sjónvarpsins
um nokkurt skeið.
Lög kvöldsins voru ekki til að halda
mér við skjáinn og að mínu mati var
ekkert þeirra þess eðlis að það ætti
heima í söngvakeppni eins og Eur-
ovision.
Hápunktur kvöldsins fyrir mig var
þegar sýnd voru brot úr söngva-
keppni sjónvarpsins árið 1986. Það
var góð keppni.
Kolbrún Pálína Helgadóttir
kvöldgestur
kanÓnu
Birgitta Jónsdóttir skáld hefur geng-
ið í gegnum ýmislegt. Það heyrðu
þeir sem hlustuðu á viðtal Jónasar
Jónassonar við Birgittu í Kvöldgest-
um á Rás 1 síðastliðið föstudags-
kvöld. Afneitun andlega veiks föður,
sviplegt fráfall mannsins sem kom
henni í föðurstað og uppvöxtur hjá
drykkjusjúkri móður svo eitthvað
sé nefnt. Þetta „eitthvað“ og fleira
til leiddi hana út í fíkniefnaneyslu
nánast á barnsaldri og vakti hjá Birg-
ittu sjálfseyðingarhvöt með það að
markmiði að deyja fyrir tuttugu og
fimm ára aldur. Sem betur fer fyrir
Birgittu og ættingja hennar og vini
tókst það ekki. Og er þá aðeins brot
af sögu hennar sagt. Birgitta verð-
ur enda gestur Jónasar aftur næsta
föstudagskvöld.
Jónas er ein af kanónunum í sögu
íslensks útvarps og um leið einn af
meisturum viðtalstækninnar (Jón
Ársæll er auðheyranlega einn þeirra
sem sótt hafa í hans smiðju). Leiddi
hann Birgittu áfram í frásögn hennar
af lífsbaráttunni af fágætu öryggi og
list. Þó kom fyrir í eitt eða tvö skipti
að það væri eins og Jónas hefði ekki
heyrt það sem gesturinn sagði og
spurði um eitthvað sem komið hafði
fram skömmu áður. En það kemur
fyrir alla spyrla, hvort sem er á öld-
um ljósvakans eða í tveggja manna
tali sem enginn heyrir.
Engin tilviljun hefur ráðið því að
Jónas hefur starfað jafnlengi í út-
varpi og raunin er. Jónas, ef þú lofar
að halda lengi áfram enn í útvarpinu
skal ég lofa að gæta mín á myrkrinu.
Kristján Hrafn Guðmundsson
1. Bjarni jónsson 2. árna mathiesen fjármálaráðherra 3. Hera Björk
Svör:
útvarp
Kvöldgestir
á Rás 1, föstudagskvöld klukkan 23
sjónvarp
söngvaKeppni sjónvarpsins
laugardagur klukkan. 20.10
glansmynd
af gÓðri bÓk
kvikmyndir
slumdog millionaire
Leikstjóri: danny Boyle
Aðalhlutverk: dev Patel, madhur mittal,
Freida Pinto, anil Kapoor, Irrfan Khan
Slumdog Millionaire
„auðvelt er að skilja af
hverju Slumdog
millionaire fær verðlaun
og frábærar viðtökur
um allan heim.“
Spennandi Hvernig
getur fátækur,
ómenntaður munaðar-
leysingi svarað öllum
erfiðu spurningunum?