Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2009, Side 2
Slökkviliðsmaðurinn Ólafur Högni
Ólafsson, oftast kallaður Óli Babú,
slasaðist alvarlega í Argentínu fyrir
stuttu. Þar var hann á vegum Stöðvar
2 til að taka þátt í íslensku útgáfunni
af sjónvarpsþáttunum Wipeout. Í
þáttunum keppa keppendur við tím-
ann og andstæðinga sína í þrauta-
braut sem er síður en svo auðveld
viðureignar.
Má ekki tjá sig
Stutt viðtal var við Ólaf í Íslandi í dag
á mánudaginn þar sem hann lýsti
því hvernig hann missti takið í þraut-
inni Spinning Dummies með þeim
afleiðingum að hann féll fram fyr-
ir sig og hringsnerist í tæpa mínútu
áður en tækið var stöðvað. DV hafði
samband við Ólaf sem sagðist ekk-
ert geta tjáð sig um atvikið þar sem
allir keppendur skrifi undir samn-
ing við Stöð 2. Í honum felst, að sögn
Ólafs, að keppendur mega ekki tjá
sig um hver ber sigur úr býtum og
annað tengt tökum þáttanna. Ólafur
gat þó sagt DV að hann væri tryggð-
ur af Stöð 2 fyrir slysinu. DV reyndi
að hafa samband við Pálma Guð-
mundsson, sjónvarpsstjóra Stöðvar
2, til að fá nánari lýsingu á innihaldi
samningsins. Ekki náðist hins vegar í
Pálma við vinnslu fréttarinnar.
Samkvæmt heimildum DV var
Ólafur fluttur með sjúkrabíl á gjör-
gæsludeild sjúkrahúss og þurfti að
eyða tveimur sólarhringum þar.
Hann mátti ekki fljúga heim næstu
þrjá sólarhringana samkvæmt lækn-
isskipan þar sem blæddi inn á heila
hans og augu hans voru rauð af blóði
eins og áhorfendur Íslands í dag á
mánudag fengu að sjá.
DV sagði fyrst frá slysinu á DV.is
á sunnudag og náði þá í Pálma Guð-
mundsson sem vísaði þessu á bug og
sagði meiðsl Ólafs ekki vera alvarleg.
Brautin er sársaukafull
Wipeout er gríðarlega vinsæll
þáttur um heim allan og bíða margir
í ofvæni eftir að sýningar hefjist hér
á landi. Finnst áhorfendum einna
skemmtilegast að sjá venjulegt fólk
spreyta sig í þrautabrautinni og oft-
ar en ekki detta og mistakast. Þessi
ferð gegnum brautina virðist vera
mjög sársaukafull og er hún að sögn
breska Wipeout-þáttastjórnandans
Richards Hammond alveg eins slæm
og hún sýnist.
„Ó, já! Þú sérð tækin gera út af
við fólk. Það er svo frábært! Þetta er
mjög raunverulegt. Þegar einhver lít-
ur út fyrir að meiðast er hann í alvöru
meiddur!“
Sleit sinar
Keppendur hafa slasast áður í
Argentínu. Breska leik- og sjónvarps-
konan Cleo Rocos tók þátt í Wipe-
out fyrir fræga fólkið á vegum BBC.
Hún sleit tvær sinar í hnénu en hún
var ekki sú eina sem hefur slasast í
bresku útgáfunni af Wipeout. Einka-
þjálfarinn Kevin Adams, þáttagerð-
arkonan Kirsten O‘Brien, ólympíu-
verðlaunahafinn Sally Gunnell og
sjónvarpsmennirnir Chris Parker og
Dominic Littlewood þurftu líka að
leggjast inn á sjúkrahús eftir þátt-
töku sína.
Adams slasaðist alvarlega eins
og Rocos og þurfti að undirgangast
hnéaðgerð. Þau voru ekki sátt við að-
standendur þáttarins og sögðu í við-
tali við Daily Mail í ágúst á þessu ári
að þau vildu leita réttar síns.
„Okkur er öllum sagt að búast við
skrámum og skeinum en að engin
alvarleg meiðsl hafi orðið við tök-
ur þáttanna. Þegar við komum aftur
á Heathrow-flugvöll hljótum við að
hafa litið út eins og uppvakningar,“
segir Rocos.
Erfitt og vont
Rocos lýsir þrautabrautinni sem
miklu erfiðari en hún lítur út fyrir að
vera.
„Ég hafði séð þáttinn og það virt-
ist vera skemmtilegt að skoppa um á
uppblásnum hlutum. Það virtist ekki
vera sársaukafullt. Raunveruleik-
inn var allt öðruvísi. Í byrjun renn-
ur maður niður stóra rennibraut og
endar í risastórri laug. Vatnið er ís-
kalt sem okkur var ekki sagt. Síðan
þurfti ég að klifra yfir fullt af kössum í
stórri laug fullri af illa lyktandi leðju.
Þar datt ég. Ég man bara að allt var
ofan á mér og allar hindranirnar sem
virtust vera skemmtilegar í sjónvarp-
inu voru virkilega erfiðar og það var
sársaukafullt að lenda á þeim.“
Ólafur Högni Ólafsson slasaðist við tökur íslensku
Wipeout-þáttanna í Argentínu. Ólafur var fluttur með sjúkrabíl
á sjúkrahús þar sem hann eyddi 48 tímum því það hafði blætt
inn á heila hans. Ólafur er ekki sá eini sem hefur slasast við gerð
þáttanna. Mörg slys hafa orðið í erlendum útgáfum þáttanna.
hitt málið
Þetta helst
- þessar fréttir bar hæst í vikunni
Lán í gegnum pabba
Glitnir lánaði eignar-
haldsfélagi í eigu Wern-
ers Rasmusson 20 millj-
arða króna sem notaðir
voru til að greiða niður
skuldir félags í eigu sona
hans Karls og Steingríms í fyrra.
Bræðurnir voru meðal eigenda
Glitnis og voru búnir að fá lán að
því hámarki sem bankanum var
heimilt að veita eigendum sínum
og vensluðum fyrirtækjum og
einstaklingum. Faðir þeirra tald-
ist hins vegar ekki venslaður og
fékk félagið Svartháfur, sem hann
átti, lán hjá bankanum. Það félag
lánaði síðan fyrirtæki sona hans
fé sem notað var til að greiða upp
erlent lán. Seinna var skuld Svartháfs við Glitni komin í 45
milljarða og stóð utan við þá rúmlega 43,9 milljarða króna skuld sem
Milestone skilur eftir inni í Glitni.
biskup í
vanda
Mál séra Gunnars Björnssonar
valda leiðtogum kirkjunnar mikl-
um vanda. Hann var settur í leyfi
þegar stúlkur í sókn hans kærðu
hann fyrir kynferðisbrot en þrátt
fyrir að hann hafi verið sýknaður
dróst að hann væri settur aftur í
embætti sóknarprests á Selfossi.
Þar ræður miklu að talsverð and-
staða er við endurkomu hans í
sókninni. Málið hefur reynst Karli
Sigurbjörnssyni biskupi erfitt og
setti hann Sigurð Sigurðarson,
vígslubiskup í Skálholti, í að leysa málið þegar biskupinn
fór af landi brott. Tíu prestar hafa undirritað bréf til biskups þar sem
hann er hvattur til að virða niðurstöðu dómstóla og láta séra Gunnar
snúa aftur úr leyfi.
dýrkeyptir eignamenn
Sú ákvörðun
stjórnvalda að
verja innistæð-
ur í íslenskum
útibúum íslensku
bankanna en andstaða við að
gera það sama í erlendum úti-
búum bankanna gæti litið illa
út komi til málsóknar Breta
og Hollendinga gegn trygg-
ingasjóði innistæðueigenda
vegna vangoldinna Icesave-
skuldbindinga. „Sjóðurinn
getur því átt von á málsókn
á hendur sér og sömuleiðis
ríkið fyrir að mismuna innistæðueigendum eftir staðsetningu,“ segir í
áliti efnahags- og viðskiptaráðuneytisins fyrir helgi. Lilja Mósesdótt-
ir, þingkona VG, segir að íslensk stjórnvöld hafi gengið of langt í að
tryggja hag íslenskra innstæðueigenda; aðgerðir ríkisins hafi verið of
víðtækar og skattgreiðendur í raun látnir ábyrgjast háar og lágar inni-
stæður og þar með allan skaðann af hruni einkabankanna.
2
3
1
2 föstudagur 16. október 2009 fréttir
2 miðvikudagur 14. október 2009
fréttir
Glitnir þarf að afskrifa stóran hluta af
45 milljarða króna skuld eignarhalds-
félagsins Svartháfs við bankann, sam-
kvæmt heimildum DV. Krafa Glitnis á hendur Svartháfi nam 45 milljörðum
króna í sumar en samkvæmt heimild-
um DV var hún gerð upp í lok sum-
ars. Líklegast er að krafan hafi verið
gerð upp með miklum afföllum fyrir bankann.
Skuld Svartháfs er meðal ann-
ars tilkomin vegna þess að félagið,
sem er í eigu Werners Rasmusson, föður Karls og Steingríms Werners-
sona, fyrrverandi eigenda eignar-
haldsfélagsins Milestone, tók lán hjá
Glitni í fyrra upp á 20 milljarða króna
til að lána eignarhaldsfélagi í eigu
bræðranna fyrir skuld við fjárfest-
ingabankann J.P. Morgan.
Svartháfur hét áður ELL 150 og
Gleypnir og var stofnað af Erlendi
Gíslasyni og Gunnari Sturlusyni hjá
lögmannsstofunni Logos í janúar
árið 2008, samkvæmt stofnskjölum
félagsins. Svartháfur er skráður til
heimilis á Suðurlandsbraut 12, líkt og
flest önnur eignarhaldsfélög þeirra
bræðra, en lögheimili þess var skráð
í Jötunssölum 2, heimili Werners föð-
ur þeirra, þar til í apríl í fyrra þegar
lögheimilið var fært á Suðurlands-
brautina. Svartháfur hefur ekki skilað
ársreikningi fyrir árið 2008.
Nafnabreytingar í ársbyrjun
Í febrúar 2008 voru Werner Rassmus-
son og kona hans Kristín Sigurðar-
dóttir kjörin í stjórn og varastjórn
félagsins. Nafni félagsins var á sama
tíma breytt úr ELL 150 í Svartháfur.
Í tilkynningu til Fyrirtækjaskrár um
breytinguna á stjórninni er hins veg-
ar strikað yfir nafnið Gleypnir með
penna og nafnið Svartháfur sett í
staðinn, eins og félagið hafi átt að
heita Gleypnir en að svo hafi því ver-
ið breytt á síðustu stundu. Lögheim-
ili Svartháfs var svo fært frá Jötuns-
sölum á Suðurlandsbraut 12 í apríl í
fyrra, samkvæmt tilkynningu til Fyr-
irtækjaskrár sem aðstoðarforstjóri
Milestone, Jóhannes Sigurðsson,
skrifaði undir ásamt Werner Rasm-
usson. Tengsl Svartháfs og Milestone
eru því nokkur þó eigendurnir hafi
ekki verið þeir sömu.
45 milljarða skuld Svartháfs stend-
ur utan við þá rúmlega 43,9 milljarða
króna skuld sem Milestone skilur eft-
ir inni í Glitni. Skuldir þessara tveggja
félaga og dótturfélaga þeirra við Glitni
nema því nærri 90 milljörðum króna.
Heildarskuldir Milestone nema
tæpum 80 milljörðum króna og var
gert ráð fyrir því í nauðasamningum félagsins, sem hefur verið hafnað, að
kröfuhafarnir fengju um 6 prósent upp í kröfur sínar en eignir félags-
ins voru einungis metnar á um fimm
milljarða. Því má reikna með að feðg-
arnir, Werner, Steingrímur og Karl,
eigi ekki til þær upphæðir persónu-
lega sem til þarf til að greiða skuldir
Svartháfs, enda er ekki vitað til þess að einhver þeirra sé í persónulegum
ábyrgðum vegna skuldanna.
Greiddu niður lán til J.P. Morgan
Skuldir Svartháfs við Glitni eru með-
al annars tilkomnar vegna þess að
skömmu eftir að félagið tók upp
nafnið Svartháfur í febrúar í fyrra
tók félagið lán frá Glitni upp á um 20
milljarða króna til að greiða lán Rac-
on Holdings II, sem eignarhaldsfélag
Karls og Steingríms, Milestone, réð í
gegnum annað eignarhaldsfélag sitt,
Þátt, við fjárfestingarbankann J.P.
Morgan.
Lán Racon hjá J.P. Morgan var
tilkomið út af kaupum Racon á fé-
lagi sem hét Innvik, sem síðar var
endurskírt Moderna Finance AB. Á
þeim tíma var J.P. Morgan hins veg-
ar orðinn órólegur um að lán Racon
fengist ekki greitt og vildu ekki end-
urnýja lánasamninginn þegar hann
gjaldféll, ástæðan var meðal annars
að þá þegar voru blikur á lofti í ís-
lensku efnahagslífi og kippti bank-
inn því að sér höndum með því að
neita að endurnýja lánasamninginn.
Fjárfestingafélagið Gnúpur, sem var
í eigu Kristins Björnssonar og Magn-
úsar Kristinssonar, hafði lent í erf-
iðleikum í árslok 2007 og eru þeir
fjárhagserfiðleikar af mörgum tald-
ir marka upphaf íslenska efnahags-
hrunsins. Því þurftu eigendur Rac-
on, Karl og Steingrímur, að finna
aðrar leiðir til að greiða J.P. Morgan
lánið.
Wernerssona
Karl Wernersson
GLITNIR ÞARF AÐ AFSKRIFA SKULDIR WERNERSMANNA
HvAÐ ER SvARTHáFUR?
Svartháfur er eignarhaldsfélag sem stofnað var í ársbyrjun árið 2008. Heimildir DV herma að það hafi verið stofnað í ársbyrjun til að fá lán til að greiða skuldir félags í eigu Karls og Steingríms Wernerssona. Félagið er í eigu Werners, föður þeirra, og var lögheimili þess heima hjá honum. Heimilisfang Svartháfs er hins vegar í fyrrverandi höfuðstöðvum Milestone á Suðurlandsbraut 12. Félagið skuldar Glitni 45 milljarða króna og hefur átt sér stað uppgjör á skuldinni. Ekki er vitað hvernig uppgjörið var gert en afar ólíklegt er að skuldin hafi verið greidd upp að fullu. Því má búast við að eitthvað hafi verið afskrifað af skuldunum.Félagið dregur nafn sitt af lítilli hákarlategund sem kallast Svartháfur eða Black Dogfish á ensku. Svartháfurinn lifir á miklu dýpi, 180 til 1.600 metrum, og er ekki talinn mannýgur. Heimkynni hans eru aðallega í Vestur- og Norður-Atlantshafi, meðal annars við strendur Grænlands og Íslands. Svartháfurinn er, eins og nafnið gefur til kynna, svartur á lit og hafa augu hans aðlagast myrkrinu á hafsbotninum. Því getur hann séð betur í myrkri en aðrar hákarlategundir. Ekki er vitað af hverju Svartháfsnafnið var valið fyrir félagið.
Eitt af mörgum ELL-félögum
Svartháfur, áður ELL 150, er einungis eitt af mörgum félögum sem upphaflega hafa borið nafnið ELL sem lögmannsstofan Logos hefur stofnað á liðnum árum. Annað dæmi um slíkt félag er ELL 182 sem Logos stofnaði og seldi til Bakka-bræðra, Lýðs og Ágústs Guðmundssona. ELL 182 keypti síðar hlut Exista, sem er í meirihlutaeigu þeirra bræðra, í Bakkavör í fyrrahaust en fyrir áttu þeir meirihluta í Bakkavör. Salan hefur valdið miklum deilum meðal kröfuhafa og eigenda Exista en kröfuhafarnir hafa kært eigendur Exista fyrir hana. Bæði ELL 150 og ELL 182 hafa nú skipt um nafn líkt og sum önnur þeirra ELL-félaga sem Logos hefur selt á liðnum árum.
Werner hefur áður komið við söguWerner Rasmusson, faðir Karls og Steingríms, hefur áður komið við sögu í umfjöllun fjölmiðla um viðskipti þeirra bræðra. Þannig greindi DV frá því í september að í endurskoðendaskýrslu Ernst & Young um Milestone hefði verið bent á að félagið hefði greitt skatta fyrir Werner upp á 8,5 milljónir króna. Skiptastjóri þrotabús Milestone, Grímur Sigurðsson, þarf meðal annars að taka afstöðu til þess hvort sú greiðsla hafi verið eðlileg. Werner kom hins vegar af fjöllum þegar DV spurði hann um skattgreiðslurnar. Ekki er vitað hvort Werner hafi vitað til hvers Svartháfur var notaður en undirskrift hans er á samþykktum félagsins sem DV hefur undir höndum.
INGI F. VILhJáLMssoN
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
stórskuldugt félag Félag í eigu föður Karls og Steingríms Wernerssona, Svartháfur, skuldar Glitni 45 milljarða króna sem ekki er lengur að finna í lánabókum bankans. Karl Wernersson vill ekki ræða um hvernig skuldin hafi verið gerð upp.
heimkynni svartháfs Eignarhaldsfélagið Svartháfur er skráð til heimilis á Suðurlandsbraut 12 en þar voru höfuðstöðvar Milestone áður en félagið fór í greiðslu-stöðvun og var síðar tekið til gjaldþrotaskipta.
Tíu prestar skrifuðu undir bréf sem
þeir sendu Karli Sigurbjörnssyni,
biskupi Íslands, nýverið þar sem
þeir skoruðu á hann að fara eftir lög-
um landsins. Það ætti biskup að gera
með því að hleypa séra Gunnari
Björnssyni aftur í stól sóknarprests á
Selfossi. Til enn frekari stuðnings við
séra Gunnar hefur verið boðað til
stuðningsfundar á föstudagskvöld.
Séra Gunnar var sýknaður af
ákærum um kynferðislega misnotk-
un ungra sóknarbarna hans. Bisk-
upinn hefur aftur á móti verið hik-
andi í afgreiðslu þess hvort Gunnar
fái að snúa aftur í sitt gamla starf
og því hefur presturinn verið í leyfi
fram til þessa. Leyfi Gunnars rennur
út á morgun, fimmtudag, og þá ætti
hann að snúa aftur, á 65 ára afmæl-
isdegi sínum. Heimildir DV herma
aftur á móti að Biskupsstofa leiti
sátta við séra Gunnar og verið sé að
finna honum annað starf. Biskupi
getur reynst erfitt að færa Gunnar
nema með samþykki hans og því
er beðið átekta með hver viðbrögð
prestsins verða.
Biskup í klandri
„Það liggur alveg fyrir að við viljum
fá hann til baka. Biskupsstofa getur
ekki fært hann nema með hans sam-
þykki, það er ekkert vald sem getur
breytt því. Nú er stóra spurningin
hvað séra Gunnar vill gera. Biskup-
inn er kominn í mikið klandur. Hann
má aldeilis gá að sér ef hann ætlar að
fara gegn lögum,“ segir Guðmundur
Kristinsson, stuðningsmaður séra
Gunnars Björnssonar sóknarprests
í leyfi, sem er einn skipuleggjenda
stuðningsfundarins.
Fundurinn verður haldinn klukk-
an 20 á föstudag á Hótel Selfossi og
Guðmundur segir alla velkomna.
„Það er öll þjóðin hjartanlega vel-
komin á fundinn. Þarna verður góð
stemning. Ég get lofað því að þetta
verður spennandi fundur og þang-
að ætlar fjöldi sóknarpresta af
landinu að mæta. Gunn-
ar er ánægður með fram-
takið, það hefði enginn
nema hann getað staðið
þetta af sér,“ segir Guð-
mundur.
Skiptar skoðanir
Þórir Stephensen, fyrr-
verandi dómkirkju-
prestur og stuðnings-
maður séra Gunnars, er meðal
þeirra 10 presta sem skora á biskup-
inn. Hann vonast til að geta mætt á
fyrirhugaðan stuðningsfund. „Ég er
í hópi annarra presta og við skor-
um á biskup að hlýða dómstólum.
Það voru prestar sem vildu ekki
skrifa þarna und- ir.
Menn skipt-
ast í flokka.
Mér finnst
nú sjálfum
að hlýða
eigi lands-
lögum.
Rétturinn
er Gunn-
ars meg-
in og við
styðjum
að hann fái að snúa aftur til sinna
starfa,“ segir Þórir.
„Mig langar til að mæta. Ég hef
lengi beðið eftir tækifæri þar sem
ekki bara þeir sem eru á móti Gunn-
ari fái tækifæri til að segja frá sínu
áliti.“
Biskup hefur ekki veitt prestun-
um tíu formlegt svar við áskoruninni.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir fengust
ekki svör frá Karli Sigurbjörnssyni,
biskupi Íslands, við vinnslu fréttar-
innar. Hið sama má segja um séra
Gunnar sjálfan.
Samkvæmt heimildum DV eru
prestarnir Auður Eir Vilhjálmsdótt-
ir, Guðmundur Þorsteinsson, fyrr-
verandi prófastur, Jón Ragnarsson,
prestur í Hveragerði, og séra Valgeir
Ástráðsson.
Margir prestar styðja séra
Gunnar og vilja fá hann aft-
ur. Einnig óttast sum-
ir prestar nornaveið-
ar verði dómskerfið
sniðgengið. Þannig
kynni mál séra Gunn-
ars að verða fordæmi
þess að prestar verði
hraktir úr starfi
vegna ásakana,
jafnvel þótt þeir séu
hreinsaðir af þeir.
fréttir
14. október 2009 miðvikudagur 3
UPPREISN GEGN BISKUPI
Biskup í bobba Tíu prestar skora á
biskupinn að hlíta landslögum og leyfa séra Gunnari að snúa aftur til fyrri starfa.
Gunnars Björnssonar
Karli Sigurbjörnssyni
TrauSTi hafSTeinSSon
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
„Jafnt og þétt er þetta heldur að auk-
ast, það er alveg klárt. Það er tölu-
vert að streyma inn til okkar núna,“
segir Karl Sigurðsson, sviðsstjóri hjá
Vinnumálastofnun. Hann bendir þó
á að heldur minna hafi verið um at-
vinnuleysi í síðasta mánuði en ótt-
ast var.
Hjá Vinnumálastofnun hefur ver-
ið nóg að gera undanfarið og nokk-
ur aukning hefur verið síðustu vikur.
Undanfarna daga hafa nærri 50 ein-
staklingar skráð sig á atvinnuleysis-
skrá hjá stofnuninni dag hvern og
nú er svo komið að tæplega fimmt-
án þúsund einstaklingar eru á skrá,
14.909 eintaklingar nánar tiltekið.
Aðspurður segir Karl fleiri karla skrá
sig þessa dagana en konur. Hann
reiknar þó með breytingu á því á
næstunni. „Það eru aðallega eldri
karlmenn sem hafa núna verið að
skrá sig, heldur fleiri en konur. Við
erum síðan að búast við því að fari
að streyma inn úr opinbera geiran-
um og þá gætu það verið hlutfalls-
lega konur í meira mæli. Við reikn-
um með aukningu jafnt og þétt,
hlutfallslega meira af eldra fólki og
búum okkur undir að það verði kon-
ur í meira mæli,“ segir Karl.
„Sé horft yfir lengri tíma er hlut-
fallslega meira eldra fólk komið á
skrá hjá okkur. Það var eiginlega
helst í upphafi sem unga fólkið var
að skrá sig en það mynstur hef-
ur breyst. Við erum meðvituð um
að klárleg aukning er að eiga sér
stað og næstu mánuðir gætu orð-
ið þungir vegna uppsagna hjá hinu
opinbera.“
trausti@dv.is
Karlar streyma inn á skrárnar
eldri menn Undanfarið
hefur einna helst borið á ný-
skráningum eldri karlmanna.
Lánuðu ekki til venslaðra aðila
Ástæðan fyrir því að Svartháfur fékk
lánið frá Glitni var sú að á þessum
tíma voru eigendur Milestone, þeir
Karl og Steingrímur, og félög í beinni
og óbeinni eigu þeirra búnir að full-
nýta lánaheimildir sínar hjá Glitni,
að sögn heimildarmanns DV sem
þekkir vel til viðskipta Karls og Stein-
gríms. Bræðurnir voru hluthafar í
Glitni á þessum tíma. „Til þess að fara
í kringum þetta lánaði Glitnir þessu
félagi [Innskot blaðamanns: Svart-
háfi] þessa peninga. Þetta félag lánaði
þessa peninga svo til Racon Holdings
II og voru þeir notaðir til að greiða
upp skuldina við J.P. Morgan. Glitnir
greiddi því í raun upp skuldina við J.P.
Morgan en fór þennan hring til þess.
Eftir stóð hins vegar skuld Svartháfs
við Glitni,“ segir heimildarmaður DV
en ekki er vitað að svo stöddu hvern-
ig hinir milljarðarnir bættust ofan á
þessa tuttugu.
Heimildarmaður DV segir að þetta
hafi þótt vera í lagi vegna þess að í
lagalegum skilningi hafi félagið í eigu
Werners, Svartháfur, ekki verið skil-
greint sem venslaður aðili við Karl og
Steingrím. Félag í eigu föður Karls og
Steingríms gat því fengið lánið þó svo
að félög í þeirra eigu gætu það ekki út
af hinum fullnýttu lánaheimildum.
Karl tjáir sig ekki
Karl Wernersson vill aðspurður og
þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir blaða-
manns ekki ræða um málefni Svart-
háfs í samtali við DV. Því var lögð
spurning fyrir hann í SMS-skeyti þar
sem hann var spurður hvað hefði orð-
ið um 45 milljarða skuld Svartháfs.
Hann var spurður hvernig hefði ver-
ið gengið frá þessari skuld og hvers
vegna. Svar Karls við þessari fyrir-
spurn var: „Hver er fréttin?“ DV náði
ekki aftur sambandi við Karl eftir
þetta.
Ekki náðist í bróður Karls, Stein-
grím, né í föður hans, Werner Rasmus-
son, við vinnslu fréttarinnar. Að svo
stöddu liggur því ekki almennilega
fyrir hvernig skuldin við Glitni var
gerð upp.
ekki rætt í gögnum
um Milestone
Ekkert er rætt um málefni Svartháfs og
láns félagsins hjá Glitni í gögnum um
Milestone sem greint hefur verið frá
í fjölmiðlum, endurskoðendaskýrslu
Ernst & Young og skýrslu umsjónar-
manns nauðasamninga félagsins, Jó-
hannesar Alberts Sævarssonar.
Ástæðan fyrir þessu er sú að mál-
efni Svartháfs tengjast ekki beint
málefnum Milestone af áðurnefnd-
um ástæðum, jafnvel þó að pening-
arnir sem Svartháfur fékk að láni hjá
Glitni hafi verið notaðir til að lána fé-
lagi í eigu Milestone-manna svo það
gæti staðið í skilum við erlent fjár-
málafyrirtæki. Hvorki Jóhannes né
endurskoðendurnir höfðu aðgang að
bókhaldi Racon Holdings II, félags-
ins sem fékk lánið frá Svartháfi, og því
ekki rannsakað lánveitingarnar til og
frá Svartháfi.
Samkvæmt heimildum DV veltu
kröfuhafar Milestone hins vegar mik-
ið fyrir sér himinháum lánveitingum
frá Glitni til félagsins áður en nauða-
samningum Milestone var hafnað og
félagið var tekið til gjaldþrotaskipta
fyrir skömmu. Ekki er því ólíklegt að
málefni Svartháfs muni koma við
sögu í framtíðinni hjá kröfuhöfum
Milestone og kunna lánaviðskipti fé-
lagsins að hafa einhver eftirmál.
Í eigu föður Wernerssona Félagið
Svartháfur er skráð á Werner Rasmusson, föður Karls og Steingríms. Félagið virðist hafa verið stofnað gagngert til að taka við láni frá Glitni upp á 20 milljarða sem bræðurnir gátu ekki tekið.
hlýtur stuðning
Séra Gunnar fær
stuðning frá öðrum
prestum og boðað
hefur verið til stuðn-
ingsfundar.
Tíu prestar skrifuðu undir bréf sem
þeir sendu Karli Sigurbjörnssyni,
biskupi Íslands, nýverið þar sem
þeir skoruðu á hann að fara eftir lög-
um landsins. Það ætti biskup að gera
með því að hleypa séra Gunnari
Björnssyni aftur í stól sóknarprests á
Selfossi. Til enn frekari stuðnings við
séra Gunnar hefur verið boðað til
stuðningsfundar á föstudagskvöld.
Séra Gunnar var sýknaður af
ákærum um kynferðislega misnotk-
un ungra sóknarbarna hans. Bisk-
upinn hefur aftur á móti verið hik-
andi í afgreiðslu þess hvort Gunnar
fái að snúa aftur í sitt gamla starf
og því hefur presturinn verið í leyfi
fram til þessa. Leyfi Gunnars rennur
út á morgun, fimmtudag, og þá ætti
hann að snúa aftur, á 65 ára afmæl-
isdegi sínum. Heimildir DV herma
aftur á móti að Biskupsstofa leiti
sátta við séra Gunnar og verið sé að
finna honum annað starf. Biskupi
getur reynst erfitt að færa Gunnar
nema með samþykki hans og því
er beðið átekta með hver viðbrögð
prestsins verða.
Biskup í klandri
„Það liggur alveg fyrir að við viljum
fá hann til baka. Biskupsstofa getur
ekki fært hann nema með hans sam-
þykki, það er ekkert vald sem getur
breytt því. Nú er stóra spurningin
hvað séra Gunnar vill gera. Biskup-
inn er kominn í mikið klandur. Hann
má aldeilis gá að sér ef hann ætlar að
fara gegn lögum,“ segir Guðmundur
Kristinsson, stuðningsmaður séra
Gunnars Björnssonar sóknarprests
í leyfi, sem er einn skipuleggjenda
stuðningsfundarins.
Fundurinn verður haldinn klukk-
an 20 á föstudag á Hótel Selfossi og
Guðmundur segir alla velkomna.
„Það er öll þjóðin hjartanlega vel-
komin á fundinn. Þarna verður góð
stemning. Ég get lofað því að þetta
verður spennandi fundur og þang-
að ætlar fjöldi sóknarpresta af
landinu að mæta. Gunn-
ar er ánægður með fram-
takið, það hefði enginn
nema hann getað staðið
þetta af sér,“ segir Guð-
mundur.
Skiptar skoðanir
Þórir Stephensen, fyrr-
verandi dómkirkju-
prestur og stuðnings-
maður séra Gunnars, er meðal
þeirra 10 presta sem skora á biskup-
inn. Hann vonast til að geta mætt á
fyrirhugaðan stuðningsfund. „Ég er
í hópi annarra presta og við skor-
um á biskup að hlýða dómstólum.
Það voru prestar sem vildu ekki
skrifa þarna und- ir.
Menn skipt-
ast í flokka.
Mér finnst
nú sjálfum
að hlýða
eigi lands-
lögum.
Rétturinn
er Gunn-
ars meg-
in og við
styðjum
að hann fái að snúa aftur til sinna
starfa,“ segir Þórir.
„Mig langar til að mæta. Ég hef
lengi beðið eftir tækifæri þar sem
ekki bara þeir sem eru á móti Gunn-
ari fái tækifæri til að segja frá sínu
áliti.“
Biskup hefur ekki veitt prestun-
um tíu formlegt svar við áskoruninni.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir fengust
ekki svör frá Karli Sigurbjörnssyni,
biskupi Íslands, við vinnslu fréttar-
innar. Hið sama má segja um séra
Gunnar sjálfan.
Samkvæmt heimildum DV eru
prestarnir Auður Eir Vilhjálmsdótt-
ir, Guðmundur Þorsteinsson, fyrr-
verandi prófastur, Jón Ragnarsson,
prestur í Hveragerði, og séra Valgeir
Ástráðsson.
Margir prestar styðja séra
Gunnar og vilja fá hann aft-
ur. Einnig óttast sum-
ir prestar nornaveið-
ar verði dómskerfið
sniðgengið. Þannig
kynni mál séra Gunn-
ars að verða fordæmi
þess að prestar verði
hraktir úr starfi
vegna ásakana,
jafnvel þótt þeir séu
hreinsaðir af þeir.
fréttir
14. október 2009 miðvikudagur 3
UPPREISN GEGN BISKUPI
Biskup í bobba Tíu prestar skora á
biskupinn að hlíta landslögum og leyfa
séra Gunnari að snúa aftur til fyrri starfa.
Gunnars Björnssonar
Karli Sigurbjörnssyni
TrauSTi hafSTeinSSon
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
„Jafnt og þétt er þetta heldur að auk-
ast, það er alveg klárt. Það er tölu-
vert að streyma inn til okkar núna,“
segir Karl Sigurðsson, sviðsstjóri hjá
Vinnumálastofnun. Hann bendir þó
á að heldur minna hafi verið um at-
vinnuleysi í síðasta mánuði en ótt-
ast var.
Hjá Vinnumálastofnun hefur ver-
ið nóg að gera undanfarið og nokk-
ur aukning hefur verið síðustu vikur.
Undanfarna daga hafa nærri 50 ein-
staklingar skráð sig á atvinnuleysis-
skrá hjá stofnuninni dag hvern og
nú er svo komið að tæplega fimmt-
án þúsund einstaklingar eru á skrá,
14.909 eintaklingar nánar tiltekið.
Aðspurður segir Karl fleiri karla skrá
sig þessa dagana en konur. Hann
reiknar þó með breytingu á því á
næstunni. „Það eru aðallega eldri
karlmenn sem hafa núna verið að
skrá sig, heldur fleiri en konur. Við
erum síðan að búast við því að fari
að streyma inn úr opinbera geiran-
um og þá gætu það verið hlutfalls-
lega konur í meira mæli. Við reikn-
um með aukningu jafnt og þétt,
hlutfallslega meira af eldra fólki og
búum okkur undir að það verði kon-
ur í meira mæli,“ segir Karl.
„Sé horft yfir lengri tíma er hlut-
fallslega meira eldra fólk komið á
skrá hjá okkur. Það var eiginlega
helst í upphafi sem unga fólkið var
að skrá sig en það mynstur hef-
ur breyst. Við erum meðvituð um
að klárleg aukning er að eiga sér
stað og næstu mánuðir gætu orð-
ið þungir vegna uppsagna hjá hinu
opinbera.“
trausti@dv.is
Karlar streyma inn á skr rnar
eldri menn Undanfarið
hefur einna helst borið á ný-
skráningum eldri karlmanna.
Lánuðu ekki til venslaðra aðila
Ástæðan fyrir því að Svartháfur fékk
lánið frá Glitni var sú að á þessum
tíma voru eigendur Milestone, þeir
Karl og Steingrímur, og félög í beinni
og óbeinni eigu þeirra búnir að full-
nýta lánaheimildir sínar hjá Glitni,
að sögn heimildarmanns DV sem
þekkir vel til viðskipta Karls og Stein-
gríms. Bræðurnir voru hluthafar í
Glitni á þessum tíma. „Til þess að fara
í kringum þetta lánaði Glitnir þessu
félagi [Innskot blaðamanns: Svart-
háfi] þessa peninga. Þetta félag lánaði
þessa peninga svo til Racon Holdings
II og voru þeir notaðir til að greiða
upp skuldina við J.P. Morgan. Glitnir
greiddi því í raun upp skuldina við J.P.
Morgan en fór þennan hring til þess.
Eftir stóð hins vegar skuld Svartháfs
við Glitni,“ segir heimildarmaður DV
en ekki er vitað að svo stöddu hvern-
ig hinir milljarðarnir bættust ofan á
þessa tuttugu.
Heimildarmaður DV segir að þetta
hafi þótt vera í lagi vegna þess að í
lagalegum skilningi hafi félagið í eigu
Werners, Svartháfur, ekki verið skil-
greint sem venslaður aðili við Karl og
Steingrím. Félag í eigu föður Karls og
Steingríms gat því fengið lánið þó svo
að félög í þeirra eigu gætu það ekki út
af hinum fullnýttu lánaheimildum.
Karl tjáir sig ekki
Karl Wernersson vill aðspurður og
þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir blaða-
manns ekki ræða um málefni Svart-
háfs í samtali við DV. Því var lögð
spurning fyrir hann í SMS-skeyti þar
sem hann var spurður hvað hefði orð-
ið um 45 milljarða skuld Svartháfs.
Hann var spurður hvernig hefði ver-
ið gengið frá þessari skuld og hvers
vegna. Svar Karls við þessari fyrir-
spurn var: „Hver er fréttin?“ DV náði
ekki aftur sambandi við Karl eftir
þetta.
Ekki náðist í bróður Karls, Stein-
grím, né í föður hans, Werner Rasmus-
son, við vinnslu fréttarinnar. Að svo
stöddu liggur því ekki almennilega
fyrir hvernig skuldin við Glitni var
gerð upp.
ekki rætt í gögnum
um Milestone
Ekkert er rætt um málefni Svartháfs og
láns félagsins hjá Glitni í gögnum um
Milestone sem greint hefur verið frá
í fjölmiðlum, endurskoðendaskýrslu
Ernst & Young og skýrslu umsjónar-
manns nauðasamninga félagsins, Jó-
hannesar Alberts Sævarssonar.
Ástæðan fyrir þessu er sú að mál-
efni Svartháfs tengjast ekki beint
málefnum Milestone af áðurnefnd-
um ástæðum, jafnvel þó að pening-
arnir sem Svartháfur fékk að láni hjá
Glitni hafi verið notaðir til að lána fé-
lagi í eigu Milestone-manna svo það
gæti staðið í skilum við erlent fjár-
málafyrirtæki. Hvorki Jóhannes né
endurskoðendurnir höfðu aðgang að
bókhaldi Racon Holdings II, félags-
ins sem fékk lánið frá Svartháfi, og því
ekki rannsakað lánveitingarnar til og
frá Svartháfi.
Samkvæmt heimildum DV veltu
kröfuhafar Milestone hins vegar mik-
ið fyrir sér himinháum lánveitingum
frá Glitni til félagsins áður en nauða-
samningum Milestone var hafnað og
félagið var tekið til gjaldþrotaskipta
fyrir skömmu. Ekki er því ólíklegt að
málefni Svartháfs muni koma við
sögu í framtíðinni hjá kröfuhöfum
Milestone og kunna lánaviðskipti fé-
lagsins að hafa einhver eftirmál.
Í eigu föður Wernerssona Félagið
Svartháfur er skráð á Werner Rasmusson,
föður Karls og Steingríms. Félagið virðist
hafa verið stofnað gagngert til að taka
við láni frá Glitni upp á 20 milljarða sem
bræðurnir gátu ekki tekið.
hlýtur stuðning
Séra Gunnar fær
stuðning frá öðrum
prestum og boðað
hefur verið til stuðn-
ingsfundar.
2 þriðjudagur 13. október 2009
fréttir
Hættan á málssókn Breta og Hol-
lendinga vegna grófrar mismununar á íslenskum sparifjáreigendum ann-
ars vegar og hollenskum og breskum hins vegar er mikil að mati efnahags- og viðskiptaráðuneytisins hafi ekki samist um Icesave-skuldirnar áður en lokafrestur til útgreiðslu rennur út 23. október næstkomandi.
Lilja Mósesdóttir, þingkona VG, segir að íslensk stjórnvöld hafi geng-
ið of langt í að tryggja hag íslenskra innstæðueigenda; aðgerðir ríkisins hafi verið of víðtækar og skattgreið-
endur í raun látnir ábyrgjast háar og lágar innistæður og þar með allan skaðann af hruni einkabankanna.
Lilja berst gegn breytingum á Icesave-fyrirvörum Alþingis, sem snerta hag breskra og hollenskra sparifjáreigenda. Hún sagði í þing-
ræðu í síðustu viku að því hefði ver-
ið fleygt að 10 prósent íslenskra fjármagnseigenda hefðu átt um 70 prósent af innstæðuupphæðinni sem skattgreiðendur tryggðu.
„Með öðrum orðum, sú aðgerð að tryggja innstæður að fullu fól í sér mikla eignatilfærslu frá skatt-
greiðendum til fjármagnseigenda sem birtist meðal annars í því að nú þarf ríkið að leggja ríkisbönkunum til um 200 milljarða í eigið fé. Auk þess var tekin sú ákvörðun að bæta fjármagnseigendum tap vegna pen-
ingamarkaðssjóða bankanna og er talið að þessi ákvörðun hafi kostað skattgreiðendur að minnsta kosti um
200 milljarða. Sú staðreynd, að ekki var sett þak á upphæðina sem ríkið ábyrgðist varðandi bankainnstæð-
ur, hefur leitt til þess að í dag er lít-
ið svigrúm til þess að draga úr eigna-
tilfærslunni sem átt hefur sér stað frá hruninu varðandi skuldara eða eignatilfærslu frá skuldurum til fjár-
magnseigenda.“
Líklegt er að fjáraustur stórnvalda til að tryggja hag íslenskra innistæðu- og fjármagnseigenda líti illa út komi til málssóknar Breta og Hollendinga gegn Tryggingarsjóði innstæðueig-
enda vegna vangoldinna Icesave-
skulda. „Sjóðurinn getur því átt von á málssókn á hendur sér og sömuleið-
is ríkið fyrir að mismuna innistæðu-
eigendum eftir staðsetningu,“ segir í áliti efnahags- og viðskiptaráðuneyt-
isins fyrir helgi.
Ögurstund eftir 10 daga
Oddvitar ríkisstjórnarinnar og emb-
ættismenn reyna nú að semja við bresk og hollensk stjórnvöld um frest til þess að leysa Icesave-deiluna á Al-
þingi á næstunni.
Þann 23. október rennur út frestur til að greiða alla Icesave-skuldina og frekari fresti er ekki til að dreifa nema um það verði samið á pólitískum grundvelli. Í raun yrði um greiðslu-
fall þjóðarinnar að ræða hafi ekki samist um hana eftir tíu daga.
Íslensk, hollensk og bresk stjórn-
völd hafa að undanförnu rætt breyt-
ingar á fyrirvörum Alþingis við ríkisábyrgðinni á Icesave-skuldbind-
ingunum. Samkvæmt heimildum DV er aðeins um orðalagsbreytingar að ræða varðandi efnahagsfyrirvar-
ana. Fyrst og síðast eru Hollendingar
og Bretar fastir fyrir varðandi trygg-
ingar á endurgreiðslu lánanna sem þjóðirnar veita Tryggingarsjóði inn-
stæðueigenda til að greiða upp Ice-
save-skuldirnar.
Vonlaust að standa við
23. október
Engar líkur eru á því að frumvarp um breytingar á fyrirvörum Alþing-
is verði lagt fram á þingi fyrr en und-
ir næstu helgi og vonlaust er talið að málið verði afgreitt fyrir 23. október.
Því leggja stjórnvöld ríka áherslu á að semja við hollensk og bresk stjórnvöld um pólitískt svigrúm til að ljúka málinu. Til þess að svo megi verða þarf Icesave-málið að vera í til-
teknum farvegi sem miðar að lausn þess á þingi.
Helstu forystumenn stjórnar-
flokkanna telja vaxandi líkur á að breytingar á Icesave-fyrirvörunum renni í gegnum þingið. Hafni þingið breytingum, málið fari aftur í hnút, endurskoðun efnahagsáætlunar-
innar í samstarfi við AGS tefjist að sama skapi, er ljóst að efnahagsskil-
yrði þjóðarinnar versna til muna. Önnur og breytt ríkisstjórn þyrfti þá að glíma við enn meiri vanda hvort heldur það yrði með eða án sam-
starfs við AGS. Þá blasir við að 700 milljarða Icesave-skuldin hverfur ekki við það að þingið og þjóðin neiti að greiða hana.
Af samtölum DV við forystumenn ríkisstjórnarinnar má álykta að vax-
andi líkur séu til þess að nýtt frum-
varp verði afgreitt af þinginu von bráðar. Ekki sé ástæða til að ætla að Alþingi vilji axla þá ábyrgð að enda Icesave-deiluna í bullandi milliríkja-
deilu við bresk en ekki síður hollensk stjórnvöld sem eru undir miklum þrýstingi heima fyrir. Seðlabankinn og viðskiptaráðuneytið spáðu einnig afar dökkum horfum ef ekki semdist.
Óvissa er þó enn um stuðning Ögmundar Jónassonar og nokkurra annarra þingmanna VG. Litlar líkur eru þó til þess að Steingrímur J. Sig-
fússon reyni aftur að tryggja stuðn-
ing við breytingarnar fyrir fram.
Málið er því í höndum þingsins.
Á fyrir 2 prósentum
af skuldinni
Eins og áður segir eru engin tök leng-
ur á því að framlengja frest þann sem Tryggingarsjóður innstæðueigenda og fjárfesta hefur fengið í liðlega heilt ár til þess að greiða út 700 milljarða Icesave-skuld við Breta og Hollend-
inga, eða frá því bankakerfið hrundi.
Eignir sjóðsins eru um 16,5
milljarðar króna. Hann hef-
ur aðeins heimild til þess að
greiða út þá upphæð og taka
lán samkvæmt nánari fyrir-
mælum svo sem gert er með
lögunum um ríkisábyrgð á
lánum til sjóðsins vegna
Icesave-skuldanna.
Eftir að Fjármála-
eftirlitið viðurkenndi
greiðsluskyldu
Tryggingarsjóðs
innstæðueigenda
gagnvart Lands-
bankanum í byrj-
un október í fyrra
fékk sjóðurinn
tveggja mánaða
frest til þess að greiða út innstæðu-
tryggingarnar. Þennan frest var unnt að framlengja, þó ekki lengur en til 23. október næstkomandi.
Hafi ekki samist um annað
Dekruðu við íslenska
fjármagnseigen
Jóhann hauksson
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
Engin ríkisábyrgð Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, segir enga ríkisábyrgð á Icesave en svarar ekki hvernig tryggja eigi sparifjárinneignir.
Lilja Mósesdóttir, VG „Sú aðgerð að tryggja innstæður að fullu fól í sér mikla eignatilfærslu frá skattgreiðendum til fjármagnseigenda sem birtist meðal annars í því að nú þarf ríkið að leggja ríkisbönkunum til um 200 milljarða í eigið fé.“
fréttir
13. október 2009 Þriðjudagur 3
Yfirvöld kirkjunnar reyna að
færa séra Gunnar Björnsson til í
starfi nú þegar aðeins tveir dag-
ar eru þar til hann á að taka aftur
við embætti sóknarprests í Sel-
fosskirkju. Slíkt verður þó vart
gert án hans samþykkis og er því
reynt að semja við séra Gunnar.
Séra Gunnar var settur í leyfi
þegar stúlkur úr sókn hans kváðu
hann hafa áreitt sig. Presturinn
var ákærður en sýknaður. Þrátt
fyrir það er málinu ekki lokið og
gætir allnokkurrar andstöðu við
það á Selfossi að hann snúi aftur
sem sóknarprestur. Málið hefur
reynst kirkjuyfirvöldum erfitt og
hefur tafist ítrekað að ljúka því.
Gunnar í fræðslustörf
Heimildir DV herma að kirkjuyf-
irvöld freisti þess nú að færa séra
Gunnar til í starfi. Ein útfærsla
sem hefur verið nefnd er að
Karl Sigurbjörnsson, biskup Ís-
lands, hafi tekið þá ákvörðun að
færa Gunnar í fræðsluhlutverk í
Skálholti. Hlutverk hans yrði að
veita prestum umdæmisins leið-
beiningar og fræðslu. Biskup fór
hins vegar úr landi í gærmorgun
og því kemur það í hlut Sigurð-
ar Sigurðarsonar, vígslubiskups í
Skálholti, að bjóða Gunnari hið
nýja hlutverk. Hvorki Sigurður
né Gunnar vildu kannast við þá
útfærslu í gær.
Ljóst er þó af svörum Sig-
urðar vígslubiskups að ákveðn-
ar þreifingar eru í gangi. „Málið
er í biðstöðu og við þurfum að
heyra hans hugmyndir um þetta.
Hann á eftir að veita andsvar við
þeirri hugmynd um hugsanlega
tilfærslu í starfi. Ég veit ekki til
þess að hann hafi hafnað öðru
hlutverki. Við hljótum að vona
að málin leysist yfir höfuð ef ein-
hvers staðar er stirðleiki,“ bætir
Sigurður vígslubiskup við. Að-
spurður segist hann ekki geta
sagt frá hvaða tilfærslu í starfi
Gunnari sé boðin.
„Ekki fengið bréf“
„Ég segi allt gott bara,“ sagði séra
Gunnar Björnsson, sem ver-
ið hefur í leyfi frá störfum sem
sóknarprestur í Selfosskirkju,
þegar hann var spurður um líð-
an sína í gær. Leyfi hans frá störf-
um rennur út á fimmtudag og að
öllu óbreyttu snýr hann aftur til
starfa þá.
Í samtali við DV í gær sagð-
ist Gunnar ekki kannast við
fræðslustarfið í Skálholti. Að-
spurður sagðist hann ekki hafa
fengið neitt erindi um nýtt hlut-
verk í Skálholti. „Þú segir mér
bara fréttir. Nei, ég kannast í
rauninni ekki við málið og hef
ekki fengið bréf um þetta,“ segir
Gunnar.
Sigurður Sigurðarson,
vígslubiskup í Skálholti, kann-
ast heldur ekki við að þessi
hugmynd hafi komið upp. Að-
spurður vísar hann því á bug
að leyfi séra Gunnars hafi ver-
ið framlengt. „Ég kem alveg af
fjöllum. Það er ekkert til svona
frágengið á nokkurn hátt. Ég
hef aldrei heyrt þetta fyrr og
það er bara þannig. Nú er ein-
hver að reyna að spila með
ykkur, því þetta er fjarri lagi,“
segir Sigurður.
Gunnar væntir góðs
Aðspurður hvað hann taki sér
fyrir hendur þegar leyfi hans
lýkur segist Gunnar ekkert vita.
„Það liggur bara ekkert fyrir, á
hvorugan veginn. Ekki hvort af
því verði eða hitt. Þannig að ég
veit bara ekkert um þetta. Ég
vænti alls góðs, það geri ég allt-
af,“ segir Gunnar að lokum.
Gunnar Björnsson
Reynt að færa
séra Gunnar
TRausTi hafsTEinsson
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
„Ég vænti alls góðs,
það geri ég alltaf.“
Prestur að störfum Séra
Gunnar tók að sér prestsverk
meðan hann var í leyfi, við
litla hrifningu Biskupsstofu.
þann dag verður Tryggingarsjóður innstæðueigenda að greiða Hollend-
ingum og Bretum af eignum sínum, um 16,5 milljarða króna, sem eru að-
eins liðlega 2 prósent af heildarskuld-
inni vegna Icesave-innlánanna.
skyldur Tryggingarsjóðs ljósar
Sigrún Helgadóttir, framkvæmda-
stjóri Tryggingarsjóðs innstæðueig-
enda og fjárfesta (TIF), segir ákvæði laga um sjóðinn skýr, hann greiði að-
eins út í samræmi við eignir sínar. Stjórn hans er þó heimilt að taka lán hrökkvi eignir sjóðsins ekki til, telji hún brýna nauðsyn á því. Lágmarks-
stærð sjóðsins skal nema 1 prósenti af meðaltali tryggðra innstæða á næst-
liðnu ári. Nái heildareign ekki þessu lágmarki greiða viðskiptabankar og sparisjóðir gjald og veita ábyrgðar-
yfirlýsingar svo sjóðurinn nái lág-
marksstærð. Sigrún segir að þetta
sé ekkert frábrugðið því sem ger-
ist víða um lönd þótt mismun-
andi háttur geti verið hafður á
fjármögnun sjóðanna. „Komi
til útgreiðslna úr sjóðnum yf-
irtekur hann kröfu viðkom-
andi á hendur hlutaðeigandi
aðildarfyrirtæki eða þrota-
búi. Komi til útgreiðslna
úr sjóðnum vegna Lands-
bankans/Icesave mun
sjóðurinn því verða stór
kröfuhafi í Landsbank-
anum,“ segir Sigrún.
Greiðsluskylda
Áætlað hefur verið að
eignir bankans dugi fyrir
allt að 70 prósentum Icesave-skuld-
arinnar og 250 til 300 milljarðar falli á endanum á íslenska ríkið.
Ábyrgð ríkisins á Icesave teng-
ist fyrst og fremst skyldum þess til að framfylgja tilskipun EES um inn-
stæðutryggingar.
Þessi skylda hefur verið viður-
kennd allar götur frá bankahrun-
inu sjálfu. Seint í október gaf Fjár-
málaeftirlitið til dæmis út það álit sitt að frá og með 6. október í fyrra hefði Landsbanki Íslands ekki ver-
ið fær um að inna af hendi greiðslu á andvirði innstæðna. „Samkvæmt 9. gr. laga um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta... hefur vegna ofangreindra tilvika stofnast til greiðsluskyldu Tryggingarsjóðs inn-
stæðueigenda og fjárfesta gagnvart viðskiptavinum Landsbanka Íslands hf. sem ekki hafa fengið greiddar inn-
stæður sínar, í samræmi við ákvæði laganna.“
Davíð og Árni samþykktu
Árni Mathiesen, þáverandi fjármála-
ráðherra, og Davíð Oddsson, þáver-
andi formaður bankastjórnar Seðla-
bankans, undirrituðu viljayfirlýsingu við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn með smávægilegum breytingum þann 15. nóvember í fyrra.
Í 9. grein yfirlýsingarinnar er skýrt kveðið á um skuldbindingar gagn-
vart innstæðueigendum eins og Icesave: „Ísland hefur heitið því að virða skuldbindingar á grundvelli innstæðutryggingakerfisins gagn-
vart öllum tryggðum innlánshöf-
um. Þetta byggist á þeim skilningi að unnt verði að forfjármagna þess-
ar kröfur fyrir tilstyrk viðkomandi er-
lendra ríkja og að jafnt Ísland sem þessi ríki séu staðráðin í að efna til viðræðna á næstu dögum með það að markmiði að ná samkomulagi um nánari skilmála vegna þessarar for-
fjármögnunar.“
Fjármálaeftirlitinu bar að tilkynna eftirlitsstofnunum í Hollandi og Bret-
landi um tryggingar innlána og bóta-
kerfi sem vernda áttu viðskiptavini útibúa Landsbankans.
Fjármálaeftirlitið gat auk þess samkvæmt lögum bannað stofnun útibúa í Hollandi og Bretlandi ef það taldi sig hafa réttmæta ástæðu til að ætla að stjórnun og fjárhagsstaða Landsbankans væri ekki nægilega traust.
Meginatriði er að hollensk og bresk stjórnvöld hafa nú þegar lagt út fyrir innistæðum sparifjáreigenda sem skiptu við útibú Landsbankans í báðum löndunum. Það var gert að undangengnum heitstrengingum og yfirlýsingum af hálfu íslenskra stjórnvalda um að lágmarksinnstæða á hverjum reikningi yrði greidd af Ís-
lendingum.
Með hliðstæðum hætti ábyrgðist íslenska ríkið allar innstæður spari-
fjáreigenda hér á landi.
„Og því hefur verið
fleygt að 10 prósent
fjármagnseigenda hafi
átt um 70 prósent af
innstæðuupphæðinni
sem skattgreiðendur
tryggðu.“
Dur
setið á rökstólum Þingflokkur Samfylkingarinnar lagðist yfir stöðu mála í Skíðaskálanum í Hveradölum í gær. Ljósmyndara DV var bannað að fara inn og taka myndir.
oddvitarnir Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfús-son leggja traust sitt á að ábyrgt Alþingi samþykki Icesave þótt það verði síðar en 23. október.
mynD hEiða hElGaDóTTiR - RóBERT REynisson
LiLja Katrín GunnarSdÓttir
blaðamaður skrifar liljakatrin@dv.is
SLYS á SLYS ofan
„Ó, já! Þú sérð tækin
gera út af við fólk.“
Hlægilegt en sársaukafullt Áhorfend-
ur skemmta sér konunglega þegar þeir
sjá ófarir annarra í Wipeout en brautin er
mjög erfið.
Eins og í hryllings-
mynd Í Íslandi í dag á
mánudaginn var viðtal
við Ólaf þar sem hann
sýndi blóðrauð augu.
jafnar sig Ólafur er kominn aftur heim til Íslands og er á batavegi samkvæmt
heimildum DV. DV tók viðtal við Ólaf á síðasta ári þar sem hann er einn fjölmargra
homma sem æfa íþróttir á Íslandi.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf
Laugavegi 178, 105 Rvk
sími 551-3366 www.misty.is
opið mán-fös 10-18, lau 10-14
Teg. 81103 - létt fylltur
og flottur í BC skálum á
kr. 3.950,- buxur í stíl á kr.
1.950,-
Teg. 42027 - mjög haldgóður
í CDE skálum á kr. 3.950,-
buxur í stíl á kr. 1.950,-
Teg. 42022 - nettur og flottur
í BCD skálum á kr. 3.950,-
buxur í stíl á kr. 1.950,-
Teg. 81103
Teg. 42027
Teg. 42022