Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2009, Síða 26
Miðvikudagur 10. júní 200926 norðurland
Ég hef séð um búið síð-an í febrúar,“ segir Börkur Árnason, bóndi á Ingvör-um í Svarfaðardal. Árni
Steingrímsson, faðir hans, lést í
bílslysi á Ólafsfjarðarvegi á ný-
ársdag, þá 65 ára gamall. Systkin-
in eru sex og tók Börkur við bú-
inu. Hann segist vera með um 50
kindur. Meðfram bústörfum hefur
Börkur unnið sem sjóðsstjóri hjá
Íslenskum verðbréfum. „Það má
segja að það sé mun skemmtilegra
að sjá um þetta fé en að ávaxta fé
eftir bankahrunið,“ segir hann
hlæjandi.
Á leið til Noregs
Börkur er lærður sjávarútvegsfræð-
ingur og er með meistarapróf í fjár-
málum. Hann flutti til Reykjavíkur
upp úr aldamótum en sneri síðan
til Akureyrar árið 2007 og réð sig
til starfa hjá Íslenskum verðbréf-
um. Hann segist alltaf hafa verið
í bústörfum hjá föður sínum þeg-
ar hann var ungur. Auk þess vann
hann í sveitinni á sumrin meðan
hann var í námi til 25 ára aldurs.
Þrátt fyrir að líka vel í sveitinni
hyggur Börkur á flutning til Nor-
egs í lok mánaðarins. Hefur hann
ráðið sig til starfa hjá norsku hug-
búnaðarfyrirtæki í Stafangri. Sagði
hann starfi sínu lausu hjá Íslensk-
um verðbréfum í lok maí.
ofurhlaupari
Auk þess að sinna sveita- og verð-
bréfastarfi er Börkur mikill lang-
hlaupari þó ekki sé fastar að orði
kveðið. Þegar blaðamaður ræddi
við hann var hann á leiðinni að
taka æfingu sem fólst í 25 kílómetra
hlaupi. Segist hann áætla að hlaupa
um 500 kílómetra í júní. Börkur hef-
ur undanfarin ár tekið þátt í einu
erfiðasta hlaupi heims. Um er að
ræða 166 kílómetra hlaup í kring-
um fjallið Mont Blanc. Er hlaupið í
gegnum Frakkland, Sviss og Ítalíu.
Meðal annars er hlaupið yfir fjög-
ur fjöll í 2.500 metra hæð. Þess má
til gamans geta að Börkur á tvíbura-
bróður sem heitir Birkir og hefur
hann líka tekið þátt í þessu erfiða
hlaupi undanfarin ár.
35 tíma með hlaupið
Þegar Börkur tók þátt í hlaupinu
árið 2007 var hann um 35 klukku-
tíma með hlaupið. Eftir 25 klukku-
tíma brá hann á það ráð að leggja sig
í hálftíma. Eftir svefninn hljóp hann
síðan í um tíu klukkutíma í viðbót
þangað til hann kom til bæjarins
Chamonix í Frakklandi snemma á
sunnudagsmorgni.
Hann tók fyrst þátt í hlaupinu
árið 2006 og tók þá „styttri“ vega-
lengdina sem er „aðeins“ 86 kíló-
metrar að lengd. 2007 og 2008 hljóp
hann síðan 166 kílómetra. Þrátt fyr-
ir annríki undanfarinna mánaða
ætlar hann að hlaupa 166 kílómetra
leiðina en hlaupið fer fram í lok ág-
úst.
„Ég ætla að taka þátt í Jökulsár-
hlaupinu,“ segir Börkur aðspurður
hvort einhver önnur hlaup verði
tekin fram að Mont Blanc-hlaup-
inu. Ætlar hann að fljúga frá Nor-
egi til Íslands í lok júlí til að taka
þátt í því. Hann hefur sex sinnum
tekið þátt í Laugavegshlaupinu en
verður í Noregi þegar hlaupið fer
fram í ár.
sauðféð
skemmtilegra
en að ávaxta fé
Börkur Árnason tók við búinu á Ingvörum í Svarfaðardal eftir að
faðir hans lést á nýársdag. Hefur hann séð um 50 kindur sem eru
á búinu síðan í febrúar samfara því að starfa sem sjóðsstjóri hjá
Íslenskum verðbréfum. Segir hann að það sé mun skemmtilegra
að sjá um sauðféð en að ávaxta fé eftir bankahrunið. Börkur er
mikill langhlaupari og ætlar að hlaupa 166 kílómetra leið í kring-
um Mont Blanc í þriðja sinn í ágúst.
Á leið á æfingu
Börkur æfir stíft, enda
býr hann sig undir
að hlaupa hringinn í
kringum Mont Blanc.