Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2009, Qupperneq 14
fimmtudagur 12. febrúar 200914 Ást & rómantík
„Í fyrra vorum við bara með þetta
í einn dag en í ár verður dansað í
þrjá daga,“ segir tangódansarinn
Hany Hadya um tangómaraþon
sem haldið verður um helgina í
Þjóðleikhúskjallaranum. „Tangó-
maraþonið er samstarf Vetrarhá-
tíðar og Tangóklúbbs Reykjavíkur
og byrjar annað kvöld. Við ætlum
að dansa til klukkan þrjú um nótt-
ina svo tökum við smáhlé og byrj-
um svo að dansa aftur klukkan ell-
efu á laugardagsmorgninum til
þrjú um nóttina. Svo lýkur mara-
þoninu á sunnudeginum klukkan
sex,“ segir Hany.
„Hugmyndin er að fólk hittist
bara og dansi. Fyrir þá sem halda
kannski að þeir kunni ekki að dansa
erum við með byrjendakennslu á
laugardeginum milli klukkan þrjú
og fjögur. Fólk getur bara droppað
inn og kíkt á okkur eða tekið spor-
in með og það er frítt inn allan tím-
ann og líka í danskennsluna.“
Sérstakur gestur á tangómara-
þoninu verðu sænski plötusnúður-
inn Daniel Carlson. „Hann er með
sinn eigin tangóskóla í Svíþjóð, er
tangókennari og tangóplötusnúð-
ur. Hann er búinn að byggja upp
mikinn áhuga á tangó hjá með-
al annars ungu fólki í Svíþjóð,“ út-
skýrir Hany.
DANSAÐ OG BORÐAÐ
Aðspurður hvort fólk þurfi að mæta í
sérstökum tangófatnaði svarar hann:
„Það sem er mikilvægast er að mæta
í einhverju þæginlegu og skóm sem
eru ekki of stamir. Annars getur mað-
ur í rauninni bara mætt eins og mað-
ur er klæddur.“
Í tilefni af sjálfum Valentínus-
ardeginum á laugardaginn verður
glæsilegur kvöldverður í Þjóðleik-
húskjallaranum á laugardagskvöld-
ið. „Vegna þess að við erum að vinna
þetta líka í samstarfi við Sigga Hall
sem sér núna um Þjóðleikhúskjall-
arann, kom hann með þá hugmynd
að blanda inn í þennan tangódans
svona rómantískum kvöldverði. Enda
fátt sem passar betur saman en róm-
antískur dans og kvöldverður. Þetta
verður því einskonar „dinner and
dance“ stemning þarna þar sem fólk
getur dansað á meðan á kvöldverðin-
um stendur,“ segir Hany en um er að
ræða glæsilegan þriggja rétta seðil á
fjögur þúsund og níu hundruð krón-
ur. „Ég mæli með því að fólk panti sér
borð tímanlega í kvöldverðinn,“ bæt-
ir Hany við.
EKKI NAUÐSYNLEGT
AÐ HAFA FÉLAGA
„Við hvetjum auðvitað sem flesta til
að mæta og þeir sem ætla ekki að
koma í kvöldverðinn eru líka vel-
komnir að taka með okkur dansspor-
ið eða kíkja í kaffibolla og drykk. Við
leggjum líka áherslu á það að fólk
þarf ekki að mæta með dansfélaga
með sér,“ segir Hany að lokum.
Nánari upplýsingar um dagskrá
tangómaraþonsins og upplýsingar
um matseðilinn er að finna á heima-
síðunni tango.is undir Tangómara-
þon 2009. Þeir sem vilja bóka borð
í Valentínusarkvöldverðinum sem
hefst klukkan átta á laugardagskvöld-
ið geta haft samband með tölvupósti
á kjallarinn@kjallarinn.is eða í síma:
585 1295.
krista@dv.is
Dansað dag og nótt
Þriggja daga tangómaraþon verður haldið um helgina í Þjóðleikhúskjallaranum. Á sjálfan Valentínusardaginn
verður svo boðið upp á þriggja rétta rómantískan kvöldverð að hætti Sigga Hall. Öllum er velkomið að koma og taka
sporið en frítt er inn í Kjallarann alla helgina.
Dansinn dunar fram á rauðanótt
Hany Hadya og eiginkona hans, bryndís,
ætla að vera með ókeypis tangókennslu á
laugardaginn klukkan þrjú.
Mizú S N Y R T I - N U D D O G F Ó T A A Ð G E R Ð A S T O F A
B o r g a r t ú n i 6 • 1 0 5 R e y k j a v í k • s í m i 5 5 1 1 0 5 0 • w w w . m i z u . i s
Gildistími er frá 9–20 feb.
G
Valentínusar tioð
Andlitsbað ásamt litun, plokkun
og handsnyrtingu 12.000
Handsnyrting með lökkun,
litun og plokkun
5.600.-