Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2009, Qupperneq 25
Hver er maðurinn? „Eyþór Árnason.
55 ára gamall, uppalinn í Skagafirði og
hef lengi unnið á Stöð 2 og Sagafilm.“
Hvað drífur þig áfram?
„Lífið sjálft.“
Hver er uppáhaldsmaturinn
þinn? „Ég er eins og kötturinn þeirra
Bakkabræðra. Ég ét allt. Ef ég ætti að
velja eitthvað þá væri það saltkjöt og
baunir.“
Hver er uppáhaldsbókin? „Þær eru
ótrúlega margar en Íslandsklukkan
finnst mér alltaf frábær.“
Hefur þú skrifað bók áður? „Nei.
Þetta er fyrsta bókin.“
Hvernig kom til að þú skrifaðir
ljóðabók? „Ég hef verið að stunda
þetta á kvöldin mér til skemmtunar.
Búa til einhverjar skrýtnar vísur fyrir
félagana. Svo var þetta farið að ágerast
og þá ákvað ég að henda inn handriti
þegar ég sá auglýsingu um ljóðasam-
keppni.“
Hvað þýða þessi verðlaun fyrir
þig? „Ég er ógeðslega glaður og mont-
inn yfir þessu. Þetta er mikill heiður.“
Er þetta byrjunin á einhverju
meira? „Hver veit? Þetta er hvatning
til að halda áfram. Það hafa liðið mörg
ár á milli bóka hjá mörgum góðum
skáldum.“
Þú yrkir um Clint Eastwood. Af
hverju? „Hann hefur alltaf verið hetja
hjá mér í bíómyndum.“
Hvort er skemmtilegra að vera
fyrir aftan vélarnar eða fyrir
framan? „Ég veit það ekki alveg. Ég
þarf að byrja að venjast því að vera fyrir
framan vélarnar. Ég sting mér stundum
fram fyrir vélina þegar þarf að redda
einhverju. En ætli ég sé ekki skárri fyrir
aftan vélarnar.“
Var gaman að vinna með
Fóstbræðrum? „Það var frábært að
vinna með þeim. Það var ótrúlegur og
einstakur tími. Erfitt en gefandi þar sem
vinátta myndaðist sem endist.“
Hvað er á döfinni? „Fá sér kaffi og fara
í bæinn. Svo er ég að vinna í grínseríunni
Marteinn sem verður á RÚV.“
Hvernig Heldur þú að veturinn verði?
„Hann verður bara mjög góður. Fólk
hefur vonandi lært af mistökum og við
komumst út úr þessu í vetur.”
ÁgústínA Jónsdóttir
60 ÁRa kENNaRi
„Ég veit það eiginlega ekki. Hann
verður örugglega kaldur og við eigum
eftir að hafa það ömurlegt út af
kreppunni.“
tómAs sVErri BAkEr
14 ÁRa NEMi
„Hann verður vonandi góður. Ég vona
að það verði mikill snjór og við
Íslendingar eigum eftir að lifa þetta af,
eins og við höfum alltaf gert.“
róBErt dAði HElgAson
23 ÁRa VaktStjóRi HjÁ StRætó
„Hann verður kaldur og erfiður. Ég held
að þetta verði örugglega erfitt hjá
sumum.“
Jón guðmAnn PÁlsson
14 ÁRa NEMi
Dómstóll götunnar
EyÞór ÁrnAson fékk Bók-
menntaverðlaun tómasar Guð-
mundssonar árið 2009 fyrir Hundgá
úr annarri sveit. Þar yrkir hann um allt
milli himins og jarðar og er húmorinn
aldrei langt undan.
Eastwood alltaf
vErið hEtjan mín
„Vonandi verður veturinn bara góður.
Vonandi rætist úr kreppuástandinu og
þetta verður allt gott á endanum.
Þarna niðri í Stjórnarráði verða þeir þó
að fara að gera eitthvað.“
JAkoB ingimundArson
27 ÁRa StaRFSMaðuR
SkÁtaMiðStöðVaRiNNaR Í ÁRBæNuM
maður Dagsins
Nú detta hrunamyndirnar yfir okkur
ein af annarri, og er ekki að undra.
Undanfarna áratugi hafa sagnfræð-
ingar og listamenn þurft að sækja
ansi langt aftur til þess að finna sög-
ur af umbrotatímum í lífi þjóðar-
innar. Nú þarf ekki að líta lengra aft-
ur en nokkra mánuði (eða kannski
klukkutíma, ef því er að skipta).
Guðni Th. Jóhannesson hefur
orðið nokkurs konar opinber sagn-
fræðingur hrunsins, og er bók hans
Hrunið helsta heimildin enn sem
komið er um titilatburðinn. Ríkis-
sjónvarpið sýnir nú þætti sem eru
byggðir á bókinni. Ásakanir Davíðs
og Jóns Ásgeirs ganga hér á víxl og
það er ógnvekjandi að átta sig á því
að örlög þjóðarinnar voru í höndum
tveggja manna sem lögðu fæð hvor
á annan. Hvort yfirtaka Glitnis var
skynsamleg eða ekki er ómögulegt
að segja. Ljóst er að hún hafði ekki
þau áhrif sem vonast var eftir, í stað
þess að koma í veg fyrir hrun banka-
kerfisins fylgdi það hrun í kjölfarið.
Á hinn bóginn þurfti að binda enda
á vitleysuna í bankakerfinu, en það
hefði þurft að gera mikið fyrr.
Sá sem kemur þó verst út úr þátt-
unum er Geir Haarde. Hann virð-
ist haldinn nánast sjúklegri þörf til
þess að segja ósatt, og það er kóm-
ískt þegar hann lýsir því yfir trekk í
trekk að miðnæturfundir með helstu
frammámönnum viðskiptalífsins
kvöld eftir kvöld séu „ósköp eðli-
legir“. Haarde virðist koma kjána-
legastur út úr hruninu og opnunar-
skot myndarinnar Guð blessi Ísland
festir það álit í sessi. Ekki þarf meira
til en bros Geirs í upphafi myndar
til þess að allur salurinn fari að
hlæja.
guð hjálpi þér
Þar fyrir utan mistekst mynd-
inni að segja mikið um hrun-
ið. Fylgst er með einni löggu
og tveimur mótmælendum við
dagleg störf, á milli þess
sem sýndar eru
fréttamyndir frá
mótmælunum.
Vissulega er gam-
an að sjá bylting-
una í bíó, en hún
virkar best sem
póstkort fyrir þá
sem þar voru
viðstaddir.
Helsti feill
hennar er þó
sá að það tekst
að tala við
bæði Björgólf
Thor og Jón
Ásgeir, en það
virðist mistak-
ast að spyrja þá
að nokkru sem
máli skiptir. Í
staðinn eru lang-
ar senur af þeim
þar sem þeir vita
greinilega ekki að
myndavélin er í gangi. Þetta er æði
vafasöm tækni, ekki fyrst og fremst
vegna þess að hún er ósanngjörn,
heldur vegna þess að henni tekst
ekki að draga neitt fram.
Það er undarlegt að þó að flest-
ir helstu arkitektar hrunsins hafi
mætt í viðtöl undarfarin ár hefur lít-
ið komið í ljós. Agli Helgasyni tókst
að minnsta kosti að búa til
gott sjónvarp þegar hann
skammaði Jón Ásgeir,
en Kristni Hrafnssyni
mistókst að fá nokkuð
af viti upp úr Bjögga
Thor. Sigmar í Kast-
ljósinu stökk á smjör-
klípuna þegar Dav-
íð sagðist
ekki
ætla að borga skuldir óreiðumanna.
Sigmar setti það fyrir sig að hann
kallaði þá óreiðumenn, en merg-
urinn málsins var þó sá að seðla-
bankastjóri ábyrgðist ekki skuldir
við útlendinga. Fáir voru jafnmikið
í fjölmiðlum og Geir Haarde, en það
þurfti þó ekki nema nokkrar mínút-
ur á HardTalk til að í ljós kæmi að
keisarinn var ekki í neinum fötum.
gröfukallinn og lyftarakallinn
Myndinni Guð blessi Ísland tekst
þó hið nánast ómögulega, að láta
mann fá nokkra samúð með Jóni
Ásgeiri. Í raun virðast þeir ansi lík-
ir, gamli gröfumaðurinn Sturla Jóns-
son og gamli lyftarakarlinn Jón Ás-
geir. Eini munurinn á þeim tveimur
var að annar fékk sinn eigin banka,
hinn ekki. Hefðu þeir skipt um
stöðu hefðu báðir hegðað sér eins.
Erfiðara er að finna nokkuð mann-
legt í Björgólfi Thor.
Besta myndin um hrunið enn
sem komið er mun vera Decod-
ing Iceland, sem sýnd var á kvik-
myndahátíð. Myndin fer vissulega
um víðan völl, allt frá landnámi til
byltingar, en líklega er besta leiðin
til að útskýra þetta einmitt að fylgj-
ast með einu fyrirtæki. Decode-æv-
intýrið var upphafið að og um leið
táknrænt fyrir hinn nýja efnahag
Íslands. Bæði myndinni og þátt-
unum um hrunið tekst það sem
íslenskum fjölmiðlum mistekst
oft, að setja hlutina í stærra
samhengi. Það er það, og
ekki skúbbin, sem gerir
góðan miðil.
Sagan um hrunið
mynDin
Fjör á Airwaves Norska hljómsveitin 22 var með fyrstu erlendu listamönnunum til að troða upp á airwaves í ár. Hún spilaði fyrir fullu húsi á tónleikastaðnum Sódómu.
mynd kristinn mAgnússon
kjallari
umræða 16. október 2009 föstudagur 25
VAlur
gunnArsson
rithöfundur skrifar
„Hann virðist
haldinn nánast
sjúklegri þörf
til þess að segja
ósatt.“