Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2009, Page 50

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2009, Page 50
Hot jóga Nýjasta æðið á líkamsræktarstöðvunum hlýt- ur að vera hot jóga en heitt jóga er ákveðin samsetning af jógastöðum sem gerðar eru í upphituðum sal, helst við 37°C. Sporthúsið býður upp á nýjan og sérhannaðan sal sem er upphitaður til að æfingarnar gangi enn betur en einnig er að hægt að komast í heitt jóga í World Class í Laugum og á fleiri líkamsræktarstöðvum. Um að gera að prófa. „Áhersla verður á mittið og að það sé á „réttum“ stað sem þessa dagana er hátt uppi,“ segir Selma Ragnarsdóttir, klæð- skeri og kjólameistari, þegar hún er spurð út í haust- og vetr- artískuna. Selma segir aðsniðin snið og belti ýkja þessa háu línu. „Auk þess ýta axlapúðar enn meira undir x- línuna og verða þeir vin- sælir á næstunni,“ segir hún og bætir við að litirnir verði frekar dökkir í vetur. „Litirnir verða frek- ar drungalegir en þó popp- aðir upp með skemmti- legum litum í fylgihlutum eins og beltum, hönskum og stórum skartgripum. „Grunge“-útlitið er að koma sterkt inn aftur en núna er það meira í bland við kvenleika og því kynþokkafyllra en þegar það var „in the 90’s“. Dýrk- un á poppkónginum Michael Jack- son heitnum mun einnig hafa áhrif á tískuna næstu misseri með pallí- ettum og semelíusteinum í fatnaði. Og ég er nokkuð viss um að sjá bæði stelpur og stráka sem þora í aðeins of stuttum buxum við niðurkrumpaða hvíta sokka. Og í glansskóm við.“ indiana@dv.is Segir að Michael Jackson muni hafa áhrif á tískuna næstu misserin. axlapúðar og krumpaðir sokkar UmSjóN: iNdíaNa áSa hreiNSdóttir, indiana@dv.is Búðu til fyrsta grautinn Á vefnum www.cafesigrun.com má finna alls kyns hollar og spennandi uppskriftir. Þar má meðal annars finna einfalda uppskrift að fyrsta graut barnsins, hrís- mjölsgrautnum. Í hann þarf 1 dl kalt vatn, 1 tsk. lífrænt hrísmjöl, eða maísmjöl, fyrir ungbörn og þurrmjólkurduft sem svarar til 1 dl af vatni eða móðurmjólk. Setja á vatnið og mjölið í pott, láta suð- una koma upp og hræra í á með- an. Láta grautinn malla í tvær mínútur en taka svo af hitan- um og bæta mjólkurduftinu eða móðurmjólkinni út í. Ekki hita grautinn upp aftur. Hugo Þórisson sálfræðingur segir að foreldrar verði að ræða um ástandið við börn sín með jákvæðni að leiðarljósi, alveg sama hversu svart ástandið þyki. Börnin verði að vita að fjölskyldan eigi eftir að spjara sig og sjá bjartari tíma. Hugo segir enn fremur að foreldrar verði að muna að hlusta á börnin sín til að vita hvernig þeim líður. 50 föstudagur 16. október 2009 lífsstíll Munstur gefur BörnuM öryggi Smíðum allar gerðir lykla , smíðum og forritum bíllykla. Verslun og verkstæði Grensásvegi 16 Sími: 511 5858 l Húsbóndinn sér oft um að grilla og þótt grillið sé lítið notað yfir jólin gæti flottur grillbún- aður sleg- ið í gegn hjá þeim gamla. Úrvalið er endalaust þegar kemur að fylgi- búnaði grilla. l Flottur, góður penni er eilífð- areign. l Pabbar þurfa líka ný náttföt á jólunum. Gefðu honum þægileg, góð náttföt sem hann getur klæðst á með- an hann les jóla- bækurnar og borðar konfektið. l Ermahnappar klikka aldrei. l Pabbar vilja líka hafa það gott í góða veðr- inu á sumrin en margir þeirra eru lítið fyrir að leggjast í grasið. Gefðu honum sterkt hengirúm svo hann geti hvílt sig og lesið blöðin úti í garði. sniðugar jólagjafir handa paBBa „Við verðum að reyna að hlífa yngri börnum við neikvæðum fréttum,“ seg- ir Hugo Þórisson sálfræðingur og bætir við að foreldrar geti betur stjórnað um- hverfi þeirra minnstu á meðan eldri börn og unglingar geti auðveldlega nálgast upplýsingar hvort sem það er á netinu eða annarstaðar. Hugo segir mikilvægt að ungum börnum sé hlíft við bæði neikvæðum fréttum og nei- kvæðri umræðu í fjölskyldunni. „Í rauninni ætti að reyna að gefa þeim þær upplýsingar sem þau þurfa til að geta skilið það sem er að gerast í kringum þau og í þeirra fjölskyldu og ekki meir en þörf er á. Í dag eru mjög margar fjölskyldur í vandræðum, bæði vegna fjárhagserfiðleika og/eða skorts á atvinnu. Tíðin er dýr sama hvert lit- ið er og því þarf að útskýra fyrir börn- unum að nú þurfi fjölskyldan að passa betur upp á peningana sína.“ Hugo segir mikilvægt að foreldrar hafi jákvæðni að leiðarljósi í umræðu við börnin. „Það er alveg sama hversu svart ástandið þykir, við verðum að gera börnunum grein fyrir að ástandið eigi eftir að batna, að fjölskyldan eigi eftir að spjara sig og geta séð bjartari tíma,“ segir hann og bætir við í þriðja lagi að foreldrar og aðrir sem vinna með börn- um verði að vera vel á verði og hlusta eftir því hvernig börnunum líði. „Þetta er lykilatriði sem ég pred- ika ekki nógu oft. Við verðum að vita hvernig börnunum okkar líður og hvað þau eru að hugsa og það gerum við með því að hlusta á þau. Fullorðið fólk á það nefnilega til að gleyma að hlusta þegar það ræðir við börn til að geta hjálpað.“ Hugo segir enn fremur að stress, álag, reiði og öryggisleysi okkar full- orðnu skapi vanlíðan hjá börnunum. „Þegar börnum líður illa eiga þau erf- iðara með að stjórna hegðun og verða það sem við köllum óþekk. Börnin geta hins vegar verið einkennisberar fyrir þjóðfélagið og við verðum að skilja að þau eru að sýna einkenni vegna álags- ins í þjóðfélaginu. Við verðum að hlusta til að skilja til að geta hjálpað þeim.“ Þegar Hugo er beðinn um einfalt ráð fyrir fjölskyldur segir hann reglu- legan samverutíma nauðsynlegan. „Ég hef alltaf haft trú á því að fastir fjölskyldutímar eins og til dæmis kósí- kvöld séu afar góðir fyrir börn. Börn- um finnst gott að hafa einhvern ákveð- inn viðburð hvort sem það er daglega, vikulega eða mánaðarlega og það er um að gera að halda rútínunni gang- andi og jafnvel gefa þessum stundum enn meira vægi því munstur gefur mik- ið öryggi.“ indiana@dv.is Hugo Þórisson sálfræðingur „Ég hef alltaf haft trú á því að fastir fjölskyldutímar eins og til dæmis kósíkvöld séu afar góðir fyrir börn.“ Poppkóngur „Og ég er nokkuð viss um að sjá bæði stelpur og stráka sem þora í aðeins of stuttum buxum við niðurkrump- aða hvíta sokka. Og í glansskóm við,“ segir Selma. Selma Ragnarsdóttir Selma segir að „grunge“-útlitið sé að koma sterkt inn aftur en að í þetta skiptið verði það í bland við meiri kvenleika.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.