Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2009, Síða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2009, Síða 33
helgarblað 16. október 2009 föstudagur 33 „Maður má aldei gefast upp og við misstum aldrei vonina. Ekki heldur þegar læknar sögðu að hún ætti að- eins nokkra mánuði eftir,“ segir Ás- laug Ósk Hinriksdóttir, móðir sjö ára hetjunnar Þuríðar Örnu. Í desember árið 2006 hrundi veröld Áslaugar og eiginmanns hennar, Óskars Arnar Guðbrandssonar, þegar þeim var til- kynnt að heilaæxli í fimm ára dótt- ur þeirra væri nú illkynja og að ekk- ert væri hægt að gera til að bjarga lífi hennar. Áslaug og Óskar neituðu að gefast upp og báðu um kraftaverk. Í dag er Þuríður Arna byrjuð í öðrum bekk og byrjuð að læra að lesa og hefur skjótur bati hennar komið öll- um í opna skjöldu. Engar líkur á bata Þrátt fyrir ungan aldur á Þuríður langa veikindasögu að baki en þeg- ar hún var aðeins tveggja ára fór hún að fá krampaköst. „Læknarnir töldu að um störuflog væri að ræða sem myndi eldast af henni en kramparn- ir urðu meiri og fleiri svo hún varð að ganga með hjálm því hún hrundi bara niður,“ segir móðir hennar þegar hún rifjar upp upphafi veikindanna. Í október 2004, þegar Þuríður var tveggja og hálfs árs, var hún greind með illvíga flogaveiki og góðkynja heilaæxli. Ári seinna var hún send til Boston í uppskurð en ekki reyndist hægt að ná öllu æxlinu í burtu. Árið 2006 byrjaði hún í lyfjameðferð en síðar sama ár greindust breytingar í æxlinu svo lyfjameðferðin var hert. Um haustið, þegar Þuríður var að fá um 50 krampa á dag og orðin lömuð öðrum megin, kom í ljós að æxlið var orðið illkynja. Þá var hún látin hætta meðferð því læknar töldu engar líkur á bata. „Þetta var auðvitað mikið áfall og við vorum dofin í viku en ákváð- um síðan að halda áfram að berjast. Við neituðum að gefast upp enda höfðum við barist í tvö ár og ætluð- um ekki að hætta núna. Við gátum ekki hugsað okkur lífið án Þuríðar. Hún átti bara að lagast. Við fengum læknana okkar til að senda tölvupóst til Boston og í sameiningu var ákveð- ið að reyna tvær geislameðferðir.“ Læknarnir vildu ekki að Áslaug og Óskar gerðu sér of miklar von- ir og sögðu að í besta falli myndu þau fá lengri tíma með dóttur sinni. Hins vegar, rúmum tveimur mánuð- um eftir fyrri geislameðferðina, fór krömpunum fækkandi þar til þeir hættu alveg auk þess sem lömunin hefur lagast mikið. „Þetta er sann- kallað kraftaverk og læknarnir eru alltaf jafnhissa þegar þeir hitta hana enda sést munur á henni frá degi til dags. Baráttunni er þó fjarri því lok- ið því æxlið er þarna ennþá, þótt það fari minnkandi. Læknarnir telja að það hverfi aldrei alveg en þeir sögðu líka að við myndum missa hana,“ segir Áslaug Ósk jákvæð að vanda. Veikindin reyna á hjónabandið Þuríður er elsta barn þeirra Áslaug- ar og Óskars af fjórum. Oddný Erla er næstelst en hún er fimm ára, Theo- dór Ingi 3 ára og Hinrik aðeins tíu mánaða. Áslaug segist oft hafa upp- lifað samviskubit vegna hinna barn- anna þegar þau hjónin hafi þurft að dvelja langtímum saman á sjúkra- húsi með Þuríði. Veikindin hafi einn- ig valdið miklu álagi á hjónabandið en þau Óskar hafi staðið keik í gegn- um allt saman. „Við erum heppin að fólkið í kringum okkur hefur hjálp- að okkur mikið og til dæmis boð- ið Þuríði til sín eða hinum börnun- um. Oddný Erla er bara fimm ára en hefur þurft að þroskast ansi hratt en við tvær erum farnar að taka frá mömmudaga. Þá tekur hún sér frí í leikskólanum svo við getum eytt deginum tvær einar,“ segir Áslaug. „Þetta hefur líka reynt á hjónaband- ið en álagið hefur frekar styrkt okkur en hitt. Við erum meðvituð um að við verðum standa saman og pöss- um upp á að gera eitthvað fyrir okkur tvö sem hjón og þá koma ömmurn- ar, afarnir, frænkur og frændur sterk inn. Lífið heldur nefnilega áfram þrátt fyrir krabbamein,“ segir hún og bætir við að mánuði eftir að þau hafi fengið þær fréttir að Þuríður ætti stuttan tíma ólifaðan hafi þau hjónin keypt sólarlandaferð handa allri fjöl- skyldunni. „Við fengum þessar erfiðu fréttir í október og keyptum eftir það þessa ferð fyrir okkur öll í nóvember ári síðar. Við vorum þannig ákveðin í að halda áfram með lífið í stað þess að loka okkur inni og bíða þess sem verða skyldi. Ferðin var yndisleg því þó að Þuríður hafi verið mjög veik allan tímann sköpuðum við okkur þarna ómetanlegar minningar. Það hefur líka alltaf hjálpað okkur að hafa eitthvað til að hlakka til.“ Peningar ekki mikilvægastir Áslaug segist hafa leitað í trúna í erf- iðleikunum og að hún hafi fundið styrk í guði þótt hún hafi einnig ver- ið honum reið. Kletturinn hennar hafi hins vegar verið eiginmaðurinn. „Það er algengt að foreldrar í okkar stöðu skilji en við vissum að við yrð- um að vera til staðar og það heil svo okkur fannst mikilvægt að gleyma okkur ekki. Hann hefur verið til stað- ar fyrir mig þegar ég hef átt erfitt því skiljanlega fylgja veikindum barns- ins manns grátur og erfiðar stund- ir og ég hef líka verið til staðar fyr- ir hann. Það skilur enginn hvað við erum að ganga í gegnum nema þeir sem hafa verið í þessari stöðu og því finnst mér mikill styrkur að ræða við mæður sem hafa lent í svipaðri lífs- reynslu.“ Áslaug hefur bloggað um veik- indi dóttur sinnar en bloggið hef- ur um árabil verið eitt mest lesna blogg landsins. Hún segir bloggið hafa hjálpað sér að vinna úr reynsl- unni þar sem hún sé feimin og lokuð manneskja að eðlisfari. Bloggið hafi einnig hjálpað henni við að fá útrás enda hefur ekki lítið verið lagt á þessa ungu móður. „Allur hugsunarháttur manns breytist þegar barnið manns liggur fyrir dauðanum og í dag veit ég að það er ekkert sjálfsagt. Þetta eiga allir að vita en samt lítum við á börnin okkar og lífið sjálft sem sjálf- sagðan hlut,“ segir Áslaug og bætir við að hún reyni að komast hjá því að hlusta á niðurdrepandi umræðu um erfiðan efnahag þjóðarinnar. „Ég verð rosalega pirruð á fólki sem er síkvartandi yfir efnahagsástandinu. Auðvitað finnum við öll fyrir því sem gerst hefur í bankakerfinu en það er annað og meira mikilvægara en pen- ingar í þessum heimi.“ Kraftaverkin gerast Áslaug segist alltaf hafa trúað á kraftaverk. Hana hafi hins vegar skort sannanir um að slíkt væri til og er þess vegna tilbúin til að deila sinni sögu til að gefa öðrum foreldrum veikra barna von. „Kraftaverkin ger- ast og baráttunni lýkur aldrei. Þuríði gengur ótrúlega vel í dag þótt hún sé ekki með þroska á við sjö ára barn vegna allra þessara lyfja sem hún hefur tekið. Hún er hamingjusöm og það skiptir mestu,“ segir Áslaug og bætir við að Þuríður hafi ótrúlega sterkan vilja. „Hún kann stafina og var að fá sína fyrstu lestrarbók sem er mikið afrek. Hún er svo spennt og full af lærdómsvilja. Hún hefur alltaf verið viljasterk og jafnvel þegar hún var sem veikust ætlaði hún sér svo margt. Framfarir hennar eru ótrú- legar og það er frábært að fylgjast með henni,“ segir Áslaug og bætir við að Oddný og Þuríður séu miklar vin- konur. „Oddný Erla er farin að lesa og því vill Þuríður ólm læra það líka. Þær eru í rauninni eins og tvíburar og eru vængbrotnar þegar hin er ekki heima,“ segir hún og bætir við að litla systir sé ekki síður stolt af framförum Þuríðar en foreldrarnir. Óttinn hverfur aldrei Áslaug og Óskar reka stórt heimili í Norðlingaholtinu og hafa í nógu að snúast með að keyra börnin á æfing- ar, sinna vinnu og námi. Þau kunna vel að meta grámyglu hversdagsins og eru þakklát fyrir hvern dag sem fjölskyldan á saman. Aðspurð segir hún óttann aldrei fjarri enda er Þur- íður ennþá veik. „Ég held að ég geti talað fyrir hönd allra foreldra sem hafa átt veik börn þegar ég segi að óttinn hverfi aldrei alveg og ef Þuríð- ur verður lasin í nokkra daga er hug- urinn fljótur að fara af stað. Ég vildi óska að ég gæti verið veik í henn- ar stað og skil ekki af hverju svona þungar byrðar eru lagðar á svona litla stelpu. Samt tekst okkur að horfa bjartsýn fram á við og við skipuleggj- um fram í tímann. Við erum meðvit- uð um að allt getur gerst og ég hugsa ekki lengur að það komi ekkert fyrir mig. Ég get alveg lent í einhverju eins og hver annar. Ég er samt ekki að velta mér upp úr slíku. Í dag er Þuríð- ur hamingjusöm og þá erum við það líka.“ indiana@dv.is Fallegar mæðgur Þuríður er elsta barn foreldra sinna af fjórum. DV MYND KristiNN MagNússoN „Þetta er sannkallað kraftaverk og læknarnir eru alltaf jafnhissa þegar þeir hitta hana enda sést munur á henni frá degi til dags.“ „Allur hugsunarháttur manns breytist þegar barnið manns liggur fyrir dauðanum og í dag veit ég að það er ekkert sjálfsagt.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.