Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.2009, Blaðsíða 22
22 mánudagur 2. nóvember 2009 fréttir
Sýklar eru örverur sem eiga það eitt sameiginlegt að valda sjúkdómum. Allt í kringum okkur eru sýklar
sem geta beinlínis reynst skaðlegir heilsunni. Gróðrarstíur fyrir sýkla geta leynst á bestu heimilum.
Þær geta leynst í eldhúsinu, svefnherberginu, á fartölvunni eða jafnvel í sturtunni, svo dæmi séu tekin.
Hér má sjá lista yfir algenga staði á heimilum þar sem sýklar geta grasserað og ráð við því hvernig
fækka má þessum vágestum í umhverfi okkar.
1. Eldhús-
svampurinn
Rannsóknir
hafa leitt í ljós
að í einum
svampi geta
leynst um 20
milljónir örvera eða
sýkla. Jafnvel þótt þú
þrífir hann með vatni og bleikiefnum
getur svampurinn verið fullur af
sýklum og bakteríum sem gætu leitt
til veikinda þeirra sem nota svampinn.
Sérfræðingar við Rannsóknarmiðstöð
landbúnaðarins í Bandaríkjunum hafa
komist að því að bleikiefni, sítrónusafi
eða vatn eyða sýklunum ekki.
lausn: Besta leiðin til að þrífa svamp-
inn, að mati sérfræðinganna, er að setja
hann í örbylgjuofn á hæsta styrk í eina
mínútu og svo í uppþvottavélina. Sú
meðferð drepur 99,9 prósent sýklanna.
2. rúmið
Rykmaurar eru
sníkjudýr sem
valda sýkingum í
mönnum. Algengt
er að í einu grammi
af ryki séu 100 til
500 rykmaurar en þeir
geta verið allt að 20 þúsund. Í einu
rúmi geta þeir skipt hundruðum
þúsunda. Samkvæmt Vísindavefnum
leiða rannsóknir í ljós að ofnæmi
fyrir rykmaurum er algengt og meðal
sjúklinga með ofnæmi er það mjög
algengt. Í breskri rannsókn kom í ljós
að 10 prósent fólks, almennt, og 90
prósent sjúklinga með ofnæmisastma
höfðu rykmauraofnæmi.
lausn: Rykmaurar þrífast vel í gólf-
teppum en illa á dúkum og trégólfum.
Gólfteppi ættu aldrei að vera í svefn-
herbergjum og ef fólk vill endilega hafa
teppi annars staðar, ætti að velja teppi
með stuttum hárum. Þá lifa rykmaurar
síður ef rakastig er minna
en 50 prósent.
3. Fartölvan
Rannsókn á
vegum North
Carolina-háskólans
hefur leitt í ljós að
lyklaborð eru gróðrar- stía
sýkla, jafnvel þótt þú einn notir tölv-
una. Ef þú færð klígju við tilhugsunina
ættirðu ekki að lesa næstu setningu.
Á hverjum fersentimetra í venjulegri
klósettskál má að jafnaði finna 16 sýkla
en á venjulegu lyklaborði er fjöldinn
8.300! Ástæðan er sú að klósettskálar
eru yfirleitt þrifnar reglulega en
lyklaborðin mun sjaldnar.
lausn: Hún er einföld. Strjúktu
reglulega yfir fartölvuna þína með
sótthreinsandi efnum.
4. sturtuhEngið
Rannsóknir Jafnréttis- og umhverf-
isverndarstofnunar Bandaríkjanna
benda til þess að sturtuhengi sem
eru gerð úr
plastefninu
pólývinylklór-
íði (PVC) geti
verið skaðleg
heilsunni. Þau
eru sögð geta
leyst skaðleg efni
úr læðingi, sem dreifast
um baðherbergið. Ágreiningur er uppi
um hve mikið þurfi af efninu til að
skaða heilsu fólks.
lausn: Athugaðu hvort þú sjáir upplýs-
ingar um efnisinnihald sturtuhengisins.
PVC er til dæmis á bannlista hjá IKEA.
Íhugaðu að kaupa nýtt hengi ef
sturtuhengið inniheldur efnið.
5. Þvottur-
inn
Þar sem
þvottavélar
hafa það
hlutverk að
þrífa fötin líta
fáir á vélarnar sem
gróðrarstíu fyrir sýkla. Ef
þú þværð þvottinn iðulega við lágt
hitastig, eða ef þú deilir þvottavél
með öðrum, ættirðu að hafa í huga að
lágt hitastig leiðir til þess að sýklarnir
dreifast. Sérfræðingar við Arizona-
háskóla fullyrða að sýklar sem geti
meðal annars leitt til lifrarbólgu, geti
næsta auðveldlega borist úr nærfötum
í annan fatnað þegar þvegið er við lágt
hitastig.
lausn: Þvoðu nærföt og handklæði
sitt í hvoru lagi. Þvoðu handklæðin
reglulega við mikinn hita. Við 68 gráður
drepast flestir sýklar.
6. rakatækið
Á sumum heimil-
um og vinnustöð-
um eru rakatæki
sem blása út gufu.
Ef tækið er ekki
hreinsað reglulega
geta þar safnast
ógrynnin öll af sýklum
sem kunna að valda öndunarörðug-
leikum.
lausn: Þvoðu tækið reglulega, helst oft
í hverri viku. Notaðu bleikiefni og láttu
standa í tækinu áður en það er skrúbbað
og skolað.
7. hurðar-
húnninn
Á stórum heimil-
um, þar sem
umgangur er
mikill, vilja sýklar
safnast saman á
hurðarhúnum; sérstak- lega
á útidyrahurðinni. Reyndu að ímynda
þér alla hlutina sem fjölskyldumeðlimir
og aðrir gestir hafa komist í tæri við
yfir daginn. Óteljandi sýklar geta
safnast saman á hurðarhúnum. Þar
geta þeir lifað dögum saman.
lausn: Þurrkaðu reglulega af hurð-
arhúnum heimilisins með klútum eða
þurrkum sem innihalda sýkladrepandi
efni. Hurðarhúnar úr kopar safna mun
síður sýklum.
8. salt- og
piparstaukar
Hvenær þreifstu
síðast saltstauk-
inn sem stendur
á eldhúsborðinu
allt árið? Einmitt.
Þessir litlu hlutir eru
snertir nánast á hverjum einasta degi
sem eldað er. Hefurðu einhvern tíma
saltað sósuna eftir að hafa snert hráan
kjúkling? Settirðu síðan saltið á sinn
stað aftur? Á þennan hátt geturðu
orðið fyrir matareitrun.
lausn: Þvoðu þér reglulega um
hendurnar við matseldina og þrífðu
staukana með sótthreinsandi efnum
endrum og eins.
9. Blautt
handklæði
makans
Að nota sama
handklæði og
makinn getur
verið gott fyrir
umhverfið en slæmt
fyrir heilsuna. Blaut handklæði
geta valdið ýmiss konar sýkingum
vegna húðflaga sem sitja eftir í
handklæðum eftir notkun.
lausn: Þvoið handklæðin eftir hverja
notkun og ekki deila þeim með öðrum.
10. matur og
Eldhúsáhöld
Sýklar geta borist
á milli matvæla
með snertingu
sýklamengaðra
matvæla við hrein
matvæli eða með
höndum, hönskum
eða áhöldum sem snert hafa meng-
aðan mat. Kjöti, sérstaklega af svíni og
kjúklingi, skal haldið frá ferskvöru eins
og grænmeti. Varhugavert getur verið
að nota sama hníf eða skurðarbretti
við hráa vöru og ferskvöru. Slíkt getur
leitt til alvarlegra matarsýkinga.
lausn: Þvoið hendur og eldhúsáhöld
vandlega eftir vinnu með hrátt kjöt.
Hyljið sár með vatnsheldum plástri eða
notið vatnshelda hanska. Þar sem sýklar
geta borist úr nefi, munnholi, þörmum
manna og dýra er nauðsynlegt að þvo
sér alltaf um hendur áður en matur er
meðhöndlaður.
Lauslega byggt á grein eftir blaðakon-
una Söruh Jio. baldur@dv.is
Tíu hæTTur
heimilisins