Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2009, Síða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2009, Síða 25
Föstudagur 15. maí 2009 25Fókus Finnur þú ástina á Laugaveginum um helgina? Það er ekki ólíklegt þar sem ástarjátningar og ástar- bréf munu skreyta glugga ýmissa verslana við götuna. Sunna Dís Másdóttir, meistara- nemi í hagnýtri menningarmiðlun við Háskóla Íslands, hefur stað- ið fyrir verkefninu Ástarbréf ósk- ast! síðustu vikur í samvinnu við Landsbókasafn Íslands – Háskóla- bókasafn. Efnt var til söfnunar á ástarbréfum Íslendinga í gegnum árin. Söfnunin hófst í byrjun mars og stendur til ágústloka. Sýning- in nú um helgina veitir vegfar- endum eilitla innsýn í þá fjársjóði sem leynast í náttborðsskúffum og pósthólfum landsmanna en hún byggist á bréfum sem söfnuninni hafa þegar borist. Bréfin eru flestöll nafnlaus en sendendur bréfanna, tölvupóst- anna og skeytanna hafa veitt góð- fúslegt leyfi sitt fyrir því að þau fái að koma fyrir sjónir annarra en þau voru upphaflega ætluð, með það í huga að ylja Íslendingum að- eins um hjartarætur. Á sýningunni er þó einnig að finna bréf með nafni. Það er ritað af ljóðskáldinu Steini Steinarr árið 1931 þar sem hann játar Þórhildi Hafliðadóttur ást sína. Bréfið er afhent af Kristni Snæland, syni hennar. Íslensk ástarbréf eru af ýms- um toga eins og göngutúrinn ætti að leiða í ljós. Á sýningunni er að finna sms-skeyti, Facebook-skila- boð, tölvupósta og handskrifuð ástarbréf upp á gamla mátann. Nú á dögum einskorðast ástin ekki heldur við íslenska fold svo þar má einnig finna dönskuskotin bréf og skeyti á ensku, frönsku og sænsku. Ástarbréfin voru sett upp á fimmtudaginn og verða þar til sunnudagskvölds. Ástarjátningar á Laugavegi m æ li r m eð ... X-men Origins: WOlverine góður leikur með skemmti- legum viðbót- um við sögu myndarinnar. söngvaseiður góður endir á vetrinum í Borg- arleikhúsinu og á skilið langa lífdaga á sviði þess. sOfandi að feigðarósi reyfarakennd, snörp og skemmti- leg frásögn af íslenska efnahags- hruninu. Observe and repOrt Óendan- lega fyndin á köflum en fullsteikt þess á milli. Crank 2: HigH vOltage Prýðilega absúrd þvæla sem mun klárlega öðlast költ status. star trek sorrí star trek- nördar en fyrstu stjörnustríðsmynd- irnar hafa ennþá vinninginn. m æ li r eK Ki m eð ... föstudagur n 90´s-þema próflokadjamm háskólanna með Curver og kitty Það verður rosaleg stemning á Nasa þetta kvöldið. Curver og Kitty vita hvað fólki finnst gaman að heyra og þau munu koma til með að spila alla næntís-slagarna. miðaverð er 1.500 krónur og er aldurstakmarkið 20 ár. Húsið opnað á miðnætti. n benni b ruff á prikinu Það verður heldur betur stuð á Prikinu í kvöld. Prófin eru búin og nú verður dansað. Benni B ruff byrjar á miðnætti og heldur uppi blússandi stemningu langt fram eftir nóttu. Ókeypis inn. n sniglabandið og sjonni brink á players stuðið verður óbærilegt á Players í kvöld. sjonni Brink og sniglabandið. Það gerist ekki mikið betra. Ballið byrjar á miðnætti og er aðgangseyrir 1.500 krónur. n atli skemmtanalögga á Hverfisbarnum Já, það verður hrikalega mikið fjör á Hvebbanum í kvöld. allir í dansskóna því nú verður dansað - annars sektar löggan þig. Fjörið hefst á miðnætti. aðgangur er ókeypis. n aukatónleikar stefáns Hilmars- sonar í salnum stefán Hilmarsson sló í gegn á tónleikum í salnum um daginn og af því tilefni hefur verið ákveðið að endurtaka leikinn. tónleikarnir hefjast klukkan 20.30. miðaverða er 3.500 krónur. Nánari upplýsingar má finna á salurinn.is. laugardagur n eurovision-partí páls óskars á nasa Hið árlega Eurovision-partí Páls Óskars verður haldið í kvöld. Eurovision-fanatíkar ættu ekki að láta þetta framhjá sér fara því allar helstu stjörnur landsins munu koma fram og syngja og má þar á meðal nefna, stefán Hilmarsson, Eyjólf Kristjánsson, Pálma gunnarsson, Helgu möller, selmu Björnsdóttur, Einar Ágúst, Haffa Haff og fleiri. Húsið opnað klukkan 23. miðaverð í forsölu er 2.200 krónur en 2.500 krónur við innganginn. n danni deluxxx á prikinu Það er aldrei að vita nema að danni spili nokkur Eurovision-lög í tilefni kvöldsins. Fjörið byrjar á miðnætti, en Eurovision-keppnin verður sýnd á stórum skjá. n buff players Það verður nokkurs konar Eurov- ision-kvöld á Players í kvöld og strákarnir í Buff vita hvernig á að koma fólkinu í rétta gírinn. Ballið byrjar upp úr miðnætti og kostar 1.500 krónur inn. n skímó á breiðinni strákarnir í skímó koma saman og spila á Breiðinni á akranesi. strákarn- ir kunna að skemmta áhorfendum og það er ekkert eins og skímó-ball. n sssól á glóðinni sssól stígur á stokk á glóðinni í Keflavík í kvöld. Helgi Björns og félagar hafa aldrei verið heitari. Þetta er ball sem þú vilt ekki missa af. Hvað er að GERAST? sunna dís másdóttir Ástarbréfasafnarinn sunna sýnir afrakstur söfnunarinnar hingað til. ingi það í raun ekki svo. „Þar kem- ur gleymskugyðjan Hel til sögunnar. Það fer kannski ekkert svo illa fyrir honum, hann fær í rauninni það sem hann þráir. En ég held að það sé ekk- ert svo eftirsóknarvert hlutskipti fyr- ir alla.“ bættu inn persónu skugga Siguringi samdi leikgerðina og líbr- ettó óperunnar í samstarfi við Sig- urð Eyberg Jóhannesson en enn einn „Sigurðurinn“, Sigurður Sævarsson, er höfundur óperunnar. Að sögn Sig- uringa voru hann og Sigurður Ey- berg afar trúir sögu Sigurðar Nordal, nema þeir bættu inn kór og persónu að nafni Skuggi sem fer í ferðalagið með Álfi. „Þegar Sigurður Nordal skrifaði um Álf frá Vindhæli skrifaði hann líka hugleiðingar sínar í tvær þykkar bækur sem heita Einlyndi og Marg- lyndi,“ útskýrir Siguringi. „Þar er Sig- urður að fjalla um að það séu til alla- vega þessar tvær manngerðir, annars vegar einlynda manneskjan sem er jarðbundin og gengur mjög þægilega inn í hið hversdagslega líf. Hins vegar er það marglynda persónan sem við getum í rauninni sagt að sé bóhemið. Til þess að Álfur fái skýrari tilvistar- rétt á leiksviði þurftum við í raun að skapa Skugga. Ég vil helst ekki túlka það of mikið því hver og einn verð- ur að upplifa það fyrir sjálfan sig hver Skuggi er. En þeir sem velt hafa Hel fyrir sér, eins og til dæmis margir rithöfundar og heimspekingar hafa gert, þá ætti Skuggi ekki að koma neitt spánskt fyrir sjónir. En fyrir utan þessa viðbót, og kórinn, höfum við nánast eingöngu notað texta Sigurð- ar Nordal. Og við þurftum náttúrlega að festa söguþráðinn niður á vissan hátt til að hægt væri að setja hann upp á sviði.“ Þriggja ára vinna Í helstu hlutverkum í Hel eru Ágúst Ólafsson barítón, í hlutverki Álfs, Jó- hann Smári Sævarsson bassi, í hlut- verki Skugga, og Hulda Björk Garð- arsdóttir sópran, í hlutverki Unu. Caput-hópurinn ásamt blönduðum kór kemur einnig fram í sýningunni undir stjórn Sigurðar Sævarssonar en leikstjóri er Ingólfur Níels Árnason. Siguringi, Sigurður Eyberg og Ingólfur mynda saman sviðslistafé- lagið Hr. Níels. Þeir stofnuðu félagið árið 2004 í kringum uppsetningu á leikritinu Ráðalausir menn sem Sig- uringi skrifaði og sett var upp í Tjarn- arbíói. Tveimur árum seinna fengu þeir hugmyndina að því að gera óp- eru upp úr Hel og fóru og kynntu hana í svokallaðri óperudeiglu sem Íslenska óperan stóð fyrir. Það fyr- irkomulag gerði sjálfstæðum leik- hópum, tónskáldum og raunar al- menningi öllum kleift að koma inn af götunni til að ræða óperur og velta upp hugmyndum að nýjum óperum. Þar hittu Siguringi og félagar Sigurð Sævarsson sem leist strax vel á hug- myndina og út frá því tókst með þeim samstarf. flugfélagsstarfsmaður á vöktum Að sögn Siguringa var það frekar skemmtilegt en erfitt að setja saman leikgerðina og líbrettóið. En það hafi vitanlega kostað mikla vinnu. Þess má geta að Siguringi starfar við afgreiðslu hjá Flugfélagi Íslands. „Þar vinn ég bara mína vaktavinnu og skrifa þess á milli. Ég er ekkert menntaður í skrif- um, hef bara mikinn áhuga á þeim. Og ég fann það einhvern tímann út að leikhúsið er svona mitt form.“ Ráðalausir menn var gamanleik- rit og því virðist að minnsta kosti við fyrstu sýn vera himinn og haf á milli þess og Heljar, ekki síst í ljósi þess að margir álíta óperur vera þungt og tyrf- ið listform. Siguringi samsinnir að mikill munur sé á þessum tveimur verkum. „En það þvælist samt ekkert fyr- ir mér að þetta sé ópera því verkið er fyrst og fremst skrifað sem leikverk,“ segir Siguringi. „Okkar forsenda inn í óperuna er að við höfum þá trú að það sem geri óperu góða sé gott leik- rit. Góður texti. Stefán Baldursson óp- erustjóri sagði okkur líka frá því að ein af niðurstöðum óperuþings sem hald- ið var hér á landi á síðasta ári var sú að þegar ópera er samin sé mikilvægt að tónskáldið sé í mjög góðu samstarfi við leikskáldið. Oft hafa hins vegar áherslurnar verið algjörlega á tónlist- ina og sagan því í aukahlutverki,“ seg- ir Siguringi og bætir við að samstarfið við tónskáldið Sigurð hafi gengið af- skaplega vel. Að því sögðu lýstur niður í huga Siguringa að ýmislegt sé þó sameig- inlegt með Ráðalausum mönnum og Hel. Aðallega sé það bóhemlífið títt- nefnda. „Aðalpersónurnar í Ráðalausum mönnum eiga margt sameiginlegt með Álfi og hverfist það aðallega um bóhemlífið,“ segir hann. Óneitanlega er líferni bóhemsins Siguringa hug- leikið. „Eigum við ekki að segja að það hafi verið það,“ svarar hann hlæjandi. „Nú er ég ráðsettur, kominn með konu og börn, og þarf því ekki að velta mér lengur upp úr þessu.“ stressaður yfir mætingunni Mikil tilhlökkun kraumar innra með Siguringa yfir að sjá verkið tilbúið á sviði. „Og mér finnst það ákveðin menningarsigur að koma Hel á leik- svið. En ég er bullandi stressaður yfir því hvort það verði vel mætt eða ekki. Við erum líka í samkeppni við fær- eysku óperuna sem frumsýnd verður á Listahátíð deginum áður. En ég er að vona að fólk muni finna fyrir nýj- um áherslum í Hel. Að þarna sé gott leikverk á ferðinni en ekki eingöngu áhersla á óperuna.“ Um að gera fyrir fólk að fjölmenna á Hel enda ekki á hverjum degi sem íslensk ópera er frumsýnd. Og Fær- eyjar hvað? Er ekki alltaf verið að hvetja fólk til að velja íslenskar vör- ur? Hel verður frumsýnd 23. maí og fer miðasala fram á listahatid.is. kristjanh@dv.is Æft Hulda Björk garðarsdóttir og Ágúst Ólafsson æfa Hel.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.