Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2009, Qupperneq 16
Miðvikudagur 10. júní 200916 norðurland
HESTALEIGA
Bjóðum uppá eins til þriggja tíma hestaferðir alla daga
fyrir einstaklinga og hópa.
Ferðaskipuleggjandi
Leyfishafi
Ferðamálastofu
REIÐSKÓLI
Reiðnámskeið fyrir krakka í allt sumar,
um er að ræða vikunámskeið.
15 - 19 Júní - fullt
22 - 26 Júní - örfá pláss laus
29.júní - 3. júlí - örfá pláss laus
6 - 10 júlí - skráning hafin
Erum staðsett við Akureyri.
Nánari upplýsingar á
www.hestaleiga.is
og í síma 695 7218
Draupningsgata 7,m 603 Akureyri S: 462 - 6600 polyak@simnet.is
Senn lýkur lengingu á flugbrautinni á Akureyri:
GPS-tækni notuð
í flugferlum
Verið er að endurnýja aðflugs- og
brottfararferla við Akureyrarflugvöll í
tengslum við lengingu á flugbrautinni
á Akureyri til suðurs. Í þessum breyt-
ingum er stuðst við GPS-tækni og gert
ráð fyrir aukinni áherslu á GPS-bún-
að í flugvélum. Þetta kann að þýða að
stærri flugvélar á borð við frakt- og far-
þegaþotur geti lent á Akureyri við erf-
iðari veðurskilyrði en hingað til hefur
verið hægt.
„Þessi tækni hefur nýst sérstak-
lega vel við flugvelli þar sem umferð er
mikil og flókin, en ekki síður við flug-
velli eins og þennan, þar sem fjöll og
dalir takmarka flugumferð í slæmu
skyggni,“ segir Hal Anderson, ráðgjafi
hjá bandaríska fyrirtækinu Naverus.
Anderson og samstarfsmaður hans
voru hér á landi fyrir helgi og funduðu
með fulltrúum Flugstoða á Akureyrar-
flugvelli um fyrirhugaðar breytingar.
„Þessi tækni mun á endanum gera
fólki kleift að hafa flugferlana styttri,
sem skilar sér í sparnaði á eldsneyti
sem aftur er gott fyrir umhverfið og
dregur úr útblæstri. Með þessum að-
ferðum má einnig auka flugöryggi
á þessum viðkvæmasta ferli hverrar
flugferðar, í grennd við flugvöllinn,“
segir Hal.
Hal Anderson „GPS-tækni mun gera
flugmönnum kleift að lenda í minna
skyggni en hingað til hefur verið
mögulegt.“ mynd Sigtryggur
Hjónin guðbergur Egill Eyjólfsson og Birna Kristín Eyjólfsdóttir eru með yndislegan húsdýragarð á bæ
sínum Hléskógum í austanverðum Eyjafirði. Hjónin bjóða einnig upp á fjölskyldutjaldsvæði sem hefur hitt
beint í mark hjá barnafólki. Á sumrin má segja að þetta sé falin paradís í firðinum og aðsókn í garðinn hefur
tvöfaldast frá ári til árs.
Við vorum kúabændur og hættum kúabúskap 2005. Þá urðum við að finna okkur eitthvað annað að
gera. Við erum með lítið gistihús
og húsdýragarðinn og erum með
nánast öll þau húsdýr sem eru á
Íslandi,“ segir Guðbergur Egill Eyj-
ólfsson. Hann rekur, ásamt konu
sinni Birnu Kristínu Eyjólfsdóttur,
fjölskyldutjaldsvæði og húsdýra-
garð á Hléskógum í austanverðum
Eyjafirði og er bærinn aðeins í um
tuttugu mínútna akstursfjarlægð
frá Akureyri.
Það er nóg að skoða á Hléskóg-
um og eiga þau Guðbergur og Birna
til að mynda afar sjaldgæf dýr.
„Við eigum einu svörtu geitina
sem er til á Íslandi. Það eru bara
til fimm hundruð geitur í land-
inu en það eru til 25 þúsund tígr-
isdýr í heiminum og þau eru sögð
í útrýmingarhættu. Þetta eru svo-
lítið merkilegar skepnur. Við gerum
okkur ekki alveg grein fyrir því allt-
af,“ segir Guðbergur en gestir garðs-
ins fá margvíslega fræðslu um dýrin
og landbúnað.
Sjónarhóll bænda
„Þegar fólk kemur í garðinn er alltaf
einhver til að taka á móti því. Sumir
vilja fara í friði í gegnum garðinn en
ef fólk vill fylgjum við því og segjum
frá skepnunum og hlutverki þeirra í
landbúnaðinum. Þegar fólkið kem-
ur fá allir að klappa og halda á kett-
lingum og hundum og fara inn til
geitanna sem eru mjög gæfar. Ef ég
er með fólki spjalla ég líka um land-
búnað almennt. Í garðinum reyn-
um við að kynna landbúnaðinn
eins og hann er í reynd frá sjónar-
hóli bændanna. Hér kemur mikið
af bæjarfólki og það er mikil van-
þekking á landbúnaði sem von er.
Við reynum að kynna bæði hlut-
verk og stöðu bænda og landbún-
aðinn almennt,“ segir Guðbergur
og er það margt sem kemur bæjar-
fólki á óvart.
„Ég held að það komi því á óvart
hvað bóndinn fær lítið í sinn hlut
þegar ég segi þeim í raun hvað fjár-
bú veltir miklum, eða á ég að segja
litlum peningum. Það kemur því líka
á óvart þegar ég lýsi vinnunni. Við
erum í vinnunni allan sólarhring-
inn. Fólk gerir sér ekki grein fyrir því
hvað er mikið haft fyrir matnum þess
áður en það sækir hann í hilllurnar í
Hagkaup. Við eigum mjög skemmti-
legt spjall og fólk er mjög áhugasamt
að fræðast um hlið bændanna.“
Þetta er þriðja sumarið sem hús-
dýragarðurinn er starfræktur á Hlé-
skógum.
VonaSt eftir tVö þúSund
geStum
„Fyrsta sumarið komu fimm hundr-
uð og þúsund seinna sumarið. Núna
vonumst við eftir tvö þúsund,“ segir
Guðbergur með bros á vör. Hann og
kona hans eiga þrjú börn og er Guð-
bergur í fullu háskólanámi og Birna
vinnur á leikskóla. Samt sem áður
gefa þau sér tíma til að gera svæðið
á Hléskógum paradís líkast.
„Í sumar kynnum við svæðið sem
fjölskyldutjaldsvæði og húsdýra-
garð. Fólk getur tjaldað og innifalið
í tjaldsvæðagjaldinu er aðgangur í
húsdýragarðinn. Við gerðum þetta í
fyrra og það hitti í mark hjá barna-
fólkinu. Hér eru líka leiktæki eins
og trampólín, sandkassar og annað.
Á sumrin breytum við helmingnum
af húsinu okkar í kaffihús og inni-
falið í verðinu í húsdýragarðinum
er kaffi og kökur. Börnin fá litabæk-
ur og hægt er að nálgast alls kyns
kynningarbæklinga um skepnur,
bændur og sveitalífið ókeypis. Það
er kartöflugarður nálægt tjaldsvæð-
inu og fólk getur rölt þangað og náð
sér í kartöflur sjálft í soðið.“
liljakatrin@dv.is
ParadÍS
Í eYjafirÐi
Feðgar kasta mæðinni Beggi og strákarnir ræða við blaðamann á milli verka.
Í nánd við dýrin Allir sem heimsækja Hléskóga komast í snertinu við dýr og fá
að klappa hundum og kiðlingum. mynd Sigtryggur Ari JóHAnnSSon