Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2009, Qupperneq 3
fimmtudagur 12. febrúar 2009 3Fréttir
Már GuðMundsson
n már er fæddur 21. júní árið 1954.
n giftur og þriggja barna faðir.
n ba-gráða í hagfræði frá university
of essex í bretlandi.
n meistaragráða í hagfræði frá
Cambridge university í bretlandi.
n byrjaði í Seðlabankanum árið 1980.
n efnahagsráðgjafi Ólafs
ragnars grímssonar, fjármála-
ráðherra, 1988-91.
n aðalhagfræðingur
Seðlabankans 1994-2004.
n aðstoðarframkvæmdastjóri og
staðgengill framkvæmdastjóra hjá
alþjóðagreiðslubankanum í basel í
Sviss frá 2004.
Margir hæfari en ár
n Benedikt Jóhannesson,
framkvæmdastjóri talnakönnunar.
doktorsgráða í stærðfræði frá florida
State university, bandaríkjunum,
árið 1981.
n Friðrik Már Baldursson, prófessor
við Háskólann í reykjavík og fyrr-
verandi forstjóri Þjóðhagsstofnunar.
doktorsgráða í tölfræði frá Columbia
university, bandaríkjunum, árið
1985.
n Pétur Blöndal, alþingismaður
og stofnandi Kaupþings árið 1982.
doktorsgráða í tryggingastærðfræði
frá univerzität zu Köln, Þýskalandi,
árið 1973.
n Arnór Sighvatsson, aðalhagfræðingur
Seðlabankans. doktorsgráða í hagfræði frá Northern illinois univer-
sity, bandaríkjunum, árið 1990.
n Ásgeir Jónsson, forstöðumaður greiningardeildar Kaupþings.
doktorsgráða í hagfræði frá indiana university, bandaríkjunum, árið
2001.
n Gísli Reynisson, milljarðamæringur og eigandi Nordic Partners.
doktorsgráða í hagfræði frá university of tampere, finnlandi, árið
1994.
n Gunnar Haraldsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla
Íslands. doktorsgráða í hagfræði frá université toulouse, frakklandi,
árið 2006.
n Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra. doktorsgráða í hagfræði frá
Yale university, bandaríkjunum, árið 1997.
n Gylfi Zoëga, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands. doktorsgráða
frá Columbia university, bandaríkjumum, árið 1993.
n Jón Daníelsson, prófessor við London School of economics. dokt-
orsgráða í hagfræði frá duke university, bandaríkjunum, árið 1991.
n Jón Steinsson, lektor í hagfræði við Columbia university í New
York. doktorsgráða í hagfræði frá Harvard university,
bandaríkjunum, árið 2007.
n Jón Þór Sturluson, var aðstoðarmaður björgvins g. Sigurðssonar
í viðskiptaráðuneytinu. doktorsgráða í hagfræði frá Stockholm
School of economics, Svíþjóð, árið 2003.
n Lilja Mósesdóttir, prófessor við viðskiptadeild Háskólans á bifröst.
doktorsgráða í hagfræði frá university of manchester institute of
Science and technology, bretlandi, árið 1998.
n Ragnar Árnason, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands.doktors-
gráða í hagfræði frá university of british Columbia, Kanada, árið 1984.
n Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
doktorsgráða í hagfræði frá university of Southern California,
bandaríkjunum, árið 1982.
n Þorvaldur Gylfason, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands.
doktorsgráða í hagfræði frá Princeton university, bandaríkjunum,
árið 1976.
n Þórarinn G. Pétursson, hagfræðingur hjá Seðlabanka Íslands og
staðgengill aðalhagfræðings bankans. menntun: doktorsgráða í
hagfræði frá aarhus universitet, danmörku, árið 1998.
15 betur Menntaðir
haGfræðinGar en
Már GuðMundsson
Jón Axel Ólafsson, nýr eigandi Eddu-útgáfu, hefur beðið
kröfuhafa fyrirtækisins um 300 milljóna skuldaaflausn sam-
kvæmt heimildum DV. Skuldir útgáfunnar nema nú um 400
milljónum króna. Eignarhaldsfélag Jóns Axels, Fjárbakki
ehf., keypti Eddu af Björgólfi Guðmundssyni fyrir áramót.
Jón Axel segist vinna að því að bjarga fyrirtækinu frá gjald-
þroti. Hann neitar því að Björgólfur eigi áfram hlut í Eddu.
björgólfur
skuldsetti
andrés önd
Nýr eigandi Eddu-útgáfu, Jón Axel
Ólafsson, hefur beðið kröfuhafa út-
gáfunnar um að fella niður 300 af
þeim 400 milljónum króna sem fyr-
irtækið skuldar, samkvæmt heimild-
um DV. Jón Axel hefur fundað með
innlendum og erlendum kröfuhöf-
um Eddu upp á síðkastið og rætt
við þá um niðurfellingu skuldanna.
Hann var áður stjórnarmaður í
Eddu.
Jón Axel staðfestir að hann hafi
beðið kröfuhafana um skuldanið-
urfellingu að hluta. Hann segir
hins vegar að skuldaniðurfellingin
sé ekki eins mikil og heimildir DV
herma. Jón Axel vill ekki gefa upp
hversu mikla niðurfellingu skulda
hann hafi beðið kröfuhafana um.
Keypti Eddu af Björgólfi
fyrir áramót
Fyrir áramót keypti eignarhaldsfé-
lag í eigu Jóns Axels, Fjárbakki ehf.,
Eddu-útgáfu af eignarhaldsfélag-
inu Ólafsfelli sem er í eigu Björgólfs
Guðmundssonar. Jón Axel vill ekki
gefa upp kaupverðið á Eddu og segir
það trúnaðarmál.
Edda-útgáfa sérhæfir sig í bóka-
og áskriftarklúbbum af ýmsu tagi,
Eddu-klúbbunum svokölluðu. Þar á
meðan eru Andrésar Andar-, Uglu-
og Disney-klúbburinn.
Reynir að halda fyrirtækinu
gangandi
Jón Axel segir að Edda sé gott
fyrirtæki en að það sé skuld-
um vafið. Hann segir að hann
hafi keypt fyrirtækið af Björ-
gólfi með það fyrir augum að
bjarga því frá gjaldþroti. „Fyr-
irtæki í minni eigu keypti Eddu
af Ólafsfelli fyrir áramót með það
að markmiði að reyna að halda því
gangandi,“ segir Jón Axel.
Tíu starfsmenn vinna hjá Eddu
og segir Jón Axel að þeir séu allir
með í maganum yfir að þeir kunni
að missa vinnuna út af mögulegu
gjaldþroti Eddu.
Gefur ekki upp kröfuhafana
Aðspurður hvort ekki sé auðveld-
ara fyrir hann nú að leita eftir nið-
urfellingu skulda Eddu vegna þess
að félagið hafi skipt um eigendur
segir Jón Axel að svo sé ekki. Hann
vill ekki gefa upp hverjir kröfuhafar
Eddu eru.
Hann segir að allt sé undir hjá
sér í nýja fyrirtækinu. Jón Axel seg-
ir að hann ætli sér að vinna við það
næstu árin ásamt fjölskyldu sinni
að reyna að strúktúrera Eddu upp
á nýtt.
Engin tengsl við
Björgólf
Jón Axel segir að-
spurður að hann eigi
Eddu einn og að Björ-
gólfur Guðmundsson
komi þar hvergi nærri.
„Fjárbakki er félag sem ég
stofnaði árið 2006 og ég hef hing-
að til ekki verið í neinum rekstri.
Ég og bróðir minn höfum verið
saman með ljósmyndastúdíó
og við ætlum bara að
smella því og
Eddu sam-
an und-
ir einn
hatt,“ segir
Jón Axel.
InGI F. VILHJÁLMSSon
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
„Mér, sem eiganda
í Eddu-útgáfu, ber
að gera það sem ég
get til að bjarga fyr-
irtækinu frá gjald-
Edda skuldar 400 milljónir Samkvæmt
heimildum dV mun edda-útgáfa einbeita
sér hvað helst að því í framtíðinni að
markaðssetja teiknimyndasögur frá Walt
disney, eins og andrés Önd.
Fyrrverandi eigandi Eddu Jón
axel Ólafsson keypti eddu-útgáfu af
eignarhaldsfélaginu Ólafsfelli, sem
er í eigu björgólfs guðmundssonar,
fyrir áramót. Skuldir félagsins nema
nú um 400 milljónum króna.