Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2009, Side 21

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2009, Side 21
gert. Hvort sem fólk er í annarlegu ástandi eður ei. Ég þekki fíkla úti um allt og þeir segja allir að fíkill passi fíkil sem á pening. Og dóttir mín átti nægan pening. Það er eitthvað sem er ekki í lagi. Þessi plögg skipta ekki máli því hún var fíkill. Fíklar eru fimmta flokks fólk. Það er eins og dauði hennar skipti ekki máli. Ég veit sjálf að fíklar eru með byssuhlaupið við hausinn á sér en ég vil réttlæti. Þeg- ar ég kom með skjölin til lögregl- unnar í vikunni sagði einn lögreglu- maðurinn við mig að fíklar gerðu allt fyrir peninga. Þá brast eitthvað inni í mér. Mælirinn sprakk ekki - hann gaf sig. Ég fékk nóg. Ég er búin að láta valta yfir mig frá A til Ö og hef tekið öllu en þetta var nóg. Þetta snerist ekki um peninga. Í augum lögreglunnar er fíkill bara fíkill sem gerir allt til að fá efnið sitt.“ Skilur lögregluna Jóhanna veit ekki hve mikið meira hún getur gert og er alls ekki reið lögreglunni. „Ég er ekki með neitt hatur. Ég get ekkert meira gert í rauninni. Ég skil lögregluna. Þeir eru í aðstöðu þar sem þá vantar meira afl og vinnu. En þegar var komið illa fram við mig og dóttur mína því hún var fíkill fékk ég nóg. Ég held að það spili inn í að við pabbi hennar erum alkóhólistar. Lögreglan segist ekki fara í mann- greinarálit en ég held að þeir geri það samt. Það er ekki sama Jón og séra Jón. Ég er ekkert reið lögregl- unni. Ég er bara reið yfir þessu þjóð- félagi og hvernig þetta er orðið. Ég kalla Ísland bara litlu Kúbu. Svona á manni ekki að líða því ég veit að þetta var ekki eðlilegur dauðdagi.“ Hafði viljann Jóhanna kallar Lísu sparifíkil. Hún hafi átt allt til alls, nægan pening en sprautaði sig með eiturlyfjum. Að sögn móður hennar var hún mikið edrú en tók síðan nokkra daga í einu þar sem hún neytti fíkniefna, ekki ólíkt túrum sem alkóhólistar taka. „Þetta er stelpa sem var búin að kaupa sér þvottavél, ísskáp, þurrk- ara, rúm – allt í búið. Nema íbúð- ina. Hún keypti sér bíl um leið og hún fékk bílpróf. Hún var alltaf að taka sig á og var alltaf í prógrammi. Hún hafði viljann. Ég veit ekki hvort fíknin hafi verið svona sterk. Hún var rosalega áhrifagjörn. Ég er mjög áhrifagjörn þannig að ég þekki til- finninguna. Það er mjög slæmt sér- staklega þegar maður lendir í slæm- um félagsskap.“ Ekkert hægt að gera Hún segir það ekki skipta máli að Lísa var alin upp við alkóhólisma á heimilinu. „Það breytir engu hvort krakki kemur frá heimili sem er alkóhól- ismi á eða ekki. Þetta er félagsskap- urinn. Systir mín átti fimm börn með manni sem var mjög mikill alkóhól- isti. Þau hafa aldrei reykt eða drukk- ið. Ekkert af þeim. Þetta snýst bara um félagsskapinn. Ef ég hefði alist upp við alkóhólisma hefði ég ekki drukkið eða reykt. Ég er eini svarti sauðurinn af öllum sjö krökkunum,“ segir Jóhanna. Hún reyndi margoft að hjálpa Lísu en ekkert gekk. „Þegar unglingurinn er kominn út á þessa braut geturðu alveg eins talað við vegg. Það eina sem mað- ur getur gert er að vera til staðar og vona. Þú getur ekkert gert. Þetta er bara staðreynd. Það vita það all- ir sem hafa lent í þessu. Ég fór fjöl- margar ferðir að leita að henni og auglýsa eftir henni. Það breytir engu. Ef þau ætla sér þetta gera þau það. Þetta er það sem þjóðfélagið í dag er búið að bjóða upp á. Krakk- ar eru aldir upp á leikskólum, síðan fara þau í skóla, þaðan á skóladag- heimili og þau eiga kannski tvo til þrjá klukkutíma með foreldrum sín- um á dag ef það nær því.“ Rússnesk rúlletta Jóhönnu verður hugsað til Lísu á hverjum degi og heldur því fram að það verði að breyta hugarfari fólks gagnvart fíklum svo hægt sé að bjarga þeim. „Það eru hrikalega margir fíkl- ar á aldrinum tvítugt til þrítugt sem hafa dáið á þessu ári. Ég held að það fyrsta sem verði að breytast er að löggjöfin horfi ekki bara á fíkla sem fimmta flokks fólk af því að það er enginn eins. Auðvitað er slæmt að vera sprautufíkill en hver er mun- urinn á að sprauta sig, taka í nef- ið, taka töflur og drekka brennivín? Ef þú ert alki þá ertu alki. Ef ég tek flösku og stúta henni gæti ég dáið. Maður er alltaf að spila rússneska rúllettu. En það þarf ekki að dæma fíkla svona rosalega gróft eins og var gert með dóttur mína. Hún var ekki alveg eins og þeir héldu.“ fréttir 16. október 2009 föstudagur 21 „Hún Lísa mín kemur aldrei til baka.“ „Allt sem hún gerði, gerði hún vel.“ Lísa Arnardóttir fæddist 7. ágúst 1988 og lést 15. september 2009. Hún ólst upp við alkóhólisma þar sem báðir foreldrar hennar eru alkóhólistar. Sem barn var hún afar orkumikil, lífsglöð og ávallt brosandi. Hún var lágvaxin, rosalega hraust og hörkudugleg. Hún var afar listræn, skrifaði mikið af ljóðum, málaði, saumaði, leiraði og þar fram eftir götunum. „Það er ótrúlegt allt sem hún hefur búið til. Eins og ég skrifaði í minningargreinina þá sagði hún einu sinni við mig að hana langaði í gervileðurbuxur. Ég trúði því ekki að hún gæti saumað þær en hún fór út í búð, keypti efni og saumaði buxurnar. Það var eins og þær væru keyptar út úr búð. Ég bara trúði því ekki. Allt sem hún gerði, gerði hún vel,“ segir Jóhanna. Lísa ætlaði í listnám eftir áramót á Íslandi og á Jóhanna fjölmarga muni sem hún hefur búið til. Þær mæðgur voru afskaplega nánar og góðar vinkonur alla tíð. „Við vorum eins og köttur og mús. Við vorum mjög nánar og gátum treyst hvor annarri en við rifumst eins og hundur og köttur. Við töluðum rosalega hátt þegar við töluðum. Hún var skellibjalla eins og ég. Alveg eins í skapinu. Þess vegna var hún svona klár.“ Vill réttlæti. Jóhanna telur að andlát Lísu sé sakamál. Hún vill að lögreglan rannsaki málið. SigtRygguR ARi JóHAnnSSon uppáhaldsteppið Útför Lísu var gerð frá Hafnarfjarðarkirkju 25. september. Á gröf hennar setti móðir hennar uppáhaldsteppið hennar sem hún hengdi upp á vegg hvar sem hún var. Mynd úR EinkASAfni Hafði allt til alls Lísa leigði með frænda sínum síðustu mánuðina. Hún átti allt til alls og var búin að kaupa sér nánast allt í búið. Mynd úR EinkASAfni

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.