Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.2009, Síða 10
10 mánudagur 2. nóvember 2009 fréttir
Á höfuðborgarsvæðinu eru nokk-
ur íbúðahverfi sem eru nærri því án
íbúa. Í Helgafellshverfinu í Mosfells-
bæ eru nokkrir íbúar. Enginn er flutt-
ur inn í Urriðaholt og ekki heldur í
Reynisvatnsás. Hins vegar er aðeins
farið að glæðast lífið í Úlfarsárdal,
þar sem ljós sjást loga á kvöldin. Fjöl-
mörg glæsileg hús standa enn fremur
í Leirvogstungu í Mosfellsbæ. Hverf-
in áttu að vera fullbúin á þessu ári, en
standa ýmist tóm eða óbyggð.
Hæstánægður í fámenninu
„Þetta er algjör snilld. Maður er í sveit
með útsýnið, kyrrðina og allt saman,“
segir Kristinn Páll Ingvarsson, íbúi í
blokk við Gerplustræti í Helgafells-
hverfinu í Mosfellsbæ. Kristinn býr,
ásamt konu sinni, í einni af þeim átta
íbúðum sem búið er í, í einu blokk-
inni sem risin er í hverfinu. Í blokk-
inni sem þau búa í standa 16 auðar
íbúðir, en Kristinn segir að til viðbót-
ar séu komin upp nokkur einbýlishús
og parhús í hverfinu, en ekki hafi enn
verið flutt inn í þau. „Það eru komnir
grunnar fyrir fjórar blokkir sem á nú
að fylla aftur upp í. Við fluttum inn
fyrir tveimur árum, þá talaði konan
mín við bæjarfélagið og benti á slysa-
hættuna af þessu,“ segir hann.
Kristinn er ánægður í hverfinu og
segist hafa búist við því að fáir íbú-
ar yrðu þar fyrstu árin. „Þetta voru
makaskipti hjá okkur. Við fluttum inn
rétt eftir hrunið og við gerðum okk-
ur fulla grein fyrir því að þetta yrði
svona,“ segir Kristinn.
Eitt barn
Kristinn segir að aðeins eitt barn,
drengur á grunnskólaaldri, búi í
blokkinni og þar með í öllu næsta
nágrenni. „Það er ekki nógu gott. Það
er erfitt að hafa ofan af fyrir honum,
en fyrir okkur er þetta gott. Við erum
með hesthús í Mosfellsbæ og erum
nálægt því.“
Hann segir að vissulega sé óaðlað-
andi fyrir barnafólk að koma í hverf-
ið og sjá opinn grunn og fullt af vél-
um. „Ef þeir fylla upp í þessa grunna
er þetta ekkert draugahverfi. Það eru
ýmis hús komin hér upp, þótt það sé
ekki enn farið að búa í þeim. Þetta er
ekki eins og í mörgum hverfum, þar
sem allt er fullt af ljósastaurum og
tómum húsgrunnum.“
Aðspurður hvernig Mosfellsbær
hafi staðið sig í þjónustu við íbúana
í Helgafellshverfi svarar Kristinn:
„Það á eftir að koma í ljós. Á með-
an skólinn er í hverfinu munu þeir
skafa snjóinn, en mér skilst að Mogg-
inn komi alltaf daginn eftir útkomu-
dag, þó að pósturinn komi daglega.
Fréttablaðið verður maður hins veg-
ar að sækja niður á bensínstöð.“
Enginn fluttur í Urriðaholt
Í Urriðaholti í Garðabæ er aðeins
eitt parhús risið, en þar að auki eru
örfá einbýlishús í byggingu. Eng-
inn er hins vegar fluttur í hverfið
ennþá. Við Kinnargötu 2-5 er par-
hús komið á sölu, en bygginga-
verktakinn, Hjörtur Jóhannsson,
segir að ekki hafi verið mikill áhugi
fyrir húsinu. Sölusýning var hald-
in nýlega og komu sjö manns að
skoða. Metnaðarfullar áætlanir eru
hins vegar uppi um uppbyggingu í
hverfinu, sem á að verða sérstak-
lega glæsilegt. Til stóð að kennsla
hæfist í grunnskólanum í Urriða-
holti í haust, en ljóst er að þau
áform tefjast um sinn.
Um áramótin er þó von á fyrstu
íbúum í Urriðaholti, þar sem ein
fjölskylda hyggst nema þar land.
Meðal fleiri landnema í Urriða-
holti er knattspyrnumaðurinn Emil
Hallferðsson, sem er að byggja ein-
býlishús í hverfinu.
Hjörtur segir hins vegar ekkert
því til fyrirstöðu að flytja í hverfið.
Næsta vor verður malbikað þarna
og búið er að leggja allar lagnir fyr-
ir hitaveitu og rafmagn.
valGEIR ÖRN RaGNaRSSON
blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is
ÍBÚÐAHVERFI ÁN ÍBÚA
Kristinn Páll Ingvarsson, einn af fyrstu íbúum í Helgafellshverfi er hæstánægður með
að búa í hverfinu, jafnvel þótt sárafáir séu fluttir inn og lítil þjónusta við íbúa enn sem
komið er. Stutt í hestana og mikil kyrrð heillar hann.
Urriðaholt Enginn er fluttur inn, en það er hins vegar ekkert því til fyrirstöðu, enda
búið að leggja rafmagns- og vatnsleiðslur.
Kristinn Páll Ingvarsson „Þetta er
algjör snilld. Maður er í sveit með útsýnið,
kyrrðina og allt saman.“
Sjálfstæðisflokkur
mælist stærstur
Fylgi við Sjálfstæðisflokkinn hef-
ur ekki mælst jafnmikið síðan í
júní 2008 samkvæmt Þjóðarpúls
Gallups. Flokkurinn mælist með
33 prósenta fylgi en ríkisstjórnar-
flokkarnir Samfylking og Vinstri
græn mælast með 25 og 23 pró-
senta fylgi. Rúmlega 16 prósent
aðspurðra segjast myndu kjósta
Framsókn ef kosningar færu fram
nú. Tæplega þrjú prósent nefna
síðan aðra flokka en tæplega tólf
prósent svarenda tóku ekki af-
stöðu eða neita að gefa hana upp.
13 prósent segjast myndu skila
auðu eða ekki kjósa ef kosningar
færu fram í dag. 48 prósent styðja
ríkisstjórnina sem er svipað og
verið hefur undanfarna mánuði
samkvæmt Þjóðarpúlsinum.
Óvenju mörg
bílainnbrot
Óvenju mikið var um innbrot
í bíla í miðbæ Reykjavíkur á
föstudagsnótt að sögn lög-
reglu. Eins og greint var frá á
DV.is á laugardaginn greindi
sjónvarpsmaðurinn Egill
Helgason frá því að brotist
hefði verið inn í bíl eigin-
konu hans á föstudagsnótt og
kökum sem þar voru stolið.
Eiginkona Egils var ekki sú
eina sem varð fyrir barðinu á
óprúttnum þjófum. Varðstjóri
lögreglunnar á höfuðborgar-
svæðinu sagði að brotist hafi
verið inn í gríðarlega marga
bíla á föstudagsnótt. Ekki var
hann þó með nákvæma tölu á
fjölda innbrota í höndunum,
en sagði það hafa vakið at-
hygli hversu mörg þau voru.
Björn segir skúffu-
fé mikilvægt
Björn Bjarna-
son, fyrrverandi
dómsmálaráð-
herra, skrifar um
úttekt Kastljóss-
ins á skúffufé
ráðherra á vef-
síðu sinni. Hann
segir allar frá-
sagnir í Kastljósi
hafa verið því marki brenndar,
að hlustendur geti ekki ann-
að en efast um gildi verkefna,
sem notið hafa þessa stuðnings
eða hug þeirra, sem bjó að baki
ákvörðun viðkomandi ráðherra.
„... hann hafi líklega meira verið
að hugsa um sjálfan sig en þann,
sem styrksins naut,“ skrifar Björn
á vefsíðu sinni.
Hann segist vita af eigin
reynslu að stuðningur af þessum
lið fjárlaga hafi skipt sköpum
fyrir marga og ráðið úrslitum um
framgang eða upphaf margra
markverðra verkefna.
Hurð sprakk í
World Class
„Ég hef aldrei séð annað eins.
Hurðin sprakk í tætlur eins og
hún hefði verið skotin með
haglabyssu,“ segir sjónarvottur
sem staddur var í námunda við
gufuklefa karla í World Class í
Laugum um klukkan 15 á laug-
ardag þar sem glerhurð klefans
splundraðist fyrirvaralaust. Einn
maður skarst lítillega þegar gler-
inu rigndi yfir baðgesti.„Það var
bara heppni að fullt af fólki skyldi
ekki slasast,“ segir sjónarvottur-
inn og bætir við að glerbrotum
hafi rignt inn í sturtuklefa karla
við atvikið.
Grafarholt
leirvogstunga
Helgafellsland
Úlfarsárdalur
Reynisvatn
Urriðaholt
Norðlingaholt