Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2009, Síða 4
fimmtudagur 12. febrúar 20094 Fréttir
Enn mótmælt við
Seðlabanka
Hópur mótmælenda tók sér stöðu
við Seðlabankann í gær, þriðja
daginn í röð. Hópurinn vildi með
því mótmæla setu Davíðs Odds-
sonar og Eiríks Guðnasonar á
stólum seðlabankastjóra. Að sögn
varðstjóra hjá lögreglunni voru
lögreglumenn á staðnum til að
fylgjast með að allt fari vel fram.
Seinna í gær tilkynnti Eiríkur
svo að hann bæðist lausnar frá og
með 1. júní.
Rolls Royce stolið
í Hafnarfirði
Lögreglan á höfuðborgar-
svæðinu leitar nú að Rolls
Royce-bifreið sem stolið var
í Hafnarfirði en tilkynnt var
um nytjastuldinn í síðasta
mánuði. Eigandi bílsins var
erlendis í nokkrar vikur en
þjófnaðurinn uppgötvað-
ist þegar hann kom til baka.
Rollsinn, sem er af gerðinni
Silver Spirit, var þá horfinn
en bílnum var lagt við hús
eigandans.
Bíllinn er blár að lit eins
og sjá má á meðfylgjandi
mynd. Þeir sem geta veitt
upplýsingar um málið eru
vinsamlegast beðnir að hafa
samband við lögregluna í
síma 444 1000.
Lífeyrissjóðir
skreppa saman
Hrein eign lífeyrissjóðanna til
greiðslu lífeyris var 1.658 millj-
arðar króna í lok árs í fyrra og
hafði þá lækkað um 10 prósent
frá hruni bankanna.
Seðlabankinn tekur fram
að enn sé nokkur óvissa um
endanlegt mat á eignum líf-
eyrissjóðanna. Líklegt er að sú
óvissa sé til lækkunar á hreinni
eign þeirra til greiðslu lífeyris.
Skerðing á lífeyrisréttindum
blasir því við, hjá sumum sjóð-
anna að minnsta kosti. Skerð-
ing verður ekki hjá lífeyrissjóð-
um opinberra starfsmanna en
sjóðir þeirra sem starfa á al-
mennum vinnumarkaði munu
eflaust margir þurfa að skerða
réttindin.
Í viðtalinu við Ísland í dag sagði Mar-
celina frá kynnum sínum af Catalinu
Mikue Ncogo en hún sakar Catal-
inu um að hafa sent ofbeldismenn
á heimili sitt sem réðust á hana með
þeim afleiðingum að hún missti
fóstur. Marcelina féllst á að veita Ís-
landi í dag viðtal, sem sjónvarpað
var í fyrrakvöld, á þeim forsendum
að hún myndi ekki þekkjast í við-
talinu. Þá mun Catalina einnig hafa
tekið af henni vegabréf hennar og
því komst Marcelina hvorki lönd né
strönd. Þegar Marcelina reyndi að fá
vegabréf sitt aftur á Catalina að hafa
sett það sem skilyrði að hún ynni fyr-
ir hana sem vændiskona. Marcelina
greindi jafnframt frá því að hún væri
mjög hrædd við Catalinu. Ekki náðist
í Marcelinu sjálfa við vinnslu þess-
arar fréttar en Sigurður Haraldsson,
náinn vinur hennar, staðfestir að við-
talið sem tekið var í byrjun árs og birt
í fyrrakvöld hafi verið veitt með þeim
skilmálum að hún myndi ekki þekkj-
ast á sjónvarpsskjánum.
Báðust afsökunar
Viðtalið við Marcelinu var loksins
birt á Stöð 2 að loknum fréttum en
fyrr í fréttatímanum var fjallað um
vændisstarfsemi í íbúð á Hverfisgötu
sem tengist Catalinu. Þá var hins veg-
ar ekki staðið við loforð stöðvarinnar
um að hylja andlit Marcelinu. Stöð 2
greindi svo frá því í fréttum sínum í
gærkvöldi að Marcelinu hefðu borist
hótanir eftir að viðtalið við hana var
birt og að hún væri farin í felur.
Sigurður vildi ekki gefa blaða-
manni DV færi á að ræða við Marce-
linu vegna málsins. „Þetta viðtal var
tekið fyrir lifandis löngu síðan og á
ekkert skylt við þessa frétt sem þeir
voru með,“ segir hann.
Aðspurður hvort Marcelina muni
hafast frekar að vegna málsins segir
hann: „Það er alveg óvíst hvað verð-
ur gert. Þeir eru búnir að biðjast af-
sökunar og það er ekki tímabært að
ræða hvort við gerum eitthvað frek-
ar í þessu,“ segir hann og bætir við:
„Það er viðbúið að þetta valdi óþæg-
indum.“
Þrátt fyrir margítrekaðar tilraunir
náðist ekki í Frey Einarsson, ritstjóra
opna gluggans á Stöð 2, sem Ísland
í dag heyrir undir. Óskar Hrafn
Þorvaldsson, fréttastjóri Stöðvar
2, sagðist ennfremur ekki geta
tjáð sig um málið.
Hótanir kærðar
Eins og fram hefur komið í
DV í vikunni hafa íbúar í
húsinu á Hverfisgötu og
í íbúðarblokk á Akurvöll-
um í Hafnarfirði sagt
frá vændisstarfsemi
í húsunum. Catal-
ina hefur neitað öll-
um ásökunum um
að hún standi fyrir
vændinu. Í fyrra-
dag hafði hún hins
vegar í hótunum
við blaðamann DV vegna
umfjöllunar blaðsins og sagði með-
al annars: „Þú getur sagt lögreglunni
það að ég sé að hóta þér. Hún þekkir
mig. Ég er að hóta þér og ætla að
stöðva þig á slæman hátt.“ Þessi
hótun hefur nú verið kærð til lög-
reglu. Eins og fram hefur komið
tengist Marcelina ekki vændis-
starfseminni þótt leiðir hennar og
Catalinu hafi legið saman.
„Þetta viðtal var tek-
ið fyrir lifandis löngu
síðan og á ekkert skylt
við þessa frétt sem þeir
voru með.“
Marcelina, kona á þrítugsaldri frá Miðbaugs-Gíneu, féllst á að
segja sögu sína í viðtali við Ísland í dag í fyrrakvöld gegn því
að hún yrði gerð óþekkjanleg í sjónvarpi. Viðtalið við hana var
tekið í byrjun ársins en birt í fyrrakvöld. Stöð 2 stóð hins vegar ekki
við loforðið um að hún myndi ekki þekkjast.
Freyr Einarsson ritstjóri opna gluggans
á Stöð 2. ekki náðist í hann, þrátt fyrir
margítrekaðar tilraunir.
Catalina Mikue Ncogo marcelina
sagði frá samskiptum sínum við Catalinu
í Íslandi í dag með því skilyrði að andlit
hennar yrði hulið. Stöð 2 virti ósk hennar
að vettugi og nú er hún í felum af ótta við
hefndaraðgerðir Catalinu.
valgEir örN ragNarssoN
blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is
Miðvikudagur 24. SepteMber 20084
Fréttir
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Örn Árnason
Vilja stæðin frá svefnherbergisglugganum
„Ég var beðinn um álit hvort mér fyndist gott að láta fækka stæðum, mér fannst það ekki,“ segir Örn Árna-
son leikari. Anna Dóra Helgadóttir, sem á íbúð við Bröndukvísl í Reykja-
vík, hefur óskað eftir því við borg-
ina að færa fjögur bílastæði sem eru undir svefnherbergisglugga henn-
ar. Þetta vill hún að verði gert vegna þess að bílaumferð um stæðin truflar nætursvefn í svefnherberginu.
Örn segir götuna þrönga og erfitt sé að skera niður í bílastæðamálum. „Þegar það eru afmæli er lagt uppi á götuhornum og úti um allt, þá eru engin stæði við húsin. Ég er ekkert að leggjast gegn því að fólkið fái næt-
urfrið, ég hlýt að hugsa um heildar-
myndina,“ segir Örn. Hann bend-
ir einnig á að fólk noti stæðin undir fellihýsi, hjólhýsi og ýmislegt fleira.
Skipulagsráð Reykjavíkur hef-
ur sent íbúum í nágrenninu bréf svo þeir geti lýst skoðunum sínum á hvort færa eigi bílastæðin sem eru undir glugganum á annan stað í göt-
unni. „Ef þau verða færð á svæð-
ið hér fyrir neðan fara þau bara fyr-
ir framan stofugluggann hjá næsta nágranna, þetta er svolítið þrútið að finna stæði fyrir bílana. Það gæti orð-
ið fjandi erfitt að komast út úr göt-
unni,“ segir Örn.
Allir aðilar sem gerðu athuga-
semdir við grenndarkynningu mót-
mæltu fækkun bílastæða og færðu fyrir því ýmiss konar rök. Fundað var um málið á fundi skipulagsráðs 16. september og er lagt til að fyrir-
komulagi bílastæða verði breytt og gerð verði miðeyja (tvö stæði) milli bílastæða til að koma til móts við
óskir íbúa Bröndukvíslar 18. Einnig er gerð tillaga að því að tvö ný stæði verði við enda þessara almennu bílastæða. Þannig mun heildar-
fjöldi almennra bílastæða við botn-
langa Bröndukvíslar verða óbreytt-
ur frá því sem var eða tíu almenn bílastæði.
Örn Árnason
einn margra íbúa sem eru ósáttir
við breytingu á deiluskipulagi þar
sem fækka á bílastæðum í götunni.
„Við erum dauðhræddar allan
sólarhringinn og þorum varla
að fara að sofa. Við verðum að fá
hjálp,“ segir Cristina Asangono
Mba, stúlka frá Miðbaugs-Gíneu í
Afríku, sem er búsett hér á landi.
Hún segir að í byrjun septemb-
er hafi þrír karlmenn ruðst inn á
heimili hennar og ráðist á hana
og þrjár sambýliskonur hennar.
„Þeir hótuðu okkur með hníf-
um og rústuðu íbúðinni. Síð-
an stálu þeir tölvu, peningum,
öllum skilríkjunum okkar og
vegabréfunum líka.“
Fá morðhótanir
Cristina og sambýliskon-
ur hennar leituðu til lög-
reglunnar í framhaldinu en
henni finnst rannsókn máls-
ins ganga hægt. „Lögreglan
gerir ekkert til að hjálpa okk-
ur. Við erum varnarlausar.“
Að sögn Cristinu telur
hún mennina hafa verið á
vegum afrískrar konu sem
hún þekkir lítillega. „Hún
vill að við förum aftur heim
til okkar. Við höfum samt
ekkert gert henni.
Ég held að henni sé
bara illa við að hérna
séu aðrar svartar kon-
ur. Hún heldur að hún sé
einhver prinsessa.“
Eftir árásina hafa þær
fengið símtöl og sms frá
konunni þar sem hún
krefst þess að þær borgi
hundrað þúsund krónur
fyrir hvert vegabréf. Crist-
ina vinnur á Landspítal-
anum og launin eru ekki
há. „Við eigum ekki svona
mikla peninga. Hún seg-
ist ætla að láta drepa okk-
ur ef við borgum ekki eða
förum burt.“
Án sjúkratryggingar
Marcelina Felicid-
ad Obono er ein sam-
býliskvenna Cristinu.
Hún segist hafa verið með
barni en misst fóstur eft-
ir árásina og telur henni
um að kenna. Marcelina er
ekki íslenskur ríkisborgari
og hefur enga sjúkratrygg-
ingu. Hún segist þurfa á
læknishjálp að halda en
hafa ekki efni á að borga
fyrir hana hér. Því þurfi hún
vegabréfið sitt til að kom-
ast til Spánar þar sem hún
hefur verið búsett,
og leita læknis þar.
Marcelina lá mest
fyrir þegar blaðamann bar að garði
og virtist heldur lasleg. Eftir árásina
neyddist hún til að fara á spítala og
þarf að greiða tugi þúsunda fyrir
heimsóknina.
Neitar sök
Dóttir Franciscu Isabel Angue
var búsett með þeim stúlkum en
hún er nú farin aftur til Spánar. Hún
var þó eitt fórnarlamb árásarinnar
að sögn móður hennar en þar sem
vegabréfinu hennar var ekki stolið
ákvað hún að fara af landi brott.
Cristina hefur hins vegar engan
áhuga á að flytja burt. Henni þyk-
ir gott að búa á Íslandi en finnst
óásættanlegt að þurfa að lifa í stöð-
ugum ótta.
DV ræddi einnig við íslenskan
vin Cristinu sem hefur aðstoðað
þær við að vekja athygli lögreglu á
málinu þar sem hann þekkir kerfið
hér betur en stúlkurnar. Lengi vel
fannst honum lögreglan skella við
skollaeyrum en segir hana nú vera
farna að taka við sér.
Í samtali við DV neitar konan,
sem stúlkurnar bera þessum sök-
um, að tengjast árásinni á nokk-
urn hátt en svo virðist sem illindi
hafi verið þeirra á milli í einhvern
tíma.
Hjá lögreglunni á höfuðborgar-
svæðinu fæst staðfest að stúlkurnar
hafi leitað til lögreglu vegna máls-
ins en ekkert fæst uppgefið um efn-
isatriði þess.
Cristina Asangono Mba
MISSTI FÓSTUR
EFTIR HNÍFAÁRÁS
ErlA HlyNsdóttir
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
óttaslegnar Francisca isabel angue, Cristina Nfono Mba, Marcelina Felicidad Obono og Cristina asangono Mba. Þær segjast búa við stöðugan ótta eftir að ráðist var inn á heimili þeirra en
lögreglan bregðist seint og illa við.
ógnað konurnar segja
að þeim hafi verið ógnað
með hnífum við árásina.
Hnífakastari enn
til rannsóknar
„Við reiknum með að ljúka
rannsókn í þessari viku,“ seg-
ir Friðrik Smári Björgvinsson,
yfirmaður rannsóknardeildar
lögreglunnar á höfuðborgar-
svæðinu, um mál manns sem
grunaður er um að hafa beitt
þrjú börn sín hrottalegu ofbeldi
og notað hníf á eitt þeirra.
Í samtali við DV í vikunni
sagði Bragi Guðbrandsson,
forstjóri Barnaverndarstofu, að
hann hefði aldrei áður heyrt
um mál þar sem eggvopnum
væri beitt á börn. Þetta væri því
einstakt í sögu barnaverndar á
Íslandi ef rétt reynist.
Alcan vill
skaðabætur
Fyrirtaka í skaðabótamáli
Alcan á Íslandi gegn olíufélög-
unum Olís, Keri og Skeljungi
fór fram í gær. Samkvæmt
matsgerð sem lög var fyrir í
málinu í upphafi mánaðarins
nam tjón Alcan vegna sam-
ráðs stóru olíufélaganna um
251 milljón króna á verðlagi
áranna 1993-2001. Málið er
höfðað gegn olíufélögunum á
grundvelli þess að Alcan var
eitt þeirra félaga sem nefnd
voru í skýrslu Samkeppnis-
stofnunar um samráð olíu-
félaganna. Hæstiréttur hefur
áður dæmt olíufélögin til að
greiða Reykjavíkurborg og
Strætó samanlagt tæpar 80
milljónir króna í bætur.
Ingibjörg Sólrún
fékk aðsvif
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
utanríkisráðherra fékk aðsvif og
var flutt til skoðunar á spítala í
New York í gær. Hún fékk að fara
aftur heim á hótel að lokinni
læknisskoðun. Ingibjörg Sólrún
er stödd í New York ásamt Geir
H. Haarde forsætisráðherra þar
sem þau taka þátt í svokallaðri
ráðherraviku allsherjarþings
Sameinuðu þjóðanna dagana
22. – 27. september. Þar munu
ráðherrarnir hitta þjóðarleiðtoga
og aðra ráðamenn sem sækja
þingið, ræða samskipti ríkja og
tala fyrir framboði Íslands til
setu í öryggisráði Sameinuðu
þjóðanna.
Stúlka beit
lögregluþjón
Héraðsdómur Reykjaness
hefur dæmt stúlku í tveggja
mánaða fangelsi fyrir árás á
lögregluþjón. Stúlkan, sem
var sextán ára þegar árásin var
gerð, var ákærð fyrir að bíta
lögregluþjóninn í handlegg í
nóvember í fyrra. Lögreglu-
þjónninn hlaut mar á hand-
legginn fyrir vikið. Stúlkan
játaði brotið en hún hefur ekki
áður gerst sek um refsiverða
háttsemi. Þótti dómara hæfi-
leg refsing tveggja mánaða
fangelsi og er dómurinn bund-
inn skilorði til tveggja ára.
24. september 2008
hótað Eftir
mEint Svik
Stöðvar 2
„Ég hef fengið allavega viðbrögð, bæði
plús og mínus, ég kem út sennilega á
núlli,“ segir Magnús Örn Óskarsson,
eigandi Borgarhjóla á Hverfisgötunni.
Hann hefur fengið mikla athygli eft-
ir að DV fjallaði um tilkynningu sem
hann beindi til viðskiptavina sinna í
anddyri búðarinnar, þar var skrifað
á miða „Júðar ekki velkomnir“. Mál-
ið vakti athygli langt út fyrir land-
steinana og meðal annars var fjallað
um málið í vefútgáfu ísraelska blaðs-
ins Jerusalem Post og á vef European
Jewish Press.
Magnús Örn segir að lögreglan
hafi komið í búðina til hans stuttu eft-
ir að DV fjallaði um málið. „Lögreglan
kom út af þessu, þeir sögðu að þetta
væri brot á stjórnarskránni svo ég tók
miðann niður. Ég nenni ekkert að fara
í fangelsi, ég má ekkert vera að því.“
Hann segir lögregluna hafa verið al-
mennilega þegar hún kom í búðina til
hans. „Þetta voru stelpa og strákur og
stelpan spurði mig hvort þetta væri út
af ófriðnum á Gaza-ströndinni og ég
sagði bara já þetta væri út af því, það
er fyrst og fremst orsökin fyrir að ég
hengdi þennan miða upp.“
Hann segist hafa
fengið tölvupóst
frá manni í Kanada
sem gerði athuga-
semd við miðann.
„Hann var ekki
ánægður með þetta
og sagði að ég væri
júðahatari, ég svar-
aði honum ekki.
Mér finnst ágætt að
vera búinn að fá at-
hugasemd þarna
þvert yfir heiminn,“ segir Magnús sem
vill ekki meina að í orðinu felist hat-
ur í garð gyðinga. „Júði er samnefni á
þessum þjóðflokki á öllum Norður-
löndunum, ég veit þó ekki með Finna,
það þykir ekkert skammaryrði, það
er bara nafnið á þessum þjóðflokki.“
Hann segist þó ekki hafa áhyggjur af
minnkandi viðskiptum í búð-
inni eftir að hann hengdi mið-
ann upp. „Það hefur komið
fólk hingað til mín og þakkað
mér fyrir þetta, en það hefur
enginn komið hingað sem er á
móti þessu, þeir hafa verið að
senda mér tóninn og það hefur
verið hringt. Ég tilkynnti dætr-
um mínum það að ef ég yrði
drepinn þá hefði júði drepið
mig,“ segir Magnús að lokum.
bodi@dv.is
Magnús örn fjarlægði miða þar sem „júðar“ voru bannaðir í hjólaverslun:
Lögreglan stoppaði gyðingahatur
Mikil viðbrögð magnús Örn fékk alla-
vega viðbrögð eftir að hann hengdi upp
miða sem á stóð „Júðar ekki velkomnir“.
„Ég vil helst ekki fá júða, af því mér
er illa við þá og er búið að vera það í
mörg ár,“ segir Magnús Örn Óskars-
son, eigandi Borgarhjóla á Hverfisgöt-
unni. Í anddyri búðarinnar er tilkynn-
ing til viðskiptavina þar sem stendur
skrifað „Júðar ekki velkomnir“.
Magnús, sem hefur rekið verslun-
ina í 25 ár, segir að aðgerðin sé sprottin
af pólitískum rótum.
Rekur ekki gyðinga í burtu
Magnús hengdi miðann upp hálfum
mánuði áður en Össur Skarphéðins-
son hafnaði heimsókn menntamála-
ráðherra Ísraels. Hann spyr sig af
hverju Ísrael fær að taka þátt í Euro-
vision-keppninni eftir átökin á Gaza
undanfarið. „Núna neita Bretar að
koma nálægt því að hjálpa hjálpar-
samtökum sem eru að aðstoða Palest-
ínumenn á Gaza. Að þeir þurfi að vera
flóttamenn í eigin landi,“ segir Magnús
og bendir á að sér sé alveg sama hvort
átökin á Gaza skaði rekstur sinn.
Hann segist ekki myndu reka gyð-
inga, sem ætluðu að versla við sig,
í burtu. Hann segist vita um fullt af
góðu fólki sem er gyðingar, meðal
annars vísindamenn. „Þeir eru ekki
velkomnir en ég myndi ekki leggja
hendur á þá. Ég myndi gera við hjól-
in þeirra, þeir yrðu bara að vita að þeir
eru ekki velkomnir, en ég er ekkert að
reka þá í burtu.“
„Var Hitler
vondur?“
„Ég myndi
ekki neita
honum en
hann er
ekki vel-
kominn,
það er allt
annað mál,
hann verð-
ur bara að
vita það,“ segir
Magnús að-
spurður
um hver viðbrögð hans yrðu ef gyð-
ingur leitaði eftir þjónustu hans. „Það
hefur enginn kvartað undan þessum
miða við mig. Ég hef verið með miklu
fleiri miða hérna hjá mér, það hefur
vakið athygli, til dæmis komst miði á
netið sem ég var með á hurðinni þar
sem stóð „Eru gyðingar góðir?“ og svo
var annar miði sem stóð á „Var Hitler
vondur?“.“ Hann segist þó muna eftir
tveimur dæmum þar sem viðskipta-
vinir hafa sagt miðann vera óviðeig-
andi. Hann er þó ekki sammála því.
„Ég má koma mínum skoðunum á
framfæri.“
Óhuggulegt
Þórhallur Heimisson, prestur í Hafn-
arfirði, segir orðsendingu verslunar-
eigandans óhuggulega, enda hefur
orðið „júði“ verið notað sem skamm-
aryrði yfir gyðinga. „Mér finnst þetta
óhuggulegt. Orðið júði er gamalt orð
sem var notað sem skammaryrði yfir
gyðinga og er mjög sterk tilvitnun í
nasismann,“ segir Þórhallur og bend-
ir á að fólk blandi oft saman Ísrael og
svo einhverjum ímynduðum kynþætti
sem er oft á tíðum sóttur í öfgastefnur.
Hann segir óljóst hvað Magn-
ús meinar með orðinu „júði“. „Ætlar
hann að passa upp á að útlendingur
sem kemur í verslunina sé ekki Ísra-
elsmaður, eða er hann að hugsa um
að þetta sé genetískt, að þetta snú-
ist um kynþætti gyðinga, eða er það
af því viðkomandi er gyðingatrúar?
Með þessu orði ruglar hann þessu öllu
saman.“
Þórhallur segir að ákvæði sé í
stjórnarskránni um að ekki megi mis-
muna Íslendingum eftir kyni, trú, kyn-
ferði og kynþætti. „Þetta er sorglegt
og ég vona að þetta sé einstakt, svona
mikil vitleysa.“ Hann segir að stutt sé í
reiði hjá fólki eftir átökin á Gaza und-
anfarið.
„Menn geta notað þetta sem
áminningu fyrir sig að þegar það er
verið að tala um kynþætti, til dæmis
„allir Færeyingar eða Íslendingar séu
svona“, þá er mjög stutt í þetta orð þó
að menn átta sig ekki á því þegar þeir
eru að skammst út í hinar og þessar
þjóðir. Ég held að það sé frekar að það
sé óvart að menn grípa til þess að nota
þetta orð.“ Hann bendir jafnframt á að
menn rugli gjarnan saman trúflokki,
kynþætti og þjóðerni og búi til ein-
hverja ímynd um ákveðinn hóp fólks.
miðvikudagur 28. janúar 20096
Fréttir
ritstjorn@dv.is
Innlendar FréttIr
„Við höfum í þessum mánuði selt átj-
án SsangYoung-jeppa, fjóra Chevrol-
et-jeppa og einn fólksbíl. Þetta eru því
tuttugu og þrír bílar frá áramótum,“
segir Benedikt Eyjólfsson, eigandi Bíla-
búðar Benna. Þetta eru þó mun færri
nýir bílar en seldir voru á sama tíma í
fyrra. Í janúar 2007 seldust fjörutíu og
fjórir bílar hjá fyrirtækinu og munar
því tæplega helmingi. Chevrolet- og
SsangYoung-jeppar voru þá einnig
vinsælastir ásamt Porsche.
Benedikt segir að til að sækja fram
í erfiðu efnahagsástandi hafi Bílabúð
Benna ákveðið að lækka verð og bjóða
viðskiptavinum tilboð til að halda
starfseminni gangandi. „Mér sýnist
mörg fyrirtæki gera einmitt það. Það
er ekki hægt að vera kyrr. Annaðhvort
fer maður áfram eða aftur á bak,“ seg-
ir hann.
Samkvæmt tölum frá Umferðar-
stofu hefur 101 fólksbifreið verið ný-
skráð það sem af er mánuðinum. Toy-
ota-bifreiðar eru vinsælasta sem og
oft áður en þrjátíu og ein bifreið af
þeirri tegund hefur verið nýskráð frá
mánaðamótum, átján SsangYoung-
jeppar, tólf Honda-bifreiðar og fimm
af tegundinni Chevrolet. Af öðrum
tegundum hafa færri bílar verið ný-
skráðir.
Allt annað var uppi á teningnum
í janúar á síðasta ári en þá voru ný-
skráðar fólksbifreiðar 1.432. Toyota-
bílar voru langtum vinsælastir en
515 slíkir voru þá nýskráðir, Nissan-
bifreiðar komu þar næst á eftir en þó
mun færri eða áttatíu og sjö. Áttatíu
og fjórir Honda-bílar voru nýskráðir í
janúar í fyrra og sami fjöldi af Subaru.
erla@dv.is
Selur jeppa í kreppunni
SsangYoung vinsælastir
jón kr. Stefánsson sölustjóri
lækkar verð á bílum til að halda
við sölunni.
MYnd KRiStinn MagnúSSon
Stal bíl frá
„frænku sinni“
Kona í Reykjavík uppgötv-
aði þegar hún ætlaði að mæta
til vinnu í morgun að bíln-
um hennar hafði verið stolið í
fyrrinótt. Hún tilkynnti lög-
reglu þjófnaðinn sem hringdi
stuttu síðar í hana og tilkynnti
að bíllinn væri á lögreglustöð-
inni. Þjófurinn var stoppaður
um nóttina og bar fyrir sig að
bíllinn væri í eigu frænku sinnar.
Vegna fyrri afskipta af mannin-
um trúðu lögreglumenn honum
ekki og tóku bílinn.
Skýrsla var tekin af mannin-
um á lögreglustöðinni og hon-
um síðan sleppt. Maðurinn og
konan eru ekki skyld svo vitað
sé. Ekki er vitað hvernig maður-
inn komst inn í bílinn og náði
honum í gang.
Nær þrettán
þúsund án
vinnu
12.793 eru án atvinnu á Ís-
landi samkvæmt upplýsingum
af vef Vinnumálastofnunar.
Þar af eru 8.066 á höfuðborg-
arsvæðinu og eru atvinnu-
lausir karlar nær tvöfalt fleiri
en konur, 5.242 á móti 2.824.
Athygli vekur að 1.529 eru at-
vinnulausir á Suðurnesjum,
866 karlar en 663 konur. Til
samanburðar eru 85 atvinnu-
lausir á Vestfjörðum.
Konur stálu
hnökkum
Tvær konur voru handteknar
af lögreglunni á höfuðborgar-
svæðinu í fyrrakvöld í tengsl-
um við rannsókn á innbrotum
í fjölda hesthúsa á höfuðborg-
arsvæðinu fyrr í mánuðinum.
Konurnar tvær játuðu báðar
sök við yfirheyrslur.
Mikið hefur verið um
hnakkastuldi. Þjófunum tókst
að selja eitthvað af hnökkun-
um en unnið er að því að end-
urheimta þá. Hnakkarnir, sem
voru haldlagðir, voru faldir á
ýmsum stöðum á höfuðborg-
arsvæðinu en þeir fundust við
húsleitir sem og nokkrir aðrir
munir sem einnig var stolið í
þessum innbrotum.
Magnús Örn Óskarsson
HAFNAR GYÐINGUM
Í HJÓLAVERSLUN
„Þetta er sorglegt og
ég vona að þetta sé
einstakt, svona
mikil vitleysa.“
Boði logaSon
blaðamaður skrifar bodi@dv.is
Í anddyri miðinn er hengdur
upp í anddyri verslunarinnar.
Magnús Örn Óskarsson Hefur
átt hjólabúðina í 25 ár og segir að
gyðingar séu óvelkomnir.
Óhuggulegt Þórhallur Heimisson
segir miðann vera óhuggulegan og
vonar að þetta sé einsdæmi á Íslandi.
Boðar óháða
ráðherra
Ólafur Ragnar Grímsson, for-
seti Íslands, boðaði í gær þann
möguleika að utanaðkomandi
menn tækju sæti í ríkisstjórn
sem nyti stuðnings eða sam-
vinnu að minnsta kosti fjögurra
flokka. „Einn eða fleiri virtir
einstaklingar, sérfræðingar utan
þings, tækju kannski sæti í slíkri
ríkisstjórn þó að það sé vitanlega
alfarið á vettvangi flokkanna að
fjalla nánar um það og skoða
það. En slík ríkisstjórn, sem nyti
stuðnings eða samvinnu við að
minnsta kosti fjóra flokka og
hefði slíka tilvísun út í samfé-
lagið, væri á vissan hátt í anda
þeirrar þjóðstjórnarhugmynd-
ar sem margir hafa sett fram að
undanförnu.“
28. janúar