Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2009, Side 45
föstudagur 5. júní 2009 45Sport
Bretinn Jenson Button og félagi hans Rubens
Barrichello hjá Brawn GP eru svo sannarlega ennþá
mennirnir sem þarf að sigra ætli nokkur annar
sér sigur á Formúlumóti í ár. Button hefur unnið
fimm af sex keppnum árins og eru þeir félag-
arnir efstir í keppni ökuþóra. Ferrari-liðið sem
hefur farið afleitlega af stað vaknaði til lífsins
í síðustu keppni og náði þar þriðja og fjórða
sæti. Nú gæti loks verið komið að sigri hjá þeim
þar sem Felipe Massa hefur unnið Tyrklands-
kappaksturinn síðustu þrjú árin.
Loksins komið
að Ferrari?
M
ikið hefur gengið á hjá Ferr-
ari-liðinu í Formúlu eitt
enda liðið aldrei farið verr af
stað í greininni. Ferrari átti
ökuþóra númer tvö og þrjú
í heimsmeistarakeppni ökuþóra á síðasta
tímabili og vann titil bílasmiða enn eitt árið.
Þegar sex mótum er lokið á þessu tímabili
hefur heimsmeistarinn frá því 2007, Kimi Ra-
ikkonen, aðeins níu stig í áttunda sæti og fé-
lagi hans, Massa, stigi minna, tveimur sætum
neðar. Þá er Ferrari samt í þriðja sæti í keppni
bílasmiða með sautján stig, heilum sextíu og
níu stigum á eftir Brawn GP. Þar ræður ríkj-
um snillingurinn Ross Brawn sem virðist vera
búinn að gera bíl sem enginn getur mætt í
hraða. Það er því ekki skrýtið að báðir öku-
menn liðsins, Jenson Button og Rubens Barr-
ichello, séu efstir í keppni ökuþóra og liðið
langefst í keppni bílasmiða.
Massa vill fjórða sigurinn í röð
Síðasta keppni í Mónakó lofaði góðu fyrir
Ferrari að liðið gæti verið að komast á skrið.
Smám saman eru verkfræðingar liðsins að
gera bílinn samkeppnishæfari og vill Massa
vinna Tyrklands-kappaksturinn fjórða árið
í röð. Brautin hentar honum segir Massa og
hann á í miklu ástarsambandi við Tyrkland
og fólkið þar en aðdáendur Formúlunnar í
Tyrklandi eru miklir Massa-menn.
„Við erum smátt og smátt að bæta bílinn
og ætlum okkur að reyna vinna nokkur mót.
Ég vona að ég verði í þeirri stöðu að ég geti
unnið í Tyrklandi fjórða árið í röð. Ég veit
ekki af hverju þessi braut hentar mér svona
vel frekar en aðrar. Hún hentar kannski betur
mínum akstursstíl,“ segir Massa.
„Mér finnst skemmtilegra að aka á braut-
um með flæðandi beygjum þar sem þarf að
halda uppi hraða allan tímann. Ég held líka
að við búum við hentugri lausn hvað varðar
uppsetningu bílsins fyrir keppnina. Þá erum
við með gott veganesti inn í mótið frá Món-
akó. Ég náði bestum tíma í brautinni og við
Kimi enduðum í þriðja og fjórða sæti. Bíll-
inn er því orðinn betri og ég hefði getað náð
öðru sæti þar með smá heppni,“ segir Massa
og ítrekar að Ferrari sé að verða samkeppn-
ishæfara Brawn-liðinu. „Þá erum við með
gott veganesti frá Mónakómótinu. Ég náði
besta tíma í brautinni og við náðum í þriðja
og fjórða sætið. Bíllinn er því betri. Ég hefði
vel getað náð öðru sæti í Mónakó með smá
heppni. Við erum mun nær Brawn núna og
verðum samkeppnisfærari í næstu mótum,“
segir Massa.
Schumacher vann aldrei í vinstri
beygjunum
Brautin í Istanbúl í Tyrklandi þykir ein af
skemmtilegri mótssvæðum í Formúlunni en
brautin er afar sérstök að einu leyti.
Hún er keyrð rangsælis og af þeim
sökum eru mun fleiri vinstri beygjur
en ökumenn í Formúlu 1 eiga að venj-
ast. Það reynir mun meira á hálsvöðva
ökumanna og þurfa þeir því að æfa vel
fyrir brautina. Beygja átta sem er sér-
staklega löng U-beygja er rómuð sem
eitt skemmtilegasta viðfangsefnið fyrir
ökumenn á árinu. Hún er mjög hröð
og ekin í botni í sjötta gír. Erfiðasta
beygjan er þó sú fyrsta sem er blind
og ekin í þriðja gír. Annað sem er afar
sérstakt við brautina er að sjöfaldi
heimsmeistaranum Michael Schum-
acher tókst aldrei að vinna í Istanbúl en
á öllum öðrum brautum sem hann keppti á í
Formúlu 1 vann hann
að minnsta kosti
einu sinni til tvisv-
ar. Brautin er 5.338
kílómetra löng, ekn-
ir eru fimmtíu og átta
hringir og er því sam-
tals akstur 309,3 kíló-
metrar.
Tyrklands-
kappaksTurinn
2008
EFStu MEnn
1. felipe massa, ferrari
2. Lewis Hamilton, mcLaren
3. kimi raikkonen, ferrari
4. robert kubica, BmW
5. nick Heidfeld, BmW
RáSpóll
felipe massa, ferrari - 1:27:617
FlJótaStuR í EinStökuM hRing
2008
kimi raikkonen, ferrari - 1:26:506
BRautaRMEt
juan montoya, mcLaren - 1:24:770
FyRRi SiguRvEgaRaR
2005: kimi raikkonen, ferrari
2006: felipe massa, ferrari
2007: felipe massa, ferrari
2008: felipe massa, ferrari
Felipe Massa Varð fjórði í mónakó og
hefur unnið tyrklandskappaksturinn
síðustu þrjú árin.
MynD gEtty
Bestir jenson Button og rubens Barrichello á
Brawn eru enn mennirnir sem þarf að sigra. MynD aFp
Sebastian vettel Þjóðverinn ungi
er þriðji í keppni ökuþóra. MynD aFp