Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2009, Síða 45

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2009, Síða 45
helgarblað 16. október 2009 föstudagur 45 Kynlíf hefur ávallt leik-ið stórt hlutverk í sögu mannkyns, og í sögu allra lifandi dýra, enda lífsnauðsynlegt til viðhalds teg- undanna. Gjarna hefur verið velt vöngum um mun á kvenfólki og karlmönnum þegar kemur að kyn- lífi, en það er ekki ætlunin hér að kryfja þann mun til mergjar held- ur glugga í niðurstöður rannsókn- ar sálfræðinganna Cindy Meston og Davids Buss sem veltu fyrir sér spurningunni um hvers vegna kon- ur njóti kynlífs. Niðurstöður tvímenninganna hafa verið gefnar út í bókarformi, Why Women Have Sex, og sam- kvæmt niðurstöðunum liggja 237 ástæður að baki kynlífsiðkun kvenna. Djúpt á hinni frægu ást Til grundvallar niðurstaðna Mest- on og Buss liggja viðtöl við 1.006 konur alls staðar að úr heiminum og voru þær spurðar um hvatann að baki kynlífi sínu. Eins og gefur að skilja eru ástæð- urnar fjölmargar, af líkamlegum, tilfinningalegum og efnishyggju- legum toga. Að baki kynlífi kvenna liggur þörf viðkomandi til að öðl- ast meira sjálfstraust, halda í ást- menn sína, og óhugnanlegri ástæð- ur á borð við nauðgun eða þrýsting. Samkvæmt bókinni er hin fræga ást fjarri góðu gamni og í viðtali við Tönyu Gold hjá The Guardian sagði Cindy Meston að fólk hefði einung- is gefið sér að ást og líkamleg vellíð- an hefðu verið veigameiri þættir í kynlífsiðkun kvenna en raunin er. „Enginn hefir í raun talað um hvernig konur geta notað kyn- líf í margþættum tilgangi,“ sagði Cindy Meston, og nefnir sem dæmi stöðuhækkun, peninga, eiturlyf, vöruskipti, hefnd, til að ná sér niðri á sviksömum félaga. „Til að öðlast vellíðan, til að láta maka sínum líða illa.“ Antonio Banderas og George Clooney Að sögn Cindy Meston geta konur beitt kynlífi á öllum stigum sam- bands, allt frá því að „lokka hann [karlmanninn] inn í samband, til að halda honum þar, fullnægðum, svo hann fari ekki á flakk“, og svo get- ur hún notað kynlíf til að losna við hann eða gera hann afbrýðisaman. Cindy Meston sagðist aldrei hafa átt von á jafnmiklum fjölbreytileika, allt frá „sjálfsfórn til þess að jaðra við illsku. Að vilja vitandi vits smita einhvern af kynsjúkdómi“. En hvað kveikir í konum eða eins og segir í bókinni: „Af hverju hafa ásjónur Antonios Banderas og George Clooney áhrif á svo margar konur?“ Konur leita einhvers sem líffræðingar kalla „erfðafræðileg- ur ávinningur“, sem meðal annars miðar að því að eignast heilbrigð börn, en það þarf að vernda börnin og þá er horft til „framfærslutengds ávinnings“. Því kunna konur oft að meta karlmenn sem eiga stór hús. „Hægt er að lesa Jane Eyre sem ást- arbréf til stórs húss.“ Sæst á endurskoðendur Cindy Meston útskýrði fyrir Tönyu Gold af hverju konur giftust end- urskoðendum; ásættanleg skipti. Meston sagði að mönnum á borð við George Clooney hætti til að vera ótrúir því karlmenn hefðu önnur áform en konur – þeir vilja sæða fjöldann allan af heilbrigðum kon- um. Cindy Meston og David Buss kalla þessa karlmenn „áhættu- sækna, kvensama „slæma stráka““. Því fer svo að konur beiti hugs- anlega kynlífi til að landa lítt eftir- sóknarverðari feng, en þeim mun traustari. Hann mun ekki búa að sömu erfðrafræðilegu ávinningum, en framfærslutengdur ávinningur vegur upp á móti því, því hann mun sennilega ekki fara á flakk. Þetta út- skýrir hvers vegna konur giftast endurskoðendum, að sögn Meston – þeir fara hvergi. „Fjöldi kvenna í rannsóknum okkar sagðist bara vilja kynlíf vegna hreinnar líkamlegrar ánægju,“ sagði Cindy Meston við Gold, og það er ljóst að fullnæging kvenna er alls ekki léttvæg fundin því innan vébanda WHO, heilbrigðisstofnun- ar Sameinuðu þjóðanna, er sérstök nefnd tileinkuð málaflokknum; nefnd um fullnægingu kvenna. Rómantísk ást What’s love got to do with it?, söng Tina Turner fyrir margt löngu og ástin er önnur mikilvægasta ástæð- an fyrir kynlífi kvenna. „Rómantísk ást er efniviður yfir 1.000 laga sem seld eru á iTunes,“ segja Meston og Buss í bók sinni. Og slæmir hlutir henda ástlausa, í bókmenntum og raunveruleikanum. „Kleópatra tók inn snákseitur og Ófelía missti vit- ið og drekkti sér,“ sögðu sálfræðing- arnir. Konur segjast nota kynlíf til að tjá ást og fá ást og til að reyna að halda henni. Og hvað er ást? Samkvæmt nið- urstöðum Meston og Buss er ást einskonar „langtíma skuldbinding- ar samningur“ sem tryggir minni líkur á því að makinn yfirgefi þig ef þú missir fæturna eða eggjastokk- ana. Með tilliti til ástar er ljóst að víða í heiminum eyðir fólk tímanum til einskis því samkvæmt einni könn- un sem Meston og Buss vísa til eru 73 prósent rússneskra kvenna ást- fangnar, og 63 prósent japanskra kvenna. En aðeins 61 prósent rúss- neskra karlmanna eru ástfangn- ir og sömu sögu er að segja um 41 japanskra karlmanna. Samkvæmt þeim tölum eru 12 prósent rúss- neskra kvenna og 22 prósent jap- anskra kvenna að eyða tímanum í vitleysu. Köld eru kvennaráð „Það er ekki um auðugan garð að gresja með tilliti til eftirsóknar- verðra karla sem sitja og bíða eft- ir kvenfólki,“ sagði David Buss. „Stundum eru karlmenn, sem eru hátt metnir til mökunar, í sam- böndum, eða margir þeirra sækjast einfaldlega eftir skammtíma kyn- ferðislegum kynnum og vilja ekki skuldbindingu.“ Í slíkum tilfellum þurfa konur að „frelsa“ eftirsóknarverða karlmenn úr viðjum annarra kvenna. „Við gerumst veiðiþjófar“ og „keppumst við að persónugera það sem karlmenn vilja“. Samkvæmt bók Meston og Buss helgar tilgangur- inn meðalið og kon- ur „klæðast háhæl- uðum skóm, nota varalit til að fá karlmenn til að hugsa um kyn- færi kvenna, og við gerum út af við keppinaut- ana með róg- burði“. Um keppi- nautinn er sagt að hún sé „létt á bárunni“ og þar af leiðandi ekki eft- irsóknarverð til langs tíma í augum karlmanna, og síðan grípur slúðurberinn gæs- ina sjálf. Konur nota kynlíf einn- ig til að „gæta makans“, og lýtur það „nokkurs konar skyldu“. Henni er best lýst með orðum einnar konu sem Mest- on og Buss tóku viðtal við: „Oftast ligg ég bara þarna og bý til lista í huga mér. Ég styn einu sinni eða tvisvar svo hann viti að ég er vakandi, og síðan segi ég honum hvað þetta var stórkostlegt þegar það er búið. Við erum hamingjusamlega gift.“ Meðaumkun og áþreifanlegir hlutir „Konur eru, að stærstum hluta, þeir sem gefa sjúkum súpu, öldruðum smákökur og... kynlíf hinum ein- mana. „Ég var þreytt, en hann langaði,““ sagði einn viðmæl- enda Meston og Buss. Ekki má gleyma viðskiptaþætt- inum sem að sögn sálfræðing- anna þrífst jafnvel innan sam- banda og í eiginlegu vændi. Konur leita maka til að öðlast þá hluti sem hugurinn stendur til -„lyf, handtöskur, starf, lyf“. „Þáttur hag- fræðinnar sem hvata til kynlífs kom mér á óvart,“ sagði David Buss. „Konur gefa kynlíf svo karlmað- urinn slái flötina eða fari út með ruslið. Þú skiptir á máltíð og kyn- lífi,“ sagði Buss, og vitnaði í nokkra námsmenn í háskólanum í Michig- an, en 9 prósent þeirra höfðu „reynt að skipta á kynlífi og áþreifanlegum ávinningi“. Að lokum er vert að nefna kynlíf kvenna í læknisfræðilegum tilgangi því samkvæmt niðurstöðum Buss og Meston nota konur einnig kynlíf til að líða betur, eins og áður hefur komið fram, og til dæmis til að losna við mígrenið, en við kynmök losna endorfín úr læðingi, en þau slá á verki. Haft er fyrir satt að kynlíf slái einnig á tíðaverki. Og þar hafið þið ástæð- ur þess að kvenfólk stundar kynlíf, en vert er að hafa í huga orð Cindy Meston: „Eflaust er að finna þær fleiri.“ Ástin er aukaatriði Ást og kynlíf hafa alla jafna talist nátengd. Fjöldi kvikmynda, skáldsagna og laga fjalla um ástina, ástarsorgina, harminn og alsæluna sem tengjast ástinni. Sálfræðingarnir Cindy Meston og David Buss lögðu upp í leiðangur til að komast að ástæðum þess að konur stundi kynlíf, og vissulega kemur ást við sögu, en þó ekki í þeirri rómantísku mynd sem ætla mætti. Að sögn Cindy Meston geta konur beitt kynlífi á öllum stigum sambands, allt frá því að „lokka hann [karlmanninn] inn í sam- band, til að halda honum þar, fullnægðum...“ Maður og kona Kynlíf er notað til að „gæta makans“. MynD photoS.CoM herra- setur Jane Eyre er „ástarbréf til stórs húss“. MynD photoS.CoM „Áhættusækinn, kvensamur „slæmur strákur““ Konur sættast við lítteftirsóknar- verðari, en mun traustari feng, en mann á borð við George Clooney. MynD: wiKiMeDiA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.