Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2009, Page 8
miðvikudagur 10. júní 20098 Fréttir
Bassaleikarinn og djasstónlistarmaðurinn Tómas R. Einarsson tók þátt í hústökunni
á Fríkirkjuvegi 11 á mánudagskvöld. Galvaskur með reiðhjólahjálm á höfði gerði hann
tilraun til að frelsa unga konu sem hafði sig mikið í frammi úr haldi lögreglu. Hann
lenti fyrir vikið í orðaskaki og ryskingum við tvær lögreglukonur.
Hústökublús
djassgeggjarans
„Ég var að skoða þetta nýja hús okk-
ar og kom ungri konu til hjálpar sem
var í haldi lögreglu innandyra vegna
þess að hún neitaði að gefa upp nafn
og kennitölu,“ segir bassaleikarinn
góðkunni Tómas R. Einarsson sem
var í hópi hústökufólksins sem gerði
sig heimakomið á Fríkirkjuvegi 11 á
mánudagskvöld. Húsið er sem kunn-
ugt er í eigu Björgólfs Thors Björg-
ólfssonar og hústökufólkið lítur því á
bygginguna sem eign þjóðarinnar þar
sem Icesave-reikningar Landsbank-
ans hafi bundið þjóðina á skuldaklafa.
Andóf í anddyri
Tómas lenti upp á kant við lögregluna
innandyra en viðskiptum hans við
laganna verði lauk með því að upp úr
sauð í anddyri hússins. „Ég sagði þeim
að ég væri að skoða þetta hús okkar en
lögreglukonurnar voru ekki sammála
því og handjárnuðu mig.“ Afskipti lög-
reglunnar af Tómasi, sem hafði spók-
að sig í rólegheitum um húsið í nokkra
stund, hófust eftir að hann leysti unga
konu af í einum glugga byggingarinn-
ar. Hún hafði staðið þar með skilti sem
á stóð: „BJÖRGÓLF HIRÐI TRÖLL.“
Þegar lögreglukonurnar, sem voru
fyrstar á vettvang, tóku stúlkuna afsíð-
is féll spjaldið í gólfið en Tómas var þá
fljótur til og hélt boðskapnum áfram
á lofti. „Þetta var eitt af þeim skiltum
sem þarna var haldið á lofti og ég er
fullkomlega sammála því sem þetta
unga fólk sem stóð að þessum mót-
mælum setti fram,“ segir Tómas sem
var ljúft og skylt að taka spjaldið upp
úr gólfinu og bera það að gluggarúð-
unni.
Andóf í anddyri
Tómas fékk þó ekki að vísa Björgólfi
lengi í tröllaheima þar sem lögregla
ýtti honum frá glugganum, þaðan sem
leikurinn barst í anddyrið þar sem
hitna fór í kolunum. Þar reyndi Tóm-
as að gera lögreglu grein fyrir afstöðu
sinni með þessum orðum eftir nokkr-
ar stympingar: „Hann er búinn að
brjótast inn í hús hvers einasta Íslend-
ings og setja hann í skuldafangelsi.
Það er það sem þessi svokallaði eig-
andi þessa húss er búinn að gera. Þess
vegna er þetta hús hús allra Íslendinga
núna, það er bara þannig.“
Lögreglukonurnar virtust hvorki
hafa tíma né áhuga á að rökræða við
Tómas um hversu ríkan rétt hús-
tökufólkið hefði til þess að spóka sig
á göngum Fríkirkjuvegar 11 og aftur
kom til stympinga þar sem heyrðist
til Tómasar hrópa „slepptu henni!“ og
síðan „farðu út!“ en á meðan lögreglu-
konurnar sinntu Tómasi leit út fyrir að
smuga væri að myndast fyrir stúlkuna
til að smeygja sér út.
Mætti með hjálm
Tómas bar forláta reiðhjólahjálm á
höfði við hústökuna en ástæðan var
ekki sú að hann hefði beinlínis búist
við átökum. „Það var nú meira vegna
þess að ég mætti á hjólinu,“ segir Tóm-
as sem var sleppt fljótlega eftir að hann
kom út undir bert loft. Hann staldraði
aðeins við eftir atganginn, kveikti sér
í pípu, og fylgdist með framhaldinu.
„Þetta fór mjög vel fram. Það komst
skýrt til skila að fólki finnst blóðugt að
setja drápsklyfjar á þjóðina á meðan
það gerist að höfuðábyrgðarmennirn-
ir á Icesave í Landsbankanum halda
sínum ránsfeng.“ Tómasi fannst lög-
reglan vera „svolítið strekkt“ og telur
víst að ástæðan hafi verið hversu fálið-
uð hún var. „Þegar við vorum að skoða
þessu nýju húsakynni okkar kom lög-
reglan með tvo unglingspilta. Þetta
var mjög hjákátlegt að sjá en lögregl-
an sagði að þarna væru komnir full-
trúar eigenda sem kærðu sig ekki um
að við værum í húsinu. Þeir voru mjög
óhermannslegir í framgöngu þessir
tveir fermingardrengir, sem áttu víst
að heita fulltrúar eigendanna, skegg-
lausir fulltrúar heimskapítalismans
við Fríkirkjuveg.“
Kúba norðursins
Þrátt fyrir að hafa tekið þátt í hústök-
unni við Fríkirkjuveg af lífi og sál hef-
ur Tómas látið Iceasve-mótmælin fyr-
ir utan alþingishúsið síðustu daga eiga
sig enda sé málið ekki svo einfalt. „Ég
er reyndar þeirrar skoðunar að góðir
kostir séu fáir og eins og stendur sé ég
ekkert annað skárra en þessa samn-
inga. Þeir séu bara raunsæir en það er
á sama tíma blóðugt og helvíti hart að
helstu ábyrgðarmennirnir skuli halda
sínu.“
Tómas hefur sótt nokkuð til Kúbu í
tónlist sinni og er vel kunnur ástand-
inu á þeirri eyju en sér hann fyrir sér að
Ísland yrði einhvers konar Kúba norð-
ursins færi svo að Íslendingar myndu
ekki greiða þær skuldir sem á þá hafa
verið lagðar? „Margir hafa haldið því
fram,“ segir Tómas en vill þó helst ekki
hugsa þá hugsun til enda þar sem við
fengjum hvorki „sól né músík með
þeirri þróun þannig að ég er nú ekki
tilbúinn til að láta á það reyna. Á Kúbu
er bjart en við höfum ekki mikið af sól-
inni og hitanum þannig að þetta yrði
mun erfiðara fyrir okkur“.
„Hann er búinn að
brjótast inn í hús hvers
einasta Íslendings og
setja hann í skulda-
fangelsi. Það er það
sem þessi svokallaði
eigandi þessa húss er
búinn að gera.“
þÓRARINN þÓRARINSON
fréttastjóri skrifar: toti@dv.is
Björgólf hirði tröll Lögregla
vísar ungri hústökukonu úr
glugga á Fríkirkjuvegi.
Ekkert salsa hér Tómas r.
Einarsson tekur við spjaldinu
sem unga konan bar og heldur
bölbænunum á lofti.
myndir SigTryggur ari
Skollaleikur Tómas lét sér
ekki segjast og tók léttan
snúning með lögreglukon-
unni í anddyrinu.
Mikið niðri fyrir „Hann er búinn að brjótast inn í hús hvers
einasta íslendings og setja hann í skuldafangelsi. Það er það sem
þessi svokallaði eigandi þessa húss er búinn að gera. Þess vegna
er þetta hús hús allra íslendinga núna, það er bara þannig,“ sagði
Tómas og var síður en svo fús til að yfirgefa bygginguna.
Mætti ekki til að
krefjast milljónar
Dómari við Héraðsdóm Aust-
urlands frestaði í gær ákvörð-
un um refsingu sautján ára
stúlku sem játaði að hafa slegið
manneskju í andlitið og nokkr-
um sinnum í höfuðið fyrir utan
Hótel Egilsbúð í Neskaupstað
snemma í febrúar síðastliðnum.
Stúlkan gerðist sek um árásina
þegar hún var ennþá sextán ára
og fannst dómara rétt, vegna
ungs aldurs hennar, að fresta
ákvörðun refsingar að því gefnu
að hún héldi skilorð.
Brotaþolinn krafðist einnar
milljónar króna í miskabætur.
Dómari vísaði þeirri kröfu hins
vegar frá dómi vegna þess að
hvorki brotaþoli né lögmaður
hans mætti í dómsal þegar mál-
ið var tekið fyrir.
Meiri gjaldeyr-
ir í Seðlabanka
Gjaldeyrisforði Seðlabank-
ans var þremur prósentum
meiri í lok síðasta mánaðar
en í upphafi mánaðarins. Alls
jókst hann um tólf og hálfan
milljarð króna og stóð í 426,1
milljarði króna í lok maí. Að
því er fram kemur í Hag-
sjánni, vefriti Hagfræðideild-
ar Landsbankans, er þessi
aukning nær eingöngu vegna
veikingar krónunnar í mán-
uðinum.
borgin sýknuð
Reykjavíkurborg var í gær
sýknuð af bótakröfu dánarbús
Halldórs Vigfússonar vegna
skerðingar á erfðafestulandi sem
rekja má til ársins 1969, eða fyrir
fjörutíu árum.
Vigfús Jónsson, faðir Hall-
dórs, fékk Bústaðablett 10 leigð-
an sem erfðafestuland árið 1932
og gekk sá réttur til sonarins
fjórtán árum síðar. 23 árum eftir
það, eða 1969, var hluti landsins
tekinn úr erfðafestu en það var
ekki fyrr en árið 2000 sem krafist
var bóta vegna þess.