Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2009, Síða 3
miðvikudagur 10. júní 2009 3Fréttir
Alþingi hefur orðið við formlegri
beiðni um að afhenda DV öll gögn
sem forsætisnefnd Alþingis hafa
borist um meint vanhæfi dr. Sig-
ríðar Benediktsdóttur innan rann-
sóknarnefndar Alþingis og hugsan-
legan trúnaðarbrest milli hennar og
hinna nefndarmannanna tveggja.
Rannsóknarnefndin heyrir beint
undir Alþingi og sendi Páll Hreins-
son, hæstaréttardómari og formað-
ur nefndarinnar, málið til forsætis-
nefndar þingsins í síðustu viku til
umfjöllunar.
Eftir að hafa skoðað meðferð
hliðstæðra mála annars staðar á
Norðurlöndum komst forsætis-
nefndin að þeirri niðurstöðu á
fundi sínum í fyrradag að rann-
sóknarnefndin ætti sjálf að ráða
fram úr vanhæfismálum í störfum
sínum. Enda hafi sannleiksnefndir
sérstöðu og beri að starfa óháð af-
skiptum stjórnmálamanna.
Tvö eða fleiri lögfræðileg álit
liggja fyrir um mál Sigríðar. DV
fær ekki umbeðin álit frá Alþingi
í hendur fyrr en í dag eða á morg-
un þar sem Páll, formaður nefndar-
innar, hefur verið erlendis að und-
anförnu. Hann kemur til starfa í
dag en rétt þykir að hann og aðrir
málsaðilar fái þau í hendur á undan
fjölmiðlum.
Flókin viðfangsefni um
fjármálamarkað
Rannsóknarnefndinni er ætlað að
varpa sem skýrustu ljósi á aðdrag-
anda og orsakir þess vanda íslenska
bankakerfisins sem varð Alþingi til-
efni til að setja lög um þjóðnýtingu
bankanna í október síðastliðn-
um. Henni er ætlað, svo nokkuð sé
nefnt, að afla upplýsinga um starf-
semi fjármálafyrirtækja sem geta
skýrt vanda þeirra, svo sem um
fjármögnun og útlánastefnu þeirra,
eignarhald, endurskoðun og tengsl
þeirra við atvinnulífið.
Verkefni nefndarinnar snertir
með öðrum orðum lagaleg úrlausn-
arefni sem og flókin hagfræðileg og
fjármálaleg vandamál. Erindið, sem
barst frá Jónasi Friðriki Jónssyni,
fyrrverandi forstjóra Fjármálaeft-
irlitsins, ásamt lögfræðilegu áliti,
snertir ummæli Sigríðar Benedikts-
dóttur, eina hagfræðingsins í nefnd-
inni, en hún er sérfróð um starfsemi
fjármálamarkaða. Í vefriti Yale Dai-
ly Mail í marslok svaraði hún að-
spurð að hún teldi að bankahrun-
ið mætti rekja til græðgi ákveðinna
manna og vítaverðs andvaraleysis
þeirra sem eftirlit áttu að hafa með
fjármálamarkaði og fjármálalegum
stöðugleika. Unnt er að lesa við-
talið við Sigríði á slóðinni yaleda-
ilynews.com/articles/view/28375,
en þau urðu Jónasi Friðriki tilefni til
þess að bera brigður á hæfi Sigríðar
til að fjalla um mál hans.
Trúverðugleiki í húfi
Fullyrt er af heimildarmönn-
um DV að Páll, formaður nefnd-
arinnar, hafi í ljósi málatilbúnaðar
Jónasar Friðriks og í kjölfar skoð-
unar á málavöxtu boðið Sigríði að
segja sig úr nefndinni af persónu-
legum ástæðum og án eftirmála.
Þetta hafi Sigríður ekki fallist á og
því hafi málið verið sent forsætis-
nefnd Alþingis. Forsætisnefndin
sneri erindinu aftur til rann-
sóknarnefndarinnar eins og
áður segir og er búist við að
málið verði tekið fyrir í dag.
Það virðist snúið, hvernig sem
á það er litið, og er að sjá sem
starf nefndarinnar og trúverð-
ugleiki geti verið í húfi. Bæði
sjónarmiðin virðast gild eins og
lesa mátti í umtalsverðri blogg-
umfjöllun um málið í gær. Margir
telja að Sigríður hefði átt að gæta
orða sinna. Hinu sjónarmiðinu er
ekki síður haldið á lofti; að
hún hafi í viðtalinu við
Yale-skólablaðið að-
eins fært í orð almælt
tíðindi af banka-
hruninu á Íslandi.
Ágreiningur
um áherslur
Inn í álitamál um
hæfi Sigríðar
blandast önn-
ur sjónarmið þegar grannt er skoð-
að, því skiptar skoðanir eru með-
al sérfróðra um áherslur í störfum
nefndarinnar. Málsmetandi hag-
fræðingar, sem DV hefur rætt við,
telja að áhersluþunginn ætti að
vera á rannsókn fjármálafyrirtækj-
anna sem stjórnast af hugvitsam-
legum leiðum og aðferðum í starf-
semi sinni. Sannleiksnefndin sé
ekki dómstóll heldur rannsaki hún
hrun fjármálakerfis. Það skjóti því
skökku við að ætla að láta ofan-
greind ummæli í viðtali verða til
þess að hrekja hámenntaðan sér-
fræðing í fjármálakerfum úr nefnd-
inni og jafnframt eina hagfræðing-
inn.
Framtíð Sigríðar Benediktsdóttur í rannsóknarnefnd Al-
þingis kann að ráðast í dag eða næstu daga. Alþingi hefur
fallist á að afhenda DV þau gögn málsins sem forsætisnefnd
hefur farið yfir en forsætisnefnd Alþingis lítur svo á að rann-
sóknarnefndin verði að ráða sjálf fram úr vanhæfismálum.
mikil óvissa
í nefndinni
Sigríður Benediktsdóttir Fór
hún aðeins með almælt tíðindi
frá íslandi sem nú geta orsakað
vanhæfi hennar?
Hæstaréttardómarinn Páll
Hreinsson er formaður rannsóknar-
nefndar alþingis. Fjallað verður um
mál Sigríðar innan nefndarinnar í
dag en forsætisnefnd alþingis telur
að hún eigi sjálf að ráða fram úr
vanhæfismálum í störfum sínum.
er ástæða til að skoða þessi viðskipti
aftur í tímann til að ganga úr skugga
um hversu umfangsmikil þau voru,“
segir Flosi en samanburður hans
á þeim gögnum um viðskiptin við
Frjálsa miðlun sem lögð voru fram
í bæjarráði í síðustu viku sýna fram
á að minnihlutinn fékk rangar upp-
lýsingar þegar spurst var fyrir um
kostnað við gerð ársskýrslu Kópa-
vogsbæjar fyrir nokkrum árum, þar
munar um hálfri milljón króna.
Aldrei náðist hins vegar að sanna
að Gunnar hefði gerst sekur um
spillingu vegna viðskipta Klæðn-
ingar og Kópavogsbæjar þó að orðr-
ómurinn hafi verið hávær og margir
sem veltu því fyrir sér hvort Gunnar
hyglaði eigin fyrirtæki.
Ljósmyndarinn fékk
minna en Frjáls miðlun
Eins og er á hið sama við um við-
skiptin við Frjálsa miðlun þó að
vissulega sé það nýbreytni að hafa
skjalfestar upplýsingar um Gunnar
sem bendi til óeðlilegra viðskipta-
hátta. Samkvæmt öruggum heim-
ildum DV er eitt af því sem er óeðli-
legt við viðskipti Kópavogsbæjar við
Frjálsa miðlun að fyrirtækið hafi
fengið margfalt meira greitt fyrir
ljósmyndir sem það lét undirverk-
taka, ljósmyndarann Guðmund Ing-
ólfsson, taka fyrir sig í nokkrum til-
fellum en ljósmyndarinn sjálfur fékk
greitt frá Frjálsri miðlun. Félag dótt-
ur Gunnars virðist því hafa stungið
mismuninum í vasann. Þetta er eitt
af þeim atriðum sem endurskoð-
endur bæjarins munu væntanlega
skoða en það vekur spurningar af
hverju ekki er gengið beint til samn-
inga við ljósmyndara.
DV hafði samband við Guð-
mund Ingólfsson og spurði hann
hvort greiðslurnar sem hann fékk
frá Frjálsri miðlun hafi verið lægri
en upphæðirnar sem félagið fékk
frá bænum. Guðmundur vildi hins
vegar ekki tjá sig um málið í samtali
við blaðið.
Samkvæmt heimildum blaðsins
var það auk þess algengt að Frjáls
miðlun fengi greitt fyrir myndirnar
sem fyrirtækið seldi til Kópavogs-
bæjar í hvert skipti sem þær voru
notaðar, til dæmis myndir sem tekn-
ar voru úr ársskýrslum bæjarins.
2,5 milljónir fyrir
ljósmyndir í IKEA-römmum
Annað sem tortryggt hefur verið
í viðskiptum bæjarins við Frjálsa
miðlun er að fyrirtækið hefur á síð-
ustu sex árum fengið tæpar 2,5 millj-
ónir fyrir umhverfisviðurkenningar
sem árlega eru veittar fimm aðilum.
Viðurkenningarnar eru innrömmuð
A-4-blöð í IKEA-römmum og þykja
fáfengilegar. Samkvæmt heimildum
DV ákvað skipulagsstjóri bæjarins,
Birgir Sigurðsson, að dóttir Gunn-
ars ætti alltaf að sjá um að gera um-
hverfisviðurkenningarnar þrátt fyrir
að ýmsir aðrir starsmenn bæjarsins
væru á móti því. Fyrrverandi starfs-
maður í stjórnsýslunni í Kópavogs-
bæ segir að viðurkenningarnar séu
„djók“. „Þetta voru bara myndir sem
teknar voru og settar inn í ramma.
Þetta er núll og nix,“ segir viðmæl-
andinn og bætir því við að það sé
alls ekki svo mikil vinna á bak við
viðurkenningarnar.
„Bæði gull og grjót“
En þrátt fyrir spillingarumræðuna
um Gunnar og þá staðreynd að hann
er einn umdeildasti stjórnmála-
maður á Íslandi eru lýsingar fólks á
honum auðvitað alls ekki einhlítar
og er hann sagður vera „stórbrotinn
karakter“ af einum heimildarmanni
DV. „Ég heyrði einhvern segja um
Gunnar: Hann er bæði gull og grjót.
Ég held að það sé hægt að taka und-
ir það,“ segir heimildarmaður sem
þekkir Gunnar vel. „Hann getur
bæði verið alveg svakalega harður,
heiftúðugur, hefnigjarn og alveg of-
boðslega frekur en svo getur hann
líka haft mjög stórt hjarta ef hann
sér eitthvað aumt. Hann er auðvit-
Nýjar siðareglur Kópavogsbæjar
samþyKKtar 12. maí síðastliðiNN
n 5. gr. Misbeiting valds.
„Kjörnir bæjarfulltrúar og stjórnendur mega ekki beita réttindum eða aðstöðu
sem fylgja embætti þeirra í þágu einkahagsmuna sinna eða annarra í því skyni
að geta notið óbeinna eða beinna persónulegra hagsbóta af því. Einnig skulu
þeir gæta þess að nýta sér ekki óopinberar upplýsingar til að hagnast á þeim
persónulega eða að hjálpa öðrum að gera það.“
n11. gr. Stöðuveitingar
„Kjörnum bæjarfulltrúum ber að koma í veg fyrir að einstaklingum sé veitt
starf eða stöðuhækkun hjá sveitarfélaginu á öðrum forsendum en hæfni til
að rækja starfið og gæta þess, þegar þeir koma sjálfir að ákvörðun um val á
starfsmönnum, að hæfasti umsækjandinn hljóti starfið.“
Föstudagur 22. maí 2009 13Fréttir
KÓNGURINN Í KÓPAVOGI RIÐAR TIL FALLS
Bæjarstjórinn í kröppum dansi Framsóknarflokk-
urinn, samstarfsflokkur sjálfstæðisflokksins í meirihlut-
anum í bæjarstjórn Kópavogs, gaf það út í vikunni að
flokkurinn hygðist mögulega endurskoða samstarfið
við sjálfstæðisflokkinn vegna viðskipta bæjarsins við
Frjálsa miðlun í stjórnartíð gunnars Birgissonar.
Framhald á
næstu síðu
Bæjarstjórinn í kröppum dansi Framsóknar-
flokkurinn, samstarfsflokkur sjálf tæðisflokksins
meirihluta um í bæjarstjórn Kópavogs, gaf
það út í vikunni að flokkurinn hygði t ögulega
endurskoða samstarfið i sjálfstæðisflokkinn
vegna viðskipt bæjarsins við F jálsa miðlun í
stjórnartíð gunnars Birgissonar.
Föstudagur 22. maí 200914 Fréttir
að mannlegur og getur verið ósköp
ljúfur og lagt lykkju á leið sína til að
aðstoða fólk,“ segir heimildarmað-
urinn og bætir því við að bæjarstjór-
inn sé „álíka góður við vini sína og
hann getur verið vondur við óvini
sína“.
Annar heimildarmaður DV tekur
undir þetta og segir að undir hrjúfu
yfirborði Gunnars leynist viðkvæm
sál. „Gunnar Birgisson er ekki vond
manneskja en hann getur ver-
ið ósanngjarn gagnvart þeim sem
gagnrýna hann. Við sjáum þetta í
umræðunni um Frjálsa miðlun að
hann er fljótur að ráðast á andstæð-
inga sína og væna þá um skítapól-
itík á sama tíma og hann fagnar því
að verið sé að skoða viðskipti bæj-
arins við félagið. Þetta er ansi mót-
sagnakennt en Gunnar er afar hvat-
vís maður,“ segir viðmælandinn
og bætir því við að Gunnar hafi til
dæmis farið algerlega fram úr sér
í viðskiptum bæjarsins við Frjálsa
miðlun.
Flosi segir að helsti kostur Gunn-
ars sé að það sé alltaf hægt að treysta
því sem hann lofar; að allir samn-
ingar sem hann hafi gert við hann í
gegnum tíðina hafi staðið.
Samkvæmt heimildarmönnum
DV mun eiginkona Gunnars, Vigdís
Karlsdóttir, einnig vera mikil önd-
vegiskona og segir einn þeirra að
manni sem eigi svo góða konu sé
ekki alls varnað en þau hjónin eiga
saman tvær dætur, þær Auðbjörgu
Agnesi og áðurnefnda Brynhildi.
Ryðst og treðst
Einn heimildarmaður DV segir að
Gunnar ryðjist og troðist til að ná
markmiðum sínum. „Hann er dríf-
andi keppnismaður sem vill klára
hlutina mjög fljótt. Mér finnst hann
stundum fara fram úr sér. Sum-
ir stjórnmálamenn hugsa bara og
pæla og gera ekki neitt en Gunnar
er alls ekki þannig því hann lætur
verkin tala. Þess vegna er eftirspurn
eftir mönnum eins og Gunnari því
hann er svo duglegur en sennilega
er best að það fari meira saman að
menn hugsi um hlutina og hrindi
þeim í framkvæmd.“
Flosi segir að Gunnar sé mikill
dugnaðarmaður sem komi miklu í
verk, sem sést meðal annars á hinni
miklu uppbyggingu sem átt hefur
sér stað í Kópavogi á síðustu árum,
en að hann sé jafnframt ótrúlega
óvæginn og ósvífinn í málflutningi.
„Miðað við hvað hann er ósvífinn
oft á tíðum er einkennilegt hvað
hann er viðkvæmur fyrir gagnrýn-
um umræðum um sjálfan sig. Hann
er ekki eins og margir stjórnmála-
menn sem eru stóryrtir sem taka vel
við því á móti. Hann myndi aldrei
sitja undir því sem hann segir um
aðra,“ segir Flosi.
Biðlað til auðmanna
Dugnaður og vilji Gunnars til fram-
kvæmda sést meðal annars á því að
í miðju íslenska góðærinu ákvað
Kópavogsbær að reisa óperuhús
í bænum með peningum frá fjár-
sterkum einkaaðilum og var það
Gunnari mikið keppikefli að húsið
yrði reist. Jón Helgi Guðmundsson í
BYKO mun hafa verið sá auðmaður
sem ætlaði að veita hæsta styrkinn í
byggingu hússins og sat hann einnig
í nefnd sem sett var á laggirnar um
bygginguna.
Eftir að bygging hússins komst
á dagskrá mun Gunnar Birgisson
hafa leitað til margra einstaklinga
og beðið þá um að leggja verkefn-
inu lið. Í einhverjum tilfellum hafði
hann þann háttinn á, samkvæmt
traustum heimildum DV, að funda
með auðugu fólki sem vildi flytja
í Kópavoginn þar sem ýjað var að
því að það gæti orðið því til góða
að styrkja byggingu óperuhússins;
meðal annars að það gæti hjálp-
að því að fá betri lóð undir íbúðar-
hús sitt í bænum fyrir vikið. Þessi
beiðni bæjarstjórans var ekki lögð
fram berum orðum heldur var lát-
ið í þetta skína óbeint. Öllum sem
sátu þessa fundi með bæjarstjóran-
um mun hins vegar hafa verið ljóst
hvert Gunnar var að fara. Engar
heimildir eru hins vegar um hversu
margir þessir fundir voru né hverj-
ar undirtektirnar voru en einhverj-
um mun þó hafa blöskrað framferði
bæjarstjórans kappsama.
Samkvæmt heimildum DV
er einnig talið að rannsaka þurfi
greiðslur frá einkafyrirtækjum til
stjórnmálaflokka í Kópavogi, með-
al annars frá verktakafyrirtækjun-
um BYGG, Ris og JB. verktökum.
Talið er að þessi fyrirtæki hafi styrkt
Sjálfstæðisflokkinn um mjög háar
fjárhæðir á liðnum árum en á sama
tíma hafa þau verið mjög umsvifa-
mikil í verktakaframkvæmdum í
bænum og fengið mikið af góðum
lóðum úthlutað.
Pólitísk risaeðla
Einn heimildarmaður DV segir að
stjórnunarhættir eins og Gunnars
eigi ekki upp á pallborðið á Nýja
Íslandi og því sé þjóðin miklu við-
kvæmari nú fyrir slíkum málum
sem lykta af spillingu en fyrir nokkr-
um árum. Þó segir hann að hann sé
ekki viss um að Gunnar eigi á hættu
að þurfa að hætta sem bæjarstjóri
vegna viðskipta bæjarins við Frjálsa
miðlun. „Ef þetta væri stjórnmála-
maður í ríki á meginlandi Evrópu
væri hann í mikilli hættu á að þurfa
að yfirgefa stólinn. En miðað við ís-
lenskar hefðir er hann ekki í neinni
hættu því það er afar sjaldgæft að
menn segi af sér hér á landi,“ seg-
ir heimildarmaðurinn. Hann bætir
því við að Gunnar sé grófur „karl-
apólitíkus“ sem vaði áfram og að
hann passi illa inn í þá umræðu
um lýðræði, gegnsæi og samræður
í stjórnmálum sem nú ríði röftum í
samfélaginu. „Hann er dálítið eins
og risaeðla í pólitíkinni í dag. Bara
eins og hann er á velli.“
Flosi tekur undir þetta sjónarmið
að hluta þegar hann segir að Gunn-
ar sé fulltrúi gamalla gilda í stjórn-
sýslu. „Hann er ekkert ofboðslega
mikið gefinn fyrir reglu og formfestu
í rekstri. Hann stjórnar ofboðslega
miðlægt: allt fer í gegnum hann,“
segir Flosi. Hann segir að þetta hafi
bæði sína kosti og galla því með
þessu móti hafi hann góða yfirsýn
og veiti fjármálum og starfsmönn-
um bæjarins mikið aðhald með
því að vera með nefið ofan í hvers
manns koppi.
„Honum finnst að hann einn eigi
að ráða öllu og hann ber litla virð-
ingu fyrir skoðunum annarra. Hann
beitir meirihlutaræðinu mjög stíft.
Það er mjög merkilegt að heyra bæj-
arstjóra allra Kópavogsbúa segja það
oftsinnis á bæjarstjórnarfundum að
honum sé alveg sama hvað minni-
hlutinn segir. Hann segir: „Mér er
alveg sama hvað þau segja; þetta
eru bara kommúnistar.“ Hann hefur
oft kallað mig kommúnista í gegn-
um tíðina,“ segir Flosi sem setið hef-
ur í bæjarstjórninni síðan 1998.
Talið að umfjöllunin
leiði ekki til stjórnarslita
Heimildarmönnum DV ber sam-
an um að þrátt fyrir umræðuna um
spillinguna í kringum Gunnar Birg-
isson sé afar ólíklegt að Framsókn-
arflokkurinn slíti samstarfinu í bæj-
arstjórn við Sjálfstæðisflokkinn en
flokkarnir hafa verið saman í stjórn
í bænum síðastliðin nítján ár. Ómar
Stefánsson, bæjarfulltrúi framsókn-
armanna, hefur einnig gefið það
út að meirihlutasamstarfið sé ekki
ótraust og að meirihlutinn hafi gert
góða hluti í bænum. Þó mun flokk-
urinn bíða með að taka ákvarðanir
um framhaldið þar til niður-
staða liggur fyrir úr út-
tekt endurskoðend-
anna. Í samtali við DV
segir Samúel Örn Er-
lingsson varabæjar-
fulltrúi að flokkurinn
gefi ekkert út um
málið fyrr en niður-
staða úttektarinnar
liggur fyrir.
Heimilda-
menn blaðsins
segja að hvað sem komi út úr úttekt-
inni sé afar ólíklegt að Ómar verði
hvatamaður að því að slíta sam-
starfinu. Þar er meðal annars talið
að hann hafi ekki nægilegt pólitískt
þor né dug til að fara gegn Gunnari
á slíkan hátt.
Allt brjálað í
Sjálfstæðisflokknum
Af samtölum DV við frammámenn
í Sjálfstæðisflokknum í Kópa-
vogi er mikil undrun og
óánægja með málið inn-
an flokksins því þeir
gerðu sér ekki grein
fyrir því að viðskipti
Kópavogsbæjar
við Frjálsa miðlun
hefðu verið svona
mikil á síðustu
árum. Sjálfstæð-
ismenn virðast
vera hneykslaðir
á framferði Gunn-
ars og taka marg-
ir flokksmenn djúpt
í árinni þegar þeir
ræða um málið,
án þess að
þeir vilji láta hafa það eftir sér undir
nafni opinberlega.
Heimildarmönnum DV ber flest-
um saman um að miklu líklegra sé
að pólitískur þrýstingur á Gunnar
innan úr Sjálfstæðisflokknum muni
leiða til stjórnarslita eða að Gunn-
ari verði hreinlega ýtt út úr flokkn-
um vegna hneykslisins í kringum
Frjálsa miðlun og myndi það þá
byggjast á ótta við að vera Gunn-
ars í honum sverti flokkinn og
gæti komið sér illa í kom-
andi bæjarstjórnar-
kosningum á næsta
ári. En fyrir síð-
ustu bæjarstjórn-
arkosningarnar
þurfti flokkurinn
að glíma við um-
deilda fylgju
Gunnars
og varð það
flokknum ekki til
framdráttar. Einn
sjálfstæðismaður-
inn orðar það sem
svo að „róðurinn sé
heldur að þyngjast“
og á hann þar við að
staða Gunnars
versni
nú á milli daga. Heimildarmönnum
DV ber því saman um að Gunnar
ætti að hafa miklu meiri áhyggjur af
sínum eigin flokki á næstunni en af
samstarfsflokknum í stjórninni auk
þess sem Gunnar hefur alltaf ver-
ið umdeildur í flokknum og hefur
meðal annars aldrei hlotið meira en
50 prósent atkvæða í prófkjöri.
Sjálfstæðismenn segja að inn í
viðhorf flokksmanna spili að fólk
líti allt öðruvísi á slík spillingarmál
í íslenskum stjórnmálum en gert var
fyrir efnahagshrunið í haust; það
sem menn hefðu kannski komist
upp með fyrir tveimur árum komast
þeir ekki upp með í dag; fólk sé orð-
ið þreytt á vafasömum stjórnunar-
háttum og spillingu og vilji að byrj-
að verði með hreint borð.
Þrátt fyrir kurrinn munu sjálf-
stæðismenn í Kópavogi, líkt og
framsóknarmennirnir, hins veg-
ar ætla að bíða eftir niðurstöðunni
úr úttekt endurskoðenda bæjarins
á viðskiptunum við Frjálsa miðlun
áður en ákvarðanir verða teknar um
framhaldið og er málið sagt vera í
biðstöðu. Samflokksmenn Gunn-
ars leggja hins vegar mikla áherslu
á að rannsókn málsins verði hraðað.
Hins vegar er það að verða ljóst að
Gunnari Birgissyni er vart sætt sem
bæjarstjóri í Kópavogi eftir að þetta
hneykslismál kom upp, hvern-
ig svo sem fráhvarf hans verður
útfært. Kóngurinn í Kópavogi
riðar nú til falls þrátt fyrir að
opinberar yfirlýsingar sjálf-
stæðismanna í Kópavogi
segi annað um þessar
mundir.
Greiðslur til
Frjálsrar miðlunar
ÁR UPPhæð
2003 6.636.422
2004 4.979.510
2005 8.094.225
2006 6.668.755
2007 6.044.625
2008 6.990.725
AllS 39.414.262
lætur rannsaka viðskipti lÍN við félagið Katrín Jakobsdóttir
menntamálaráðherra greindi frá því í vikunni að hún hefði beðið
stjórnarformann LíN að láta gera úttekt á viðskiptum sjóðsins við
Frjálsa miðlun. menn hafa velt því fyrir af hverju gunnar, sem er
með doktorspróf í jarðvegsverkfræði og kallar sjálfan sig „doktor
í drullu“ í gríni, hafi verið formaður lánasjóðsins í næstum 20 ár.
Biðlað til auðmanna tengsl gunnars við fjársterka aðila eins og Jón
Helga guðmundsson, aðaleiganda BYKO, og burðug verktakafyrirtæki
eins og BYgg og ris hafa löngum verið í umræðunni. Jón Helgi mun
meðal annars hafa lofað hæsta fjárstyrknum vegna byggingar óperuhúss
í bænum sem nú er dottin upp fyrir.
Föstudagur 29. maí 200910
Fréttir
Hjá sumum snýst lífið bara um ís...
Aðalstræti 3 - Akureyri
Gunnars I. Birgissonar
Frjáls miðlun, útgáfufyrirtæki Bryn-
hildar Gunnarsdóttur og eigin-
manns hennar Guðjóns Gísla Guð-
mundssonar, hefur fengið tæpar
fimm milljónir króna frá Orkuveitu
Reykjavíkur á síðustu sjö árum fyrir
ýmsa útgáfuvinnu: ljósmyndatökur,
gerð kynningarefnis og vinnu vegna
100 ára afmælis Vatnsveitu Reykja-
víkur. Þetta kemur fram í svari frá
Orkuveitu Reykjavíkur um viðskipti
fyrirtækisins við Frjálsa miðlun á
síðustu árum.
Um er að ræða sams konar vinnu
og fyrirtækið vann fyrir Kópavogs-
bæ sem mikið hefur verið um rætt
síðustu vikurnar en Frjáls miðl-
un hefur fengið greiddar rúmar 50
milljónir króna frá Kópavogsbæ á
síðustu tíu árum líkt og DV hefur
greint frá.
Faðir Brynhildar, Gunnar I. Birg-
isson, er bæjarstjóri í Kópavogi og
fara endurskoðendur bæjarins nú í
saumana á viðskiptunum við Frjálsa
miðlun til að athuga hvort viðskipt-
in hafi verið eðlileg. Að sama skapi
rannsaka óháðir endurskoðendur
viðskipti Lánasjóðs íslenskra náms-
manna við Frjálsa miðlun en félagið
fékk rúmar 11 milljónir frá stofnun-
inni á meðan Gunnar Birgisson var
stjórnarformaður sjóðsins, frá 1991
til 2009.
Faðir Gísla fyrr-
verandi safnstjóri
Faðir Guðjóns Gísla, Guðmundur
Egilsson, er fyrrverandi safnstjóri
hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur,
sem síðar varð að Orkuveitunni
árið 1999. Frjáls miðlun fékk ein-
hver verkefni frá Rafmagnsveit-
unni í gegnum Guðmund á sínum
tíma, þegar hann var enn safn-
stjóri, samkvæmt heimildum DV.
Upplýsingar Orkuveitunnar ná
hins vegar ekki svo langt aftur í
tímann. Guðmundur lét af störf-
um sem safnstjóri fyrir tíu árum
en hefur unnið fyrir minjasafn
Orkuveitu Reykjavíkur sem verk-
taki í smærri verkefnum æ síðan.
Guðmundur mun meðal ann-
ars hafa lagt hart að Guðjóni
Magnússyni, sem er yfir umsýslu
og almannatengslum hjá Orku-
veitunni, að ráða Frjálsa miðlun
til að skrásetja alla muni minja-
safnsins fyrir um fimm árum,
samkvæmt heimildum DV. Ekki
var þó ráðist í þessa skrásetningu
á endanum.
Í minjasafninu er auk þess
meðal annars að finna möppu
með ljósmyndum sem Frjáls miðl-
un tók á sínum tíma en samkvæmt
upplýsingunum frá Orkuveitunni
við fyrirspurn DV hefur langmest
af vinnunni sem útgáfufyrirtæk-
ið hefur unnið fyrir Orkuveituna
snúist um að taka ljósmyndir.
Hvorki Brynhildur né Guðjón eru
hins vegar ljósmyndarar. En ljós-
myndavinnan sem Frjáls miðl-
un vann fyrir Kópavogsbæ mun,
í einhverjum tilfellum, hafa verið
unnin af fagljósmyndurum sem
þá voru undirverktakar Frjálsrar
miðlun. DV hefur heimildir fyrir
því að einhverjum slíkum tilfellum
hafi Frjáls miðlun greitt ljósmynd-
urunum töluvert lægri upphæð-
ir en félagið fékk frá Kópavogsbæ
fyrir að vinna verkin.
Heimildarmaður DV segir að
það sé alveg ljóst að Frjáls miðlun
byrjaði að vinna fyrir Orkuveituna
vegna ættartengsla Guðjóns Gísla
og Guðmundar.
Unnið eftir mjög
ströngum reglum
Guðjón Magnússon segist að-
spurður ekki geta tjáð sig um við-
skipti Orkuveitunnar við Frjálsa
miðlun þar sem mjög strangar
reglur gildi um opinbera umræðu
starfsmanna Orkuveitu Reykja-
víkur um málefni fyrirtækisins.
Eiríkur Hjálmarsson, upplýs-
ingafulltrúi Orkuveitunnar, segir
hins vegar að unnið sé eftir mjög
ströngum innkaupareglum inn-
an Orkuveitunnar og að hann hafi
enga ástæðu til að ætla að það
hafi ekki líka verið gert í tilfelli
viðskiptanna við Frjálsa miðlun.
„Ég sé ekkert í þessum viðskipt-
um, hvorki af umfangi viðskipt-
anna né eðli þeirra, sem bendir til
þess að um óeðlilega fyrirgreiðslu
sé að ræða,“ segir Eiríkur.
Nokkrir fjölmiðlar, þar á með-
al DV, hafa auk þess haft sam-
band við Reykjanesbæ til að
spyrjast fyrir um viðskipti bæjar-
ins við Frjálsa miðlun en Bryndís
Guðmundsdóttir, eiginkona Árna
Sigfússonar bæjarstjóra, er syst-
ir Guðjóns Gísla. Hjá bænum fást
hins vegar þau svör að bærinn
hafi enga þjónustu keypt af út-
gáfufyrirtækinu.
DV náði ekki í Guðjón Gísla
Guðmundsson eða Brynhildi
Gunnarsdóttur við vinnslu fréttar-
innar.
InGI F. VIlhjálmsson
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
VIðskIptI orkUVeItU
reykjaVíkUr VIð Frjálsa
mIðlUn Frá árInU 2006:
ár Upphæð
2002 1.250.000
2003 0
2004 1.550.000
2005 800.000
2006 500.000
2007 920.000
2008 500.000
2009 0
samtals 4600920
„Ég sé ekkert í þessum viðskiptum, hvorki af um-
fangi viðskiptanna né eðli þeirra, sem bendir til
þess að um óeðlilega fyrirgreiðslu sé að ræða“
tæpar fimm milljónir Frjáls
miðlun hefur fengið greiddar
fimm milljónir frá Orkuveitu
reykjavíkur á síðustu sjö
árum. upplýsingafulltrúi
Orkuveitunnar segir ekkert
athugavert við viðskiptin.
Frjáls miðlun teygir sig víða
Útgáfufyrirtæki dóttur gunnars
Birgissonar, bæjarstjóra í Kópa-
vogi, hefur einnig fengið verkefni
hjá Orkuveitu reykjavíkur.
ORKUVEITAN GREIDDI
DÓTTURINNI MILLJÓNIR
29. maí
Margir telja að Sigríður hefði átt að gæta orða
sinna. Hinu sjónarmiðinu er ekki síður haldið á
lofti; að hún hafi...aðeins fært í orð almælt tíð-
indi af bankahruninu á Íslandi.
GUnnaR valTUR í sessi
Ómar Stefánsson, oddviti framsóknar-
manna í bæjarstjórn Kópavogs, ætlar
að kalla til fulltrúaráðsfundar sem fyrst
vegna skýrslu Deloitte um viðskipti
Kópavogsbæjar við félag dóttur Gunnars
I. Birgissonar. Gunnsteinn Sigurðsson,
bæjarfulltrú Sjálfstæðisflokks, segir
spurningum ósvarað og hann hafi ekki
haft hugmynd um gagnvirkt götukort
sem fyrirtækið vann að en ekkert hefur
orðið úr. Meirihlutasamstarfið er talið
standa völtum fótum.
Framsókn skoðar málin
Ómar Stefánsson, bæjarfulltrúi
Framsóknarflokksins, fer yfir málin
með samherjum sínum og skoðar
framtíð samstarfsins við gunnar.