Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2009, Side 40

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2009, Side 40
miðvikudagur 10. júní 200940 Ættfræði Svavar Gestsson sendiherra Íslands Í danmörku Svavar Gestsson fór fyrir samninga- nefnd íslenska ríkisins vegna Ice- Save-reikninganna í Hollandi og Englandi. Starfsferill Svarar fæddist á Guðnabakka í Staf- holtstungum 26.6. 1944. Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1964, stundaði nám við lagadeild HÍ 1964-67 og í Berlín 1967-68. Svavar stundaði verkamannastörf á námsárunum, starfaði um skeið fyr- ir Samtök hernámsandstæðinga, var blaðamaður við Þjóðviljann 1964-66, framkvæmdastjóri Alþýðubanda- lagsins 1966-67, ritstjórnarfulltrúi á Þjóðviljanum 1968-71 og ritstjóri Þjóðviljans 1971-78, varaborgar- fulltrúi í Reykjavík 1966-74, alþm. Alþýðubandalagsins í Reykjavík og síðast Samfylkingarinnar 1978- 99, var viðskiptaráðherra 1978-79, félags-, heilbrigðis- og trygginga- málaráðherra 1980-83, mennta- málaráðherra 1988-91, sendifulltrúi í Kanada 1999-2001, sendiherra Ís- lands í Svíþjóð 2001-2006 og sendi- herra Íslands í Danmörku frá 2006. Svavar sat í stjórn Æskulýðsfylking- arinnar í Reykjavík 1960-66, í Æsku- lýðssambandi Íslands 1962-65, í framkvæmdanefnd Samtaka her- stöðvaandstæðinga 1963-67, í stjórn Útgáfufélags Þjóðviljans 1968-88, í stjórn Alþýðubandalagsins í Reykja- vík 1968-70, í framkvæmdastjórn og miðstjórn Alþýðubandalagsins nær samfellt frá 1968, var formaður Al- þýðubandalagsins 1980-87, var for- maður þingflokks Alþýðubanda- lagsins og óháðra 1995-99. Svavar sat í sendinefnd Íslands hjá SÞ 1976, 1987 og 1988, var formaður ráðherraráðs EFTA 1979, formaður sendinefndar Íslands hjá WHO og ILO 1980-83, í öryggismálanefnd sjómanna 1985-86, í stjórnarnefnd ríkisspítala 1987-88, og 1992-94, for- maður menntamálaráðherra Norð- urlanda 1988 og 1989, var formað- ur Menningarsjóðs Norðurlanda og yfirskoðunarmaður ríkisreikn- inga, var fulltrúi Íslands á fundi þingmannasamtaka EFTA 1985, sat í þingmannanefnd EFTA/EES 1995, sat þing Alþjóðaþingmanna- sambandsins 1985 og 1992-93, var yfirskoðunarmaður ríkisreikninga 1992-95, og sat í stjórn Landsvirkj- unar 1995-97. Fjölskylda Eiginkona Svavars er Guðrún Ág- ústsdóttir, f. 1.1. 1947, fyrrv. forseti borgarstjórnar. Hún er dóttir Ág- ústs Bjarnasonar skrifstofustjóra og Ragnheiðar Eide Bjarnason hús- móður. Svavar var áður kvæntur Jónínu Benediktsdóttur, f. 5.10. 1943, d. 29.5. 2005, ritara. Börn Svavars og Jónínu eru Svandís, f. 24.8. 1964, málfræðingur, alþm. og umhverfisráðherra í Reykjavík en maður hennar er Torfi Kjartansson lektor og á hún fjögur börn; Bene- dikt, f. 10.8. 1968, tölvunarfræðingur í Hafnarfirði en kona hans er María Ingibjörg Jónsdóttir viðskiptafræð- ingur og eiga þau þrjá syni; Gestur, f. 27.12. 1972, BA í íslensku, búsettur í Hafnarfirði en kona hans er Hall- dóra Bergþórsdóttir skrifstofumað- ur og á hann þrjú börn. Börn Guðrúnar eru Ragnheiður Kristjánsdóttir, f. 7.2. 1968, dokt- or í sagnfræði; Árni Kristjánsson, f. 20.10. 1970, doktor í sálfræði og kennari við HÍ; Gunnhildur Krist- jánsdóttir, f. 9.10. 1977, háskóla- nemi í Kaupmannahöfn. Systkini Svavars eru Sveinn Kjart- an f. 25.7. 1948, bóndi á Staðarfelli; Helga Margrét, f. 29.10. 1949, hús- móðir í Noregi; Málfríður, f. 19.1. 1953, starfsstúlka í Reykjavík; Valdi- mar, f. 4.6. 1956, rafvirki í Hafn- arfirði; Guðný Dóra, f. 21.3. 1961, forstöðumaður í Kópavogi; Krist- ín Guðrún, f. 27.5. 1963, kennari á Höfn í Hornafirði; Svala, f. 15.1. 1967, d. 26.11. 1971. Foreldrar Svavars: Gestur Zophaní- as Sveinsson, f. 3.10. 1920, d. 29.12. 1980, bóndi á Grund á Fellsströnd og síðan verkamaður í Hafnarfirði, og k.h., Guðrún Valdimarsdóttir, f. 28.3. 1924, verkakona. Ætt Gestur var sonur Sveins, b. á Sveins- stöðum Hallgrímssonar, b. í Svína- skógi Jónssonar. Móðir Sveins var Haraldína Haraldsdóttir, b. á Helln- afelli í Eyrarsveit Pálssonar, bróður Pálínu, ömmu Soffaníasar Cecils- sonar, útgerðarmanns í Grundar- firði, og langömmu Cecils Haralds- sonar, fyrrv. fríkirkjuprests. Móðir Gests var Salóme, systir Þórð- ar, hreppstjóra á Breiðabólstað, föð- ur Friðjóns, fyrrv. alþm., föður Þórð- ar, forstjóra Kauphallarinnar, en systir Friðjóns er Guðbjörg, móð- ir Þorgeirs Ástvaldssonar útvarps- manns. Salóme var dóttir Kristjáns, hreppstjóra á Breiðabólstað á Fells- strönd Þórðarsonar, b. þar Jóns- sonar, b. þar, Jónssonar, b. þar Ás- geirssonar, sem bjó þar 1767. Móðir Kristjáns var Jófríður Einarsdótt- ir frá Hallsstöðum. Móðir Salóme var Sigurbjörg, systir Guðmundar, afa Péturs Guðmundssonar, fyrrv. körfuboltakappa. Sigurbjörg var dóttir Jóns, húsmanns í Skógum Jónssonar. Guðrún er dóttir Valdimars, b. á Guðnabakka í Stafholtstungum Davíðssonar og Helgu, systur Helga Jósefs íslenskufræðings og Ástríðar, móður Sigurðar Helgasonar, deild- arstjóra í menntamálaráðuneytinu. Helga var dóttir Halldórs, b. á Kjal- vararstöðum Þórðarsonar. Móðir Halldórs var Helga Sighvatsdóttir, systir Kristínar, ömmu Tryggva Em- ilssonar rithöfundar. Móðir Helgu var Þorgerður Jónsdóttir. Móðir Þor- gerðar var Valgerður, systir Ástríð- ar, langömmu Odds skósmiðs, afa Flosa Ólafssonar, leikara og rithöf- undar. Ástríður var einnig amma Jóns, langömmu Dóru, móður Jóns Páls Sigmarssonar aflraunamanns. Bróðir Valgerðar var Sigurður í Sunddalstungu, langafi Ásmundar rafvirkjameistara, föður Jóns Óskars skálds og Áslaugar, móður Ásmund- ar Stefánssonar, bankastjóra Lands- bankans. Annar bróðir Valgerð- ar var Jón í Deildartungu, langafi Jóns Helgasonar, skálds og prófess- ors í Kaupmannahöfn, og Vigdís- ar Pálsdóttur, móður Páls Baldvins Baldvinssonar, ritstjórnarfulltrúa á Fréttablaðinu, en bræður Vigdís- ar voru Hjalti, framkvæmdastjóri SÍS, og Páll Agnar yfirdýralæknir. Valgerður var dóttir Jóns, ættföður Deildartunguættar Þorvaldssonar. Pétur fæddist á Hvammstanga og ólst þar upp. Hann var í Grunn- skólanum á Hvammstanga, lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskól- anum í Ármúla, lauk BA-prófi í stjórnmálafræði við HÍ 2004 og lauk síðan MPA-prófi í opinberri stjórnsýslu frá Seattle University í Bandaríkjunum 2006. Pétur starfaði hjá Vegagerð- inni á unglingsárunum á sumrin, starfaði hjá Ingvari Helgasyni á árunum 2000-2004 og hefur starf- að hjá Ríkisendurskoðun frá 2006. Þá kennir Pétur opinbera stefnu- mótun í stjórnmálafræði við HÍ frá 2008. Fjölskylda Unnusta Péturs er Ólöf Kristjáns- dóttir, f. 18.1. 1980, samgöngu- verkfræðingur. Dóttir Péturs og Ólafar er Sig- rún Elísabet Pétursdóttir, f. 10.5. 2008. Systkini Péturs eru Jónas Þór Birgisson, f. 24.3. 1972, lyfjafræð- ingur á Ísafirði; Helga Vilhjálms- dóttir, f. 18.11. 1980, sálfræðingur í Kaupmannahöfn; Gunnhildur Vil- hjálmsdóttir, f. 13.4. 1984, starfs- kona við leikskóla á Hvamms- tanga. Foreldrar Péturs eru Vilhjálm- ur Pétursson, f. 18.6. 1952, kenn- ari við Grunnskóla Húnaþings vestra, og Anna Jónasdóttir, f. 26.7. 1955, matráður við leikskólann á Hvammstanga. Berglind fæddist í Neskaupstað og ólst þar upp, á Selfossi og víðar. Hún var í Grunnskólanum í Neskaup- stað, í Grunnskólanum í Keflavík, Kópavogi og á Selfossi, stundaði nám við Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi og við Fjölbrautaskólann í Breiðholti og lauk þaðan stúdents- prófi og prófi í snyrtifræði, stundaði síðan nám í hjúkrunarfræði við HÍ og lauk þaðan prófum 2007. Berglind var m.a. í humarvinnslu á unglingsárunum á Stokkseyri, stundaði verslunarstörf við sölu- turna og hjá KÁ á Selfossi og vann við snyrtifræði, m.a. hjá Mekka Spa. Hún hefur verið hjúkrunarfræðing- ur við Landspítalann í Fossvogi, við Barnaspítalann og er nú hjúkrun- arfræðingur við Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Fjölskylda Unnusti Berglindar er Þorsteinn Jónsson, f. 27.2. 1986, flugmaður. Bræður Berglindar eru Sveinn Hjalti Guðmundsson, f. 26.3. 1983, flugmaður; Ingvar Haukur Guð- mundsson, f. 24.7. 1988, nemi í kvikmyndagerð. Foreldrar Berglindar eru Guð- mundur Sveinn Guðmundsson, f. 7.7. 1960, bifreiðasmiður í Reykja- vík, og Margrét Sigurðardóttir, f. 12.2. 1961, tanntæknir í Reykjavík. Pétur Vilhjálmsson sérfræðingur hjá rÍkisendurskoðun Berglind B. Guðmundsdóttir hjúkrunarfræðingur Í reykjanesbæ 30 ára í dag 30 ára í dag 30 ára n Benjamín Már Benjamínsson Kirkjuvegi 9, Hafnarfirði n Eiríkur Rúnar Elíasson Ránargötu 46, Reykjavík n Sunna Helgadóttir Munkaþverárstræti 25, Ak- ureyri n Gerður Guðmundsdóttir Gautlandi 1, Reykjavík n Edda Traustadóttir Kirkjuteigi 15, Reykjavík n Ægir Kristinn Sævarsson Skálum, Vopnafirði n Sigurjón Már Stefánsson Ystaseli 21, Reykjavík n Kjartan Sigtryggsson Dvergagili 16, Akureyri n Sandra Sif Einarsdóttir Gígjuvöllum 16, Reykja- nesbæ n Alexander Aron Guðbjartsson Hverfisgötu 92, Reykjavík n Gunnþór Óskar Sæþórsson Miklubraut 20, Reykjavík n Kári Jónsson Kjarrhólum 4, Selfossi 40 ára n Rajendra Bahadur Gurung Blöndubakka 6, Reykjavík n Waldemar Sienda Smáratúni 5, Akureyri n Guðrún María Birgisdóttir Hraunbæ 111, Reykjavík n Hannes Sverrisson Klapparstíg 5, Reykjavík n Guðmundur Guðnason Arnarási 6, Garðabæ n Þórdís Steinunn Steinsdóttir Seljabraut 42, Reykjavík n Sigrún Björnsdóttir Stóragerði 23, Reykjavík n Sigurður E Þorsteinsson Jörfagrund 40, Reykjavík n Halla Lárusdóttir Garðsstöðum 32, Reykjavík n Magnús Gíslason Birkivöllum 18, Selfossi n Halldóra Einarsdóttir Álfkonuhvarfi 43, Kópavogi 50 ára n Waldemar Swist Laugavegi 69, Reykjavík n Óskar Jafet Hlöðversson Dalbraut 1, Reykjavík n Tómas Atli Ponzi Hringbraut 121, Reykjavík n Jón Haukur Hauksson Kalastöðum 1, Akranesi n Brynhildur Björg Jónsdóttir Grenigrund 3, Akranesi n Guðný Bergvinsdóttir Víðimýri 12, Akureyri n Einar Arnarson Glerá 1, Akureyri n Daníel Einarsson Heiðarholti 8f, Reykjanesbæ n Petrína Helga Ottesen Hagamel 2, Akranesi n Guttormur Bjarnason Skálholti, Selfossi n Finnbogi Gunnlaugsson Birkimóa 3, Borgarnesi 60 ára n Þóra Emilía Ármannsdóttir Garðsstöðum 56, Reykjavík n Ingibjörg Helgadóttir Klyfjaseli 11, Reykjavík n Kristjana Hallgrímsdóttir Túngötu 8, Grenivík n Guðrún S Björnsdóttir Austurströnd 6, Seltjarn- arnesi n Páll Sigurbjörn Sigþórsson Laugavöllum 5, Egilsstöðum n Aðalsteinn Jónsson Skessugili 1, Akureyri n Anna Stefanía Wolfram Kirkjuvöllum 7, Hafn- arfirði n Ásgeir Óskarsson Álfatúni 3, Kópavogi n Ragnar Gunnarsson Mímisvegi 12, Dalvík n Þorbjörg Br Gunnarsdóttir Skipalóni 6, Hafn- arfirði 70 ára n Bjarni Þorsteinsson Bárugranda 7, Reykjavík n Erla Guðríður Líndal Þinghólsbraut 8, Kópavogi n Kristín Guðjónsdóttir Víðihlíð 33, Sauðárkróki n Sólveig Stefánsdóttir Ferjuvaði 9, Reykjavík n Auður Ólafsdóttir Skessugili 17, Akureyri 75 ára n Þorgerður Guðjónsdóttir Skólavegi 20, Fáskrúðs- firði n Ingibjörg Sigurjónsdóttir Eyrargötu 8, Ísafirði n Örn Ragnar Símonarson Gunnlaugsgötu 18, Borgarnesi n Sigurlaug Pálsdóttir Laugatúni 11, Sauðárkróki 80 ára n Benedikt Bjarnarson Júlíusson Kristnibraut 37, Reykjavík 85 ára n Unnur BenediktsdóttirHvassaleiti 58, Reykjavík Til hamingju með afmælið! fólk í fréTTum auglýsingasíminn er 512 70 50

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.