Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.2009, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.2009, Blaðsíða 11
fréttir 2. nóvember 2009 mánudagur 11 Um Kleopötru Kristbjörgu, forstjóra Gunnars majoness, birtast lofauglýsingar í fjöl- miðlum og eigendur fyrirtækisins fagna því að hafa veitt henni stólinn. Samkvæmt heimildum DV velta starfsmenn fyrirtækisins fyrir sér uppgangi forstjórans og undr- ast skjótan frama. Helen Gunnarsdóttir, einn eigenda fyrirtækisins, blæs á alla gagn- rýni á forstjórann. MAJÓNESFORSTJÓRI SAFNAR AÐDÁENDUM „Hún er bara mjög vinsæl, mjög vin- sæl, og við vildum fá einhvern for- stjóra með bein í nefinu og hæfan í mannlegum samskiptum,“ segir Sig- ríður Regina Waage, stjórnarformað- ur Gunnars majoness. Hún er ekkja Gunnars Jónssonar, stofnanda og fyrrverandi forstjóra Gunnars maj- oness sf. Núverandi og fyrrverandi starfs- menn Gunnars majoness undrast sumir hverjir skjótan frama forstjór- ans, Kleopötru Kristbjargar, innan fyrirtækisins, ef marka má heimild- ir DV. Fram að ráðningu hennar var fyrirtækið mikið fjölskyldufyrirtæki og því varð hluti starfsmanna hissa þegar tilkynnt var að Kleopatra Krist- björg yrði forstjóri. Frekar var búist við því að önnur hvor dætra stofn- enda fyrirtækisins, Helen eða Nancy Gunnarsdætur, tæki við rekstrin- um en sú varð ekki raunin. Sjálf hef- ur Kleopatra skrifað nokkrar bæk- ur, meðal annars Daggardropa og Hermikrákuheim, og um hana hafa verið birtar heilsíðuauglýsingar í fjöl- miðlum þar sem lofræður er að finna um forstjórann. Góð manneskja Núverandi starfsmaður Gunnars majoness, sem ekki vill láta nafns síns getið af ótta við að missa starf sitt, undrast uppgang forstjórans í samtali við DV. Hann segir fólkið í fyrirtækinu ekki skilja hvers vegna Kleopatra var ráðin. „Það er alls ekki slæmt að vinna hjá fyrirtæk- inu en þetta með forstjórann skilur fólk ekki. Það virðist vera stór klíka í kringum forstjórann. Uppgangur hennar hjá fyrirtækinu er mjög ein- kennilegur. Þetta virðist næstum því vera einhvers konar sértrúarsöfnuð- ur í kringum hana. Ég skil þetta eig- inlega ekki en þetta er alveg stór- magnað. Það getur vel verið að hún sé voðalega góð manneskja,“ segir starfsmaðurinn en dregur forstjóra- hæfileika hennar í efa. Helen Gunnarsdóttir vísar allri gagnrýni á bug og segir Kleopötru sinna starfi sínu af alúð og elju- semi. Hún telur fyrirtækið heppið að hafa fengið hana í forstjórastól- inn. „Kleopatra vinnur mjög vel sína vinnu og við höfum aldrei haft betri forstjóra. Hún hefur allt til að bera, er heiðarlegasta kona sem til er, hlý, góð og gáfuð. Hún er ofsalega vel gefin og mælsk og síðustu þrjátíu ár hefur hún fengið fólk til að sjá ljósið. Kleopatra er rosalega vinsæl en kannski eru til einhverjir sem eru reiðir og afbrýði- samir út í hana. Mér dettur það í hug að óvildarmenn hennar séu að skapa þessa umræðu,“ segir Helen. Hefur styrktaraðila Fyrrverandi starfsmaður fyrirtækis- ins bendir á í samtali við DV að for- stjórinn sinni lítið daglegum rekstri fyrirtækisins. Á þeim tíma sem hann starfaði þar segist hann hafa tvisvar rekist á Kleopötru. „Ég skil alls ekki til- gang hennar innan fyrirtækisins. Hún kemur sjálf ekkert nálægt rekstrinum og hefur til þess enga þekkingu. Hún kann engin skil á fjármálum og ég skil ekki hvernig hún leyfir sér að kalla sig forstjóra. Sumir starfsmenn hafa ekki einu sinni séð forstjóra fyrirtækisins. Þetta er bara brandari og það er hleg- ið að þessu úti um allan bæ, ekki bara innan fyrirtækisins. Fólk er alveg gátt- að á þessu og fólkið í fyrirtækinu skil- ur þetta ekki,“ segir starfsmaðurinn fyrrverandi. Helen ítrekar hversu heppið fyrir- tækið sé að hafa Kleopötru sem for- stjóra og bendir á að forstjórinn sé verulega hæfileikaríkur rithöfund- ur. Aðspurð vísar hún því á bug að Kleopatra hafi í kringum sig söfn- uð. „Í kringum hana er engin klíka en hún er með styrktaraðila í kring- um sig. Að hún sé í einhverjum söfn- uði er haugalygi en hún hefur hjálpað þúsundum einstaklinga hér á landi. Bókin hennar, Hermikrákuheimur, er besta bók sem til er og það er ekki til gáfaðri kona á landinu. Við erum of- boðslega ánægð með hana. Hún er bara besti forstjóri sem við höfum átt,“ segir Helen. TrausTi HafsTeinsson blaðamaður skrifar: trausti@dv.is frábær forstjóri Eigendur Gunnars majoness eru ánægðir með forstjóra fyrirtæksins. Langar lofgreinar Um Kleopötru Kristbjörgu hafa birst langar blaðaauglýsingar þar sem farið er fögrum orðum um hana. Úr blaðaauglýsing- um um Kleopötru Kristbjörgu: „Allir vilja tala við Kleopötru, dansa við hana, þó ekki væri nema aðeins að snerta hana. Fólk buktar sig og beygir í djúpri lotningu og virðingu fyrir henni, ekki bara karlmenn heldur konur líka.“ „Hún er þessi dularfulla kona, dulúðug og fjarræn. Hún vekur alls staðar gífurlega mikla athygli og aðdáun, fólk fellur að fótum hennar og allir vilja þekkja hana. Karlmenn missa ráð og rænu, svitna og horfa á hana fullir löngunar en þora ekki að tala við hana.“ „Mín kynni af Kleopötru eru stór- kostleg, hún er svo ótrúlega vakandi og lifandi, ótrúlega vel gefin, hress, skemmtileg, hlý og góð. Að vera í návist hennar er engu lagi líkt.“ „Kleopatra er ímynd kvenlegrar fegurðar og yndisþokka, geislar af kynþokka. Hún er mjög andleg og er gædd dulrænum hæfileikum þó hún sjálf hafi aldrei viljað opinbera það.“ Gunnars majones Gunnar Jónsson, fyrrverandi forstjóri Gunnars majoness sf., var fæddur í Reykjavík 3. september 1920. Eftir skólagöngu í Reykjavík lauk Gunnar búfræðinámi frá Bændaskólanum á Hvanneyri og vann síðan við ýmis störf í Reykjavík, s.s. rekstur eggjabús og útgerð eigin leigubifreiða. Hann fór síðan til Bandaríkjanna þar sem hann lauk prófi í viðskipta- og hagfræði frá háskólanum í Minn- eapolis. Árið 1959 sneri fjölskyldan aftur til Íslands og ári síðar stofnuðu þau hjón síðan eigið fyrirtæki, Gunnars majones sf. Gunnar helgaði fyrirtækinu alla sína krafta og vann við það af dugnaði og ósérhlífni til dauðadags. Heimild: www.gunnars.is „Hún er bara besti forstjóri sem við höfum átt.“ Slagsmál í Keiluhöllinni Slagsmál brutust út í Keilu- höllinni í Öskjuhlíð stuttu eftir miðnætti aðfaranótt sunnu- dags. Tvítug stúlka var að spila keilu ásamt vinum sínum. Ölvað fólk á næstu braut hegðaði sér ófriðsamlega. Hljóp það meðal annars yfir brautir hjá öðrum gestum. Stúlkan hlaut áverka eftir að fólkið réðst á hana. Hún og vinir hennar voru edrú en fólkið sem réðst á hana var ölvað eins og áður sagði.Hálftíma eftir árás- ina kom lögreglan og fjarlægði fólkið. Stúlkan ætlar ekki að kæra árásina. Bílvelta á Holtavörðu- heiði Umferðaróhapp varð á Holta- vörðuheiði í gær. Ökumað- ur fólksbíls velti bíl sínum og liggur alvarlega slasaður á Landspítalanum. Fyrst var far- ið með manninn í sjúkrabíl en síðar ákveðið að kalla eftir að- stoð þyrlu. Þyrlan sótti mann- inn við Hvalfjarðargöngin. Var farið með manninn á Land- spítalann í Fossvogi. Maður- inn var einn í bílnum og var hálka á Holtavörðuheiði þegar slysið varð. Bílvelta í Bryggjuhverfi Bíll valt í Bryggjuhverfinu í Reykjavík í gær. Í bílnum voru þrír farþegar en enginn slasað- ist í bílveltunni. Slökkvilið kom á staðinn til að hreinsa olíu og eldsneyti vegna eldhættu. Auk þess bjargaði slökkviliðið ketti af þaki nýbyggingar í Reykjavík. Vinnupallar höfðu verið fjar- lægðir af húsinu og því komst kötturinn ekki niður af sjálfsdáð- um. Jarðskjálftar út af Reykjanesi Skjálftahrina varð vestur af Reykjanesi á laugardagskvöld. Svæðið sem um ræðir er við Geirfugladrang og Eldeyjarboða. Stærstu skjálfarnir voru um fjórir á Richter. Urðu stærstu skjálft- arnir um miðnætti á laugardags- kvöldið. 18 skjálftar sem voru þrjú stig eða meira mældust á svæðinu á sunnudagsnóttina og í gærmorgun.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.