Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2009, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2009, Side 8
8 Þriðjudagur 6. október 2009 fréttir Fyrrverandi blaðamaður Morgun- blaðsins hefur kvartað til stjórnar Blaðamannafélags Íslands og seg- ir Óskar Magnússon, útgefanda Morgunblaðsins, hafa lesið tölvu- póst starfsmanna til að komast að því hver læki upplýsingum af rit- stjórn blaðsins og til annarra fjöl- miðla. Þetta gerði Óskar síðastliðinn miðvikudag eftir að uppsagnarbréf Ragnhildar Sverrisdóttur, fyrrver- andi umsjónarmanns sunnudags- blaðs Moggans, var birt í heild sinni á DV.is. Ragnhildur hafði sent sam- starfsmönnum sínum fjöldapóst þar sem hún útskýrði ástæður upp- sagnar sinnar. Engar reglur brotnar Kristinn Hrafnsson, stjórnarmaður í Blaðamannafélagi Íslands, fordæm- ir aðfarir Óskars. „Þetta er svívirða. Að fulltrúi eigendavaldsins hnýs- ist í tölvupóst blaðamanna er ekk- ert annað en gróft brot á rétti þeirra og aðför að því trúnaðarsambandi sem á að ríkja á milli blaðamanna og þeirra sem þeir eru í samskipt- um við. Þetta er grafalvarlegt mál sem ég reikna með að stjórn Blaða- mannafélagsins taki föstum tökum,“ segir hann. Óskar segir í samtali við DV að engar reglur hafi verið brotnar hjá Morgunblaðinu. „Það gilda reglur um meðferð tölvupósta hjá Morg- unblaðinu, bæði af hálfu starfs- manna og blaðsins. Af hálfu blaðs- ins hafa engar reglur verið brotnar,“ segir hann. Óskar bætir við: „Það gilda líka reglur um meðferð trún- aðarupplýsinga í þessu fyrirtæki eins og öðrum,“ en neitar að skýra frekar hvað hann á við með því. Óskar svaraði ekki öðrum spurn- ingum blaðamanns, þeirra á með- al hvort hann hefði áhyggjur af þeim óróa sem hefði skapast með- al starfsmanna Morgunblaðsins vegna málsins. „Ég hef ekkert meira um þetta að segja en það sem ég er búinn að segja. Þú getur spurt mig eins og þú vilt en ég hef ekki meira um þetta að segja,“ sagði hann. Leki á ritstjórn Samkvæmt heimildum DV bað Ósk- ar starfsmenn tölvudeildar blaðsins um aðgang að tölvupóstum starfs- mannanna til að kanna hver hefði lekið uppsagnarbréfi Ragnhild- ar. Óskar komst hins vegar að því að fleiri en einn blaðamaður hafði sent bréf Ragnhildar af ritstjórninni þótt aðeins einn hefði sent bréfið til DV. Samkvæmt heimildum DV hringdi Óskar í blaðamanninn sem hafði áframsent uppsagnarbréf- ið á DV. Efnislega mun Óskar hafa sagt að hann ætlaði að bjóða blaða- manninum að hætta að „verða sér til skammar“. Blaðamaðurinn mun hafa orð- ið furðu lostinn því hann gat ekki ímyndað sér hvernig Óskar gat hafa komist á snoðir um að hann hefði sent bréf Ragnhildar til DV. Hið eina sem honum datt í hug var að Óskar hefði skoðað tölvupósthólf hans hjá Morgunblaðinu. Í kjölfarið sendi blaðamaðurinn tölvupóst til Óskars þar sem hann spurði útgefandann hvort hann hefði lesið tölvupóst hans. Sam- kvæmt heimildum DV hringdi Ósk- ar þá í blaðamanninn og gekkst við því aðspurður að hafa lesið póst- inn. Að sögn taldi hann sig hafa átt rétt á því í þessu tilfelli til að koma í veg fyrir leka upplýsinga af Morg- unblaðinu og til annarra fjölmiðla. Jafnframt fylgdi með að fleiri blaða- menn en sá sem sendi það á ritstjórn DV hefðu áframsent bréf Ragnhild- ar af ritstjórninni. Blaðamaðurinn hafði í kjölfar- ið samband við Blaðamannafélag Íslands og Persónuvernd og sagði frá atburðinum. Hann vinnur nú að formlegri kvörtun til Persónuvernd- ar vegna málsins. Nú hefur tölvupósthólfi blaða- mannsins verið lokað og hefur ekki verið orðið við beiðni hans um að pósthólfið verði opnað, í það minnsta svo hann geti nálgast per- sónuleg gögn sín. Minni trúverðugleiki Kristinn Hrafnsson hefur áhyggjur af því að trúverðugleiki Morgunblaðs- ins minnki nú enn. „Það er með ólíkindum að fylgjast með einbeitt- um ásetningi nýrra eigenda Morg- unblaðsins til þess að leggja trú- verðugleika blaðsins í rúst. Síðustu atburðir, ráðning Davíðs Oddsson- ar í ritstjórastól og þetta tölvupósta- mál, lýsir stórkostlegri firringu,“ segir Kristinn og spyr: „Bera þess- ir menn ekkert skynbragð á hug al- mennings í þessu landi?“ Traust til Morgunblaðsins hef- ur hrunið að undanförnu en niður- staða nýrrar könnunar á trausti til fjölmiðla sem Markaðs- og miðla- rannsóknir ehf. gerðu fyrir 365 miðla sýnir að rúmlega 35 prósent bera lítið eða mjög lítið traust til Morgunblaðsins. Þetta er hækkun úr 13 prósentum frá því áður en nýir ritstjórar tóku við. Einkapóstur starfsmanna Í starfsmannahandbók Morgun- blaðsins segir: „Meginreglan er að allur póstur á póstmiðlara fyrirtæk- isins í persónutengdum pósthólfum er álitinn einkapóstur viðkomandi starfsmanns og verður ekki opnað- ur af öðrum, nema með leyfi starfs- mannsins.“ Á þessu er þó undantekning: „Sé álitið að pósthólfið innihaldi efni sem er mikilvægt rekstrarhagsmun- um fyrirtækisins, þá er hólfið opn- að, með vitund starfsmanns ef hægt er að koma því við.“ Persónuvernd miðar við reglur um rafræna vöktun. Níunda grein þeirra tekur á sérákvæðum um tölvupóst og netnotkun. Þar segir: „Óheimilt er að skoða einkatölvu- póst nema brýna nauðsyn beri til s.s. vegna tölvuveiru eða sambæri- legs tæknilegs atviks.“ Ef um undantekningu frá þessari reglu er að ræða gildir: „Þegar tölvu- pósts- eða netnotkun er skoðuð skal þess gætt að gera starfsmanni eða nemanda fyrst grein fyrir því og veita honum færi á að vera viðstadd- ur slíka skoðun.“ Hið sama gildir þó starfsmaður sé hættur störfum. Óskar segir reglur Morgunblaðs- ins vera í samræmi við reglur Per- sónuverndar. Úrskurður Persónuverndar Persónuvernd hefur úrskurðað á grundvelli þessara reglna og komst þannig að þeirri niðurstöðu árið 2006 að framkvæmdastjóra Ís- lenska sjónvarpsfélagsins/Skjás eins hefði verið óheimilt að skoða einkatölvupóst starfsmanns fyrir- tækisins án þess að hann væri við- staddur. Forsaga þess máls var að Helga Steinari Hermannssyni dag- skrárstjóra var sagt upp hjá fyrir- tækinu eftir að stjórnendur lásu frétt um að Helgi hefði ráðið sig til vinnu hjá samkeppnisaðilanum 365. Í kjölfarið fóru stjórnendur yfir tölvupóst Helga og gerðust þar með brotlegir við lög um persónuvernd. DV hafði samband við Ragnhildi Sverrisdóttur og spurði hana um álit sitt á því að samstarfsfélagar hennar áframsendu póstinn. „Það var mér að meinalausu að þetta fór út,“ seg- ir Ragnheiður sem síðar birti upp- sagnarbréfið sjálf í heild sinni á net- inu. Þegar blaðamaður hafði sam- band við skrifstofu Morgunblaðsins í gær og spurði eftir Davíð Oddssyni ritstjóra voru blaðamanni borin skilaboðin: „Hann hefur ekki tíma til að spjalla núna.“ Davíð svaraði ekki skilaboðum blaðamanns um að hafa samband. ErLa HLynsdóttir blaðamaður skrifar: erla@dv.is Órói ríkir á ritstjórn Morgunblaðsins eftir að fregnir bárust af því að óskar Magn- ússon, útgefandi blaðsins, hefði látið yfirfara tölvupósta starfsmanna. Fyrrverandi blaðamaður Morgunblaðsins ætlar að leggja fram kvörtun vegna málsins til Per- sónuverndar. Kristinn Hrafnsson segir framferði Óskars svívirðu. Óskar segir engar reglur hafa verið brotnar af hálfu Morgunblaðsins. „Að fulltrúi eigendavaldsins hnýsist í tölvupóst blaðamanna er ekkert annað en gróft brot á rétti þeirra.“ Upptekinn Davíð Oddsson hafði ekki tíma til að tala við blaðamann DV um málið. aðför að trúnaði Kristinn Hrafnsson segir málið aðför að því trún- aðarsambandi sem á að ríkja á milli blaðamanna og þeirra sem þeir eru í samskiptum við. blaðamaður kvartar undan útgefanda til persónuverndar blaðamaður kvartar undan útgefand- anum Ekki brotlegur Óskar Magnússon segir að engar reglur hafi verið brotnar hjá Morgunblaðinu þegar kemur að meðferð tölvupósts. Mynd sigtryggUr ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.