Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2009, Qupperneq 41
miðvikudagur 10. júní 2009 41Sport
Endurfundir rikjaard og Eiðs? Hollenski knattspyrnuþjálfarinn
Frank rikjaard, sem þjálfaði Eið Smára guðjohnsen hjá Barcelona, er sagður vilja
fá íslendinginn til sín hjá tyrkneska liðinu galatasaray sem rikjaard er tekinn við.
Spænska blaðið El mundo deportivo segir að rikjaard vilji fá Eið til félagsins en rikja-
ard keypti Eið Smára til Barcelona frá Chelsea fyrir þremur árum. galatasaray ætti
þó ekki að vera spennandi kostur fyrir Eið eftir vonbrigðatímabil hjá liðinu í fyrra.
Það endaði í fimmta sæti og tekur því ekki þátt í Evrópukeppni á næsta ári en Eið-
ur hefur leikið í meistaradeildinni síðustu sjö árin í röð. Þá var rikjaard ekki mjög
duglegur að nota Eið undir það síðasta hjá Barcelona.
Íslenska landsliðið í knattspyrnu
leikur sinn næstsíðasta leik í und-
ankeppni heimsmeistaramótsins í
kvöld þegar það mætir Makedóníu
ytra. Ísland hafði sigur síðast þegar
liðin mættust á Laugardalsvellinum,
Veigar Páll Gunnarsson skoraði eina
mark leiksins en þetta er jafnframt
eini sigur Íslands í riðlinum.
Draumurinn um annað sæti er
svo sem ekki úti vinnist bæði leikur-
inn í kvöld og svo gegn Noregi í haust
en sex stig ofan á þau fjögur sem liðið
er komið með duga skammt, og eig-
inlega bara alls ekki til að vera ein af
þeim átta þjóðum sem komast í um-
spilið. Átta bestu liðin í öðru sæti af
níu riðlum komast í umspilið en í
riðli Íslands eru aðeins fimm lið, ekki
sex, og er notuð sérstök reikniform-
úla til að jafna leikinn þar
Íslenska liðið er lemstrað í Skopje
en þar vantar þrjá menn vegna leik-
banna. Þá Hermann Hreiðarsson,
Indriða Sigurðsson og Aron Ein-
ar Gunnarsson. Jafnframt eru Eiður
Smári og Stefán Gíslason frá vegna
meiðsla og þá er Emil Hallfreðsson
tæpur. Það gætu því einhver ný and-
lit sést í búningi Íslands í kvöld en
leikurinn hefst klukkan 15.45 að ís-
lenskum tíma.
tomas@dv.is
Ísland mætir Makedóníu í kvöld:
LEmstraðir í skopjE
tóLf miLLjarða
kaka
Sky-sjónvarpsstöðin á ítalíu greindi
frá því í gær að adriano galliani,
varaforseti aC milan, hefði gefið út
nákvæma upphæð sem real madrid
greiddi fyrir snillinginn kaka. galliani
sagði við sjónvarpsstöðina að real
madrid hafi greitt 67,2 milljónir evra
eða tólf milljarða íslenskra króna
miðað við núverandi gengi. Einnig
sagði galliani frá því að milan ætlaði
sér framherja Wolfsburgar, Edin
dzeko, sem varð næstmarkahæstur í
þýsku Bundeslígunni í ár. Hefur
milan hitt föður dzekos og náð
samningum við pilt en bíður eftir
svari frá Þýskalandsmeisturum
Wolfsburgar.
Áhugi fyrir rossi
ítalski smáframherjinn giuseppe
rossi, sem leikur með villarreal á
Spáni, hefur heyrt af áhuga nokkurra
enskra liða á sér. rossi er ekki
ókunnugur Englandi en hann lék um
tíma með manchester united og
tókst að skora eitt mark fyrir liðið.
Hann var þó orðinn þreyttur á fáum
tækifærum, yfirgaf félagið fyrir
villarreal þar sem hann hefur slegið í
gegn. Þrátt fyrir áhugann og þá
staðreynd að þjálfarinn er hættur hjá
villarreal er rossi ánægður og ætlar
sér að vera áfram hjá liðinu. Hann er
með samning til eins árs í viðbót og
ætlar að klára hann í það minnsta.
manuel Pellegrini, stjóri villarreal,
hafði mikið dálæti á rossi en hann
yfirgaf félagið fyrir draumastarfið hjá
real madrid eftir tímabilið.
umSjón: tómaS Þór ÞórðarSon, tomas@dv.is
Sigur ísland lagði make-
dóníu 1-0 á Laugardalsvelli.
mynd KriStinn magnúSSon
„Þeir sem eru hérna úti eru í fínu
standi,“ segir Guðmundur Guðmunds-
son, landsliðsþjálfari í handbolta, um
sveit sína sem hefur lokahnykkinn í
undankeppni Evrópumótsins í kvöld
þar sem Ísland mætir Belgíu ytra. Það
er ekki að ástæðulaustu sem strax er
spurt um ástand manna enda ógrynni
leikmanna frá vegna meiðsla. Tveir
af sterkari mönnum liðsins, Snorri
Steinn Guðjónsson og Aron Pálmars-
son sem fór á kostum í síðasta verk-
efni gegn Makedónum, eru þó tæpir.
„Það er spurning með Snorra og Aron
en það er allt á réttri leið hjá þeim,“
segir Guðmundur sem segir að ekki
þurfi endilega að hvíla menn svo mik-
ið þar sem nokkrir dagar eru á milli
leikja. Heldur þurfi að: „Spila skyn-
samlega úr þessu.“
Langt því frá búið
Síðustu fjórir leikir riðilsins verða
leiknir á næstu rétt tæpum tveimur
vikum, fyrst gegn Belgíu ytra í kvöld,
síðan koma tveir stórleikir í Laugar-
dalshöllinni gegn Noregi og Make-
dóníu 14. og 17. júní áður en undan-
keppninni lýkur með leik í Eistlandi
tuttugasta og fyrsta þessa mánaðar.
Ísland er í efsta sæti 3. riðils með sjö
stig eftir fjóra leiki, eins og Noregur en
Makedónóníumenn hafa fimm stig
eftir sama leikjafjölda. Útlitið er gott
eftir frábært stig í Noregi og önnur
tvö í Makedóníu. En íslenska liðið er
þjakað af meiðslum og erfiðir leikir í
nánd.
„Þetta er langt frá því að vera búið
og ef við höfum einhvern tíma þurft
á stuðningi áhorfenda að halda er
það núna. Þess vegna vona ég að við
fáum fulla höll í báðum leikjunum
heima. Það er alveg gríðarlega mikil-
vægt fyrir liðið, sérstaklega við þessar
aðstæður. Við erum vissulega í góðri
stöðu núna en það eru átta stig eftir í
pottinum. Við þurfum að komast yfir
þennan hjalla og þar geta áhorfendur
hjálpað okkur mjög mikið,“ segir Guð-
mundur.
2012 menn á tánum
Það sem hefur minnst orðið fyrir
skakkaföllum vegna allra meiðslanna
er varnarleikurinn en þar er liðið
sterkt fyrir. Guðmundur skildi einnig
eftir fjóra leikmenn sem hann valdi
upprunalega í æfingahópinn en þeir
léku með 2012-liðinu í gær og verða
að vera í stakk búnir því mikið getur
breyst segir Guðmundur.
„Ég er búinn að vera skoða liðið.
Það voru tvær æfingar í gær [fyrra-
dag] og svo erum við að fara á æf-
ingu í dag[gær] þar sem við erum að
fara yfir málin. Það eru ýmsir mögu-
leikar í stöðunni og ég er ekki alveg
búinn að taka ákvörðun um hvað ég
geri. Ég sagði við líka við strákana sem
ég skildi eftir að þeir þyrftu að vera
á tánum því það gæti mikið breyst.
Það er frábært að þeir fái landsleiki
á sama tíma og við og verður fróð-
legt að sjá hvernig þeim gengur,“ segir
Guðmundur Þórður Guðmundsson,
landsliðsþjálfari.
tÓmaS ÞÓr ÞÓrÐarSon
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
Snorri Steinn guðjónsson verður liðinu afar mikilvægur nái hann að spila. mynd aFP
Silfurdrengirnir okkar undirbúa
sig fyrir lokahnykk undan-
keppni Evrópumótsins en fjórir
leikir eru eftir í riðlinum sem
leiknir verða á tæplega tveim-
ur vikum. Fyrsta verkefnið
er í kvöld þegar Ísland mætir
Belgíu ytra.
síðasti hjaLLinn
fram undan
guðmundur guðmundsson undirbýr
silfurliðið fyrir lokahnykk undankeppni Em.
mynd gUnnar gUnnarSSon
30 days
Apótekin & Heilsubúðirnar
www.leit.is · Smellið á ristilvandamál
Á gamla gamla verðinu.
30 days
Losnið við hættulega kviðfitu og
komið maganum í lag með því
að nota náttúrulyfin Oxytarm og 30
days saman.
Oxy tarm
Apótekin & Heilsubúðirnar
www.leit.is · Smellið á ristilvandamál
Á gamla gamla genginu.
Oxy tarm
Endurnærir og hreinsar ristilinn
Allir dásama oxy tarmið