Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2009, Síða 27
föstudagur 5. júní 2009 27Fókus
Einar Falur Ingólfsson ljósmynd-
ari var í síðustu viku tilnefndur til
hinna virtu Henri Cartier-Bres-
son-verðlauna sem veitt eru ann-
að hvert ár en það er ekki á hverj-
um degi sem íslenskur listamaður
hlýtur slíkan heiður.
Einar Falur stendur að sýningu
í Listasafni Árnesinga um þess-
ar mundir, en Einar er einn átta
myndlistarmanna sem eiga verk á
sýningunni. Á sunnudaginn mun
Einar Falur vera staddur á sýn-
ingunni sem hlotið hefur nafnið
Leiftur á stund hættunnar. Einar
mun ræða við sýningargesti og
fjalla um verk sín og nálgunina á
viðfangsefninu.
Sýning Einars sækir heiti sitt
í frægan texta eftir þýska menn-
ingarfræðinginn Walter Benja-
min sem vísar til þess „að nauð-
synlegt sé að brjóta upp viðtekin
viðhorf um sannleikann og veru-
leikann í kring með því að varpa á
hann óvæntu og oft á tíðum ófyr-
irsjáanlegu ljósi, líkt og ljósmynd-
in sjálf kann að gera,“ eins og fram
kemur í fréttatilkynningu.
Einar Falur mun vera á staðn-
um klukkan 14. Listasafn Árnes-
inga er opnað klukkan 12 og er
opið til klukkan 18. Aðgangur er
ókeypis.
Einar Falur Ingólfsson ljósmyndari heldur sýningu í Listasafni Árnesinga:
tilnefndur til verðlauna
m
æ
li
r
m
eð
...
AdvEnturElAnd
„Þetta er anægjuleg sumarmynd
um „nörda“ sem
gera það besta
úr lífinu án þess
að ganga í star
trek-búningi.“
uFC 2009
unlEAshEd
„Hann er skugga-
legur, og fyrir okkur
örgustu perrana, sem búum hérna
megin í skóginum er hann sudda-
rudda-mudda -tuddalegur.“
InFAmous
„Ef valið stendur
á milli þess að
sjá grease, eða
spila þennan.
Þessi, ekki nokkur
spurning.“
GrIllhúsIð tryGGvA-
Götu
Hinn ágætasti
skyndi-
bitastaður.
úrvalið gott
og þjónustan fín.
BókIn hAGsýnI oG
hAmInGjA
Lára býður góð ráð
um hvernig komast
má í gegnum
kreppu.
GullFoss sEAFood
& GrIll
slök þjónusta,
löng bið, frosið
brauð, volgt kaffi
og hringormur.
m
æ
li
r
eK
Ki
m
eð
...
föstudagur
n kk í Bæjarbíói
KK, nú skipað þeim KK sjálfum,
Þorleifi guðjónssyni og jóni
Ólafssyni, verða með tónleika í
Bæjarbíói í Hafnarfirði á föstudags-
kvöldið klukkan 20.30. tónleikarnir
eru haldnir í tilefni Bjartra daga í
Hafnafirði sem er árleg menningar-
hátíð bæjarins. Miðinn er settur á tvö
þúsund krónur.
n Blús í salnum
Það verður heldur betur blúsað í
salnum í Kópavogi þegar stórsöngv-
ararnir Egill Ólafsson, Páll rósinkranz,
Bogomil font og andrea gylfadóttir
stíga á svið ásamt nýstofnaðri Blús-
hljómsveit Kópavogs. tónleikarnir
hefjast klukkan 21.00 og kostar 2.500
krónur inn.
n rokkað á nAsA
Ofursveitin dúndurfréttir og helstu
rokksöngvarar þjóðarinnar blása
til mikillar tónlistarveislu á nasa á
föstudagskvöldið. sannkallaður óður
til rokksins en á dagskrá verða helstu
rokkslagarar síðustu fimm áratuga.
Herlegheitin hefjast klukkan 21.00
og kostar 3.000 krónur inn.
n útgáfutónleikar hálfvita
Ljótu hálfvitarnir verða svo sannar-
lega á heimavelli þegar þeir halda
útgáfutónleika vegna nýútkominnar
plötu sinnar á Ýdölum í aðaldal á
föstudagskvöldið. Húsið opnað
klukkan 20.00 en tónleikarnir hefjast
klukkustund síðar og kostar tvö
þúsund krónur inn.
n við borgum ekki
forsýning splunkunýrrar útgáfu af
gamanleiknum Við borgum ekki, við
borgum ekki verður á föstudags-
kvöldið á nýja sviði B í Borgarleik-
húsinu. Miðar eru seldir á midi.is en á
forsýninguna kostar 1.500 krónur.
laugardagur
n Egó í Pöpum
stórhljómsveitirnar Paparnir og
Egó leiða saman hesta sína í fyrsta
sinn og munu spila á lokatónleik-
um Bjartra daga í Hafnafirði en
tónleikarnir fara fram í íþróttahúsinu
á strandgötu. Miða er hægt að fá á
miði.is en 2.500 kostar hver miði.
n trúbadorar á hressó
trúbadorarnir gotti og Eisi munda
gítarinn og raddböndin á Hressing-
arskálanum á laugardagskvöldið.
spila þeir félagarnir frá tíu til eitt en
eftir það þeytir dj Elli skífum fram
undir morgun.
n Craft á nAsA
techno.is fagnar nýrri heimasíðu
sinni með rosalegum tónleikum
á nasa á laugardagskvöldið.
snillingurinn tom Craft mætir og
mun trylla þyrstan teknólýðinn.
aldurstakmark er tuttugu ár en húsið
opnað á miðnætti.
n dóri á vegamótum
aðalmaðurinn verður mættur á
svæðið á Vegamótum á laugar-
daginn en sjálfur dóri mun þar
halda uppi fjörinu fram á nótt og
tryggja að allir dansi af sér gómsæta
brönsinn frá því fyrr um daginn.
n Árni á Prikinu
Plötusnúðurinn dj Árni þreytir
skífum á Prikinu á laugardaginn og
er nokkuð víst að halda þarf vel í
þakið svo það fari hreinlega ekki af.
útifatamarkaður Priksins er fyrr um
daginn þannig að væntanlega verða
allir vel klæddir.
Hvað er að
GERAST?
Einar Falur Ingólfsson tilnefndur
til Henri Cartier-Bresso-verðlaunanna.
svoleiðis.“ Hann segir verkið taka á
þessari tilfinningu sem við öll þjóðin
finnur fyrir um þessar mundir.
„Við erum öll á sama báti. Við
erum að fara inn í óvissutíma. Við
vitum ekkert hvernig skólakerfið eða
heilbrigðiskerfið verður eða hvort
bankinn vilji taka af okkur húsnæð-
ið. Þetta verk er bara um okkur.“
Ari vann lengi hjá SÁÁ en er nú
hættur þar. Hann viðurkennir að
partur af endurkomu hans í leik-
listarheiminn sé ástandið í þjóðfé-
laginu. „Listin hefur á öllum tímum
mjög mikilvægu hlutverki að gegna
en á krepputímumm hefur hún sér-
staklega mikilvægu hlutverki að
gegna þegar menn fara með niður-
skurðarhnífinn á alla hluti,“ segir Ari
og tekur það fram að þegar Íslend-
ingar voru sem fátækastir og bjuggu
í holum með beljunum, eins og
hann orðar það, voru einar af bestu
bókmenntum heims skrifaðar. Þess
fyrir utan segir hann listina skapa
vissan atvinnuveg sem er afar mik-
ilvægt á krepputímum. „Hún spar-
ar okkur gjaldeyriskostnað. Við þuf-
um á andlegri næringu að halda og
ef við getum búið til gott leikhús,
bíómyndir og bækur þurfum við
kannski að kaupa minna af Despe-
rate Housewives og 24, “ segir hann
glottandi.
Höfundur verksins, Dario Fo,
er fæddur í Sangiano á Ítalíu árið
1926 og hefur alla tíð talað máli litla
mannsins og verið opinskár stjórnar-
andstæðingur sem og andstæðingur
kirkjunnar.
Við borgum ekki, við borgum ekki
heitir á frummálinu Non si paga, non
si paga. Fo skrifar verkið árið 1974
á tímum mikillar verðbólgu og at-
vinnuleysis á Ítalíu. „Þetta eru svip-
aðir tímar og við erum að upplifa
núna og Dario Fo er eitt albesta leik-
ritaskáld okkar tíma og hann er sér-
staklega þekktur fyrir sína pólitísku
farsa,“ segir Ari. En Fo hefur meðal
annars hlotið nóbelsverðlaun í bók-
menntum.
Verkið Við borgum ekki, við borg-
um ekki hefur verið sýnt úti um heim
allan og notið mikilla vinsælda og
segir Ari það ganga í endurnýjun líf-
daga þegar Dario setti það upp aftur
í byrjun síðasta árs. Verkið var síðast
sett upp í Kaupmannahöfn fyrir fullu
húsi. „Þetta er leikrit sem greinilega
hittir fólk fyrir aftur þegar við erum
að vakna af eyðslufylliríinu.“
Ari segir Dario Fo vera mikinn
snilling að geta skrifað farsa um jafnó-
spennandi umfangsefni og kreppuna.
Að geta breytt tragedíu í mikinn og
bráðskemmtilegan farsa sé aðeins
snillingum fært. „Hann semur frá-
bærlega fyndið leikrit sem hæðist að
valdsmönnum en líka okkur litla fólk-
inu,“ segir Ari. „Ég held að það sé los-
andi og gott fyrir okkur að geta hleg-
ið aðeins og gleymt um stund hinum
gráðugu, duglausu og óheiðarlegu.“
Leikritið verður sýnt hjá Leikfé-
lagi Akureyrar í haust. hanna@dv.is
Gott að gleyma ástandinu
og hlæja um stund
við borgum ekki, við borgum ekki Verk eftir ítalska höfundinn dario fo hefur
aldrei átt betur við íslenskt samfélag en nú.
Gott að hlæja „Ég held að það sé losandi og gott fyrir okkur að geta hlegið aðeins
og gleymt um stund hinum gráðugu, duglausu og óheiðarlegu.“
Ekta farsi Þjóðfélagsvandamálunum er snúið upp í grín í verkinu Við borgum ekki,
við borgum ekki.