Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2009, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2009, Side 6
miðvikudagur 10. júní 20096 Fréttir „Ástæðan fyrir því að ég tók þetta var sú að það er svo fljótlegt að setja þetta upp,“ segir Inga Haraldsdóttir, ábú- andi að Hjarðarhóli í Kjós. Um helgina var hafist handa við að reisa 156 fermetra hesthús úr vistvæn- um gegnheilum límtrésmassa. Smiðir hófust handa við að reisa húsið á laug- ardag og þann sama dag voru útveggir og milliveggir komnir upp. Í fyrradag voru svo burðarbitar í þaki settir upp og þakinu lokað sama dag. Er því um að ræða hálfgert Íslandsmet í hús- byggingu vegna þess hversu skamm- an tíma, eða þrjá daga, tók að reisa húsið. Kreppan hafði áhrif „Síðasta sumar voru rúmlega þrjátíu hús í burðarliðnum en eftir að kreppan skall á ákváðu menn að bíða og halda að sér höndum,“ segir Einar Vilhjálms- son, fyrrverandi framkvæmdastjóri Visthúsa KLH. Einar hefur nú breytt um starfsvettvang og er nú markaðs- stjóri orkufyrirtækisins Metan. Einar innleiddi þessa tegund húsa til Íslands og segir hann að um sé að ræða nýjan valkost fyrir þá sem eru í byggingarhugleiðingum. Límtrésplöt- urnar koma frá Austurríki úr skóg- um sem þarfnast grisjunar en öll nýt- ing þeirra er viðhöfð með sjálfbærum hætti. Einar segir að nýlega hafi verið reist átta hæða fjölbýlishús úr efninu í London sem aðeins hafi tekið nokkrar vikur að reisa. Smiðirnir skipta máli Inga segir að hún hafi tekið ákvörð- un um að byggja húsið á þeim tíma er þenslan var sem mest, eða síðasta sumar. Þá hafi gengi krónunnar verið hagstætt en eftir að hún hrundi sam- fara bankakerfinu hafi kostnaðurinn hækkað þar sem efnið í húsið er inn- flutt. „Þetta fer líka auðvitað eftir því hver er að vinna fyrir mann. Ég tel mig vera með góðan og sanngjarnan smið en ansi margir smiðir eru enn- þá í þenslugír þannig að þetta kæmi sjálfsagt ekki vel út hjá þeim,“ segir Inga sem er þó hæstánægð með hús- ið: „Þetta er mjög flott hús. Veggirnir eru tíu sentímetra þykkir og það lítur mjög vel út,“ segir Inga en hún vonast til þess að geta farið að nýta húsið eftir um það bil mánuð. Getur gert það sem þér sýnist Aðspurður hvort það sé hagstæðari valkostur en ella að byggja hús úr lím- trésmassa segir Einar að það fari eftir ýmsu. Þegar búið er að taka ákvörð- un um byggingu hússins sé það teikn- að og fari því næst í feril hjá bygginga- fulltrúa. Að lokum séu teikningarnar sendar til Austurríkis og pöntunin af- greidd. „Öll hönnun hússins er íslensk og það er í raun ekkert staðlað í þessu. Konseptið er ekki fjöldaframleiðsla á ákveðnum húsum heldur möguleiki hverra sem er að gera það sem þeim sýnist. Síðasta sumar var ég til dæm- is að kynna 80 fermetra sumarbústaði þar sem burðarvirkið var að gera sig á 2,8 milljónir á hafnarbakkanum,“ seg- ir Einar. Hann bætir við að það sé svo hverjum í sjálfsvald sett hvernig húsið eigi að líta út og hversu mikinn kostn- að eigi að leggja í það. Kosturinn við þessi hús sé sá hversu stuttan tíma það tekur að setja þau upp. Einstaklingum í byggingarhugleiðingum býðst nú nýr valkostur í byggingu húsa; hús úr vistvænum gegnheilum límtrésmassa. Inga Haraldsdóttir, ábúandi að Hjarðarhóli í Kjós, ákvað að kaupa sér eitt slíkt síðasta sumar. Um helgina var hafist handa við að reisa húsið og þremur dögum síðar var húsið komið upp. Íslandsmet Í húsbyggingu EInar Þór SIGurðSSon blaðamaður skrifar einar@dv.is reis á svipstundu Húsið reis á aðeins þremur dögum. Límtrésplötuhús Hönnunin er íslensk en hráefnið erlent. „Konseptið er ekki fjöldafram- leiðsla á ákveðnum húsum heldur möguleiki hverra sem er að gera það sem þeim sýnist.“ engar bætur fyrir sokkinn bát Héraðsdómur Reykjavíkur sýkn- aði tryggingafélagið Vörð í gær af bótakröfu útgerðarinnar Marons sem gerði út mótorbátinn Sigur- vin GK 119 þar til hann sökk 25. ágúst 2006. Tryggingafélagið hafði neitað að greiða út tryggingu þar sem forsvarsmenn þess töldu bátinn hafa sokkið vegna þess að hann hafi ekki verið haffær og sögðu það vítavert kæruleysi skip- stjórnenda, vél- og skipstjóra, svo og útgerðarmanns að senda menn á haf út á slíku fleyi. Vit- að var að báturinn lak og voru dælur um borð sem áttu að dæla sjó úr bátnum. Þær dugðu þó ekki til. Dæmdur fyrir nefbrot Átján ára piltur hefur verið dæmdur til 30 daga skilorðs- bundinnar fangelsisvistar fyr- ir að nefbrjóta karlmann á skemmtistaðnum Cafe Kósý á Reyðarfirði. Auk brotins nefs hlaut sá sem fyrir hnefahögg- inu varð glóðarauga. Hinn dæmdi játaði brot sitt og þótti 30 daga fang- elsi hæfileg refsing. Þar sem ekki var vitað til þess að hann hefði áður brotið af sér þótti rétt að skilorðsbinda dóminn til næstu tveggja ára. lamdi mann og sparkaði í löggu 21 árs karlmaður var dæmdur til 45 daga skilorðsbundinnar fang- elsisvistar fyrir tvær líkamsárás- ir við skemmtistaðinn Dátann á Akureyri. Maðurinn játaði að hafa slegið mann í andlitið og sparkað í fætur lögregluvarð- stjóra sem mætti á staðinn til að hafa afskipti af manninum vegna fyrra brots hans. Árásarmaðurinn viðurkenndi brot sitt og kenndi áfengisneyslu um atvikið, hann hefði eftir þetta leitað sér aðstoðar vegna áfengisvanda. Lögregluvarðstjórinn slapp án meiðsla en maðurinn sem varð fyrir hnefahögginu bólgn- aði á efri vör, hlaut mar á efri vör og brotnaði upp úr nokkrum tönnum. Einar K. Guðfinnsson, alþingismað- ur Sjálfstæðisflokksins, telur fullvíst að þingmeirihluti sé fyrir því að Ice- save-samningurinn verði samþykkt- ur. Einar ritar pistil um málið á vef sín- um ekg.is þar sem hann bendir á að ríkisstjórnarflokkarnir hafi ekki leit- að eftir stuðningi sjálfstæðismanna við Icesave-samninginn. Það bendi til þess að það hljóti að vera meiri- hluti fyrir samningnum á þingi. „Slík- an risasamning gerir engin ríkisstjórn sem vill láta taka sig alvarlega nema vera búin að ganga úr skugga um það hvort hún geti fullnustað hann með samþykkt Alþingis,“ segir Einar. „Ríkisstjórnin reiðir sig því ber- sýnilega á stuðning sinna þingmanna, eins og eðlilegt má telja. Út frá því verður þess vegna að ganga að meiri- hluti sé fyrir þessum samningi með fylgi stjórnarliða; hvað svo sem þeir segja í umræðunni. Annað er algjör- lega útilokað,“ segir Einar. Um þær vangaveltur að Ólaf- ur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, muni synja samningnum staðfesting- ar og vísa honum í dóm þjóðarinn- ar, segir Einar: „Hann mun ekki gera ríkisstjórn Samfylkingar og vinstri grænna það. Það vita allir sem leiða að því hugann.“ valgeir@dv.is Einar K. Guðfinnsson telur útilokað að forsetinn hafni Icesave: Öruggur stuðningur Einar K. Guðfinns- son Telur engar líkur á að forsetinn muni hafna icesave.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.