Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2009, Qupperneq 22
Margrét Frímannsdóttir, fangelsisstjóri á Litla-Hrauni, kann ágætlega þá list að fara á svig við
sannleikann. Hún er gjarnan kölluð
járnfrúin vegna þeirrar festu sem ein-
kennir stjórnina á Litla-Hrauni þar
sem allt er á yfirborðinu slétt og fellt.
Helstu fréttir af Hrauninu eru þær að
fangar syngja sálma, faðmast, rækta
sinn innri mann og grænmeti þess
í milli. Járnfrúin hefur á yfirborðinu
breytt skuggalegu fangelsi í sælureit
þar sem öll dýrin í skóginum eru vinir.
En þetta er ekki alveg svona einfalt. Margrét er gamall pólitíkus og var skipuð fang-elsisstjóri vegna þess að hún
hafði réttu samböndin. Áður en hún
fór í pólitíkina hafði hún starfað við
fiskivinnslu eins og svo margt gott
fólk. Eftir að pólitískum ferli
hennar lauk þótti einsýnt
að hún hentaði sem
fangelsisstjóri, ekki
síst vegna þess
að hún er dóttir
fangavarðar og
málefni fanga
gjarnan rædd
við eldhúsborð
æsku henn-
ar. Möggu var
laumað inn í
starfið í upphafi
á þeim forsend-
um að ráðningin
væri til skamms
tíma. Þannig
komst ekki í
hámæli að
ráðning
hennar
væri
pólitísk og gott tóm gafst til að gera
fastráðningarsamning síðar.
En með fullri sanngirni verður að segja eins og er að Margrét er snillingur í starfi sínu og fangarnir elska hana eflaust.
Járnfrúin er, þrátt fyrir stálblátt blik í
auga, stútfull af kærleika. Annar nauð-
ynlegur kostur hennar í starfi er sá að
vera ekki alltof njörvuð niður á sann-
leikann. Það er eflaust áunnið úr póli-
tíkinni. Þegar uppreisnarástand varð
á kærleiksheimilinu að Litla-Hrauni
í fyrradag og setja varð hóp fanga í
einangrun reyndi á þennan eðliskost
Möggu. Ofan á uppreisnarástandið
bættist íkveikja og allt var þetta hið
pínlegasta og mátti ekki verða opin-
bert. En það varð samt fréttaefni á
dv.is. Aðrir miðlar fylgdu í kjölfarið og
höfðu samband við fangelsisstjórann.
„Það er ekkert rétt í þessari frétt. Það
var ekkert uppreisnarástand,“ segir
Margrét sem kannaðist við
eld en ekki íkveikju. En
þarna var komið
í óefni
því lögregla, sjúkralið og slökkvilið
höfðu mætt á staðinn og tilheyrandi
yfirvöld staðfestu fúslega ferðalag sitt.
Þegar næsta fréttastofa hringdi sagði
Magga að þetta væri ekkert merkilegt
en að vísu íkveikja í framhaldi þess að
hópur fanga var læstur inni. Í rauninni
hafi ekkert gerst þótt það hefði í ein-
hverjum annarlegum skilningi gerst.
Járnfrúin er orðin uppvís að tví-sögli. Nú verður hún að fara út í allt aðra sálma, herða róðurinn og panta réttu fjölmiðlana til að
taka viðtöl við sig um grænmetisrækt,
sálmasöng og fallega greidda fyrir-
myndarfanga. Það er þetta eilífa vesen
með sannleikann. Hann má skiljan-
lega aldrei verða til þess að skemma
fallega ímynd. Svarthöfði mun halda
áfram að fylgjast með betrunarhúsi
friðarins þar sem fangarnir elska fang-
elsisstjórann og enginn segir styggð-
aryrði um nokkurn mann, hvað þá að
kveikja í fangelsinu.
fimmtudagur 12. febrúar 200922 Umræða
Sálmar og grænmeti
svarthöfði
spurningin
„Þegar stórt er
spurt... Á maður
ekki bara að
þrauka kreppuna
og segja
sannleikann?“
segir Jón Hákon
Magnússon,
framkvæmdastjóri
KOM almanna-
tengsla ehf., sem
hélt fyrirlestur á Grand Hóteli í gær með
yfirskriftinni „Þegar DV hringir...“ og
fjallaði um viðbrögð við hruni ímyndar
og spuna á slæmum fréttum.
Hvað gerir þú nú?
sandkorn
n Árni Mathiesen, fyrrverandi
fjármálaráðherra, hefur verið
tvístígandi varðandi framboð í
vor. Hann er fyrsti þingmaður
Suðurkjördæmis en þykir hafa
verið álíka sjaldséður þar og
hvítur hrafn.
En nú hefur
hann feng-
ið kjarkinn
og stefnir á
fyrsta sæt-
ið þar sem
hann þarf
að keppa við
Árna John-
sen. Margir telja að ráðherrann
fyrrverandi eigi sáralitla mögu-
leika í samkeppninni við heima-
manninn Árna sem hefur verið
iðinn við að sinna kjördæminu.
Búist er við að Eyþór Arnalds
bæjarfulltrúi muni blanda sér í
slaginn.
n Þorgerður Katrín Gunnars-
dóttir, alþingismaður og odd-
viti í Suðvesturkjördæmi, hefur
tekið af skarið og býður sig ekki
fram sem formaður Sjálfstæð-
isflokksins.
Þeirri af-
stöðu ræður
væntanlega
að Bjarni
Benedikts-
son for-
mannsefni
er á miklu
flugi og að
líkindum ósigrandi. Þau keppa
síðan um efsta sætið í kjördæm-
inu þar sem allt eins er líklegt að
Bjarni vinni af henni forystu-
sætið.
n Innan Samfylkingar gætir
spennu vegna varaformanns-
kjörs en Árni Páll Árnason al-
þingismaður er eini frambjóð-
andinn enn
sem komið
er. Hermt er
að Dagur B.
Eggertsson
borgarfull-
trúi hafi
fullan hug á
að takast á
við emb-
ættið. Dagur er handgenginn
Ingibjörgu Sólrúnu Gísladótt-
ur formanni og er talinn njóta
stuðnings hennar. Þá mun Dag-
ur horfa til þess að verða arftaki
Ingibjargar þegar sá tími kemur.
n Ólafur Ragnar Grímsson,
foresti Íslands, er í vandræðum
á öllum vígstöðvum. Hann er
ekki aðeins í klandri vegna eigin
yfirlýsinga og ímyndar sem út-
rásarforseti.
Eiginkon-
an, Dorrit
Moussaieff,
er einnig
yfirlýsinga-
glöð með
eindæm-
um og segist
sæta kúgun
á Bessastöðum þar sem hún fái
ekki að mæta til mótmæla með
þjóðinni. Það staðfestist í fyrra-
dag þegar Dorrit vildi ræða ítar-
lega við blaðamann en Örnólfur
Thorsson forsetaritari bannaði
henni að tala. Helsta verkefni for-
setaritarans þessa dagana er að
hemja forsetafrúna skemmtilegu.
LyngháLs 5, 110 reykjavík
Útgáfufélag: útgáfufélagið birtíngur ehf.
Stjórnarformaður: hreinn Loftsson
framkvæmdaStjóri: elín ragnarsdóttir
ritStjórar:
jón trausti reynisson, jontrausti@dv.is
og reynir traustason, rt@dv.is
fréttaStjórar:
brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is
og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is
auglýSingaStjóri:
ásmundur helgason, asi@birtingur.is
dv á netinu: dv.is
aðalnÚmer: 512 7000, ritStjórn: 512 7010,
áSkriftarSími: 512 7080, auglýSingar: 512 70 50.
umbrot: dv. Prentvinnsla: Landsprent. dreifing: árvakur.
dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
„Þetta er
náttúrlega
frábær bók og
betra að gera þetta
á sviði en í bíó.“
n Baltasar Kormákur, en eins og DV greindi frá
fyrir nokkrum vikum mun hann setja upp leikrit
byggt á Gerplu eftir Halldór Laxness í
Þjóðleikhúsinu. - Fréttablaðið
„Ég get talað við
þig í tvo klukku-
tíma.“
n Dorrit Moussaieff við
blaðamann DV áður en Örnólfur Thorsson
forsetaritari bannaði forsetafrúnni að ræða við
blaðamann. - DV
„Ég þori ekki að vera með
börnin mín hérna lengur.“
n Íbúi á Akurvöllum í Hafnarfirði vegna
óþæginda sem hann hefur orðið fyrir vegna
vændis sem stundað er í blokkinni. Íbúar segja
lögreglu ekkert aðhafast í málinu. - DV
„Strax og maður
er kominn út í
finnur maður
fyrir tærri
sælutilfinningu.“
n Siv Friðleifsdóttir alþingiskona um ágæti
sjósunds sem hún stundar af miklu kappi. - DV
„Bæði rosalega skemmti-
legt og mikill heiður.“
n Sigurbjörn Bernharðsson um það hvernig
tilfinningin var að vinna Grammy-verðlaun. - DV
“Sá maður hefur reynst
skjöldur okkar hinna sem
styðjum friðsamlegt og
manngott samfélag...“
n Friðbjörn Orri Ketilsson, einn stjórnenda
AMX.is, um Davíð Oddsson, sem hann kallar
“skjöld gegn skálmöld”. AMX.is
Eyðilögð börn og ímyndir
Leiðari
Nýlega var faðir dæmdur fyrir að eyðileggja líf dóttur sinnar. Hann misnotaði hana frá eins árs aldri í rúmlega tvö ár. Tjón
hennar var metið af dómara og niðurstað-
an var að dýrkeyptara væri að vera upp-
nefndur „Maggi glæpur“ heldur en að vera
misnotaður frá eins til þriggja ára aldurs.
Stúlkan fékk 900 þúsund krónur í bæt-
ur, en Magnús Ragnarsson, sjónvarps-
stjóri Skjás eins, fékk dæmdar 1,5 millj-
ónir króna frá blaðamanni, sem skrifaði
slúðurfrétt um að Magnús væri uppnefnd-
ur. Erfitt er að leggja mat á harm Magnús-
ar yfir uppnefninu, en það er komin nið-
urstaða í líf stúlkunnar. Hún er með skertan
þroska, lítur á kynlífsathafnir sem eðlileg-
an leik og gengur fram af fólki því hún hef-
ur verið mótuð af sjúklegum athöfnum föð-
ur síns. Nú flakkar hún á milli fósturforeldra.
Líf hennar er eyðilagt, þótt hún sé aðeins
þriggja og hálfs.
Harmur Bubba Morthens yfir fréttinni
„Bubbi fallinn“, um að hann væri byrjaður
að reykja aftur, verður seint metinn. Honum
voru dæmdar 700 þúsund krónur í miska-
bætur frá blaðamanninum sem fjallaði um
hann í skemmtifrétt.
Niðurstaðan er sú að blaðamenn hljóta
sambærilega fjárhagslega refsingu fyrir mis-
tök eða umdeildar umfjallanir og menn sem
rústa lífi barna með áralangri misnotkun.
Niðurstaðan er líka sú að börn sem eru svipt
tækifærinu til að lifa eðlilegu lífi fá sambæri-
legar miskabætur og menn sem eru
uppnefndir eða menn sem er fjallað
um með þeim hætti að það megi mis-
skilja.
Munurinn á kynferðisbrotamálum
og meiðyrðamálum er augljós, bæði
út frá gerandanum og þolandanum.
Blaðamaður sem gerir mistök ætlar
sér yfirleitt ekki að gera það. Rétt eins
og í öðrum störfum er alltaf möguleiki
á mistökum þegar unnið er daglega að
því að koma upplýsingum á framfæri til
almennings. Blaðamaður brýtur yfir-
leitt ekki gegn ímynd fólks af ásetningi.
Maður sem misnotar barn getur ekki
ætlað sér annað en að misnota það. Brotið er
ásetningur.
Kjarni málsins er hins vegar afleiðingar
brotanna. Auðvelt er að leiðrétta rangfærsl-
ur eða misskilning í fréttum, en misnotkun
á barni verður aldrei leiðrétt. Út frá þessu er
óskiljanlegt og fast að því viðurstyggilegt að
dómarar verðleggi laskaða ímynd hærra en
eyðilagt barn.
Jón trauSti reyniSSon ritStJóri Skrifar. Misnotkun á barni verður aldrei leiðrétt.
bókstafLega