Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2009, Síða 37
miðvikudagur 10. júní 2009 37Umræða
Hver er maðurinn? „knattspyrnu-
maðurinn guðlaugur victor Pálsson,
18 ára gamall, búsettur á Englandi
og spila fyrir Liverpool.“
Hvað drífur þig áfram? „móðir
mín og systir sem hafa elt mig milli
landa í tvö ár og veitt mér rosalegan
stuðning. Fjölskyldan er það sem
heldur mér gangandi.“
Hvar ólstu upp? „í grafarvogin-
um.“
Uppáhaldsmatur? „Saltfiskur og
saltkjöt.“
Eru góðgerðarmálefni þér
ofarlega í huga? „já, þetta er
fyrsta góðgerðarverkefnið sem ég
tek að mér. Það er gott að hjálpa
fólki og gera aðra ánægða og ég
væri alveg til í að vinna í fleiri
góðgerðarmálum í framtíðinni.“
Var erfitt að fá alla liðsmenn
Liverpool til að árita treyjuna?
„nei, alls ekki. Ég sagði þeim að
þetta væri fyrir barnaspítalann
hérna heima og þeir árituðu allir
með bros á vör.“
Hver voru viðbrögð krakkanna
sem þú heimsóttir? „Þau voru
rosalega fín. Þarna var einn harður
Liverpool-maður í sinni treyju og
þetta voru allt yndislegir krakkar og
unglingar á mínum aldri.“
Hvernig aðlagastu lífinu í
Liverpool? „Betur og betur.
menningin er allt öðruvísi þarna úti
en mér líst vel á borgina og líður vel
þar.“
Hver er skemmtilegastur í
liðinu? „Ég verð að segja ryan
Babel og Yossi Benayoun. Þeir heilsa
manni alltaf þótt maður sé enn
unglamb í liðinu og gefa sér tíma til
þess að tala við mann.“
Hvað ætlar þú að gera í fríi þínu
á Íslandi? „Ég ætla allavega að
njóta þess að vera í fríi og eyða tíma
með fjölskyldunni og vinum og hafa
það náðugt.“
Hver er draumurinn? „draumur-
inn er að spila fyrir framan fullan
völl á anfield með aðalliðinu.“
SkammaStu þín fyrir að vera íSlendingur?
„nei, ég skammast mín ekki.“
Sandra HaLLdórSdóttir
32 ára kennari
„Ég er ekki íslendingur, ég er
vestmannaeyingur.“
HiLmar HafStEinSSon
54 ára kennari
„nei, en ég skammast mín fyrir
ráðamenn þjóðarinnar.“
arnar Logi ÁgúStSSon
9 ára nemi
„já, eins og staðan er í dag.“
óLafUr JónaS SigUrðSSon
30 ára starfsmaður hjá múlalundi
Dómstóll götunnar
gUðLaUgUr Victor PÁLSSon,
18 ára leikmaður varaliðs Liverpool,
færði á dögunum Barnaspítala
Hringsins keppnistreyju sem allr
leikmenn Liverpool höfðu áritað.
BaBel og Benayoun
skemmtilegastir
„Ég geri það, ég skammast mín fyrir að
hafa svona fólk við stjórnvölinn. Bæði
þau sem sitja núna og þau sem sátu
áður. út með klanið.“
LúðVÍk LúðVÍkSSon
40 ára markaðsstjóri
maður Dagsins
Upplýsingar fylla upp í mynd sem
venjulega er ófullkomin. Því hald-
betri og nákvæmari sem upplýsing-
arnar eru því betri verður myndin
sem fæst af veruleikanum. Myndin
verður aldrei endanleg og tæmandi.
Þetta á ágætlega við um fjármála-
ráðherrann Steingrím J. Sigfússon,
formann VG.
Hann barðist gegn skuldsetningu
þjóðarinnar árum saman og benti á
hætturnar.
Hann talaði gegn Alþjóðagjald-
eyrissjóðnum þegar hann leiddi
stjórnarandstöðuna fram að stjórn-
arskiptum í lok janúar og vildi síst
af öllu verða ofurseldur valdi hans
og úrræðum. Hann tók ekki í mál að
skuldbinda þjóðina fyrir 600 millj-
arða Icesave-skuld Landsbankans í
nálægum löndum.
Hann pakkaði í vörn fyrir krón-
una og tortryggði aðild að Evrópu-
sambandinu í nafni lýðræðis, full-
veldis og yfirráða yfir auðlindum
lands síns.
Steingrímur hefði við eðlilegar
aðstæður heldur aldrei tekið í mál að
leggja til stórfelldar uppsagnir opin-
berra starfsmanna, stórfellda skerð-
ingu velferðarþjónustu og skatta-
hækkanir.
Þjóð á barmi upplausnar
Reiði og tortryggni ólgar í þjóðfélag-
inu. Þegar enn var eitthvað í budd-
um landsmanna fóru þeir út á göt-
urnar og kröfðust lýðræðisumbóta
og kosninga; komu ríkisstjórn sem
brást af höndum sér.
Nú eru buddurnar að tæmast,
búið að skuldbinda þjóðina fyrir 640
milljarða Icesave-skuld og við blasir
170 milljarða niðurskurður hjá hinu
opinbera á næstu misserum. Fjöld-
inn er farinn að safnast saman á ný
fyrir framan Alþingi. Að þessu sinni
er afleiðingum kreppunnar mót-
mælt. Hvers vegna eigum við að
borga óreiðuskuldir annarra? Hvar
er réttlætið? Sanngirnin? Stjórnar-
andstaðan slær taktinn.
En Steingrímur er óbugaður,
stendur ósár en nokkuð móður eftir
eina þá erfiðustu eldskírn sem nokk-
ur stjórnmálamaður getur fengið: að
verða fjármálaráðherra í kjölfar um-
fangsmesta efnahagshruns sem yfir
þróaða velferðarþjóð hefur dunið.
Nú segist Steingrímur ætla að
standa og falla með Icesave-samn-
ingi sem leggur þjóðina í 640 milj-
klarða króna áhættu. Átti hann að
segja nei og setja upp stórt skilti fyrir
augum alheimsins sem á stæði: „Við
borgum ekki“?
Steingrímur hefur í höndum upp-
lýsingar sem hann hafði ekki áður.
Hann veit að Íslendingum tókst að
fella banka sína nánast hjálparlaust.
Hann veit að sæmd þjóðar er í húfi
ef bankahrunið bitnar á saklausum
sparifjáreigendum. Nægur er skellur
skattborgara samt í nálægum löndum
af völdum íslenska bankahrunsins.
Sennilega hefur Steingrímur átt-
að sig á því að Íslendingar mega ekki
byrja á því að slá niður nágranna
sína, ræna þá veskinu og hóta þeim
málsókn að því búnu.
Vitur stjórnmálamaður
Kannski veit Steingrímur að eign-
ir Landsbankans fara langt með að
duga fyrir Icesave-skuldinni.
Tökum dæmi af verslunarkeðj-
unni Iceland í Bretlandi. Hún er
væntanlega að mestu á forræði
skilanefndar Landsbankans eftir fall
Baugs. Iceland er vel rekin verslun-
arkeðja sem selur Bretum matvæli á
lágu verði. Hún malar gull þessa dag-
ana, enda vilja Bretar kaupa ódýrt
á óvissutímum í efnahagsmálum.
Fróðir menn telja að hún geti hæg-
lega verið 200 milljarða króna virði
ein og sér verði hlutur Íslendinga
seldur á réttu augnabliki.
Þetta er aðeins ein eign, en þær
skipta áreiðanlega hundruðum, sem
skilanefnd Landsbankans kemur í
verð á næstu misserum og geta far-
ið langt með að duga fyrir Icesave-
skuldunum.
Steingrímur er með öðrum
orðum stjórnmálaforingi með yf-
irburða reynslu og fullur visku.
Hann þarf að miðla þeirri visku
og reynslu til flokksmanna sinna
á þingi, sem margir hverjir eru
fljótir að læra.
Hver veit nema VG-foringinn
mildist svo í garð vina íslensku
þjóðarinnar handan við hafið að
hann geti á endanum hugsað sér
að mæla með nánari samvinnu
við þá innan Evrópusambands-
ins. Hafni þjóðernisrembingnum
sem steypti þjóðinni í glötun.
Verra er hins vegar hversu tóm-
látir samfylkingarmenn eru gagnvart
þessum hægfara en
markvissu um-
breytingum í
forystu VG.
Því styðja
þeir ekki
Steingrím
og tala með
honum
einni röddu?
Áhrif upplýsinganna
kjallari
1 ólafur ragnar „reyndi að reka
mömmu“
,,Persónulega þá fyrirlít ég Ólaf ragnar,“
bloggar Teitur atlason guðfræðingur og
segir Ólaf á sínum tíma hafa reynt sitt
ítrasta til að reka mömmu Teits úr starfi
auglýsingastjóra á Þjóðviljanum þegar
hún var nýskilin og ein með tvo syni.
2 Presturinn hætti fyrirvaralaust
Skyndilegt brotthvarf séra Þóreyjar
guðmundsdóttur fyrir austan hefur vakið
umtal íbúanna.
3 Bankamenn ósáttir við stjóra
Skeljungs
Fulltrúar íslandsbanka í stjórn Skeljungs
studdu ekki ráðningu Einars arnar
Ólafssonar í starf forstjóra Skeljungs.
4 Hundurinn Blanco dregur
kolbrúnu í vinnuna
kolbrún arna Sigurðardóttir lætur
hundinn Blanco draga sig út um allt.
5 ráðherra má ekki koma fram í
sjónvarpi
Fyrsti sádiarabíski kvenráðherrann má
ekki koma fram í sjónvarpi án leyfis.
6 Starf rannsóknarnefndar í
uppnámi
Trúnaðarbrestur er kominn upp í
rannsóknarnefnd alþingis sem fæst við
að rannsaka aðdraganda og orsakir
bankahrunsins
7 icesave-frumkvöðlar ekki
lengur hjá Landsbankanum
Starfsmenn sem unnu að mótun og
markaðssetningu icesave eru hættir.
mest lesið á dv.is
JóHann
HaUkSSon
útvarpsmaður skrifar
„Fróðir menn telja að
hún geti hæglega verið
200 milljarða króna
virði ein og sér verði
hlutur Íslendinga seldur
á réttu augnabliki. “
mynDin
Blásið við alþingi annan daginn í röð mættu andstæðingar icesave-samkomulagsins á austurvöll til að berjast gegn samþykkt
þess. Þessi hafði lúður með sér og lét í sér heyra. mynd HEiða HELgadóttir