Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.2009, Page 24
RagnaR og HjálmaR töpuðu af gullinu IFK Gautaborg tókst ekki að end-
urheimta meistaratitilinn í Svíþjóð sem það vann fyrir tveimur árum en liðið tapaði í gær úr-
slitaleik um titilinn, 2-1, fyrir AIK á heimavelli. Ragnar Sigurðsson, Hjálmar Jónsson og Theodór
Elmar Bjarnason voru allir í byrjunarliði Gautaborgar að vanda og léku saman í miðverðinum.
AIK hafði þriggja stiga forystu á Gautaborg fyrir leikinn en markatala Ragnars og félaga var
mun betri. Hefði sigur á heimavelli því dugað til meistaratignar. Það blés líka byrlega þeg-
ar Gautaborg komst yfir í fyrri hálfleik en AIK-menn jöfnuðu í þeim síðari. Það dugði því
til meistaratitilsins en mark á 86. mínútu gerði endanlega út um leikinn. IFK Gautaborg
endar því í öðru sæti með þrjá Íslendinga innanborðs.
Cleveland Cavaliers vann um helg-
ina sinn annan leik í röð í NBA-deild-
inni þegar liðið lagði Charlotte Bob-
cats, 90-79. Áður hafði Cleveland
rúllað yfir Minnesota Timberwolves,
104-87. Er Cleveland því komið á sig-
urbraut eftir að tapa fyrstu tveimur
leikjunum. Gegn Boston, 95-89, og
gegn Toronto Raptors, 101-89, sem
þótti koma á óvart. Cleveland er
enn að læra að spila með Shaquille
O’Neal en liðið þótti mun hægara í
fyrstu leikjunum heldur en vanalega
og auðveldara að spila gegn því.
Shaq er allur að komast í form og
í sigrinum á Bobcats um helgina var
sókn Cleveland eins og smurð vél.
Lék hún einna best þegar Shaq var
inni á sem er nákvæmlega það sem
þjálfari liðsins, Mike Brown, horfði
til þegar hann fékk þennan mikla
sigurvegara til liðsins.
„Leikmennirnir eru svona farn-
ir að þekkja það að spila með Shaq.
Hann hjálpaði mikil til í sókninni
með mörgum góðum hreyfingum.
Hann er náttúrlega leikmaður sem
hitt liðið verður að tvídekka. Það er
líka það sem við horfðum til að hann
gæti nýst í. Það sem ég verð að gera
núna er að halda áfram að spila á
honum, og það mikið þannig hann
hlaupi sig í gott form,“ segir þjálfari
Cleveland, Mike Brown, sem hrósaði
tröllinu einnig fyrir varnarleikinn.
„Gegn Minnesota sást algjörlega
það sem hann getur gert okkur kleift
að gera varnarlega. Hann varðist frá-
bærlega gegn Al Jefferson sem við
höfðum í huga að tvídekka í leiknum.
En hann stóð sig svo vel gegn hon-
um að við þurftum ekki að tvídekka
Jefferson allan leikinn,“ segir Mike
Brown hæstánægður með Shaq sem
hefur á ferlinum unnið NBA-deild-
ina fjórum sinnum. Þrisvar með Los
Angeles Lakers og eitt skipti með Mi-
ami Heat.
Tveir sigrar hjá Cleveland eftir töp í fyrstu tveimur leikjunum:
SHaq alluR að koma til
24 mánudaguR 2. nóvember 2009 SpoRt
UmSJón: TómAS ÞóR ÞóRðARSon, tomas@dv.is
Lokakeppni Formúlunnar fór fram
í gær á hinni ótrúlegu braut í Abú
Dhabí þar sem ekkert hefur verið til
sparað. Þar hefst keppnin í dagsbirtu
en endar í flóðljósum en keppnin er
götukappakstur. Lewis Hamilton á
McLaren var fljótastur alla helgina
og var á ráspól en vélarbilun varð til
þess að hann kláraði ekki keppnina.
Þjóðverjinn ungi sem margir kalla
næsta Schumacher, Sebastian Vettel,
hafði sigur og gulltryggði þannig ann-
að sætið í heimsmeistarakeppninni.
Félagi hans á Red Bull, Mark Webber,
varð þriðji.
Bætir sig um sex sæti á ári
Sebastian Vettel var varaökumað-
ur hjá Sauber-liðinu 2007 og þurfti
að stíga inn í Ameríku-kappakstrin-
um þegar liðsfélagi hans meiddist illa
það árið. Hann endaði í áttunda sæti í
þeirri keppni, 19 ára og 349 daga gam-
all, og varð því yngsti maðurinn til að
skora stig í Formúlu 1. Honum var
skipt yfir til Toro Rosso mánuði síðar
þar sem hann nældi sér í nokkur stig
til viðbótar og endaði tímabilið í fjór-
tánda sæti.
Það var síðan í fyrra að Vettel sýndi
fyrst hvað hann gat. Tímabilið hófst
reyndar með því að hann náði ekki að
klára fyrstu fjórar keppnirnar og end-
aði sautjándi í þeirri fimmtu. En síð-
an fór hann að skora stig reglulega og
skaust upp á stjörnuhimininn með
sigri á Monza í fyrra. Hann endaði síð-
asta ár í 8. sæti, hafði bætt sig um sex
sæti og 29 stig. Í ár endaði hann svo
í öðru sæti en bætingin milli fyrstu
tveggja áranna eru sex sæti hvort ár
sem sýnir augljóslega hæfleika Þjóð-
verjans. Í ár vann hann fjórar keppn-
ir og komst átta sinnum á verðlauna-
pall.
Schumacher hefði
verið hættulegri
Nýkrýndur heimsmeistari í Formúlu
1, Jenson Button á Brawn, jós lofi á
Þjóðverjann unga en segir hann ým-
islegt eiga eftir ólært. „Ef Michael
Schumacher hefði verið á þessum
Red Bull-bíl hefði ég fengið meiri
keppni um heimsmeistaratitilinn,“
segir Button en Vettel er jafnan lýst
sem næsta Michael Schumacher sem
vann á sínum tíma sjö heimsmeist-
aratitla í Formúlunni.
„En hann er ungur ennþá,“ bætti
Button við sem átti metið yfir fyrir
yngsta mann sem skorað hafði stig í
Formúlunni áður en Vettel hirti það
met. „Þegar ég var 22 ára var ég ekki
næstum því eins góður og ég er núna.
Ég var ekkert endilega hægari en í dag
er ég snjallari og þetta sé ég svolítið í
Vettel. Hann gerði nóg af mistökum til
að hjálpa mér að vinna,“ segir Button
en bætir við að lokum: „Hann er samt
góður. Mjög góður miðað við hvað
hann er gamall.“
Vettel fyrstur
í ljósaskiptunum
Sebastian Vettel tryggði sér annað sætið í heimsmeistarakeppni ökuþóra með sigri á
hinni nýju og stórkostlegu braut í Abú Dhabí. Þar hefst keppnin í dagsbirtu en endar
að kvöldlagi í flóðljósum. Þjóðverjinn ungi hefur stórbætt sig á hverju ári og kemur
sterklega til greina sem heimsmeistari á næsta tímabili.
TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
n kEppni ökumanna
1. Jenson Button, Brawn - 95 stig
2. Sebastian Vettel, Red Bull - 84 stig
3. Rubens Barrichello, Brawn - 77 stig
4. mark Webber, Red Bull - 69.5 stig
5. Lewis Hamilton, mcLaren - 49 stig
6. Kimi Raikkonen, Ferrari - 48 stig
7. nico Rosberg, Williams - 34.5 stig
8. Jarno Trulli, Toyota - 32.5 stig
9. Fernando Alonso, Renault - 26 stig
10. Timo Glock, Toyota - 22 stig
n kEppni BÍlaSmiða
1. Brawn GP - 172 stig
2. Red Bull - 153.5 stig
3. mcLaren - 71 stig
4. Ferrari - 70 stig
5. Toyota - 59.5 stig
6. BmW - 36 stig
7. Williams - 34.5 stig
8. Renault - 26 stig
9. Force India - 13 stig
10. Toro Rosso - 8 stig
lokastaðan 2009
Ljósaskiptin Síðasta keppni
ársins fór fram á hinni glæsi-
legu nýju braut í Abú Dhabí.fRam áfRam
mEð Stæl
n Kvennalið Fram í hand-
boltanum komst áfram í sextán
liða úrslit áskorendabikars
Evrópu í gær
eftir annan
sigur á tyrk-
neska liðinu
Anadolu Uni-
versity. Báðir
leikirnir fóru
fram ytra en
Safamýrar-
stúlkur unnu
fyrri leikinn, 30-27, og þann
seinni í gær með tíu marka mun,
30-20. Sigurinn í gær var aldrei í
hættu en Fram-stúlkur voru yfir í
hálfleik, 18-11. Stórskyttan Stella
Sigurðardóttir var markahæst
Fram í gær með átta mörk en
fyrirliðinn Ásta Birna Gunnars-
dóttir skoraði fimm.
fERguSon EltiR
fRamHERja
n Samkvæmt frétt enska blaðsins
Sunday Times rennir sir Alex
Ferguson, knattspyrnustjóri
Manchester
United,
hýru auga til
úrúgvæska
framherjans
Luis Suarez
sem leikur
með Ajax í
Hollandi.
Ferguson
er sagður hafa fylgst náið með
framherjanum sem er orðinn
fyrirliði hollenska stórliðsins
aðeins 22 ára gamall. Suarez er
mikill markaskorari en hann
hefur skorað 54 mörk í 75 leikjum
í hollensku deildinni fyrir Ajax.
Hann getur bæði leikið sem
fremsti maður eða á kantinum.
Ronaldo Enginn
BjaRgvættuR
n Portúgalinn Cristiano
Ronaldo segir að hann einn
muni ekki bjarga neinu hjá Real
Madrid
þegar hann
snúi aftur úr
meiðslum
en hann
hefur verið
fjarverandi
í síðustu sex
leikjum hjá
liðinu. „Ég er
enginn bjargvættur. Ég er bara
leikmaður sem mun leggja mig
allan í leikinn, alltaf. Auðvitað
vonast ég samt til að þetta lagist,
og það vonandi áður en ég kem
aftur því við megum ekki við því
að tapa fleiri stigum eða leikjum,“
segir Ronaldo.
logi Í BEinni
n Einum af silfurdrengjunum
okkar, Loga Gunnarssyni, er
margt til lista lagt annað en
handbolti.
Logi er afar
fær gítarleik-
ari og spilar á
slíkan ásamt
því að syngja
í hljómsveit
sinni, Logi og
Lundarnir,
sem liðsfélagi
hans, Vignir Svavarsson, er
einnig í. Logi var á Íslandi í
vikunni og nýtti tækifærið á
laugardaginn til að munda
gítarinn. Spilaði hann „live“ fyrir
fólk á skemmtistaðnum Celtic
í miðbænum við annan mann.
Þótti Logi slá í gegn eins og hans
er nú von og vísa.
Molar
Shaq Eldist en
alltaf traustur.
MyNd AFP