Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2009, Síða 34
Miðvikudagur 10. júní 200934 norðurland
1.Hvað er það fyrsta sem þú gerir á
morgnana?
Gá til veðurs.
2. Hvaða kvikmyndahetju lítur þú
upp til?
Clint Eastwood, ég hef hitt hann og
tekið í höndina á honum.
3. Hvar ólst þú upp?
Á Lómatjörn í Grýtubakkahreppi.
4. Ef ekki bóndi, hvað þá?
Stjórnmálamaður.
5. Hvað drífur þig áfram?
Bjartsýnin og þrautseigjan.
6. Hvaða lag kemur þér alltaf í gott
skap?
Eins og er, þá verð ég að segja norska
Eurovision-lagið.
7. Hver er uppáhaldsborgin þín?
Kaupmannahöfn.
8. Hvað hefur Eyjafjörður fram yfir
aðra staði á landinu?
Einstaka náttúrufegurð og veðursæld.
9. Hafa íslensk stjórnvöld gert nóg til
bjargar heimilum í landinu?
Nei.
10. Hverju sérðu mest eftir?
Það nagar mig svolítið að ég eyddi 20
árum í stjórnmálin, sem ég sé ekki eftir
í rauninni, en ég sé eftir því að hafa
ekki sinnt fjölskyldunni meira á þeim
tíma.
11. Ef þú mættir gefa íslensku
þjóðinni gjöf, hvað myndirðu gefa
henni?
Meiri vilja til samvinnu og miðað við
ástandið myndi ég gefa henni þá gjöf
að standa ekki í þessum erfiðu sporum.
12. Hvar líður þér best?
Á Lómatjörn.
13. Hver er fallegasti staðurinn á
Íslandi?
Útsýnið frá Kaldbak.
14. Hver var fyrirmynd þín á yngri
árum?
Faðir minn, Sverrir Guðmundsson.
15. Hvenær felldir þú síðast tár?
Það hefur líklega verið í síðust
jarðarför sem ég fór í, ég græt alltaf við
jarðarfarir.
16. Stundar þú líkamsrækt?
Ég hreyfi mig eitthvað, geng eða synd.
17. Hvert er takmark þitt í lífinu?
Að láta gott af mér leiða.
18. Hvaða bók getur þú lesið aftur
og aftur?
Ég les ekki bækur aftur og aftur.
19. Hver voru áhugamál þín sem
unglingur?
Það var bítlatónlistin og svo náttúrlega
Hljómar.
20. Hvað ætlaðir þú að verða þegar
þú yrðir stór?
Eitthvað stórmerkilegt.
21. Hvernig er fullkomið laugardags-
kvöld?
Það fer eftir því hvort það er vetur eða
sumar, núna er það góður matur og
örlítið rauðvín með og vera í góðum
félagsskap.
22. Hver er þinn helsti kostur?
Þrautseigjan í bland við þráa.
23. Hvern hefur þig alltaf dreymt um
að hitta?
Paul McCartney.
24. Áttu gæludýr?
Nei.
25. Finnst þér gaman í sveitinni?
Já, yfirleitt.
26. Hvaða skref væri íslenskri þjóð
mest til heilla?
Eins og ástandið er núna kemur
fyrst upp í hugann að við hefðum
sterka ríkisstjórn og næðum tökum á
efnahagserfiðleikunum og fengjum
góðan samning við Evrópusambandið
um aðild.
27. Hvers vegna bóndi?
Það er eitthvað sem er í blóðinu auk
þess að ákveðin tryggð við staðinn
spilar þar inn í.
28. Síðasta orðið?
Um leið og ég geri mér grein fyrir
erfiðleikunum sem ríkisstjórnin stendur
frammi fyrir, brosi ég oft yfir því hvað
Steingrímur J. og Jóhanna Sigurðar-
dóttir þurfa að éta ofan í sig á hverjum
degi, miðað við það sem þau hafa áður
haldið fram á sínum langa stjórnmála-
ferli.
síðasta orðið
Siðasta orðið að þessu sinni á Valgerður Sverris-
dóttir, fyrrverandi iðnaðarráðherra. Hún segir að
mesta heillskrefið fyrir íslensku þjóðina, eins og
sakir standa, væri að hafa sterka ríkisstjórn sem
næði tökum á efnahagnum ásamt því að ná góðum
aðildarsamningi við Evrópusambandið. Valgerður
segir útsýnið frá Kaldbak vera fallegast á Íslandi.
Hún býr að Lómatjörn í Grýtubakkahreppi.
Valgerður
Sverrisdóttir