Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2009, Qupperneq 38
miðvikudagur 10. júní 200938 Fréttir
Biðja stjórnvöld
um „samúð“
Fjölskyldur Eunu Lee og Lauru
Ling sem dæmdar voru til tólf
ára þrælkunar í Norður-Kóreu
hafa beðið þarlend stjórnvöld
afsökunar af hálfu þeirra og beð-
ið stjórnvöld að sýna „samúð“.
Þetta gerðu fjölskyldurnar í
fyrstu opinberu ummælum sín-
um vegna málsins, en fréttakon-
urnar voru sakfelldar fyrir að
hafa komið inn í Norður-Kóreu
með ólöglegum hætti. Í sam-
eiginlegri yfirlýsingu fjölskyldn-
anna var lýst yfir áhyggjum af
andlegri heilsu kvennanna og
velferð þeirra.
Auðmjúkur
Brown situr
áfram
Gordon Brown, forsætisráðherra
Bretlands, höfðaði til miskunnar
flokks síns og lofaði bót og betr-
un í stjórnarháttum ef hann yrði
settur á, en ekki ýtt til hliðar.
Forsætisráðherrann hafði
frest í það minnsta fram á haust-
daga. „Ég hef minn styrk og ég
á mína veikleika. Ég veit að ég
þarf að taka mig á,“ sagði Brown
þegar hann höfðaði til yfir 400
þingmanna breska verkamanna-
flokksins. Gordon Brown lofaði
að nýta hæfileika allra og verða
opnari og gagnsærri í aðgerðum
sínum.
Vill tortíma
námsbókunum
Arnold Schwarzenegger, ríkis-
stjóri Kaliforníu, reynir nú sitt
ýtrasta til að fylla gloppur í fjár-
málum fylkisins. Ein þeirra leiða
sem hann íhugar nú er að skipta
út námsbókum fyrir rafrænar
námsbækur á netinu.
Að sögn Schwarzeneggers er
„... heimskulegt og dýrt að horfa
til hefðbundinna innbundinna
bóka þegar upplýsingar í dag eru
aðgengilegar á rafrænu formi“.
Ekki hugnast öllum kennur-
um fyrirætlun Schwarzeneggers
og telja þeir ekki sjálfgefið að
hans leið verði hagkvæmari en
hefðbundin.
Japanskt fyrirtæki bjargar vinafáum brúðhjónum:
Brúðkaupsgestir til leigu
Árviss tími giftinga er runninn upp
í Japan og þurfa verðandi brúðhjón
ekki að örvænta þó gestalistinn sé í
styttra lagi því japanskt fyrirtæki býð-
ur nú upp á þá þjónustu að fylla gest-
alistann með gervivinum og –ætt-
ingjum.
Í Japan er gjarna litið þannig á að
brúðkaup sé formleg athöfn og ætl-
ast til þess að sem flestir fjölskyldu-
meðlimir, vinir og vinnufélagar séu
viðstaddir. Yfirmenn halda gjarna
ræður og vinir og vandamenn standa
fyrir uppákomum.
En hvað ef viðkomandi hefur enga
til að gera slíkt í brúðkaupinu? Hir-
oshi Mizutani, yfirmaður umboðs-
skrifstofu í Tókýó sem leigir út gesti:
„Við verðum við brúðkaup sem vinir
þínir í stað vina þinna.“
„Gestir geta óvænt ekki mætt. Eða
kannski hefur þú áhyggjur af hve fáir
þínir gestir eru miðað við gesti maka
þíns. Eða þú ert, eins og margir þessa
dagana, afleysingastarfsmaður og
líður illa með að bjóða yfirmann-
inum,“ sagði Mizutani í viðtali við
fréttastofu Reuters.
Fyrir 20.000 jen, 26.000 krónur,
útvegar gestaleiga Mizutanis einn
gest í veisluna. Fyrir 5.000 jen, um
6.500 krónur, til viðbótar mun sá
gestur syngja eða dansa, og bættu við
10.000 jenum, 13.000 krónum, og þá
heldur leigugesturinn ræðu.
Í einu brúðkaupi sem gestaleiga
Mizutanis kom að voru allir þrjátíu
vinir, vandamenn og starfsfélagar
brúðgumans fengnir frá gestaleig-
unni.
Japanir í hjónabandshugleiðing-
um þurfa ekki að örvænta því gesta-
leiga Mizutanis hefur 1.000 starfs-
menn á sínum snærum sem reyndar
eru einnig leigðir út til jarðarfara og
fleiri atburða.
Japanskt par japanskt fyrirtæki getur
gert gæfumuninn í brúðkaupinu.
Franska þjóðin fylgist spennt með réttarhöldum sem hófust í gær. Sakborningur
er móðir sem ákærð er fyrir að hafa myrt þrjú nýfædd börn sín, en faðir barnanna
fann lík tveggja þeirra í frysti á heimili hjónanna í Suður-Kóreu árið 2006. Málið
nær þó lengra aftur.
Móðir fyrir rétti
Í gær hófust í Frakklandi réttarhöld
í máli sem gripið hefur frönsku
þjóðina heljartökum. Sakborning-
ur í málinu er Veronique Courja-
ult sem hefur verið ákærð fyrir að
bana þremur börnum sínum, en
tvö þeirra faldi hún í frysti.
Forsaga málsins er sú að Ver-
onique Courjault bjó ásamt fjöl-
skyldu sinni í Seoul, höfuðborg
Suður-Kóreu, árið 2006. Dag einn
fann fjölskyldufaðirinn lík tveggja
hvítvoðunga í frysti fjölskyldunn-
ar. Furðu lostinn hafði hann sam-
band við lögreglu og hjónin sóru
og sárt við lögðu að börnin væru
ekki þeirra. Annað átti eftir að
koma á daginn og lífsýni sönnuðu
svo ekki varð um villst að börnin
voru þeirra.
Afneitun eða
meðvitaður verknaður
Veronique Courjault á yfir höfði
sér lífstíðar fangelsi, en ekki er
loku fyrir það skotið að málið veki
áleitnar spurningar um fæðingar-
þunglyndi og aðra andlega áþján
sem hugsanlega hrjáir barnshaf-
andi konur. Einnig er líklegt að
sjónir almennings muni beinast
í endurnýjuðum mæli að faraldri
ungbarnamorða í Frakklandi und-
anfarinn áratug.
Dómarar í málinu þurfa að
komast að niðurstöðu og úrskurða
um hvort Veronique hafi verið í af-
neitun varðandi meðgöngu hennar
eða hvort hún hafi verið meðvituð
um það sem hún gerði börnunum
sínum. Hún hefur verið í gæslu-
varðhaldi í tvö og hálft ár, en fjöl-
skylda hennar fullyrðir að samfé-
laginu standi engin ógn af henni.
Faðirinn einn heima
Í 2006 bjuggu hjónin sem fyrr seg-
ir í höfuðborg Suður-Kóreu, og
höfðu gert í nokkur ár. Fjölskyldu-
faðirinn, Jean-Louis Courjault, var
grasekkil því Veronique hafði farið
ásamt sonum hjónanna í sumar-
frí heim til Frakklands. Jean-Lou-
is starfaði sem verkfræðingur hjá
fjölþjóðafyrirtæki og var sökum
vinnu sinnar oft og tíðum fjarri
heimili fjölskyldunnar.
23. júlí hafði Jean-Louis keypt
fisk og farið niður í kjallara og opn-
að frystinn sem hann ekki var van-
ur að gera. Þá blöstu líkin við hon-
um.
Jean-Louis Courjault var þó
leyft að fara til Frakklands til að
vera hjá eiginkonum sinni og þau
staðhæfðu að þau væru ekki for-
eldrar barnanna í frystinum og
væru furðu lostin vegna málsins.
Vikum síðar staðfestu lífsýnapróf
hið gagnstæða og hjónakornin
voru bæði handtekin.
Játar morðin
Við yfirheyrslur játaði Veron-
ique að hafa haldið tveimur með-
göngum leyndum fyrir eiginmanni
sínum, árin 2002 og 2003. Hún
sagði að hún hefði fætt börnin,
ein sín liðs, á baðherbergi og síðan
kyrkt börnin og komið þeim fyrir í
frystinum.
Veronique Courjault játaði
einnig að hafa myrt nýfætt barn
sitt árið 1999 í Frakklandi, en los-
aði sig við líkið í arni á heimili fjöl-
skyldunnar.
Sálfræðingum tjáði Veronique
að hún hefði ekki fundið fyrir hreyf-
ingu barnanna þegar þau voru í
móðurkviði. „Í mínum huga voru
þetta ekki börn, þau voru hluti af
mér, framlenging af sjálfri mér sem
ég drap,“ sagði Veronique.
Faðirinn sýknaður
Fyrr á þessu ári úrskurðaði dóm-
ari að Jean-Louis Courjault væri
saklaus af nokkurri vitneskju um
meðgöngu eiginkonu sinnar og
dauða barnanna. Í kjölfarið sagði
Jean-Louis: „Nú hefst ný orrusta
gegn viðteknum hugmyndum
samfélagsins. Samfélagið verður
að viðurkenna að ekki allar með-
göngur einkennast af hamingju.
Eiginkona mín þjáist vissulega af
sálrænum vandamálum.“
Jean-Louis býr nú í Frakklandi
ásamt tveimur sonum hjónanna,
hefur fyrirgefið eiginkonu sinni og
vill fá hana í faðm fjölskyldunnar
á ný.
Áhugi frönsku þjóðarinnar
á málinu endurspeglaðist í bók
Mazarine Pingeot, dóttur François
Mitterrand, fyrrverandi forseta
Frakklands, en bókin fjallaði ein-
mitt um móður sem felur lík barna
sinna í frystinum.
Gourjault-fjölskyldan sakaði
Mazarine um að nota í hagnaðar-
skyni mál Veronique, en Mazar-
ine vísaði ásökununum til föður-
húsanna og bar við að mál hennar
væri ekkert einsdæmi.
Kolbeinn þorsteinsson
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
Veronique Courjault Teikning af
veronique, gerð 9. júní í dómsalnum í
Tours í Frakklandi.
Courjault-hjónin Á blaðamannafundi 2006 þegar þau
fullyrða að þau séu ekki foreldrar barnanna. mynd AFP