Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.2009, Page 18
Sé eitthvað að marka skoðana-kannanir sem gerðar eru um þessar mundir er helsta niður-staða þeirra að Íslendingar eru
grjótheimskir og líklega allra þjóða
vitlausastir. Samkvæmt könnun sem
Markaðs- og miðlarannsóknir gerði
fyrir Viðskiptablaðið á dögunum var
Davíð nokkur Oddsson oftast nefndur
til sögunnar þegar spurt var hver ætti
að leiða Íslendinga út úr efnahags-
kreppunni.
Um þessa niðurstöðu er varla hægt
að hafa nokkur orð án þess að grípa
til hallærislegra líkinga á borð við
brennuvarginn sem stjórnar slökkvi-
starfinu eða einhverjar aðrar álíka
hallærislegar efnahagshrunsklisjur.
Svarthöfða dettur ekkert annað í hug
en að vitna beint í þann mikla andans
jöfur Sigurð A. Magnússon sem hróp-
aði uppyfir sig „Mamma mía! Mamma
Mía!“ í útvarpsviðtali við Sverri Storm-
sker fyrir nokkrum árum þegar Davíð
Oddsson og Hannes Hólmstein bar
á góma. Sigurður fylgdi upphrópun
sinni svo eftir með því að lýsa því yfir
að íslenska þjóðin ætti það skilið sem
hún kysi ítrekað yfir sig og í raun væru
kosninganiðurstöðurnar kjörtímabil
eftir kjörtímbil til vitnis um að Íslend-
ingar væru ömurleg þjóð.
Svarthöfði þarf nú að hella á sig
nokkrum tvöföldum romm í kók áður
en hann gengur svo langt að segja
þjóð sína ömurlega en mikið ósköp er
hún aumkunarverð, þrælslunduð og
niðurbarin þjóðin sem dettur ekkert
sniðugra í hug en að kalla aftur á kval-
ara sinn þegar hún liggur óbætt hjá
garði. Svarthöfði getur samt næstum
því skilið að í örvæntingu sinni kalli
þjóðin á dávaldinn mikla með sólgler-
augun á ögurstundu. Með sjónhverf-
ingum og sannfæringarkrafti táldró
Davíð hjörðina að brún hengiflugs-
ins og því er í sjálfu sér fátt athugavert
við að blessaður mannskapurinn telji
hann geta dregið fallið á langinn.
Trú múgsins á Davíð á sér svo djúp-
stæðar og furðulegar skýringar að þótt
útlendingum, með fullu ráði og rænu,
hljóti að þykja þetta sæta mikilli furðu
getur Svarhöfði alveg skilið þetta.
Maður þarf auðvitað fyrst og fremst að
vera Íslendingur til þess að skilja það
sem gerjast í kýrhaus þjóðarinnar.
Svarthöfði kann hins vegar enga
rökrétta skýringu á því að Sjálfstæð-
isflokkurinn skuli nú mælast flokka
stærstur í Þjóðarpúlsi Gallups aðra
en þá að 33 prósent þjóðarinnar séu
snarsúrrandi snældugeðbiluð.Fingra-
för sjálfstæðismanna, einkavinavæð-
ingar þeirra og nýfrjálshyggju á veð-
hlaupahestasterum eru úti um allt á
löngu og ljótu syndaregistri hrunsins
mikla.
Í rústabjörguninni á Alþingi hefur
sjálfstæðisfólk svo kosið að hegða sér
eins og fábjánar í bæjarleyfi af vit-
lausraspítala. Hringsnúast í kringum
sjálfa sig og ringlaðan silfurskeiðarfor-
manninn sem veit varla hvort hann er
að að koma eða fara eða í hvorn fótinn
hann á að stíga. Pólitískir vindhanar
gala ekki lengur bara í Samfylking-
unni eftir að sjálfstæðismenn völdu
einn slíkan úr sínum hópi til þess að
leiða flokkinn.
En 33 prósent þjóðarinnar telja að
Bjarni Ben og hrunsfólkið hans sé
rétti mannskapurinn til þess að koma
þjóðarskútunni á lygnan sæ þrátt fyrir
allt sem á undan
er gengið og
þá stað-
reynd
að ef
snefill af
sjéntíl-
mennsku
leyndist í
beinagrind
Sjálfstæðis-
flokksins þá
myndi hann
fara þegjandi
og hljóða-
laust í
í það
minnsta 12 ára stjórnarandstöðu og
hafa vit á að grjóthalda kjafti í þrjú
kjörtímabil.
Kannski eiga þessi 33 prósent Íslend-
inga fullt af peningum í skattaparad-
ísum og eru bara í góðum málum en
samkvæmt meistara Hannesi Hólm-
steini eru skattaparadísir ekki alltaf
skálkaskjól heldur geta þær verið
griðastaður óvinsælla minnihluta-
hópa.
Ef tölur Gallups eru virkilega réttar
má nú sennilega fara að taka undir
með Sigurði A., hrópa á mömmu míu
og viðurkenna að við erum ömur-
leg þjóð. Einfaldlega vegna þess að
sé þetta rétt er deginum ljósara að
Íslendingar hafa ekki fengið nóg og
vilja meira af því sama og þá blasir við
að við áttum hrunið og allt sem á eftir
fylgdi svo fullkomlega skilið.
Mamma
mía!
MaMMa Mía!
Spurningin
„Þeir eru grande grande,“
segir Jón Garðar
Ögmundsson, eigandi
Metro, sem áður rak
McDonalds-staðina á
Íslandi um nýju
hamborgarana. Metro
hóf í gær að selja
hamborgara sem framleiddir eru úr
íslensku hráefni. Áður kom mestallt
hráefni erlendis frá sem er sama
fyrirkomulag og á öðrum McDonalds-
matsölustöðum í heiminum. Í gær var
fullt út úr dyrum á nýju Metro-
stöðunum. Jón Garðar segir Íslendinga
almennt ánægða með nýju hamborg-
arana.
eru þeir
Miklu betri?
„... greinilega sást glitta í
hana.“
n Sigurður Helgason rjúpnaskytta var
heimsóttur af tveimur vopnuðum lögreglumönn-
um í skotheldum vestum eftir að sást glitta í
startbyssu hans á bensínstöð N1 í Mosfellsbæ.
Hann hafði notað hana til að þjálfa rjúpnahund-
inn sinn. – DV.
„... ég verð þá
ekki sá fyrsti og
ekki sá síðasti.“
n Björn Leifsson um að hann
hræðist gjaldþrot en ef af því verði þá
sé hann ekki sá fyrsti né síðasti til að ganga í
gegnum það. – DV.
„Það þýðir ekkert að
leggjast upp í rúm og
væla.“
n Bára Sigurðardóttir íbúi á Hrafnistu um að
hún skilji vel að skera þurfi líka niður hjá eldra
fólki líkt og hjá þeim sem yngri eru. – DV.
„Játning karl-
rembu.“
n Björn Þorláksson um
innihald bókar sinnar,
Heimkoman. Þar talar hann
opinskátt um hvernig viðhorf hans til lífsins
breyttust eftir að hann missti vinnuna. – DV.
„Svo hélt hann
Eurovision-
partí þegar við
lentum í öðru
sæti í Rússlandi.“
n Óskar Páll Sveinsson höfundur Is it true um
það hversu mikið viðhorf Bubba Morthens hefur
snúist gagnvart Eurovision. – Fréttablaðið.
Gullið í grjótinu
Leiðari
Skilanefndir og banka-stjórnir eru þessa dag-ana á útopnu við að af-skrifa skuldir fyrirtækja
og eigenda þeirra. Það er óum-
flýjanlegt að fara í þau mál og
bjarga fyrirtækjum sem sum
hver eru vel rekin þótt eigend-
urnir séu í gríðarlegum vanda.
Það hefur aldrei verið eins áríð-
andi og nú að þeir sem hafa
með uppstokkun að gera vinni
fyrir opnum tjöldum og sýni
þjóðinni að allir þessir aðilar
vinni með það sama að leiðar-
ljósi. Bankar hafa þegar tekið
yfir fjölda fyrirtækja og eigend-
ur hafa orðið að gefa eftir sinn hlut. Nærtækt
er að líta til Eimskipafélagsins, Fons og Atorku
sem nú eru komin í eigu bankanna.
Þessa dagana er tekist á um eignarhald á
Högum, stærstu verslanakeðju Íslands sem
á Bónus, Hagkaup, 10-11 og Aðföng. Næst
stærsta verslunarkeðjan, Kaupás, er einnig í
vandræðum þótt ekki fari eins hátt. Það þarf
að vera dagljóst að við yfirtöku fyrirtækjanna
eða samninga um niðurfelling-
ar skulda séu eingöngu almenn
sjónarmið að baki. Stjórnmála-
menn eiga að setja reglurn-
ar um það hvernig staðið er að
málum en gæta þess að ekki sé
um sértækar, persónubundnar
aðgerðir að ræða. Þar má ekki
hafa áhrif hvort í hlut á Jón eða
séra Jón.
DV hefur sagt frá dæmum
þar sem bankarnir hafa hjálpað
einstökum fyrirtækjum í kenni-
töluflakki svo eigendur þeirra
nái að hlaupast frá fáránlegum
skuldbindingum á góðæris-
tímanum. Þar er Stím, eignar-
haldsfélag um hlut í hinum fallna Glitni, slá-
andi dæmi. Útgerðarmenn frá Bolungarvík,
blindaðir af græðgi, keyptu hlutabréf í banka
í von um ofsagróða. Allt fór í vitleysu en þeir
fengu hjálp banka til að forða kvóta og skip-
um undan hamrinum. DV hefur einnig fjall-
að ítarlega um heilsuræktarstöðina World
Class sem tapaði offjár á því að reyna fyrir sér í
Danmörku. Aðaleigandinn, Björn Kristmann
Leifsson, er að líkindum að fara persónulega í
gjaldþrot en vonast til að halda rekstrinum á
nýrri kennitölu. Björn er einn örfárra útrásar-
manna sem hafa undanbragðalaust flett hul-
unni af sínum málum í ítarlegu viðtali í DV. En
hann á ekki að njóta sértækra aðgerða fremur
en aðrir.
Íslendingar þurfa ekki að velkjast í vafa um
að allir þeir sem áttu eignir fyrir hrun eru að
reyna að halda sínu. Þar skiptir engu hvort
um er að ræða matvörukeðjur, skipafélög eða
heilsuræktarstöðvar. Og það sama gildir um
tugþúsundir almennra borgara sem töpuðu
margir hverjir aleigu sinni eftir hrunið. All-
ir verða að geta treyst því að bankar vinni af
heilindum og geri ekki upp á milli fyrirtækja
eða fólks. Í grjóti hrunsins glittir víða í gull.
Þar eru margir á kreiki til að tryggja sína af-
komu næstu áratugina. Og sumir eru tilbún-
ir til ýmissa efnahagslegra óhæfuverka til að
tryggja sinn skerf og halda þeim völdum sem
peningar færa þeim. Það er hlutverk Jóhönnu
Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar
að tryggja að leikreglur lýðræðisins haldi á
mestu umbrotatímum í íslenskri viðskipta-
sögu.
reynir traustason ritstjóri skrifar. Sumir eru tilbúnir til ýmissa efnahagslegra óhæfuverka.
bókStafLega
18 mánudaGur 2. nóvember 2009 umræða
Sandkorn
n Sá grimmi og óvægni Egill
Helgason er sem fyrr í skotlínu
öfgaarms Sjálfstæðisflokksins.
Jón Magnússon, fyrrverandi
alþingismaður, var í viðtali á
Bylgjunni í
gærmorgun.
Jón fór mik-
inn varð-
andi hlut-
drægni Egils
og sakaði
hann um
einelti varð-
andi ein-
staka menn. Þar tilgreindi hann
sérstaklega fyrrverandi forstjóra
Fjármálaeftirlitsins. Sá heitir
Jónas Fr. Jónsson og er svo vill
til að hann er sonur Jóns.
n Ekki blæs byrlega fyrir Frjáls-
lynda flokknum sem er áhrifa-
laus utan þings. Þó vilja menn
þar á bæ blása lífi í flokkinn og
kemur þar helst til greina að
láta Guðjón A. Kristjánsson for-
mann taka
þátt í sveit-
arstjórn-
arslag á
Ísafirði. Enn
kvarnast þó
úr flokkn-
um. Nú
síðast sagði
Viðar Guð-
johnsen, formaður ungliða-
hreyfingar Frjálslyndra, sig úr
flokknum. Ekki er útilokað að
hann hyggi á pólitíska land-
vinninga með Magnúsi Þór Haf-
steinssyni, fyrrverandi varafor-
manni flokksins.
n Það þykir í dag vera ófínt og
dálítið 2007 að fljúga á Saga
Class. Þetta vita leiðtogar
stjórnarinnar, Jóhanna Sig-
urðardóttir og Steingrímur J.
Sigfússon, sem flugu á þing
Norðurlandanna á almennu
farrými og vöktu athygli fyrir að
deila kjörum með sauðsvörtum
almúganum. Aftur á móti naut
Bjarni Benediktsson, formað-
ur Sjálfstæðisflokksins, lífsins
á Saga Class. Bloggarinn Jónas
Kristjánsson hjólaði í Bjarna.
„Einnig var táknrænt, að
formaður hrunflokks-
ins flaug frá þinginu á
Saga-klassa. Kannski
hefur Bjarni hitt þar
einhvern útrás-
arvíkinginn. Eiga
heima saman á
klassa liðinna græðg-
istíma,“ bloggaði
Jónas.
n Mikill kraftur er í Pressunni,
vef Björns Inga Hrafnsson-
ar. Um helgina var tilkynnt að
Steingrímur Sævarr Ólafsson,
fyrrverandi fréttastjóri Stöðvar
2, hefði verið ráðinn fréttastjóri
Eyjunnar. Þá
var um helg-
ina auglýst
eftir fólki á
Pressuna á
sama tíma
og margir
fjölmiðlar
lepja dauð-
ann úr skel.
Pressan er
nú með ritstjórn af sömu stærð-
argráðu og Vísir.is.
LynGhÁLs 5, 110 ReykJavÍk
Útgáfufélag: Útgáfufélagið Birtíngur ehf.
Stjórnarformaður: hreinn Loftsson
framkvæmdaStjóri: sverrir arngrímsson
ritStjórar:
Jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is
og Reynir Traustason, rt@dv.is
fréttaStjórar:
Brynjólfur Þór Guðmundsson, brynjolfur@dv.is
og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is
auglýSingaStjóri:
elísabet austmann, elisabet@birtingur.is
dv á netinu: Dv.is
aðalnÚmer: 512 7000, ritStjórn: 512 7010,
áSkriftarSími: 512 7080, auglýSingar: 512 7050.
SmáauglýSingar: 515 5550.
umbrot: Dv. Prentvinnsla: Landsprent. dreifing: Árvakur.
Dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.