Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.2009, Side 20
Þórir Jökull Þorsteinsson
sendiráðspestur í Kaupmannahöfn
Þórir fæddist í Reykjavík og ólst þar
upp. Hann lauk búfræðiprófi frá
Bændaskólanum á Hólum 1976,
samvinnuskólaprófi frá Samvinnu-
skólanum að Bifröst 1985, frétta-
mannaprófi hjá RÚV 1986, emb-
ættisprófi í guðfræði frá HÍ 1992,
sinnti starfsnámi með fangapresti
Þjóðkirkjunnar 1990-91 og sjúkra-
húspresti Landspítalans 1992
og kynnti sér almennatengsl og
stjórnsýslu anglikönsku kirkjunnar
í Lundúnum 1999.
Þórir sinnti ýmsum almennum
störfum til sjós og lands á árun-
um 1976-83, var bókhaldsfulltrúi
hjá Búnaðarsambandi Eyjafjarðar
1985-86, fréttamaður og dagskrár-
gerðarmaður við RÚV 1986-92,
sóknarprestur í Grenjaðarstaða-
prestakalli 1992-94, sóknarprest-
ur í Selfossprestakalli 1994-2001,
prestur í anglikönsku kirkjunni
í Scunthorp á Englandi 1998-99
og hefur verið sendiráðsprestur í
Kaupmannahöfn frá 2001.
Þórir sat í stjórn Félags guð-
fræðinema við HÍ 1988-89, í stjórn
Sumarbúða Þjóðkirkjunnar við
Vestmannsvatn 1992-94, stýrði
rekstri foreldrarekins leikskóla á
Hjónagörðum háskólastúdenta
1990, var fulltrúi stúdenta í nefnd
um endurskipan kennimannlegs
hluta náms við guðfræðideild HÍ
1990-91, var ritstjóri Orðsins, tíma-
rits Félags guðfræðinema, 1990-91,
var starfsmaður Kirkjuþings 1988
og fjölmiðlafulltrúi þess 1989, átti
sæti í nefnd Þjóðkirkjunnar er und-
irbjó komu Jóhannesar Páls páfa II
til Íslands 1989 og sat í nefnd Þjóð-
kirkjunnar um lokasvar hennar til
rómversk-kaþólsku kirkjunnar um
réttlætingarkenninguna 1998, er
fulltrúi Tryggingastofnunar ríkisins
frá 2001 og fulltrúi Sjúkratrygginga
Íslands eftir að þær voru stofnaðar.
Eftir Þóri liggja ýmis ritverk um
guðfræðileg efni sem og þýðingar,
s.s. þýðing á riti Lúthers, Um hið
veraldlega vald, sem birtist í Kirkj-
uritinu 2008-2009.
Fjölskylda
Fyrrverandi kona Þóris er Matt-
hildur Laufey Hermannsdóttir, f.
21.7. 1961, leikskólakennari.
Dóttir Þóris og Matthildar
Laufeyjar er Sigurveig Þórisdótt-
ir, f. 11.7. 1983, læknanemi við HÍ
en maður hennar Helgi Jónsson
læknir og er sonur þeirra Sigurður
Arnar, f. 18.1. 2008.
Alsystkini Þóris eru Dagný Þor-
steinsdóttir, f. 31.10. 1958, kenn-
ari, búsett á Akranesi; Böðvar
Bjarki Þorsteinsson, f. 2.11. 1960,
aðstoðarskólastjóri á Eyrarbakka;
Kolbeinn Þorsteinsson, f. 24.1.
1962, blaðamaður við DV; Guðný
Ása Þorsteinsdóttir, f. 11.6. 1964,
meinatæknir í Reykjavík.
Hálfbróðir Þóris, sammæðra, er
Geir Reginn Jóhannesson, f. 26.3.
1949, d. 16.1.. 2007, tölvufræðing-
ur.
Hálfsystkini Þóris samfeðra, eru
Egill Þorsteinsson, f. 7.10. 1968,
kírópraktor í Reykjavík; Guðrún
Þorsteinsdóttir, f. 2.3. 1993.
Foreldrar Þóris: Þorsteinn Jóns-
son frá Hamri, f. 15.3. 1938, skáld
og rithöfundur, og Ásta Jóna Sig-
urðardóttir, f. 1.4. 1930, d. 21.12.
1971, skáld og listakona.
Fósturforeldrar Þóris og alsyst-
kina hans voru Ólafur Þórðarson
og Ingibjörg Jóhannsdóttir, bænd-
ur að Ökrum á Mýrum. Ólafur er
látinn en Ingibjörg er búsett í Borg-
arnesi.
Ætt
Þorsteinn er sonur Jóns Leví, b. á
Hamri í Þverárhlíð Þorsteinssonar,
b. á Hamri Sigurðssonar, b. í Höll
Þorsteinssonar, b. á Glitstöðum í
Norðurárdal Sigurðssonar, b. í Höll
Guðmundssonar. Móðir Þorsteins
á Glitstöðum var Þórunn Þor-
steinsdóttir, systir Þorvalds, lang-
afa Sigríðar, móður Halldórs Lax-
ness. Móðir Þorsteins á Hamri var
Þórdís Þorbjarnardóttir, b. á Helga-
vatni Sigurðssonar og Margrétar
Halldórsdóttur fróða, á Ásbjarn-
arstöðum Pálssonar, langafa Jóns,
föður Halldórs, stjórnarformanns
og arkitekts, og Selmu, forstöðu-
konu Listasafns Íslands Jónsbarna.
Móðir Jóns á Hamri var Þórunn Ei-
ríksdóttir, b. á Svignaskarði Ólafs-
sonar, b. á Lundum Þorbjarnar-
sonar, föður Ólafs, langafa Bjarna
Benediktssonar forsætisráðherra,
föður Björns, fyrrv. ráðherra og
Valgerðar alþm..
Móðir Þorsteins frá Hamri var
Guðný, dóttir Þorleifs, b. á Hofi í
Norðfirði Torfasonar, b. í Skugga-
hlíð í Norðfirði Jónssonar, b. á
Kirkjubóli Vilhjálmssonar, bróður
Þóru, langömmu Þóreyjar, ömmu
Eyþórs Einarssonar, fyrrv. for-
manns Náttúruverndarráðs. Móð-
ir Guðnýjar var Guðfinna Guð-
mundsdóttir, b. á Tandrastöðum
Magnússonar og Guðnýjar Ólafs-
dóttur. Móðir Guðnýjar var Mekkín
Erlendsdóttir, b. í Hellisfirði Árna-
sonar, ættföður Hellisfjarðarættar,
föður Einars, langafa Eysteins fjár-
málaráðherra og dr. Jakobs, föð-
ur rithöfundanna Svövu og Jökuls,
föður rithöfundanna Illuga, Hrafns
og Elísabetar.
Ásta var dóttir Sigurðar Benja-
míns Konstantínusar, b. á Litla-
Hrauni í Kolbeinsstaðahreppi
Jónssonar, smiðs á Fáskrúðsbakka
Sigurðssonar, smiðs á Tröðum í
Mýrum Sigurðssonar. Móðir Jóns
var Guðrún Teitsdóttir. Móðir Sig-
urðar Benjamíns var Ástríður, syst-
ir Kristjáns á Kaldárbakka, föð-
ur Kristjáns Jóhanns, stofnanda
Kassagerðar Reykjavíkur, föður
Agnars forstjóra. Kristján á Kald-
árbakka var einnig langafi Brodda
Kristjánssonar, margfalds Íslands-
meistara í badminton. Ástríður var
dóttir Benjamíns, b. í Dalsmynni í
Eyjahreppi Gíslasonar, og Helgu
Jóhannsdóttur.
Móðir Ástu var Þóranna Guð-
mundsdóttir, b. á Kolviðarnesi Þór-
arinssonar, og Oddnýjar Kolbeins-
dóttur.
Þórir heldur upp á daginn í
Kaupmannahöfn með systkinum
sínum og mökum þeirra.
Sæmundur Steindór Magnússon,
ráðgjafi hjá Sparnaði, kveið ekk-
ert fyrir þrítugsafmæli sínu þegar
DV spjallaði við hann sl. föstudag,
en hann er þrítugur í dag. Eigin-
kona Sæmundar er Guðrún Katrín
Sandholt sem sér um reksturinn
á heimilinu og fjölskyldufyrirtæk-
inu. Þau eiga þrjú börn.
„Nei ég kvíði sko ekkert af-
mælisdeginum - tek þessu bara
með æðruleysi og jafnaðargeði.
Þetta verður hvort sem er eins og
hver annar dagur og ég held bara
mínu striki. En á laugardaginn
verð ég hins vegar með stórveislu
í sal Hestamannafélagsins Gusts í
Kópavogi. Ég er búinn
að panta salinn, ætla
að vera með léttar veit-
ingar og einhvern ann-
an veislukost og hef
verið að bjóða vinum
og vandamönnum. Ég
á von á að þetta verði
fjölmenn samkoma og
geti bara orðið nokk-
uð gott trall. Vonandi
verður dansað fram á
rauða nótt.“
Ertu alltaf svona
duglegur að halda upp á afmælin
þín?
„Nei, ég get nú ekki sagt það. Yf-
irleitt geri ég fremur lít-
ið úr mínum afmælum.
Ég hef t.d. ekki hald-
ið svona afmælisboð
frá því ég varð tvítugur.
Þess vegna fannst mér
tími til kominn að hóa
saman fólki og halda
því almennilega veislu.
Maður verður jú auð-
vitað að minna á sig
einstaka sinnum, slaka
svolítið á og líta um öxl
með ættingjum, vinum
og félögum. Mér finnst það alla
vega jákvæður og sjálfsagður hlut-
ur og hlakka því bara til.“
Helgarveisla í hestamannasal
Þrítugur sparnaðarráðgjafi
mánudaginn
2. nóvember
30 ára
n Angelina Belistov Lautasmára 22, Kópavogi
n Bernadett M. Szabolcsné Nyári
Beykidal 8, Reykjanesbæ
n Ásgeir Jóhannesson Norðurbakka 5b, Hafnarfirði
n Eyjólfur Sigurðsson Reykjahlíð 10, Reykjavík
n Bjarni Þór Sigurðsson Álfaskeiði 78, Hafnarfirði
n Anita Dögg Stefánsdóttir
Bjarmalandi 17, Sandgerði
n Elsa Særún Helgadóttir Þinghólsbraut 21, Kópavogi
n Bjarni Hlynur Guðjónsson Kvíaholti 12, Borgarnesi
n Benný Ósk Jökulsdóttir Gerðavöllum 3, Grindavík
n Hilmar Þór Hreiðarsson
Hvanneyrarbraut 74, Siglufirði
n Birna Hlín Guðjónsdóttir Stöðulsholti 3, Borgarnesi
n Þóra Sigríður Sigurðardóttir
Hásteinsvegi 64, Vestmannaeyjum
n Þorvaldur Smári Valgarðsson Stífluseli 3, Reykjavík
n Óskar Guðmundur Ásmundsson Arkarlæk, Akranesi
40 ára
n Aníta Jónsdóttir Syðra-Laugalandi, Akureyri
n Eygló Ólöf Birgisdóttir Tjarnarmýri 14, Seltjarnarnesi
n Gísli Ölver Sigurðsson Dofrabergi 17, Hafnarfirði
n Ingi Guðmundsson Þorláksgeisla 106, Reykjavík
n Sólveig Unnur Bentsdóttir
Straumsölum 1, Kópavogi
n Sigríður Þóra Stormsdóttir
Álfgeirsvöllum, Varmahlíð
n Sigurður Hólm Ragnarsson Stekkjargötu 7, Hnífsdal
n Helga Oddný Hjaltadóttir Veghúsum 21, Reykjavík
n Valgeir Reynisson Brekkuseli 29, Reykjavík
n Richard Allen de Groot Seljabraut 48, Reykjavík
50 ára
n Rannveig Björnsdóttir Skútagili 1, Akureyri
n Ingrid Herdís Jónsdóttir Súðarvogi 36, Reykjavík
n Anna Sigurmundsdóttir Hverafold 68, Reykjavík
n Birgir Baldursson Bæ 1, Búðardal
n Hanna Björk Lárusdóttir Fálkahrauni 1, Hafnarfirði
n Maggý Dögg Emilsdóttir
Smyrlahrauni 27, Hafnarfirði
n Margrét Jóna Bragadóttir
Hjallavegi 1b, Reykjanesbæ
n Hjördís Svava Sigurðardóttir Hófgerði 15, Kópavogi
n Friðbjörn R Sigurðsson Vallarbraut 18, Seltjarnarnesi
n Einar Þór Jónsson Bræðraborgarstíg 43, Reykjavík
n Anna Bjarnadóttir Skarðsbraut 9, Akranesi
n Ólafur Þórarinsson Reykjahvoli 37, Mosfellsbæ
n Þóra Margrét Þórarinsdóttir
Hrauntungu 63, Kópavogi
n David Alexander Wellsbury Granaskjóli 38,
Reykjavík
60 ára
n Kristján G Hallgrímsson Skipalóni 25, Hafnarfirði
n Ágústa Magnúsdóttir Hlíðargerði 18, Reykjavík
n Erna Erlendsdóttir Holtabyggð 1, Hafnarfirði
n Hjördís Garðarsdóttir Háhæð 4, Garðabæ
n Anna Konráðsdóttir Viðarrima 3, Reykjavík
n Jóna H Hallsdóttir Skólabraut 11, Garði
n Guðmundur Friðfinnsson
Stekkjarhvammi 34, Hafnarfirði
70 ára
n Hannes Árni Wöhler Logalandi 6, Reykjavík
n Þórleif Skarphéðinsdóttir Torfnesi Hlíf 2, Ísafirði
n Sveinbjörn Runólfsson Fagrabæ 6, Reykjavík
n Pétur Haukur Jónsson Akurnesi 1, Höfn í Hornafirði
n Davíð J Óskarsson Barðastöðum 11, Reykjavík
75 ára
n Sigríður Árnína Árnadóttir Skarðshlíð 13c, Akureyri
n Sigríður Kristín Árnadóttir Sunnubraut 17, Búðardal
n Jósep Guðmundsson -, Reykjavík
n Haraldur Kristjánsson Ársölum 3, Kópavogi
80 ára
n Sigríður V Árnadóttir Háholti 16, Hafnarfirði
n Guðmundur Sigurðsson Garðatorgi 17, Garðabæ
n Þorsteinn Þórðarson Sléttubóli, Hvolsvelli
n Valgerður Ólafsdóttir Kóngsbakka 2, Reykjavík
n Hjördís A Briem Hellulandi 19, Reykjavík
n Elín Þórhallsdóttir Sólheimum 23, Reykjavík
n Jórunn Erla Þorvarðardóttir Akurgerði 62, Reykjavík
85 ára
n Kristinn Ó Guðmundsson Nesvegi 115, Seltjarnarnesi
n Sigríður Vilmundardóttir Grenigrund 14, Selfossi
til
hamingju
með
afmælið!
50 ára í dag
20 mánudagur 2. nóvember 2009 ættfræði
þriðjudaginn
3. nóvember
30 ára
n Manuel Alejandro Rivera Ayala
Eggertsgötu 18, Reykjavík
n Ragnheiður Stefánsdóttir
Viðjuskógum 9, Akranesi
n Karl Jóhann Jóhannsson Barmahlíð 18, Reykjavík
n Jónína Guðrún Kristbergsdóttir
Hrafnakletti 2, Borgarnesi
n Egill Hjartarson Akurvöllum 4, Hafnarfirði
n Rósa María Guðjónsdóttir
Heiðarbóli 6f, Reykjanesbæ
n María Benediktsdóttir Bauganesi 29a, Reykjavík
n Guðbjörg María Þorsteinsdóttir
Hraunbæ 162, Reykjavík
40 ára
n Sandris Keiss Kirkjustræti 2, Reykjavík
n Anna Rósa Böðvarsdóttir Nýbýlavegi 38, Kópavogi
n Birgir Steinar Birgisson
Þingholtsstræti 30, Reykjavík
n Magnús Björn Baldursson Árbakka 11, Selfossi
n Hildur Sólveig Pétursdóttir Bæjargili 97, Garðabæ
n Jóhannes Kristján Ármannsson
Sóltúni 2 Hvanneyri, Borgarnesi
n Hrafnkell Óskarsson Álfheimum 40, Reykjavík
n Valdís Ásta Aðalsteinsdóttir
Dofraborgum 12, Reykjavík
n Þórir Ómar Jakobsson Aðallandi 15, Reykjavík
50 ára
n Hjálmar Ingvason Bleiksárhlíð 45, Eskifirði
n Svanur Guðmundsson Ásvallagötu 20, Reykjavík
n Guðrún I Benediktsdóttir Háholti 5, Reykjanesbæ
n Anna María Jónsdóttir Smárarima 2, Reykjavík
n Þorsteinn Guðbjörnsson Maríubaugi 95, Reykjavík
n Guðrún Eggertsdóttir Súluhöfða 25, Mosfellsbæ
n Bjarni Þór Björnsson Sporðagrunni 16, Reykjavík
n Unnur Pétursdóttir Hrafnsstöðum, Húsavík
n Erna Jónsdóttir Álfhólsvegi 61, Kópavogi
n Sólveig Sjöfn Ragnarsdóttir
Hlaðavöllum 5, Selfossi
n Ríkharður Jón Stefánsson
Höfðavegi 44, Vestmannaeyjum
n Elsa Dóra Grétarsdóttir Fremristekk 3, Reykjavík
n Brynjar Hildibrandsson
Bjarnarhöfn 2, Stykkishólmi
60 ára
n Sigurjón Guðmundsson Fagrabæ 1, Reykjavík
n Einar Pétursson Hófgerði 16, Kópavogi
n Erna Árnadóttir Miðgarði 8, Reykjanesbæ
n Björk Rögnvaldsdóttir Mýrargötu 31, Neskaupstað
n Þorvaldur Jóhannesson
Kaplaskjólsvegi 93, Reykjavík
n Sturla Jóhannsson Litlabæjarvör 11, Álftanesi
n Baldur Dagbjartsson Hvassaleiti 72, Reykjavík
n Björn Vagnsson Fellsmúla 14, Reykjavík
n Guðmunda Jónasdóttir Höfðaholti 3, Borgarnesi
n Þorbjörg Fjóla Sigurðardóttir
Selvogsgötu 24, Hafnarfirði
n Erna Reynisdóttir Ásakór 1, Kópavogi
n Rúnar Hans Steinsen Suðurgötu 52, Hafnarfirði
n Þórunn Sigríður Hjálmarsdóttir
Smárahlíð 14h, Akureyri
70 ára
n Gylfi A Pálsson Tjarnargötu 10, Reykjanesbæ
n Aðalbjörg Jónsdóttir Bylgjubyggð 16, Ólafsfirði
n Ólafur Ólafsson Sólvöllum 9, Selfossi
n Anna Petersen Faxabraut 36d, Reykjanesbæ
n Halldór Bárðarson Fífumóa 1c, Reykjanesbæ
75 ára
n Guðmundur Sólbjörn Gíslason
Jötunsölum 2, Kópavogi
n Bjarni Erasmusson Sólvallagötu 45, Reykjavík
n Edda Sigurbjörg Þorvaldsdóttir
Grandavegi 45, Reykjavík
n Rósa Karlsdóttir Hjarðarhaga 11, Reykjavík
n Örlygur Ingólfsson Múlasíðu 38, Akureyri
80 ára
n Erla Vigdís Karlsdóttir Álfheimum 38, Reykjavík
85 ára
n Sigurður B Blöndal Kvíakletti, Egilsstöðum
n Kristjana Hólmgeirsdóttir
Tjarnarlundi 12f, Akureyri
n Gunnar Knútur Valdimarsson
Dalbraut 42, Bíldudal
n Ásta S Magnúsdóttir Hraunvangi 3, Hafnarfirði
90 ára
n Þormóður Sigurgeirsson Holtabraut 4, Blönduósi
til
hamingju
með
afmælið!
Sæmundur Stein-
dór Magnússon.
Afmælisbarnið ásamt
eiginkonunni, Guðrúnu
Katrínu.