Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2009, Qupperneq 35

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2009, Qupperneq 35
helgarblað 16. október 2009 föstudagur 35 „Hún reyndi að vara mig við því hvað það myndi þýða ef mér gengi vel í þessum keppnum en ég hef í raun ekki áttað mig á því fyrr en núna hvað hún átti við,“ segir Unn- ur Birna Vilhjálmsdóttir, ein vinsæl- asta fegurðardrottning Íslands fyrr og síðar, meistaranemi í lögfræði og leikkona. Unnur hefur verið mikið í sviðs- ljósinu frá því hún sigraði í keppn- inni Ungfrú Ísland árið 2005 og var svo krýnd ungfrú heimur í desem- ber sama ár. Sviðsljósið hefur einn- ig skinið skært á einkalíf Unnar og reyndi það mikið á hana á sínum tíma. Hún segist reynslunni ríkari og ætlar framvegis að halda ásta- málunum út af fyrir sig. Unnur er á fljúgandi siglingu í meistaranámi í lögfræði við Há- skólann í Reykjavík og hefur mestan áhuga á alþjóðlegri lögfræði. Hún er ein af aðalleikurunum í nýjustu mynd Ladda sem hún segir hafa verið súrrealískt að vinna með eft- ir að hafa verið aðdáandi hans frá unga aldri. Almenningseign „Þegar ég ákvað að fara í Ungfrú Reykjavík var hún á móti því,“ held- ur Unnur áfram um ráðleggingar móður sinnar sem talaði af reynslu eftir að hafa verið krýnd ungfrú Ís- land árið 1983. „Mamma reyndi að útskýra fyrir mér af hverju en ég gaf lítið fyrir það á þeim tíma. Hún sagði að ef mér gengi vel í keppninni og ég myndi vinna væri ég orðin viss „almenningseign“ og með því gefa fólki innsýn í líf mitt eða aðgang hvort sem viðraði vel eða illa.“ Unnur segist í dag hafa áttað sig á því að þetta voru orð að sönnu. „Athyglin er ekki bara á manni þeg- ar það gengur vel heldur líka þeg- ar gengur illa og lífið er nú þannig að það skiptast á skin og skúrir. Það er ekki eintómur dans á rósum og fólk hefur ekki síst áhuga á því þeg- ar gengur illa. Mamma hefur verið þjóðþekkt andlit frá því hún var tví- tug og þekkir þetta því vel.“ Unnur segir móður sína skilj- anlega hafa viljað vernda hana en hún hafi þó ekki viljað standa í vegi hennar. „Ég var mjög ákveðin, með mínar forsendur og ákvað að gera þetta samt. Kannski líka einmitt út af því að hún vildi ekki að ég tæki þátt.“ Sviðsljósið aldrei langt undan Unnur Birna áttaði sig enn betur á því hvað móðir hennar átti við þegar hún eignaðist barn fyrir stuttu. „Orð- in 44 ára gömul og 24 ár frá því hún var ungfrú Ísland. Samt var hringt í alla fjölskyldumeðlimi nánast dag- lega í þrjá mánuði til þess að fá það staðfest að hún bæri barn und- ir belti. Það var algjör hasarblaða- mennska í kringum þetta og þar áttaði ég mig enn betur á því að ef þú ert einu sinni orðin almennings- eign, þá verður þú það um ókomna tíð. Auðvitað getur maður reynt að fljúga undir radarnum og svona en þetta mun alltaf endurtaka sig. Þeg- ar maður giftir sig, eignast börn og svo framvegis. Stórir viðburðir í lífi manns verða í sviðsljósinu.“ Unnur tekur þó fram að hún átti sig vel á að þetta sé hluti af því að vera í sviðsljósinu og sé fórn sem fylgi því að taka þátt í fegurðarsam- keppnum, vera kynnir í sjónvarps- þáttum og leika í kvikmyndum. „Ég átta mig vel á þessu og þetta er eitt- hvað sem ég sætti mig við en þetta var mér að sjálfsögðu ekki efst í huga þegar ég var 21 árs gömul og tók ákvörðun um að taka þátt í Ung- frú Reykjavík.“ Tók þátt fyrir ömmu Áður en Unnur Birna tók þátt í Ung- frú Reykjavík hafði hún hafnað boði aðstandenda fegurðarsamkeppna um að taka þátt frá því hún var 18 ára. „Ég ætlaði aldrei að taka þátt í fegurðarsamkeppni. En svo ákvað ég á endanum að slá til. Mig lang- aði ekki síst til þess að gera þetta í minningu ömmu gull, eins og hún var alltaf kölluð, sem við misstum í janúar 2005.“ Amma Unnar í móðurætt, Jór- unn Karlsdóttir, var kjólameistari og saumaði kjóla fyrir fegurðar- samkeppnir um áraraðir. „Amma hafði saumað hundruð kjóla í þess- ar keppnir í gegnum tíðina og ég man vel eftir þessum feiknaskvís- um sem voru alltaf að koma heim til ömmu að máta og svona. Hún var mjög náin okkur fjölskyldunni og bjó meðal annars hjá okkur uppi í Árbæ síðustu árin áður en hún fór. Í gegnum tíðina sat ég oft hjá henni og fylgdist með þegar hún var að sauma og fór stundum með henni á keppnirnar. Hún lifði og hrærðist í þessum fegurðarsamkeppnaheimi og hafði ótrúlega gaman af brans- anum.“ Unnur hafði einnig fengið tölu- verða innsýn í heim fegurðarsam- keppna í gegnum móður sína. „Mamma var stundum kynnir á keppnunum eða dómari og ég fékk oft að fara með sem krakki. Þannig að þetta var ekkert fjarlægt fyrir mér.“ Sópaði að sér titlum Unnur segir það hafa verið ótrú- lega skemmtilega lífsreynslu að taka þátt í keppninni Ungfrú Reykjavík. „Það hljómar kannski eins og klisja en það var bara ótrúlega gaman hjá okkur. Þetta var spennandi, hóp- urinn góður og mjög jákvætt and- rúmsloft.“ Unnur hafði litlar vænt- ingar fyrir þá keppni og sigurinn kom henni mjög á óvart. „Ég var ótrúlega sjokkeruð yfir sigrinum og þetta var allt mjög framandi.“ Allt annað andrúmsloft var svo í keppninni Ungfrú Ísland. „Þá komu stelpur utan af landi og hópurinn breyttist mikið. Það var bara alls ekki jafn gaman. Maður fann fyr- ir miklu meiri samkeppni. Þá voru stelpur að koma úr öðrum keppn- um og höfðu raðast niður í einhver sæti. Þannig að það vissu allir hverj- ar þóttu líklegastar. Það var enginn mórall eða neitt þannig en maður fann bara að þetta var á öðrum for- sendum. Það var ekki sama barns- lega gleðin í kringum þetta og í Ung- frú Reykjavík.“ Svo kom að því að Unnur Birna vann keppnina Ungfrú Ísland og það með fádæma yfirburðum. Auk þess að vera valin fegursta kona landsins vann Unnur fimm aðra titla af átta mögulegum sem í boði voru. „Ég vil ekki hljóma vanþakk- lát, en mér leið bara hálfilla á svið- inu þegar ég fékk hvern borðann á fætur öðrum. Ja hérna, hvað þetta er hallærislegt, hugsaði ég, og eftir á að hyggja fannst mér það viss mis- tök hjá stjórnendum að dreifa titl- unum ekki betur. Reyndar voru það styrktaraðilar sem völdu sínar stúlk- ur og sín andlit líka. En það kom þeim heldur ekkert sérstaklega vel að vera allir með sama andlitið.“ Ævintýri í Kína Í lok árs 2005 hélt Unnur út til Kína til þess að taka þátt í keppninni Miss World, Ungfrú heimur. Eins og alþjóð veit bar Unnur þar sigur úr býtum og varð á einu augabragði heimsþekkt. „Þetta var bara ævin- týri. Það er eina orðið yfir þetta. Þeg- ar maður er 21 árs gamall er maður nú ekki búinn að ferðast mikið eða upplifa margt. Það var því ótrúlega spennandi að koma til Kína í fyrsta skipti.“ Dvölin í Kína var þó ekki eintóm sæla. Þvert á móti var mikil keyrsla og Unnur og keppinautar hennar voru sífellt í myndatökum, að taka þátt í tískusýningum eða sinna öðr- um verkefnum. „Síðustu eina og hálfa, tvær vikurnar var ég eigin- lega komin með nóg. Ég vildi bara komast heim. Það var mjög erf- itt að halda í gleðina og útgeislun- ina. Þegar manni leið sem verst tók maður þetta bara hálfpartinn á ein- hvers konar leiklist, hoppaði í hlut- verkið sem maður var beðinn um að leika,“ segir Unnur sem var dug- leg að leika í menntaskóla. „Svona á þetta að vera og ég bara geri þetta, hugsaði ég.“ Ekki þoldu þó allar stúlkurnar álagið. „Í þeim keppnum erlendis þar sem ég hef verið viðstödd hafa alltaf verið einhverjar sem brotna algjörlega niður og skríða einfald- lega heim vegna heimþrár. En þetta eru líka mikið til ungar stelpur sem hafa aldrei lent í öðru eins vinnu- álagi. En það er einmitt málið, með þessu brjálæði er verið að prófa mann til þess að finna út hver þolir þetta áreiti í heilt ár.“ Jákvætt taugaáfall Það er ekki margt sem Unnur Birna man frá úrslitakvöldi keppninnar. Kvöldið er í minningunni í einni gleðimóðu. „Hreinskilnislega sagt man ég ekki neitt eftir að ég var kom- in í topp 15. Ég bara var ekki þarna. Ótrúlega spes og ég hef aldrei lent í því áður. Ég hef séð þetta á myndum og á myndbandi en ég var ekki and- lega viðstödd þarna uppi á sviði.“ Unnur segir að þegar úrslitin voru kunngerð hafi henni liðið eins og hún hefði fengið einhvers kon- ar taugaáfall. „Jákvætt taugaáfall, ef það er til. En ég var líka svolít- ið hrædd. Maður vissi ekkert hvað myndi nú gerast. Okkur hafði ekk- ert verið sagt um það. Ég man að ég hugsaði að nú kæmist ég ekki heim strax,“ en Unnur óttaðist að missa af jólunum með fjölskyldu sinni. Það sem hjálpaði Unni í gegnum síðustu vikuna úti í Kína var að móð- ir hennar og stjúpi komu til að veita henni stuðning. „Ég mátti samt bara hitta þau einu sinni á dag en ég veit ekki hvort ég hefði haft þetta „leik- rit“ af ef mamma hefði ekki komið. Það var ótrúlegur styrkur bara að vita af henni á næsta hóteli og úti í sal á lokakvöldinu. Ein með íslenska fánann,“ segir Unnur og hlær þegar hún minnist þess. Eftir á að hyggja finnst Unni það nokkuð merkilegt að móðir henn- ar skyldi koma út og vera viðstödd keppnina. „Ferðalag til Kína er nátt- úrulega heljarinnar ferðalag og hægara sagt en gert að takast slíkt á hendur. Það að hún hafi ákveðið að koma var eftir á að hyggja greinilega „meant to be“ þar sem ég sigraði,“ en þótt móðir Unnar hafi varað hana við því sem fylgt gæti þátttöku í slík- um keppnum tengjast þær óneitan- lega í gegnum þær líka. Ekki síst í ljósi þess að Unnur var í kviði móð- ur sinnar þegar hún tók þátt í Ung- frú heimi 1984 fyrir Íslands hönd. Alltaf í viðbragðsstöðu Árið 2006 var viðburðaríkt í meira lagi hjá Unni Birnu. Hún gat varið jólunum með fjölskyldunni en strax í byrjun janúar var hún flogin út til London til að sinna sínu fyrsta verk- efni sem var myndataka með for- setafrúnni Dorrit Moussaieff. „Ég var með hótelherbergi í London sem ég átti bara allt árið. Geymdi dótið mitt þar jafnvel þótt ég væri ekki á staðnum. Það var fínt að hafa eitthvað svona út af fyrir sig fyrst maður eyddi svona miklum tíma þarna, en mér líkaði mjög vel við London, væri alveg til í að eyða tíma þar seinna meir.“ Unnur fékk að koma heim á milli verkefna en mátti þó ekki skuld- binda sig á neinn hátt því hún gat verið kölluð aftur út með litlum fyr- irvara. „Ég átti bara að vera til stað- ar. Mér fannst það erfitt. Ég er mjög skipulögð og það þarf allt að vera í bókunum. Það var líka erfitt að missa af afmælum, fermingum og öðru sem var að gerast hjá vinum og fjölskyldu.“ Það kom fyrir að Unnur fékk nóg af þessum þeytingi um allan heim. „Stundum nennti ég þessu eng- an veginn og fór út mjög pirruð en það hvarflaði samt aldrei annað að mér en að standa við mitt, gera mitt besta og auðvitað reyna að njóta.“ Tætt eftir árið Þrátt fyrir alla athyglina sem fylgdi því að vera ungfrú heimur tókst Unni vel að halda sig við jörðina. „Ég held að það tengist því mikið hvern- ig tekið er á svona hlutum hérna heima á Íslandi. Hérna sitja bara allir einhvern veginn við sama borð og stjörnudýrkun er nánast ekki til miðað við hvernig það er í sumum þessara landa sem ég heimsótti.“ Unnur segir að í mörgum lönd- um hafi henni hreinlega verið tek- ið eins og drottningu. „Sérstak- lega í Asíu og Suður-Ameríku. Það er liggur við merkilegra ef Miss World kemur til landsins en forseti Bandaríkjanna eða álíka þjóðhöfð- ingi. Í það minnsta upplifði ég það þannig.“ Þrátt fyrir alla athyglina sem Unnur fékk um allan heim þar sem milljónir manna börðu hana aug- um þótti henni einna vænst um það þegar 20.000 Íslendingar tóku á móti henni í Smáralindinni eftir að hún hafði unnið keppnina. „Það kom mér mjög á óvart. Hvað er þetta fólk að gera hérna, hugsaði ég. Þetta er svo ólíkt Íslendingum.“ Þótt Unnur hafi haldið sig við jörðina í gegnum þetta allt segir hún aðra þætti hafa farið á flakk. „Maður var auðvitað hálftættur eftir þetta. Það hafði verið togað í mann gjör- samlega úr öllum áttum.“ Lögfræðingurinn Unnur Birna Eftir að lífið varð rólegra hjá Unni fór hún að einbeita sér að því sem hún hefur mestan áhuga á, lögfræðinni. Hún er með BA-próf í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík og var að byrja í meistaranámi. „Ég á eitt og hálft ár eftir og svo ritgerð.“ Unnur segir engar sérstakar brautir í meist- aranáminu heldur sé sérhæfingin falin í þeim kúrsum sem hver nem- andi velur sér. „Ég fókusera svolítið á alþjóðalögfræðina og allar henn- ar myndir. Ég hef mikinn áhuga á þjóðréttarlegum skuldbindingum Íslands og Íslandi í alþjóðasamfé- laginu.“ Unnur fann það í gegnum grunn- námið í lögfræðinni hvar áhugi hennar lá. „Ég fann strax að ég hafði meiri áhuga á Evrópu- og þjóðar- rétti en til dæmis skatta- eða verð- bréfamarkaðsrétti.“ Unnur fylgdi svo þessum áhuga sínum eftir þegar hún sótti um vinnu hjá Varnarmála- stofnun í sumar. „Ég vann þar í fjóra mánuði og fannst það mjög spenn- andi. Þar var ég mikið að skoða al- þjóðasamninga og efni tengt NATO. Meistararitgerðin mín mun án efa tengjast þessu sviði.“ Langar til Bandaríkjanna Unnur er þegar farin að spá í næsta skref eftir að meistaranámi lýkur. Hugur hennar stefnir til Bandaríkj- anna þó að peningamál gætu sett strik í reikninginn. „Mig langar í svokallað LL.M-nám sem er auka- gráða við masterinn í lögfræði. Þetta er eins árs nám og mikil keyrsla. Mig langar að taka það í Bandaríkjunum en það er auðvitað mjög dýrt.“ Unnur ætlar að skoða alla mögu- leika hvað námið varðar. „Þetta er „Mamma varaði mig við“ „Hún sagði að ef mér gengi vel í keppninni og ég myndi vinna væri ég orð- in viss „almenningseign“ og með því gefa fólki innsýn í líf mitt eða aðgang hvort sem viðraði vel eða illa.“ „Ég vil ekki hljóma van- þakklát, en mér leið bara hálfilla á sviðinu þegar ég fékk hvern borðann á fætur öðr- um.“ Lögfræðingurinn Unnur Birna Leggur allt sitt í meistaranámið um þessar mundir. DV mynD SigTryggUr Ari JóhAnnSSon Unnur og Unnur Unnur Steinsson gekk með Unni Birnu þegar hún tók þátt í keppninni Ungfrú heimur árið 1984.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.