Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2009, Síða 52

Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2009, Síða 52
Föstudagur 15. maí 200952 Lífsstíll Sælkeragöngur um ParíS Nú eru mæðgurnar sigríður gunnarsdóttir og silja sallé aftur komnar á stjá en fyrri bók þeirra, sælkeraferð um Frakkland, hefur notið mikilla vinsælda hér á landi. silja gengur með móður sinni um borgina og fangar hina einstöku Parísarstemningu með myndavélinni á meðan sigríður lýsir af ein- stakri frásagnargleði hverju hverfi fyrir sig. í lok hvers kafla eru síð- an dásemdar uppskriftir. Bók sem enginn fagurkeri og sælkeri ætti að láta framhjá sér fara. Uppskrift: Úlfar Finnbjörnsson Mynd: Kristinn magnússon Það þarf ekki að vera flókið að grilla fisk. En það eru nokkrar þumalputtareglur sem vert er að fara eftir. Galdurinn við að grilla fisk er að þurrka af honum allan vöka, leggja hann síðan í kryddlög eða pensla með olíu, strjúka því næst af honum mesta kryddlöginn og grilla fiskinn að lokum við háan hita. Þessi og fleiri frábær ráð má finna í glæsilegu tölublaði Gestgjafans sem nýlega kom í verslanir. Uppskrift fyrir fjóra: n 2 msk. hunang n ½ msk. sinnepsduft n 2 msk. volgt vatn n 2 msk. soja-sósa n 1/3 tsk. salt n ¼ tsk. pipar Allt sett í skál og blandað vel saman. n 1 kg lax, roð- og beinlaus, skorinn í fallega bita n 4 msk. olía Penslið laxinn með olíu og grillið á vel heitu grilli í 1-2 mín. báðum megin. Berið fram með t.d. grilluðum vorlauk, bökuðum kartöflum og jarðarberjasalsa. jarðarberjasalsa: n 2 dl jarðarber, skorn í bita n ½ rauðlaukur, smátt saxaður n 1 tsk. tímían n 2 msk. balsamgljái n 1/3 tsk. pipar n ½ tsk. salt Allt sett í skál og blandað vel saman. Hunangs- og sinnepsHjúpaður lax umsjóN: KolBrÚN PálíNa helgadóttir, kolbrun@dv.is áhugi fyrir heimatilbúnum snyrtivörum hefur farið vaxandi undanfarið. Bæði spilar þar árferðið inn í sem og aukinn áhugi á heilsu og náttúru. á heimasíðunni nattura.is má finna einfaldar og fljótlegar uppskriftir að unaðslegum snyrtivörum. VarasalVi n 1 teskeið aloe vera-gel n ½ teskeið kókoshnetuolía n 1 teskeið jarðolíuhlaup Blandið saman í glerskál og hitið í 1-2 mínútur á hæsta styrk í örbylgjuofni. Úr þessu verða til um það bil 15 grömm af varasalva. GUlrótaMaski, fyrir feita húð n 3 stórar gulrætur n 5 matskeiðar af hunangi eða hreinni jógúrt. Gulræturnar eru soðnar og stappaðar (einnig hægt að setja þær í mat- vinnsluvél). Bætið hunangi eða jógúrt við. Berið varlega á andlitið, byrjið á höku og færið ykkur upp andlitið. Hafið maskann á andlitinu í 15-20 mínútur og hreinsið síðan af með volgu vatni. hrUkkUkreM n 1 matskeið lanólín n 2 teskeiðar af sætri möndluolíu n 2 teskeiðar af vatni n 2 teskeiðar af þorskolíu Bræðið lanólínið og síðan er blandan látin kólna. Bætið þorskolíunni við. Berið varlega á andlitið. GliMMer Gel n ¼ bolli af aloe vera-geli n 1 teskeið glýseról n ¼ teskeið smátt glimmer n 5 dropar af einhvers konar ilmolíu Blandið saman gelinu og glýserólinu í litla skál. Blandið glimmerinu og ilmolíunni saman við. Ef vilji er fyrir hendi má líka setja lit í blönduna. ÓkeyPiS ráðgjöf fyrir ungt fÓlk Heimalagaðar Snyrtivörur „Þessi þjónusta okkar hefur fengið frábærar móttökur hingað til,“ segir Jón Heiðar Gunnarsson, verkefna- stjóri hjá Hinu húsinu. Hann seg- ir mikla þörf vera fyrir slíka þjón- ustu því kannanir sýna að ungu fólki finnst oft erfitt að átta sig á hvert það getur leitað eftir aðstoð í kerfinu. Hann bætir við að heimasíðan hefur bæði eflst og stækkað síðastliðin ár og samhliða því hefur gagnasafnið vaxið jafnt og þétt. „Síðan var síðast uppfærð árið 2006 og má því segja að hún hafið verið orðin svolítið barn síns tíma. Markmið okkar að þessu sinni var að gera síðuna aðgengilega, spennandi og flotta.“ Tótalráðgjafarnir eru samstarfs- teymi og hver og einn hefur sitt sér- svið, sem dæmi um sérsvið má nefna kynlíf, námsráðgjöf, þunglyndi, fíkn, léleg sjálfsmynd og ástarsambönd. Þegar síðan er skoðuð má sjá að nafnleynd ríkir hjá þeim aðilum sem spyrja spurninganna og eru þeir því ófeimnir við að spyrja. „Helsti styrk- ur síðunnar liggur án efa í því að full nafnleynd er viðhöfð þannig að ungmenni geta sent inn viðkvæmar spurningar án þess að þurfa að gefa upp persónulegar upplýsingar.“ Jón Heiðar segir að þrátt fyrir nafnleynd- ina hafi það komið ráðgjöfum síð- unnar á óvart hvað ungmenni í dag eru opin og ófeimin við að tjá sig. „Sama hver spurningin er reynum við eftir bestu getu að greina vand- ann, eða beina fólki áfram í réttan farveg. Við erum með mikið af góðu fólki á okkur snærum, til dæmis sál- fræðinga og fleiri ráðgjafa, og hikum ekki við að beina fólki til þeirra. Við gefum okkur alls ekki út fyrir að vita allt og svo á sumt einfaldlega ekki heima á netinu.“ Að lokum segist Jón Heiðar von- ast eftir því að heimsóknarfjöldinn nái að tvöfalda sig á næstu mán- uðum í kjölfarið á opnun á nýrri og betri síðu og hvetur öll ungmenni til að heimsækja totalradgjof.is. kolbrun@dv.is Nýr og endurbættur vefur, totalradgjof.is, var opnaður með pompi og prakt í Hinu húsinu í síðustu viku. Tótalráðgjöf er alhliða ráðgjöf fyrir ungt fólk á aldrinum 16–25 ára. Þar geta öll ungmenni fengið svör við sínum spurningum með því að senda inn spurningu í gegnum vefinn eða með því að skoða eldri svör. fólkið á bak við vefinn hér má sjá ráðgjafateymi síðunnar sem gerir allt hvað það getur til að svara krefjandi spurningum ungs fólks.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.