Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2009, Page 15
ÞRIÐJUDAGUR 24. MARS 2009 15Umræða
Hver er maðurinn? „Ég heiti
Ronald Björn Guðnason og er
verkfræðingur í atvinnuleit.“
Hvað drífur þig áfram? „Trúin.“
Hvaða þrjú orð lýsa þér best?
„Ég er diplómatískur, vinalegur og
glaðlegur.“
Hvar ertu alinn upp? „Ég er alinn
upp í Hafnarfirði.“
Áhugamál? „Það er án efa
fjölskyldan enda á ég fimm börn, svo
hef ég gaman af því að hreyfa mig
og skreppa í fótbolta.“
Hefur þú bjargað mannslífi
áður? „Fyrir mörgum árum var ég
afleysingamaður í slökkviliðinu í
Hafnarfirði og það fylgdi vissulega
því starfi að bjarga fólki.“
Hvernig var tilfinningin þegar
þú áttaðir þig á því að þú varst
með litlu frænku þína í hönd-
unum? „Það breytti engu þegar ég
áttaði mig á því að þetta var hún og
hefði engu breytt ef þetta hefði verið
mín eigin dóttir. Ég hélt einbeiting-
unni og hélt áfram að gera það sem
ég þurfti að gera.“
Hefur þú lært skyndihjálp? „Já,
fyrir mörgum árum. Engu að síður
kom hún sér mjög vel í þessu tilfelli.“
Hvernig líður Alexíu í dag? „Hún
er búin að jafna sig fullkomlega og
útskrifaðist af spítalanum aðeins
degi eftir slysið. Hana langaði meira
að segja að skella sér beint í sund,
sem segir manni að þetta hefur ekki
haft mikil áhrif á hana enda man
hún ekkert eftir slysinu. Sjálfum
líður mér ágætlega, vissulega hefur
maður farið yfir viðburðinn mörgum
sinnum í huganum, spurt sig hvort
maður hafi gert allt rétt og hvort
maður þurfi að hafa sektarkennd
yfir því sem gerðist. Ég er allavega
ofboðslega feginn og þakklátur að
ekki fór verr.“
Áttu þér draum? „Já, ég elska þetta
land og vil vera þátttakandi í að
bjarga því.“
Hefur þú unnið sjálfboðastarf?
„Nei, ég hef ekkert spáð í það. En ég
geri það kannski einhvern daginn.“
Jón SigurðSSon
17 áRA NEMI
„Nei, ég hef ekki gert það en ég geri
það kannski í náinni framtíð. Ég ætlaði
að vera sjálfboðaliði hjá Fjölskyldu-
hjálpinni síðustu jól en það varð ekkert
úr því þannig að ég ætla að bjóða mig
fram um næstu jól.“
Auður geirSdóttir
24 áRA HáSkólANEMI
„Nei, en ég hef spáð í það en aldrei
látið verða af því. Ég hef aldrei haft
nægan tíma til þess.“
guðbJörg torfAdóttir
53 áRA AFGREIÐSlUkoNA
„Nei, en það er möguleiki að ég geri
það í framtíðinni. Þá væri ég til í að fara
út til Afríku og hjálpa fólki þar.“
MAríA HólMgríMSdóttir
19 áRA NEMI
Dómstóll götunnar
ronAld bJörn guðnASon fór
ásamt konu sinni, börnum og börnum
bróður síns í sund á Hellu um liðna helgi.
Ekki fór betur en svo að fjögurra ára
bróðurdóttir hans, Alexía Margrét
Axelsdóttir, fannst líflaus á botni
sundlaugarinnar. Ronald blés lífi í Alexíu
en áttaði sig ekki á því að um frænku
hans væri að ræða fyrr en í miðri björgun
vegna þess hversu ólík sjálfri sér hún var.
Gerði það sem éG
þurfti að Gera
„Nei, reyndar ekki og ég hef ekkert
spáð sérstaklega í það. Það gæti vel
verið að ég myndi gera það einhvern
tímann.“
Jón ÞórArinSSon
28 áRA kERRUSTARFSMAÐUR í BóNUS
maður Dagsins
Sigurjón Þórðarson, frambjóðandi
Frjálslynda flokksins, fer mikinn í
grein sinni „Verkin sýna merkin“ og
talar um mikinn misskilning minn
á vangetu og vanvilja Samfylking-
arinnar í sjávarútvegsmálunum.
Þegar fyrirsögnin er lesin er raunar
nærtækt að spyrja sig hvað það er
nákvæmlega sem Frjálslyndi flokk-
urinn hefur afrekað í gegnum tíð-
ina. Ég sem fyrrverandi kjósandi
flokksins hef svo sannarlega ekki
séð þau merki sem halda verkum
frjálslyndra hátt á lofti.
Sigurjón heldur því fram að
Samfylkingin hafi ákveðið að hafa
að engu álit mannréttindanefndar
Sameinuðu þjóðanna. Staðreynd-
in er sú að Samfylkingin fékk litlu
ráðið í þessum málaflokki í ríkis-
stjórnarsamstarfi sínu með Sjálf-
stæðisflokknum. Það náðist því
miður ekki annað en að samþykkja
sérstaka athugun á reynslunni á
fiskveiðistjórnunarkerfinu og síð-
ar var ákveðið að skipuð yrði nefnd
til þess að gera tillögur til að bregð-
ast með fullnægjandi hætti við
áliti mannréttindanefndar SÞ um
fiskveiðistjórnunarkerfið. Það var
hægagangur fyrrverandi sjávarút-
vegsráðherra, Einars K. Guðfinns-
sonar, sem og bankahrunið sem
varð til þess að ekki reyndist unnt
að ljúka þessari vinnu. Nú hefur aft-
ur á móti verið haldið áfram með
endurskoðun á stjórnarskránni þar
sem áhersla verður lögð á að leiða
til lykta þann ágreining sem uppi
er um þjóðareign á náttúruauðlind-
um. Það liggur nú þegar fyrir tillaga
þess efnis. Mistök Samfylkingarinn-
ar voru hins vegar að fara í stjórnar-
samstarf með Sjálfstæðisflokknum
sem ver kvótakerfið með ráðum og
dáð. Slík mistök munu án efa ekki
verða gerð aftur.
Stefna Samfylkingarinnar í sjáv-
arútvegsmálum er skýr. Að aflokn-
um komandi kosningum mun gef-
ast gullið tækifæri til þess að ná fram
þeim breytingum sem þarf til þess
að ná sátt á meðal þjóðarinnar um
nýtingu auðlindanna. Kvótabrask-
inu verður að linna og hinu enda-
lausa sogi fjármagns út úr greininni
sem hefur skilið sjávarútveginn eft-
ir í rúst. Um það hefur Frjálslyndi
flokkurinn verið sammála Samfylk-
ingunni. Samfylkingin er hins vegar
eini stjórnmálaflokkurinn á Íslandi
sem hefur burði til þess að leiða
þetta mál til lykta. Um það þarf ekki
að deila.
Ef einhverju á að vera hreyft í
þessum málaflokki þá mun það
verða gert að tilstuðlan Samfylk-
ingarinnar. Því er mikilvægt að þeir
sem hafa raunverulegan áhuga á að
gerðar verði breytingar á þessu sviði
fylki sér á bak við flokkinn. Íslands-
hreyfingin tók mjög ábyrga afstöðu
fyrir skömmu síðan og ákvað yfir-
gnæfandi meirihluti félagsmanna
hennar að hafna sérstöku fram-
boði af ótta við að slíkt gerði meira
ógagn en gagn þar sem allar líkur
væru á því að atkvæði myndu detta
niður dauð. Engu að síður hefur Ís-
landshreyfingin mælst með meira
fylgi en frjálslyndir í undanförnum
skoðanakönnunum.
Hugsanlegir kjósendur Frjáls-
lynda flokksins ættu því að kynna
sér stefnumál Samfylkingarinn-
ar varðandi sjávarútvegsmálin og
hafa ábyrga ákvörðun Íslands-
hreyfingarinnar að leiðarljósi í
næstu kosningum. Stefna Sam-
fylkingarinnar mun verða kynnt
að afloknum landsfundi 27.–29.
mars. Ég hvet kjósendur til að taka
ábyrgð og láta ekki atkvæði okk-
ar detta niður dauð í næstu kosn-
ingum. Slíkt mun eingöngu styrkja
þau öfl sem standa þétt að baki
kvótakerfinu. Kosningarnar í vor
gætu verið okkar síðasta tækifæri
til þess að leiðrétta hið hróplega
óréttlæti sem kvótakerfið hefur
leitt af sér. Látum það ekki fram hjá
okkur fara.
Höfundur mun skipa fjórða
sæti á lista Samfylkingarinnar í NV-
kjördæmi í næstu kosningum.
Tökum ábyrgð
kjallari
svona er íslanD
1 Kunningjar fritzl munu segja
frá öllu
Fyrrverandi vinir og kunningjar Josefs
Fritzl munu tjá sig um hann í sérstökum
sjónvarpsþætti sem sýndur verður á
Sky á næstunni.
2 Pamela í vandræðum með
mömmu
Pamela Anderson fékk móður sína
Carol til að flytja inn til sín til að aðstoða
við uppeldið á börnunum og dauðsér
eftir því.
3 ódýrasti bíll heims kominn í
sölu
ódýrasti bíll heims er kominn í sölu á
Indlandi.
4 ótrúlegt mark hjá Zlatan
Sænski framherjinn Zlatan Ibrahimov-
ich var á skotskónum fyrir Inter um
helgina þegar liðið lagði Reggina.
5 Karlmaður óléttur að
tvíburum
Hinn 25 ára gamli Ruben Noe
Coronado er við það að verða fyrsti
karlmaður sögunnar, svo vitað sé, til að
eignast tvíbura.
6 Mátti ekki heita Skallagrímur
Mannanafnanefnd klofnaði í afstöðu
sinni til eiginnafnsins Skallagrímur.
7 Starfsfólk SPron kveður
hvert annað
Starfsfólk SPRoN hittist í höfuðstöðvum
fyrirtækisins í ármúla snemma í
gærmorgun en enginn hefur enn
fengið uppsagnarbréf.
mest lesið á DV.is
„Kvótabraskinu verður
að linna og hinu enda-
lausa sogi fjármagns
út úr greininni.“
Þórður MÁr JónSSon
viðskiptalögfræðingur skrifar