Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2009, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2009, Síða 4
miðvikudagur 10. júní 20094 Fréttir inu. Gísli Árni Eggertsson, skrif- stofustjóri Íþrótta- og tómstunda- „Við lítum svo á að börnin séu að taka þátt í formlegu frístunda- starfi á frístundaheimilunum en þar fer fram margs konar starf- semi sem er sniðin að aldri þeirra og þörfum. Þá taka ekki öll börn sem sækja frístundaheimilin þátt í öðru frístundastarfi og þótti ástæða til að gefa foreldrum þeirra möguleika á að nýta kortið til að greiða niður dægradvölina. Það skal þó tekið fram að full vistun á frístundaheimili kostar um 8.000 Íslensk stúlka sem slasaðist alvarlega í bílslysi í Finnlandi: „Enn langt í land“ Ester Eva Glad, tvítug, íslensk stúlka, sem lenti í mjög alvarlegu bílslysi í Jomala Möckelby á Álandseyjum að kvöldi skírdags, hefur verið flutt á gjör- gæslu nálægt heimili sínu á Álandseyj- um. Hún var áður á háskólasjúkrahús- inu í Åbo í Finnlandi en hefur nú verið flutt til Mariehamn, nær fjölskyldu og vinum. Ester var í bíl þar sem ökumaður- inn var ölvaður. Hann missti stjórn á bifreiðinni með þeim afleiðingum að hún valt. Ester var fyrst um sinn í lífs- hættu þar sem hún var algjörlega löm- uð og gat aðeins haft samskipti við for- eldra sína og starfsmenn sjúkrahússins með því að blikka augunum. „Hún hefur tekið miklum framför- um en það er enn langt í land,“ segir móðir hennar, Ruth Glad, í samtali við fréttasíðuna Ålandstidningen. Í Åbo var Ester bundin við öndun- arvél öllum stundum en nú hefur það breyst. „Læknarnir segja að henni hafi batnað mun skjótar en þeir áttu von á. Hún er enn bundin við öndunar- vél á næturnar en á daginn andar hún án hjálpar vélarinnar. Í endurhæfingu hefur hún verið að gera öndunaræfing- ar. Það er mjög mikilvægt að hún losni úr öndunarvélinni, það mun breyta lífi hennar,“ segir Ruth. Ester sem í fyrstu gat bara tjáð sig með því að blikka augunum getur nú talað. „Hún er hljóðlátari og rólegri en fyr- ir slysið en hún er samt sama stúlkan,“ segir Ruth. Foreldrar Esterar og systkin hafa vakað yfir henni síðan slysið varð. Hún hefur einnig fengið heimsóknir frá góðum vinum. „Starfsfólk sjúkrahússins segir að það sé mikilvægt fyrir bata hennar að hafa fólk sem hún þekkir í kringum sig. Það eru margir sem hafa hugsað til okkar, sent skilaboð og hringt. Fólk hef- ur sent kort og bangsa sem hefur glatt Ester,“ segir Ruth en óvíst er hve lengi Ester þarf að dvelja í Mariehamn. liljakatrin@dv.is. Í hópi góðra vina margir vinir Esterar hafa heimsótt hana sem læknar telja gott fyrir bata hennar. mynd Ålandstidningen Annað innflú- ensutilfelli Sextugur karlmaður á höfuð- borgarsvæðinu greindist með inflúensu A (H1N1) eftir að hann kom heim frá Bandaríkj- unum 3. júní síðastliðinn. Fylgst er með fjölskyldu og fleirum sem viðkomandi hefur umgeng- ist eftir heimkomuna. Maðurinn er þó á batavegi en hann veiktist eftir að hann kom heim. Þetta er annað tilfellið sem staðfest er hér á landi, það fyrra var 22. maí og þar átti líka í hlut karlmað- ur sem kom frá Bandaríkjun- um. Alls hafa 26 þúsund tilfelli greinst í heiminum og þar af eru 139 sem hafa látist af völdum veirunnar. Reykskynjari bjargaði pari Talið er að reykskynjari hafi vak- ið íbúa á Einivöllum í Hafnar- firði þegar eldur læsti sig í íbúð í húsinu í fyrrinótt. Ungt par sem bjó í íbúðinni var flutt á slysa- deild með reykeitrun. Parið náði að koma sér út á svalir áður en eldurinn breiddi frekar úr sér. Allt tiltækt slökkvilið var kallað á staðinn en í húsinu búa í kring- um 50 manns. Töluvert tjón varð í íbúðinni sem skemmdist mikið af sóti og reyk. Ekki er vitað hvað olli brunanum en lögreglan hóf rannsókn á eldsupptökum í gær. Leiðrétting Í úttekt DV í gær á Icesave- herferð Landsbankans eru taldir upp þeir menn sem stóðu að baki Icesave-reikn- ingunum hjá Landsbank- anum. Þar á meðal eru þeir Brynjólfur Helgason, fyrrver- andi framkvæmdastjóri al- þjóðasviðs Landsbankans, og Þórlindur Kjartansson sem var deildarstjóri í markaðs- deild. Fyrir mistök kom fram í umfjölluninni að þeir væru enn starfandi hjá bankanum, en þeir hafa látið af störfum. Bynjólfur hætti hjá Lands- bankanum um áramótin og Þórlindur hætti störfum fyrir átta mánuðum. lyginni líkAst simone gustafsson, kona Íslendingsins sem var í Air France-þotunni sem hvarf, hefur notað róandi lyf síðan hún frétti af flugslysinu. Þau Helge voru nýflutt í hús í bænum Cariacica í Vitória í Brasilíu. Að sögn ættingja er Simone í miklu uppnámi og grætur dægrin löng. „Simone er afskaplega döpur og grætur líka mjög mikið. Hún trú- ir ekki enn að þetta hafi gerst. Þetta er lyginni líkast,“ segir Nalva Tasso, vinkona Simone Gustafs- son, eiginkonu Helge Gustafsson sem var í Air France-þotunni sem hrapaði undan ströndum Brasilíu á mánudaginn í síðustu viku. notar róandi lyf Nalva segir að Simone noti lyf til að róa sig niður og deyfa sárs- aukann eftir að hún heyrði um flugslysið. Hún segir að Simone sé afar döpur, sérstaklega vegna þess að Helge var á leið í sína síð- ustu vinnuferð til Angóla í Afríku, ferð sem átti bara að vera í nokkra daga. „Helge var á leiðinni til Afr- íku að vinna eins og hann gerði á tveggja mánaða fresti. Hann vann fyrir fyrirtæki sem vinnur með olíu og var stundum í burtu í nokkrar vikur,“ segir Nalva í sam- tali við brasilíska vefinn Gazeta Online. Fluttu rétt fyrir slysið Simone og Helge gengu í hjóna- band fyrir níu árum en bjuggu fyrst um sinn í Noregi. Þau fluttu til Brasilíu fyrir sex árum en rétt fyrir flugslysið fluttu þau í hús í bænum Cariacica sem er tíu kíló- metra norðvestur af Vitóriu, höf- uðborg fylkisins Espírito Santo í Suðaustur-Brasilíu. Þar hreiðruðu þau um sig með átta ára syni sínum, Helge Junior. Simone á einnig 21 árs dóttur, Nayara Rodrigues, frá fyrra hjóna- bandi. Hún fær mikinn stuðn- ing frá fjölskyldu sinni í Brasilíu ásamt áfallahjálp frá læknateymi. Fylgist vel með Helge vann sem verkfræðingur fyrir fyrirtækið FMC Technolog- ies í Brasilíu og sagði Einar Gúst- afsson, bróðir Helge, í samtali við DV í síðustu viku að Simone fengi dyggan stuðning frá fyrirtækinu. „Við erum í góðu sambandi við konuna hans og hún fær mjög góðan stuðning frá fyrirtækinu sem Helge var að vinna hjá í Bras- ilíu. Það er léttara því þau tala sama tungumál. Hún talar smá norsku þar sem hún bjó hér í þrjú ár áður en þau fluttu til Brasil- íu. Sonur þeirra talar líka góða norsku.“ Simone er ein af fjölmörgum ættingjum þeirra sem voru í Air France-vélinni sem hafa ferð- ast til hafnarborgarinnar Recife. Brak og munir úr vélinni eru flutt þangað þegar þau finnast og vilja ættingjar vera viðstaddir og fylgj- ast með. lilja guðmundsdóttir blaðamaður skrifar lilja@dv.is „Hún trúir ekki enn að þetta hafi gerst.“ dularfullt hrap Helge var einn af 228 sem voru um borð í air France-þotunni sem hrapaði með dularfullum hætti fyrir rúmri viku. 29 lík fundin Stél vélarinnar fannst í fyrradag. Þegar þessi grein er skrifuð er búið að finna 29 lík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.